Morgunblaðið - 25.03.2000, Síða 10

Morgunblaðið - 25.03.2000, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Fjórir dagar í verkfall verkafólks á landsbyggðinni Morgunblaðið/Golli Verkalýðsforingjar úr ýmsum áttum tóku tal saman í Ráðherrabústaðnum fyrr í mánuðinum þegar ríkisstjórn- in kynnti útspil sitt í skattamálum. Hér má m.a. sjá Guðmund Gunnarsson, formann RSÍ, Guðmund Þ. Jónsson, formann Iðju, Halldór Björnsson, formann Eflingar og Hervar Gunnarsson, varaforseta ASÍ og einn af forystu- mönnum VMSÍ í yfirstandandi átökum. Atök á mörgum vígstöðvum Atök eru á mörgum vígstöðvum á vinnu- markaði þessa dagana. Innbyrðis deilur verkafólks verða sífellt alvarlegri og líklegt er að senn dragi til tíðinda - klofningur verði staðreynd. í grein Björns Inga Hrafnssonar er rýnt í stöðu mála og rætt við nokkra af þeim sem í eldlínunni standa. EFTIR fjóra daga skellur á verk- fall hjá verkafólki innan 26 lands- byggðarfélaga Verkamannasam- bands Islands, náist ekki samn- ingar við Samtök atvinnulífsins fyrir þann tíma. Deiluaðilar funda hjá Ríkissáttasemjara í dag og á morgun um stöðuna og hefur verið sett fréttabann á þær viðræður. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að vinna við samningagerð um öll sérmál sé vel á veg komin. Hið sama verður ekki sagt um launalið- inn, sem ekki hefur einu sinni ver- ið ræddur milli deiluaðila undan- farna daga - nema í fjölmiðlum. Af þeim umræðum að dæma er aug- ljóst að himinn og haf er milli að- ila. Sú undarlega staða er uppi að á sama tíma stendur yfir atkvæða- greiðsla hins svonefnda Flóa- bandalags stórra verkalýðsfélaga á höfuðborgarsvæðinu og í Keflavík um nýgerðan kjarasamning til þriggja ára við SA. Forystumenn Flóabandalagsins hafa lýst yfir mikilli ánægju sinni með þann samning, en forystumenn lands- byggðarfélaga innan VMSÍ hafa á hinn bóginn fundið honum flest til foráttu. Hefur Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vest- fjarða, gengið svo langt að hvetja verkafólk innan félaga Flóabanda- iagsins til að fella samninginn í at- kvæðagreiðslunni. Voveiflegt ef ekki nást samn- ingar, sagði forsætisráðherra Ríkisstjórnin kynnti aðgerðir sfnar í skattamálum eftir að ljóst var að samkomulag væri um meg- inatriði samnings SA og Flóa- bandalagsins fyrr í mánuðinum. Þá sagði forsætisráðherra að það væri voveiflegt ef ekki næðust samning- ar á landsbyggðinni. „Við getum ekki skipt okkur af þeim málum, en hins vegar sér hver maður í hendi sér að ef það er vinnufriður hér á suðvesturhorn- inu, en vinnuófriður úti á landi, mun samkeppnisstaða fyrirtækj- anna hér á þessu svæði gagnvart fyrirtækjunum úti á landi stór- batna,“ sagði hann. „Landsbyggðin má nú ekki við því og auðvitað hljótum við öll að vona að það náist vinnufriður úti á landi líka,“ sagði Davíð. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir að engum vafa sé undir- orpið, að skelli á verkfall muni það hafa neikvæð áhrif á allt þjóðfélag- ið. „Vissulega yrði það alvarlegast á þeim stöðum sem verkfallið tek- ur til, en áhrifin myndu alls ekki takmarkast við þau svæði," segir hann. Ari tekur ýmiskonar fram- leiðsluiðnað sem dæmi: „Það liggur fyrir að vörur, sem fyrirtæki í þeim iðnaði framleiða, munu víkja úr hillunum fyrir innfluttum vörum og það er ekkert sjálfgefið að þær fái plássið aftur. Það hefur t.d. allt- af verið reynslan í verkföllum sem bitnað hafa á mjólkuriðnaðinum að þau hafa varanleg áhrif á neyslu framleiðsluvara í greininni." Hann bendir á að verkfall nú hafi áhrif á Mjólkurbú Flóamanna, en það sinni obbanum af mjólkur- þörf höfuðborgarsvæðisins. „Stöðv- ist framleiðsla þar er enginn vafi á að slíkt mun hafa neikvæð og var- anleg áhrif á íslenskan landbúnað,“ segir Ari. Mega ekki við áföllum Framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins segir deginum ljósara að mörg fyrirtæki á landsbyggð- inni megi alls ekki við áföllum. Hvað þá slíku áfalli sem vinnu- stöðvun í einhvern tíma væri. „Fyrirtæki standa almennt ekki betur en svo að þau mega illa við slíku áfalli sem rekstrarstöðvun og tap markaða myndi hafa í för með sér,“ segir hann og bendir á verk- fall Alþýðusambands Vestfjarða árið 1997 máli sínu til stuðnings. „Enginn vafi leikur á að það hefur haft áhrif á þróun atvinnulífs á Vestfjörðum. Eg trúi ekki að menn sem til þekkja vísi því á bug í al- vöru,“ segir Ari og spyr hvort ein- hver geti að sama skapi haldið því fram að væntanlegt verkfall muni ekki hafa alvarleg áhrif á norð- austurhorninu. Því hefur heyrst fleygt að atvinnurekendur gráti krókódílatárum yfir innbyrðis átökum verkalýðshreyfingarinnar, en Ari Edwald segir að ákjósan- legra væri fyrir SA að verkalýðs- hreyfingin gengi meira samstiga til leiks en raun ber vitni. „Þetta er hins vegar sá veruleiki sem við búum við og verðum að vinna úr. Það er að sjálfsögðu ekki okkar hlutverk að segja til um hvernig skipulagsmálum verka- lýðshreyfingarinnar skal háttað,“ segir hann. Til eru þeir sem segja að klofn- ingur landssambanda á borð við Verkamannasambandið sé aðeins tímanna tákn; aðstæður á suðvest- urhominu séu svo gjörólíkar þeim á landsbyggðinni að vart sé lengur grundvöllur fyrir sameiginlegri kröfugerð og hagsmunabaráttu. Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, sem er landssamband, kveðst reyndar ekki sammála þessu. Hann samdi í gær fyrir hönd RSI við atvinnurekendur, en dregur ekki dul á að aðstæður manna séu gjörólíkar í borginni annars vegar og á landsbyggðinni hins vegar. „Við hefðum verið búnir að skrifa undir þennan samning fyrir lifandis löngu ef við værum bara Reykjavíkurfélag," sagði hann eftir undirritun samningsins í gær, en um 40% þeirra rafiðnaðármanna sem samningurinn nær til eru á landsbyggðinni. Guðmundur benti á að á umliðn- um árum hefðu einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu notið launa- skriðs og fengið hækkanir í krafti samkeppni um vinnuafl. Fyrirtæki hafi ekki viljað missa starfsmenn yfir til samkeppnisaðila. Úti á landi sé slíku hins vegar ekki að heilsa. Innbyrðis átök innan raða verka- lýðsins eru ekki ný af nálinni, en víst er að aldrei hefur farið jafn- mikið fyrir þeim og nú. í yfir- lýsingu Flóabandalagsins sl. fimmtudag sagði enda að þær grófu íhlutanir sem sést hefðu á undanförnum dögum væru eins- dæmi í sögu verkalýðshreyfíngar- innar á seinni tímum. Halldór Björnsson, formaður Eflingar og talsmaður Flóabanda- lagsins í viðræðunum við SA, segir að ófremdarástand hafí ríkt um langt skeið og sumar yfirlýsingar forystumanna landsbyggðarfélag- anna séu „víðáttuvitlausar“, eins og hann orðar það. „Svo hatramm- ar deilur hafa ekki geisað innan verkalýðshreyfingarinnar síðan kratar og kommar tókust á um völdin snemma á öldinni," segir hann. Stjórn Eflingar - stéttarfélags hittist á fundi á fimmtudag til að ræða klofninginn sem kominn er upp innan VMSÍ, en Efling er stærsta félagið innan raða Verka- mannasambandsins. Halldór segir að á fundinum hafi komið í ljós gíf- urleg gremja yfir framkomu for- ystumanna verkalýðsfélaga á landsbyggðinni. „Það kom greinilega fram að stjórnarmenn telja að með þessum mönnum getum við ekki átt sam- leið. Það hefði ekki þurft mikið til að fá fram þá niðurstöðu, hefði verið eftir henni leitað, að kalla eftir atkvæðagreiðslu um úrsögn.“ Halldór bendir hins vegar á að slík úrsögn myndi hafa miklar af- leiðingar í för með sér, gífurlegar breytingar fyrir Verkamannasam- bandið og eins á því kerfi sem skapast hafi um Alþýðusamband Islands. „Það er hins vegar alveg á hreinu að við óbreytt ástand verð- ur ekki unað,“ segir Halldór. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, sem er eitt þriggja fé- laga sem mynda Flóabandalagið, segir ljóst af allri framkpmu lands- byggðarformanna VMSI að mikil átök séu framundan innan verka- lýðshreyfingarinnar. „Það eru þrír möguleikar í stöðunni," segir hann. „Við getum tekið slaginn í Verka- mannasambandinu; nýtt styrk okk- ar, tekið þar öll völd og hreinsað almennilega til, því ekki er vanþörf á. Annar möguleiki er að Flóa- bandalagsfélögin finni sér sama- stað hjá einhverju öðru landssam- bandi, t.d. Þjónustusambandinu, og þriðji möguleikinn er að breyting- ar verði gerðar á lögum ASÍ þann- ig að við getum slitið tengslin við VMSI en verið samt áfram innan raða Alþýðusambandsins." Kristján segir allt sitt fólk sammála um að við þetta ófremdarástand verði ekki búið miklu lengur. Þáttur Norðlendinga Nokkurt mark hefur sett á deil- una að formaður Verkamanna- sambandsins, Björn Grétar Sveins- son, hefur verið frá vegna veikinda. A meðan hefur meira borið á öðrum forystumönnum, eins og Aðalsteini Baldurssyni, for- manni Verkalýðsfélagsins á Húsa- vík. Aðalsteinn hefur skotist til- tölulega hratt upp á stjörnu- himininn innan verkalýðshreyf- ingarinnar; þykir fastur fyrir og mjög fylginn sér. A tiltölulega skömmum tíma hefur hann bætt við sig formennsku í fiskvinnslu- deild VMSÍ og formannsstóli Al- þýðusambands Norðurlands. Aðal- steinn þykir hafa verið nokkuð herskár í yfirlýsingum sínum og einhverjum hefur þótt þáttur hans minna á framgöngu Péturs Sig- urðssonar í verkfalli Vestfírðinga fyrir sjö árum og óneitanlega hefur þáttur Norðurlands verið nokkur í umræðunni að undanförnu. „Hann blæs mikið þessa dagana, það fer ekki framhjá neinum. Enda er hann úr Þingeyjarsýslunni,“ segir Kristján Gunnarsson um Að- alstein. Ari Edwald tekur undir að líklega sé Aðalsteinn manna her- skáastur af forystumönnum VMSÍ. En hvað segir Aðalsteinn sjálf- ur? „Þetta er bara ekki rétt. Það á alls ekki að persónugera mig í þessu. Við vinnum eftir samþykkt- um á formannafundum og þar er ég aðeins einn af tæplega 40 for- mönnum. Eg ræð ekki meiru en aðrir.“ Aðalsteinn segir að vissulega sé mikil samstaða meðal verkafólks á Norðurlandi, en það eigi líka við um Austurland og í raun hafi mikil samstaða einkennt framgöngu landsbyggðarfélaganna, allt frá því Flóabandalagið hafi sagt skilið við VMSÍ í samningamálunum. „Það þjappaði okkur mjög sam- an og nú byggjum við á sameigin- legum styrk.“ Aðalsteinn segir að vissulega sé djúpstæður ágreiningur innan raða Verkamannasambandsins, en menn ættu að setjast niður og reyna að ná einhverjum sáttum. Hann segir að átökin að undanförnu minni helst á sandkassaleik. „Fyrst og fremst snýst þetta um peninga og völd. Félög Flóabanda- lagsins eru svo stór miðað við mörg önnur félög að líklega finnst þeim sem peningarnir væru betur komnir í öðru en rekstri Verka- mannasambandsins - þeir þurfi ekki á sérfræðiþekkingu Verka- mannasambandsins að halda.“ Athygli vakti í gær er Aðalsteinn upplýsti í Morgunblaðinu að sím- inn hefði ekki stoppað hjá sér; at- vinnurekendur á landsbyggðinni óskuðu eftir viðræðum um sér- samninga, semdist ekki á annan hátt. Ari Edwald gefur ekki mikið fyrir þennan málflutning Aðal- steins. „Ég tel að það sé alveg úti- lokað að nokkurt alvörufyrirtæki á landsbyggðinni ráði við þessa kröfugerð," segir hann. „Ég veit ekki hvaða fyrirtæki á svæði Aðal- steins Baldurssonar, sem hefur margt fólk í vinnu á umræddum töxtum, gæti unnið úr þeim hækk- unum sem um yrði að ræða.“ Ari lýsir furðu sinni á því að Að- alsteinn komist upp með svona málflutning án þess að nefna neitt máli sínu til stuðnings. Aðalsteinn heldur hins vegar fast við fyrri yfirlýsingar. „Við komum saman, samninganefndin, í gær til að ræða óskir nokkurra fyrirtækja um viðræður," segir hann og nefnir að umrædd fyrir- tæki komi víðsvegar að af landinu; af Suðurlandi, Suðurnesjum, Snæ- fellsnesi og Norðurlandi. „Samtök atvinnulífsins vilja ginna okkur til að gefa upp nöfn þessara fyrir- tækja svo hægt sé að stoppa þau af. Þess vegna gef ég ekki upp nöfnin að svo stöddu. En þetta eru 10-20 alvörufyrirtæki. Innan og utan raða Samtaka atvinnulífsins," segir hann. Heildaráhrif kröfugerðarinnar Nokkuð hefur borið á gagnrýni í garð Verkamannasambandsins fyr- ir að leggja ekki saman heildar- áhrif kröfugerðar sinnar. Fyrir vikið sé erfitt að meta heildar- hækkunina sem sambandið fari fram á. Samtök atvinnulífsins hafa lagt saman dæmi úr einstökum greinum og fengið út hækkanir upp á tugi prósenta. Úm þetta segir Aðalsteinn Bald- ursson að prósentur segi ekki alla söguna. Hann segir það kröfu verkafólks á íslandi að heldur verði tekinn út krónutöluútreikn- ingm-. „Það er lélegur áróður að segja okkur krefjast 40% hækkun- ar. Vissulega erum við með metn- aðarfullar kröfur og þær vega hátt í prósentum, en spurningin er ura samhengið. Verkafólk munar miklu meira um 15 þúsund króna hækk- un en aðra sem miklu betur eru launaðir,“ segir hann. En væri ekki eðlilegt að leggja kröfugerðina saman? - Aðalsteinn er ekki á því. „Nei, það væri ekki eðlilegt og aðeins til að slíta málin úr stærra samhengi." Ari Edwald segir þetta hins veg- ar furðuleg vinnubrögð. „Þeir hafa allar aðstæður til að gera sér grein fyrir heildarniðurstöðum kröfu- gerðar sinnar. Því er með ólíkind- um að þeir lýsi því yfir að þeir hafi ekki lagt saman kröfurnar og ætli ekki að gera það. Þar með eru þeir að segja að þeir kæri sig kollótta um efnahagslegar niðurstöður sinna eigin krafna," segir Ari.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.