Morgunblaðið - 25.03.2000, Page 43

Morgunblaðið - 25.03.2000, Page 43
42 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 43. STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BAUGUR BOÐAR ÁTAK VIÐNAM gegn verðbólgu var boðað á blaðamannafundi sem forráðamenn Baugs efndu til á fimmtudag. Þar var því lýst yfir að gripið yrði til margvíslegra aðgerða í því skyni að lækka matvöruverð. Fyrirtækið hyggst auka eigin inn- flutning úr 7% í 14% á næstu tólf mánuðum, hagræða í rekstri og ná hagstæðari samningum við framleiðendur. Jafnframt var því heitið að vöruverð myndi ekki hækka vegna aukinnar álagningar í verslunum fyrirtækisins næstu tvö árin. A fund- inum kom fram að með þessu væri verið að bregðast við um- ræðu í þjóðfélaginu og ásökunum um að fyrirtækið hefði hækkað vöruverð í landinu. Þetta er jákvætt skref og skynsamlegt af hálfu Baugs. Von- andi munu önnur fyrirtæki jafnt í smásölu, heildsölu sem framleiðslu bregðast við þessu framtaki með svipuðum hætti. í máli forráðamanna Baugs kom fram að þeim sárna ásakanir um að fyrirtækið haldi uppi verði í skjóli sterkrar stöðu sinn- ar. Á það ber hins vegar að líta að fyrirtæki er ræður yfir jafn- stórum hluta markaðarins og Baugur hlýtur óhjákvæmilega að þola það að vera undir stöðugri smásjá neytenda. Slíkt að- hald er nauðsynlegt og hollt. Á hinn bóginn getur Baugur öðl- ast traust neytenda með því að beita afli sínu til að knýja niður vöruverð í landinu. í framhaldi af þessari ákvörðun Baugs er hins vegar æski- legt og nauðsynlegt að kanna verðmyndun á matvöru ofan í kjölinn. Það hefur áreiðanlega vakið athygli hve lítill hluti inn- kaupa Baugs er beint frá útlöndum eða aðeins 7%. Af mál- flutningi talsmanna fyrirtækisins hefur mátt skilja, að stór- innkaup frá útlöndum án atbeina milliliða hér tryggi lægra vöruverð. Hvað veldur því, að stórmarkaður sem þessi hefur ekki náð lengra á þessu sviði? Og frá hverjum er keypt í út- löndum? Er hugsanlegt að það sé frá heildsölum þar en ekki beint frá framleiðendum? Varla skiptir máli hvort heildsalinn er íslenzkur eða útlendur ef um millilið er að ræða hvort eð er. Hvernig er verðmyndunin hjá birgjum Baugs og annarra stórmarkaða? Reynslan erlendis er sú, að stórmarkaðir gera margvíslegar kröfur til birgja sinna, jafnvel um að þeir greiði fyrir hillupláss og jafnvel fyrir endurnýjun á innréttingum. Að hve miklu leyti gera Baugur og aðrir stórmarkaðir kröfu til þess að birgjar taki þátt í kostnaði við markaðssetningu með ýmsum hætti? Ur því að Baugur hefur tekið þetta lofsverða frumkvæði í verðlagsmálum er ástæða til að gengið verði lengra og að verðmyndunin verði gagnsærri en hún er í dag. FARSÆLL FLUGREKSTUR ÞEGAR lesnar eru fréttir af áföllum flugfélaga og rannsóknum á atvikum, sem stundum henda, verður lesandanum ósjálf- rátt hugsað til þess hve stutt getur verið á milli feigs og ófeigs, komi eitthvað óvænt upp. Stundum gerist hið óvænta og þá er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig, hafa öryggismálin í lagi, því að á stundum eru það þau, sem skilja á milli. Ein slík frétt var á baksíðu Morgunblaðsins í gær, þar sem skýrt var frá niðurstöðu bandarískrar rannsóknarnefndar á því, þegar Flugleiðaþota komst í of mikla nánd við vöruflutningavél frá Air France á Kennedy-flugvelli við New York í júnímánuði síðastliðnum. í niðurstöðum nefndarinnar voru stjómendur Flug- leiðaþotunnar ekki með neinum hætti taldir ábyrgir fyrir þeim at- vikum, sem leiddu til þess hættuástands, sem var til rannsóknar. Samskipti flugmanna flutningaþotunnar og starfsmanna flug- tumsins vom hins vegar talin leiða til þeirrar hættulegu atburða- rásar sem raun varð á. Það er ekki lítils virði fyrir flugfélag eins og Flugleiðir að fá slíkan vitnisburð. Öryggi í farþegaflugi er íyrir öllu, jafnt fyrir farþega, flugliða sem flugfélögin. Þar má aldrei slaka á ýtrastu kröfum. Velgengni flugfélaga fer að sjálfsögðu mjög eftir því trausti, sem til þeirra er borið, og þar ráða öryggis- málin úrslitum. Þessu hafa forráðamenn og starfsmenn Flugleiða gert sér grein fyrir, enda hafa Flugleiðir fengið orð fyrir að vera meðal fremstu flugfélaga heims í öryggismálum og er það vel. Þjónustumiðstöð félagsins á Keflavíkurflugvelli er í senn sögð vönduð og fullkomin að öllum búnaði, sem m.a. hefur lýst sér í því, að þegar félagið hefur selt þotur sínar, hafa þær farið á góðu verði og era eftirsóttar af flugfélögum um heim allan. Sunnudaginn 5. marz síðastliðinn henti óhapp Boeing 737-far- þegaþotu frá bandaríska flugfélaginu Southwest Airlines með 137 farþega um borð. Þotan rarm út af flugbraut í Burbank í Kalifom- íu, lenti á bíl á fjölfórnum vegi, en svo vildi til að enginn slasaðist alvarlega. Þegar þotan stöðvaðist var hún hársbreidd frá Chevron-bensínstöð og þarf ekld að hafa uppi getgátur um afleið- ingar þess, ef hún hefði rannið örlitlu lengra. Southwest Airlines er einmitt eitt þeirra flugfélaga, sem hafa notið mikils trausts, vegna þess að þotur þess hafa ekki lent í slysum. Því skall þama hurð nærri hælum. Marg*ir alvar- lega slasaðir um borð Stórslys 1. Sæbjörg, Grandagarði 2. Öskjuhlíð (opið almenningi laugardagseftirmiðdag) Rústaverkefni 1. Saltvík 1, laugard. kl. 21.30 2. Saltvík 2, laugard. kl. 21.30 3. Saltvík3, laugard. kl. 21.30 4. Köllunarklettsvegur 5. Fangelsisgrunnur Tunguhálsi 6. Holræsi við Perluna 7. Steiniðjan Ártúnshöfða 8. Gamli Gufunesbærinn Almenn verkefni og sl 1. Rauðavatn 2. Elliðaárdalur 3. Laugarnestangi 4. Skeiðvöllur í Víðidal 5. Norðurgarðu Rvlkui 6. Laugardalur 7. Æfingasvæði SR í 8. Stíflur I Elliðaárdal 9. Elliðaárbrú v. Árbæjarsundlaug 10. Barn í rútuslysi, óstaðsett 11. Reykjavíkurhöfn 12. Brunnur í Öskjuhlíð 13. Sálræn skyndihjálp, óstaðsett 14. Á leið til Reykjavíkur, óstaðsett 15. Byggingasvæði í Borgartúni 16. Vinnusvæði Eimskips 17. Fjörgyn, Grafarvogi 18. Úlfarsfell 19. Dyravegur v. Nesjavallaveg 20. Geirsnef við Elliðaár 21. Laugarvegur 26 22. Skóglendi í Fossvogsdal 23. Bllslys við Rauðhóla 24. Hljómskálagarðurinn 25. Tvö börn týnd Tösjtjuhlíð 26. Grjótaþorp 27. Fossvogskirkjugarður 28. Nauthólsvík 29. Skíðalyfta í Breiðholti Tækjaverkefni 1. Vestan í Henglinum 2. Norðan Dyrdals 3. Botnsúlur 4. Norðan Dyrdals 5. Engidalur, bilaður vélsleði 6. Engidalur, útbúnaðarathugun 7. Hengill 8. Komast erfiða leið á bíl, óstaðsett 9. Mosfellsheiði vestan Hengils 10. Innstidalur 11. Mjóavatn á Mosfellsheiði 12. Borgarhólar 13. Mosfellsheiði, bilaður vélsleði 14. Maradalur 15. Mosfellsheiði 16. Félagabjörgun, óstaðsett 17. Nærri skíðasvæði í Bláfjöllum 18. Maradalur 19. Jósepsdalur 20. Skyndihjálp, óstaðsett 21. Gryfjur í Jósepsdal 22. Skálafell á Hellisheiði 23. Vélslaði bilaður, óstaðsett 24. Vífilsfeil, flugslys Fjallaverkefni 1. Búðarhamar í Esju 2. Grafarnes 3. Gullinbrú 4. Björgun í Sementsverksmiðju 5. Laugardalsvöllur 6. Hús Landsvirkjunar, Elliðaárdal 7. Elliðaárbrú 8. Klifursúlan Kringlunni (Opið almenningi) 9. Gryfjur í Öskjuhlíð 10. Tum Slökkviliðsins ©@® Önnur verkefni 1. Sæbjörg, Grandagarði' 2. Slökkvilið Reykjavikur, Turiguhálsi 3. Slökkvílíð Reykjavíkur, Skógarhlíð 4. Landhelgisgæslan, Reykjavíkurflugvelli 5. Kolkrabbirin1(rötún í Þingholtum —® @ 0 @ (D ® © ® © © ® © ® ® ® ® @ lega nístu hjartað. Þeir sem léku sjúklingana höfðu verið vandlega undirbúnir og farðaðir fyrir æfing- una, fengu nákvæm fyrirmæli um eðli áverka sinna og höguðu sér í samræmi við þá. Sjúklingana léku aðallega ungir skátar og var sannar- lega stórkostlegt að sjá metnaðinn sem þeir lögðu í vinnu sína. Margir sjúklingar voru skelfingu lostnir þar sem þeir lágu á meðan björgunar- menn veittu þeim aðstoð. Ekki ein- asta áttu björgunarmenn að búa um sár, spelka leggi og spenna kraga, um hálsa, heldur hlúa andlega að' skjólstæðingum sínum með því að hughreysta þá eins og þeim var lífs- ins mögulegt. Björgunarmenn urðu að vera vel undirbúnir andlega til að geta tekið á aðstæðunum sem biðu þeirra. Sumir minna slasaðir sem höfðu fótaferð gátu tekið upp á því að ráfa um í losti og í slíkum tilvik- um urðu björgunarmenn að vera viðbúnir því að aðskilja þá frá hin- um, sem voru verr farnir. Skipinu skipt upp í svæði Skipinu var skipt upp í nokkur svæði en hvert þeirra laut forstöðu hópstjóra, sem höfðu hver yfir að ráða um tug björgunarmanna. Hóp- stjórar gengu á milli sjúklinga hver á sínu svæði og færðu undirmönnum sínum skilaboð um forgangsröðun sjúklinga og deildu út hjálpartækj- um s.s. súrefnistækjum eftir efnum og aðstæðum. Sjúklingar voru því næst fluttir í greiningarstöð sem sett var upp í skipinu þar sem lækn- ar tóku á móti þeim og flokkuðu þá niður í nokkra hópa eftir eðli áverk- anna uns komið var að því að flytja þá frá borði. Ekkert Ijós var kveikt í skipinu á meðan björgunin fór fram en björg5 unarmenn, sem voru á milli 3-400 talsins, voru allir með höfuðljós á hjálmum sínum og í fullum herklæð- um að öðru leyti. Voru ófáir þeirra gyrtir klifurbelti með karabínurnar hangandi utan á sér og vígalega skæddir. Frekar verður fjallað um lands- æfinguna í máli og myndum í Morg^. unblaðinu á þriðjudag. Ein viðamesta björg- unaræfíng sem ís- lenskar björgunar- sveitir hafa staðið fyrir hófst í gærkvöld um borð í skólaskip- inu Sæbjörgu, sem var látið gegna hlut- verki skemmtiferða- skips. Örlygur Steinn Sigurjónsson brá sér á vettvang stórslyss sem sett var á svið um borð. ASTÆÐA er til að vekja at- hygli á því að almenningi er heimilt að fylgjast með nokkrum verkefnum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þannig má almenningur fylgjast með sigbjörgun úr klifursúlunni við verslunina Nanoq í Kringlunni í dag, laugardag. Björgunaræfing verður haldin á klukkustundarfresti frá klukkan 10 til 15 . Almenningur má einnig fylgjast með björgunaræfingu hundasveitar frá klukkan 13 til 15 í dag nálægt skíðasvæðinu í Bláfjöllum, þar sem æfð verður leit að fólki eftir snjó- flóð. Þá má almenningur fylgjast með flugslysaæfingu í Öskjuhlíð sem hefst klukkan 16 og stendur í 2 til 3 tíma í gömlu olíutönkunum í nágrenni keiluhallarinnar. Aðkoma að stórslysum Æfingin sem hér um ræðir er landsæfing Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem er fyrsta stóra björgunaræfingin sem fram fer í þéttbýli hérlendis. Um 750 manns taka þátt í henni að meðtöldum björgunarmönnum, sjúklingum, og skipuleggjendum. Verkefnin sem björgunarmenn þurfa að glíma við eru fjölbreytt, s.s. aðkoma að stór- slysum, rústabjörgun eftir jarð- skjálfta, fjallaverkefni, reykköfun, tækjaverkefni og fleira. Unnið var í gærkvöld, í alla nótt og haldið sleitulaust áfram eftir degi í dag. Þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins fóru niður að Reykjavíkurhöfn í gærkvöld til að fylgjast með aðgerðum björgunar- fólks á vettvangi „stórslyss“ um borð í „skemmtiferðaskipinu“ Sæbjörgu blasti við næsta óhugnan- leg sjón - svo raunverulegar voru aðstæður. Allt að eitthundrað far- þegar sem höfðu verið í skoðunar- ferð voru misslasaðir og sumir jafn- vel látnir víðsvegar um borð eftir eldsprengingu. Margir voru með al- varleg brunasár og hætta var á ammoníaksleka. Neðan úr skipinu bárust ótal örvæntingarfullar raddir sem hrópuðu á hjálp og sársauka- vein ósjálfbjarga sjúklinga bókstaf- Ætla mætti af þessari mynd að raunverulegt slys hefði átt sér stað. Vel þjálf- aðir björgunarmenn þurfa að geta mætt þjáningum skjólstæðinga sinna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Áverkaspjald sem allir sjúklingar fá segir til um hversu mikils forgangs þeir njóta í greiningarstöðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.