Morgunblaðið - 25.03.2000, Page 61

Morgunblaðið - 25.03.2000, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 6® FRÉTTIR hefur frést af nýjum áherslum í þess- um efnum. Það er auðvitað verkefni Landgræðslu ríkisins að stöðva eyð- ingu landsins okkar og auðvitað er takmörkun beitar eitt þeirra ráða sem þar á að beita. Hráskinnsleikur að málefnum landgræðslu og gróð- urverndar, eins og fram kemur í bú- vörusamningnum, er langt fyrir neð- an virðingu Landgræðslunnar að koma nálægt. Viðurkenning félagasamtaka á sviði umhverfísmála og náttúruverndar Tilnefningar óskast vegna * umhverfisverðlauna Rúsinan í pylsuendanum Ekki er lítil maktin þegai’ komið er að undirbúningi gæðastýringar- innar. Umsóknir um þátttöku í nám- skeiðahaldi á að fylla út með tilheyr- andi áherslum. Námskeiðin eiga að standa í tvo daga eða jafnvel lengur fyrir þá sem minna vita og svo eiga námskeiðin að vera grunnur að hóp- starfí. Eins gott að menn viti það líka að kennarar verða ekki valdir af verri endanum t.d. eru venjulegir bændaskólakennarar hvergi nefndir, þess vegna verður slíkt fólk að koma frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri. Svo verða þarna rannsóknarmenn og ráðunautar eru taldir brúklegir, að minnsta kosti er hægt að nota þá til snúninga. Svo á að meta reynsl- una og eftirlitið á að vera „virkt en ódýrt“. Enda forsjárhyggjan þekkt af ráðdeild. Svo verða menn að vita það og muna að á toppnum trónir Fram- kvæmdanefndin. Það skyldu að minnsta kosti venjulegir bændur hafa hugfast. Eg segi það rétt eins og mér finnst að þetta kjaftæði er mér óskiljan- legt. Ekki trúi ég að tilgangurinn með þessu sé að gera lítið úr sauð- fjárbændum, heldur sé hér enn eitt tilefnið til að koma yfirborðs- mennskunni á framfæri. Hver er tilgangurinn? Já, von er að spurt sé. Það hefur nefnilega flogið á milli manna að með þessari stjórnsýslu allri saman eigi að skilja á milli bænda eftir búm- ennsku. Um þessi efni segir einn áhrifamesti búnaðarþingsfulltrúinn, Guðmundur Lárusson, í ræðu á Bún- aðarþingi. „Imynd sauðfjárræktarinnar í huga almennings hefur verið mjög jákvæð í gegnum árin og verður að teljast ólíklegt að gæðastýringar- áformin breyti miklu um stöðu henn- ar á markaðnum. Hún mun hinsveg- ar hreinsa verulega til í hópi sauðfjárbænda og þannig verða færri bændur um hituna og eining- arnar stærri sem væri líklegra til árangurs." Síðan segir: „Samningur- inn gefur framsæknum bændum sóknarfæri og búskussarnir munu ekki getað lifað í umhverfi hans.“ Um sama efni kemst formaður Landsambands sauðfjárbænda þannig að orði: „Gæðastýringin mun ekki selja meira kindakjöt en hún kallar á naflaskoðun á rekstri bænda og þar með hagkvæmari rekstur." Þær skýringar sem koma hér fram í máli þessara áhrifamiklu bún- aðarþingsfulltrúa eru afar mikilvæg- ar. Þannig liggur fyrir að gæðastýr- ingunni er ekki ætlað að stækka markaðinn. Hennar hlutverk er hins vegar að fækka sauðfjárbændum þannig að „skussarnir" bregði búi. Þessi grundvallamiðurstaða í markmiðum samningsins verður rædd betur síðar. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Frábær þjónusta KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 * Sími 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/ NOKKUR umhverfis- og náttúm- verndarsamtök hafa tekið höndum saman um að heiðra einhvern ein- stakling fyrir einstakt framlag til náttúm- og umhverfisverndar- mála. Þetta er í annað sinn sem slík viðurkenning verður veitt, en á síð- asta ári stóðu Sól í Hvalfirði, Nátt- úruverndarsamtök íslands, Land- vemd, Náttúmverndarsamtök Austurlands, Fuglaverndarfélag íslands og Félag um verndun há- lendis Austurlands að því, að Guð- mundi Páli Ólafssyni náttúrufræð- ingi var veitt viðurkenning fyrir einstakt framlag til náttúmvernd- ar og fræðslu um náttúru íslands. Úthlutunarnefnd vegna viður- kenningarinnar skipa að þessu sinni þau Elín Pálmadóttir, blaða- maður, Guðrún Agnarsdóttir, læknir, og séra Gunnar Kristjáns- son, prófastur, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Stefnt er að því að viðurkenning- in verði afhent við hátíðlega athöfn á degi umhverfisins 25. apríl nk. Úthlutunarnefnd óskar eftir til- lögum um einstakling sem vegna verka sinna og athafna á undan- förnum áram er þess verðugur að hljóta þessa viðurkenningu. Tillög- ur skulu sendar skrifstofu Land*», verndar, Skólavörðustíg 25, 101 Reykjavík. bíll á viku furir kall YARIS Einstæð móðir úr Reykjavík vann draumabílinn sinn síðasta fimmtudag Dettur ÞÚ í lukkupottinn næst? hringdu aftur og aftur í AVENSIS Hjón af Kjalarnesi urðu fyrst til að hrósa happi í SímaLottóinu Við drögum út glæsilegan Toyota bíl í hverri viku! SímaLottóið er ótrúlega einfalt. Eitt símtal •ogþú ert með! Vinningarnir eru stórkostlegir. Hvorki meira né minna en bíll á viku! Hringdu í 907 2000 - auktu vinningslíkurnar með því að hringja oft! Þú gætir eignast draumabílinn - hringdu strax! SímaLottó DAS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.