Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Biskup hvetur íslenskar fjölskyldur til að leysa indversk þrælabörn úr skuldaánauð Getum breytt lífi fj öl- skyldna á Indlandi BISKUP íslands hvetur hvert heimili á Islandi til þess að leysa eitt þrælabarn á Indlandi úr skuldaánauð, með því að gefa 5.000 krónur í söfnun sem Hjálp- arstarf kirkjunnar mun hleypa af stokkunum um páskana. „Það eru framin mörg mann- réttindabrot í heiminum en kannski þau alvarlegustu eru brot gegn börnum,“ sagði Karl Sigur- björnsson biskup. Biskup sagði að með 5.000 króna framlagi frá hverri fjöl- skyldu á Islandi væri hægt að for- ða um 100.000 börnum frá vinn- uþrælkun og kenna þeim að lesa og skrifa og fræða og styrkja for- eldra svo börnin lendi ekki aftur í sömu sporum. Mikil og skýr stétta- skipting er á Indlandi Mjög mikil og skýr stéttaskipt- ing er við lýði á Indlandi og eiga hinir stéttlausu eða dalítarnir mjög undir högg að sækja í ind- versku samfélagi. Þeir fá lítil sem engin laun og ef þeim aðeins skrikar fótur í lífinu, lenda í óvæntum lækniskostnaði eða ein- hverju slíku, getur það haft mjög afdrifaríkar afleiðingar fyrir margar fjölskyldur. Foreldrar hafa neyðst til að leysa fjölskyldu- vandann með því selja börnin sín í ánauð þar sem þau vinna í verksmiðjum upp í skuldir for- eldranna. Jónas Þórisson, framkvæmda- stjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, sagði að stéttaskiptingin á Ind- landi væri greypt mjög djúpt í vit- und þegnanna og að þjóðfélags- staða dalíta væri einkar bág þótt stjórnarskrá landsins væri mjög lýðræðisleg. „Við breytum ekki Indlandi á nokkrum árum, en við getum breytt lífi fjölskyldna,“ sagði bisk- up og það hyggst Hjálparstarf kirkjunnar gera í samvinnu við indversku samtökin Social Action Movement (SAM) en þau einbeita sér að því að hjálpa fólki í borg- inni Kanchipuram, rétt hjá Madras á Suðaustur-Indlandi. Barist fyrir bættum lífs- kjörum hinna stéttlausu SAM-samtökin hafa frá árinu 1985 barist fyrir bættum kjörum og lífsgæðum hinna stéttlausu. Að sögn Jónasar hafa þessi samtök unnið mjög gott starf. Hann sagði að þau væru litil en mjög skilvirk, að þau dældu ekki bara peningum til fjölskyldnanna heldur krefðust þess að for- eldrarnir legðu eitthvað á sig til að bæta eigið líf og hjálpuðu þeim að vinna sig út. úr vandanum. Fyrir páska munu landsmönn- um berast gíróseðlar frá Hjálpar- starfi kirkjunnar að upphæð 5.000 krónur. Þeir sem vilja taka þátt í söfnuninni en vilja dreifa greiðsl- unum geta haft samband við Hjálparstarfið. Biskup sagði að þegar hefðu margir hringt fullir áhuga um verkefnið og margir hefðu þegar veitt því lið og að dæmi væru um að fólk hefði gefið frá 5.000 upp í 100.000 krónur. Söfnunin, sem hefst formlega um páskana, mun standa fram yf- ir Kristnihátíðina í sumar, en vegna mikilvægis þessa verkefnis hefur stofnanda og leiðtoga SAM- samtakanna, fóður Martin, verið boðið að vera sérstakur heiðurs- gestur á Þingvöllum. Hækkun á lyfjakostn aði sjuklinga óhjá- kvæmileg á árinu INGIBJÖRG Pálmadóttir heil- brigðisráðherra sagði við utandag- skrárumræðu um sparnað í lyfja- kostnaði hins opinbera, sem fram fór á Alþingi í fyrradag, að einhver hækkun á lyfjakostnaði sjúklinga væri óhjákvæmileg á árinu. Tryggt yrði hins vegar að hækkun á hlut elli- og örorkulífeyrisþegar yrði ekki meiri en sem næmi einu strætófargjaldi í Reykjavík. Sagði Ingibjörg vonir standa til þess að fyrirhugaður sparnaður upp á einn milljarð króna næðist á þessu ári. Það var Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingar, sem var málshefjandi utandagskrárumræð- unnar og sagði hún tilefnið þær upplýsingar sem heilbrigðisnefnd Alþingis hefði fengið um það að áætluð sparnaðaráform ríkisins í lyfjakostnaði, upp á rúman milljarð króna, sem átt hefðu að koma til framkvæmda á þessu ári, væru ekki líkleg til að standast nema til kæmi veruleg aukning á þátttöku neyt- enda í lyfjakostnaði. Bryndís sagði að við fjárlaga- vinnu fyrir jól hefði verið rætt um að undirstaða þess sparnaðar sem ná átti á þessu ári fælist í kerfis- breytingu sem gerði mögulegt að flytja greiðsluþátttöku ríkisins frá einstaklingum sem að jafnaði not- uðu lítið lyf, yfir til einstaklinga eða sjúklinga sem raunverulega þyrftu á meiri og dýrari lyfjum að halda. „í sjálfu sér er ég mjög fylgjandi því að gera kerfisbreytingar í þess- um efnum, þar sem kerfið sem við búum við í dag er greinilega full- komlega úr sér gengið,“ sagði Bryndís. „Það sem vekur furðu snýr hins vegar að bjartsýninni sem hefur hrjáð stjórnvöld hér í desem- ber þegar stóð til að koma breyt- ingunni á innan ársins. Þær áætlan- ir hafa verið fullkomlega óraunsæjar." Sagði Bryndís að eftir því sem lengra liði á árið virtist fátt annað til ráða en að auka verulega kostnaðarhlutdeild sjúklinga, ætti að ná þessum sparnaði fram. Bryndís lagði fimm spurningar þessu tengdar fyrir Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra. Sagði Ingibjörg í svari sínu m.a. að reglugerðarbreyting sú sem gerð var á greiðsluþátttöku almennings í lyfjakostnaði um síðustu áramót ætti að draga úr útgjöldum ríkisins sem næmi 320 millj. kr. Við breyt- inguna hefði verið haft að leiðarljósi að hlífa elli- og örorkulífeyrisþeg- um og hlutur þessara hópa hækkaði aldrei um meira en eitt hundrað krónur. Ingibjörg rakti síðan þær að- gerðir sem fyrirhugaðar væru til að ná fram áðurnefndum sparnaði en m.a. hefur Tryggingastofnun óskað eftir því við lyfjaverðsnefnd að verðlagning lyfja verði endurskoð- uð. Einnig sagði ráðherra að unnið væri að endurskoðun á reglugerð um greiðsluþátttöku sjúklinga, gert væri ráð fyrir að sérstök nefnd ákvæði framvegis hve mikið al- mannatryggingar greiddu í nýjum, dýrum lyfjum, unnið væri að sam- eiginlegum aðgerðum á norrænum vettvangi til að stemma stigu við sölumennsku lyfjafyrirtækja, rek- inn yrði harðari áróður til að fá lækna til að nýta sér lyfjaval og loks yrði upplýsingastarf landlækn- is og Tryggingastofnunar gagnvart þeim sem skrifa lyfjaávísanir stór- aukið. Ingibjörg sagði að samtals væri hér verið að tala um margþættar aðgerðir sem skila ættu um eitt þúsund milljónum króna í sparnað. „Ég vonast fastlega til að það markmið náist,“ sagði hún. Síðan sagði ráðherrann: „Hlutur þeirra sem nota lyf mun ekki aukast veru- lega á árinu, eins og fullyrt er í spurningunni, en hlutur þeirra mun hins vegar aukast, það liggur alveg fyrir. Það er óumflýjanlegt að fara aftur svipaða leið og um síðastliðin áramót, en þá munum við aftur sjá til þess eins og gert var um ára- mótin, að hækkun elli- og örorkulíf- eyrisþega verður ekki nema sem svarar einu strætófargjaldi í Reykjavík.“ Fjöldi þingmanna tók þátt í ut- andagskrárumræðunni og m.a. lögðu þeir Jón Kristjánsson, þing- maður Framsóknarflokks og for- maður fjárlaganefndar Alþingis, og Einar Oddur Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks og vara- formaður nefndarinnar, áherslu á að ná þyrfti markmiðum fjárlaga um eins milljarðs sparnað í lyfja- kostnaði. Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingar, sagði áð- ur hafa verið stefnt að sparnaði í lyfjakostnaði hins opinbera en mis- tekist hrapallega og svo virtist sem stjórnvöld hefðu einfaldlega enga stjórn á þessu málaflokki. Ógmund- ur Jónasson, þingmaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs, vísaði hins vegar í orð Einars Odds og varpaði fram þeirri spurningu til fjármálaráðherra hvort þessum markmiðum ætti að ná með öllum tiltækum ráðum, þ.e. að ef kerfis- breytingar skiluðu ekki tilætluðum árangri hvort sjúklingar borguðu þá brúsann. Bryndís Hlöðversdóttir sagði í seinni ræðu sinni að svör heilbrigð- isráðherra sýndu að sparnaðar- áformin í fjárlögum hefðu verið full- komlega óraunhæf og Ijóst að þessi sparnaður myndi lenda á neytend- um. Ingibjörg benti hins vegar á að það væri misskilningur að kerfis- breytingin hefði ein átt að skila um- ræddum sparnaði heldur hefði ver- ið um fjölþættar aðgerðir að ræða. Lagði hún áherslu á að lyfjaverð væri 26% hærra hér á landi en í nágrannalöndunum og vinna yrði að því að lækka það hlutfall. í einu athvarfanna, sem SAM-samtökin hafa sett upp á Indlandi. Þar gefst þrælabörnum tækifæri til að leika sér og vera börn. Þar læra þau einnig að lesa og skrifa og um réttindi sín og kjör. Úr verðskrám símafyrirtækjanna: Símtöl til útlanda Land sem hringt er til Landssími íslands- Frjáls íslands sími fjarskipti 3,32 kr/símtal 3,15 kr/símt. Ekkert Dag- Kvöld- og Einungis Einungis taxti, næturtaxti einn taxti einn taxti kr/mín. kr/mín. kr/mín. kr/mín. 30,00 27,00 18,90 17,00 31,00 28,00 18,90 17,00 31,00 28,00 18,90 17,00 36,00 33,00 18,90 17,00 36,00 33,00 18,90 17,00 36,00 33,00 18,90 17,00 30,00 27,00 18,90 17,00 53,00 48,00 18,90 17,00 50,00 45,00 18,90 17,00 36,00 33,00 18,90 17,00 42,00 38,00 18,90 17,00 53,00 48,00 40,00 40,00 50,00 45,00 40,00 40,00 53,00 48,00 40,00 40,00 69,00 63,00 89,90 55,00 / 35,00 53,00 48,00 40,00 40,00 50,00 45,00 40,00 40,00 66,00 60,00 49,90 50,00 60,00 54,00 49,90 50,00 66,00 60,00 49,90 50,00 60,00 54,00 40,00 40,00 69,00 63,00 40,00 40,00 60,00 54,00 40,00 40,00 69,00 63,00 49,90 50,00 98,00 89,00 89,90 90,00 35,00 32,00 18,90 17,00 35,00 32,00 18,90 17,00 96,00 87,00 59,90 70,00 124,00 113,00 89,90 90,00 60,00 54,00 45,00 45,00 124,00 113,00 89,90 90,00 96,00 87,00 59,90 70,00 69,00 63,00 45,00 45,00 69,00 63,00 49,90 50,00 149,00 136,00 69,90 70,00 124,00 113,00 89,90 90,00 124,00 113,00 89,90 90,00 66,00 60,00 45,00 45,00 60,00 54,00 18,90 17,00 124,00 113,00 89,90 90,00 66,00 60,00 45,00 35,00 58,00 52,00 18,90 23,00 60,00 54,00 45,00 45,00 154,00 140,00 99,90 115,00 Danmörk, Noregur, Svíþjóð Færeyjar, Finnland Bretland írland Belgía, Holland, Lúxemborg Frakkland Þýskaland Austurríki, Sviss Portúgal Spánn ítalfa Pólland Eistland, Lettland Litháen Rússland / Moskva Tékkland Ungverjaland Rúmenía Búlgarfa Slóvenía Króatfa Kýpur Grikkland Tyrkland Armenfa ^ Bandaríkin Kanada Mexfkó Argentína Brasilía Chile Venesúela Suður-Afríka Marokkó Egyptaland Kenýa Indland Tailand Hong Kong Kfna Japan Ástralfa Nýja-Sjáland Fidjieyjar Verðlækkun Frjálsra fjarskipta NY verðskrá tekur gildi hjá Frjáls- um fjarskiptum hf. á mánudaginn kemur, samkvæmt fréttatilkynningu sem Frjáls fjarskipti hafa sent frá sér. „Frjáls fjarskipti hf. höfðu ákveðið að lækka verð um næstu mánaðamót en með hliðsjón af mark- aðsaðstæðum er ákveðið að lækkun- in taki gildi næstkomandi mánudag," segir í fréttatilkynningunni. Hægt er að hringja til allra landa jarðarinnar, eða meira en 300 að tölu. Verðflokkunin er afar einföld; fimm verðsvæði eru sett upp og er sama verð í gildi allan sólarhringinn. Dæmi um verðsamanburð á Bandaríkjunum: Að jafnaði er ný verðskrá íslan- dssíma 15% hærri ef miðað er við 5 mínútna símtal. Dæmi er um að verð keppinauta sé tugum og hundruðum prósenta hæima," segh- þar ennfrem- ur. Fyrirtækið hefur jafnfram sent frá sér svohljóðandi verðsamanburð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.