Morgunblaðið - 25.03.2000, Page 26

Morgunblaðið - 25.03.2000, Page 26
26 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 ÚRVERINU Fimm íslensk skip á kol- munnaveiðum HÓLMABORG SU kom til Fá- skrúðsfjarðar í gær með um 1.700 tonn af kolmunna og Jón Kjartans- son SU landaði um 1.500 tonnum í Egersund í Noregi en þrjú íslensk ikip til viðbótar eru byrjuð á kol- munnaveiðum á miðunum suðvestur if Rockall, um 80 mílum vestan við irsku lögsöguna. Hoffell SU hóf vertíðina og hefur andað tvisvar á Fáskrúðsfirði, rúm- tega 1.000 tonnum í hvort sinn, og er núna í þriðja túrnum, en Asgrímur Halldórssón SF og Sunnuberg NS voru á miðunum í gær. Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri á Hólmaborginni, segir að mikið sé af kolmunna á svæðinu og hann hafi verið tvo sólarhringa að fylla skipið en heimsiglingin hafi tekið um 40 tíma. Hann segir að mörg skip, eink- um norsk og rússnesk, hafi verið á svæðinu og gera má því skóna að ís- lenskum skipum fjölgi bráðlega þar sem loðnuvertíðinni er sennilega lok- ið. Nú eru borgaðar 4.700 kr. fyrir tonnið af kolmunnanum og er það sambærilegt við verðið í Færeyjum og Noregi en þar fá skipin ódýrari ol- íu. Hins vegar taka Færeyingar að- eins á móti eigin skipum og nokkrum skoskum, anna ekki meiru eins og er, og sömu sögu er að segja frá löndun- arstöðum á írlandi, Skotlandi og Hjaltlandi. MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Morgunblaðið/Asdís Unnið við löndun á smokkfiski úr Snowmass við Holtabakka í gær. Um 3.000 tonnum af smokkfíski landað í Reykjavík UM 3.000 tonnum af smokkfiski hef- ur verið landað í Reykjavík síðan á mánudag úr flutningaskipinu Snowmass. Þetta er stærsti smokk- fiskfarmur sem hefur komið til ís- lands en til viðbótar fara um 1.000 tonn í geymslu í Hollandi og um 500 tonn þaðan til írlands, Englands, Noregs og Danmerkur. Sænska fyrirtækið Blue Ocean og veiðarfærasalan Dímon ehf. sjá sam- an um sölu smokkfisksins í Norður- Evrópu en Dímon er alfarið með söl- una á íslandi auk þess sem fyrirtæk- ið hefur selt smokkfisk til Bretlandseyja, Færeyja, Grænlands og Noregs. Að sögn Þorleifs Ólafssonar hjá Dímoni veiða einkum kóreskir sjó- menn smokkfiskinn á handfærabát- um á suðurheimsskautssvæðinu en flutningaskip safna aflanum sáman í grennd við Falklandseyjar. Flutn- ingaskipið Snowmass er um 5.000 tonn og var 40 daga á leiðinni til ís- lands með um 4.500 tonn af smokk- fiski. Afiinn er úr mörgum skipum og er afli úr hveiju skipi skoðaður sérstak- lega af norskum skoðunarmanni áð- ur en hann er samþykktur. Því tekur löndunin svona langan tíma. Smokkfiskurinn er notaður í beitu og fær Vísir í Grindavík stærsta hluta farmsins eða um 600 tonn af um 2.000 tonnum sem fara til íslenskra fyrirtækja. Þrettán til fjórtán gámar fara til Grænlands og fimm til sex til Færeyja. Þorleifur segir að gjald fyrir frystigeymslu í Hollandi sé miklu lægra en hér á landi og því verði 1.000 tonn geymd þar en þau verði flutt til Islands þegar líður á árið. ÞAÐ hefur lengi verið mat manna að án Davids Trimbles við stjómvölinn í Sambandsflokki Ulsters (UUP) yrði mun erfiðara en ella að ná því marki að tryggja varanlega lausn deilnanna á Norður-írlandi. Þykir því ljóst að fái hann slæma útreið í leiðtogakjör- inu í dag muni það setja verulegt strik í reikninginn, enda væru þá harðlínu- menn búnir að ná yfirhöndinni í flokknum, harðlínumenn sem vilja ekki heyra á það minnst að setjast í ríkisstjóm með lýðveldissinnum. Á hinn bóginn gæti það styrkt stöðu Trimbles, og um leið fiiðai-umleitana á Norður-írlandi, ef hann fær öfluga traustsyfiiiýsingu frá flokksmönnum sínum. Það hefur verið einn af akkillesar- hælum friðarferlisins á Norðui’-ír- landi undanfarin ár hversu mikil and- staða hefur verið innan UUP við stefnu Trimbles. Sú ákvörðun hans að skrifa undir Belfast-friðarsamkomu- lagið fyrir tveimur árum var umdeild í flokknum og óhætt er víst að segja hið sama um þá ákvörðun hans í desem- ber síðastliðnum að setjast í stjóm með fulltrúum Sinn Féin, enda höfðu sambandssinnar ávallt staðhæft að það myndi ekki gerast nema írski lýðveldisherinn (IRA) byijaði afvopn- unfyrst. Samþykkti flokkurinn einungis með 58% atkvæða þessa ákvörðun Trimbles og þá einungis með því skil- yrði að byijaði IRA ekki afvopnun innan tveggja mánaða þá yrði heim- astjómin aflögð á nýjan leik. Það varð illu heilli niðurstaðan fym í vetur enda lýðveldissinnar jafn tregir til mála- miðlana og sambandssinnar. Vonir hafa hins vegar staðið til þess að end- urreisa mætti heimastjómina og hafa þeir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og írskur starfsbróðir hans, Bertie Ahem, að mörgu leyti byggt þær vonir á David Trimble. Orðrómur hafði verið á kreiki um að á miðstjómarfundi UUP í dag yrði gerð atlaga að Trimble, en jafnan var þá talið að þar yrði um einhvem af yngri liðsmönnum flokksins að ræða, sem settur yrði til höfuðs leiðtogan- um, með það í huga að einhver þunga- vigtarmannanna krýndi sig leiðtoga að Trimble föllnum. Ummæli Trimbl- es í Bandaríkjunum um síðustu helgi juku enn óánægjuna í UUP en þar gaf Trimble til kynna að hann gæti verið reiðubúinn til að reisa heimastjómina úr rústum með aðild Sinn Féin, ef IRA gæfi skýr loforð um hvenær af- vopnun gæti hafist. Frambjóðandinn enginn óreyndur hausaveiðari Framboð gegn Trimble er stað- reynd en mótframbjóðandinn er hins vegar ekki óreyndur hausaveiðari, eins og reiknað hafði verið með. Mart- yn Smyth hefur lengi verið í framlínu- sveit UUP, er einn af ellefu þing- mönnum á breska þinginu, og er jafnframt fyrrverandi leiðtogi Óran- íureglunnar áhrifamiklu. Hann var ennfremur einn af fjórum þingmönn- um UUP sem buðu sig fram í leið- togakjörinu 1995, eftir að Molyneaux lávarður dró sig í hlé, en Trimble bar þá sigur úr býtum. Reyndar fékk Smyth ekki nema 60 atkvæði í leiðtogakjörinu 1995 og það er ekki talið bæta sigurlíkur hans nú hversu seint hann lýsti yfir framboði. Margir hefðu einnig talið að hann væri fremur líklegur til að setjast senn í helgan stein, enda orðinn 68 ára gamall, en að hann færi að skora Trimble á hólm núna. héraðinu, segir Davíð Logi Sigurðsson, ekki síður en fyrir David Trimble pers- ónulega og raunar flokkinn sem heild. Reuters Martyn Srnyth er ósáttur við forystu Trimbles. Hitt er annað mál að framboð hans kristallar þá andstöðu sem er í flokknum við þann vilja Tiimbles að ganga til stjórnarsamstarfs ásamt Sinn Féin, án þess að afvopnun sé af- lokið. Sjálfur sagði Smyth á frétta- mannafundi í gær að hann gæti ekki unað því að Sinn Féin fengi að setjast í stjóm með UUP nema IRA afvopn- aðist. Það ættu ekki að vera „byssur bak við luktar dyr, engar byssur geymdar undir borði, engar byssur geymdai- uppi á borði“. Smyth fullyrðir að hann geti tryggt sér meirihluta atkvæða í leiðtogakjör- inu. Líklegra er þó að hann stefni að því að ná fylgi sem samsvarar þeim 42% miðstjómarmanna sem höfnuðu því í atkvæðagreiðslu i desember að setjast í stjóm með Sinn Féin. And- stæðingar Trimbles óttast reyndar að Smyth takist þetta ekki, og að mál- staður þeirra hljóti skaða af slakri út- komu hans. Takist honum hins vegar að tiyggja sér 35% fylgi eða meira era fréttaskýrendur á einu máli um að staða Trimbles sé erfið, jafnvel þótt hann muni sjálfsagt túlka slíkt sem áframhaldandi umboð. Ennfrem- ur veikir það stöðu Trimbles hversu þingflokkur UUP á breska þinginu er honum andsnúinn, en sex af tíu sam- starfsmönnum hans þar hafa þegar lýst yfir stuðningi við Smyth. Þeirra á meðal er Jeffrey Donaldson, sem lengi vel var álitinn krónprins Trimbl- es en hefur í seinni tíð verið í órólegu deildinni í flokknum. Afstaða Don- aldsons gæti skipt miklu máli en að sama skapi er ljóst að hann tekur tals- verða áhættu með því að lýsa yfir stuðningi við Smyth enda hefur hann þar með brennt allar biýr að baki sér. Trimble hefur þó enn nokkra áhrifamenn í stuðningsliði sínu, t.d. þingmennina Sir Reg Empey, Ken Maginnis og John Taylor, varaleið- toga flokksins, og stuðningur við hann meðal grasrótarinnar ætti að reynast nægjanlegur til að tryggja honum sigur. Spumingin er hins veg- ar hvort Smyth nær að gera honum afdrifaríka skráveifu. Túnabært uppgjör? Það myndi óneitanlega styrkja mjög friðarferlið á Norður-írlandi ef David Trimble tækist að vinna sann- færandi sigur á andstæðingi sínum. Slíkan sigur gæti hann túlkað sem stuðningsyfiriýsingu við þá stefnu sem hann hefur haft og til marks um að flestir vilji nú sambandssinnar láta reyna á raunverulegan friðarvilja lýð- veldissinna. Hljóti Trimble slæma kosningu er óvíst hvað gerist en hitt er víst að frið- arsamningurinn er fyrir bí í núver- andi mynd komist Smyth til valda og sjálfsagt myndu lýðveldissinnar einn- ig túlka sigur Smyths sem endanlega staðfestingu á því að sambandssinnar hafi ekki áhuga á sáttum. í öllu falli er ekki laust við að sú skoðun njóti nokk- urs fylgis að tími hafi verið til kominn að uppgjör færi fram í UUP en inn- byrðis deilur þar hafa alltof lengi staðið friðarumleitunum fyrir þrifum. Reuters David Trimble kveðst fullviss um að vinna sigur í leiðtogakjörinu. Uppgjör hjá sam- bandssinnum á Norður-Irlandi Trimble í vanda fái áskorandinn 35% eða meira Leiðtogakjörið sem fram fer hjá stærsta flokki sambandssinna á N-írlandi í dag gæti reynst afdrifaríkt fyrir friðarumleitanir í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.