Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 25.03.2000, Blaðsíða 64
^64 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 KIRKJUSTARF MORGUN BLAÐIÐ Laugameskirkja. Safnaðarstarf Kirkjaog hverfi í for- tíð og nútíð Á ÞVÍ vori sem brátt heilsar eru 50 ár liðin frá því er fyrstu fermingarbörn- in stóðu frammi fyrir nývígðu altari Laugameskirkju og játuðu trú sína á fermingardegi. Af því tilefni verður sérstök hátíðarguðsþjónusta haldin núna á sunnudaginn þann 26. mars kl. '11:00 þar sem fermingarböm vorsins 1950 eru sérstakir heiðursgestir. Ur þeirra hópi eru þeir sr. Bernharður Guðmundsson sem mun prédika og Jón Freyr Þórarinsson, skólastjóri Laugamesskóla, sem flytja mun upp- hafsbæn. Að sjálfsögðu verður sunnu- dagaskólinn á sínum stað eins og æt- íð, kór Laugameskirkju syngur undir stjóm Gunnars Gunnarssonar og sr. Bjami Karlsson þjónar við altarið. Að messu lokinni verður opnuð merk sögusýning í safnaðarheimili kirkjunnar sem hópur fólks hefur unnið ötullega að um hríð og ber yfir- skriftina „Kirkja og hverfi í fortíð og nútíð“. Þar munu kynslóðir sameinast í verki, því unglingar úr Laugalækj- arskóla sýna sögulegt efni sem þau hafa unnið undir leiðsögn kennara síns, írisar Guðmundsdóttur, auk þess sem hópur sögufróðra Laugar- nesbúa hefur safriað áhugaverðum myndum og munum undir forystu Guðfinnu Ragnarsdóttur þar sem sögu kirkju og hverfis em gerð skemmtileg skil. Má þar helst nefna gömlu altarisbríkina úr Laugamesk- irkju hinni fomu, sem varðveitt er á Þjóðminjasafni, gömlu altaristöfluna sem áður prýddi núverandi kirkju og einstakt líkan sem ekki hefur áður ‘borið fyrir almenningssjónir þar sem gefur að líta gamla Holdsveikraspíta- lann eins og hann stóð ásamt útihús- um á Laugamestanganum fyrr á öld- innL Er því rík ástæða til að hvetja allt sóknarfólk og aðra unnendur Laugar- neskirkju til kirkjugöngu á sunnu- daginn, en sýningin mun standa í þijárvikur. Olafur Proppé talar um skóla og kirkju Á FRÆÐSLUMORGNI í Hall- grímskirkju í fyrramáUð, sunnudag- ánn 26. mars, mun dr. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla íslands, flytja erindi sem nefnist: Kirkja og skóli á nýrri öld - samfylgd eða sundurlyndi. Á liðinni öld urðu meiri breytingar á almennri menntun á Islandi en nokkru sinni fyrr í sögunni. Um alda- mótín 1900 vora fjórar greinar skyldubundnar samkvæmt lögum, lestur, kristin fræði, skrift og reikn- ingur og skipuðu lestur og kristin fræði öndvegi, enda hafði kirkjan ann- ast um alþýðufræðslu í landinu öldum saman. Fram eftír 20. öldinni gegndu prestar námstjórahlutverki og önnuð- ust jafnframt víða kennslu í hinum nýja Alþýðuskóla sem stofnaður var með lögum 1907, þótt sérstök yfirvöld menntamála hefðu tekið við stjóm- inni. Kristin fræði hafa sífellt verið á undanhaldi eftir því sem námsgrein- um hefur fjölgað og formleg tengsl kirkju og skóla að mestu rofin eða hanga á bláþræði, þótt samstarf kirkju og skóla sé víða mikið og gott. Hver verður þróunin á nýrri öld? Fróðlegt verður að heyra rektor Kennaraháskólans velta því fyrir sér. Að erindinu loknu gefst stuttur tími tD fyrirspuma áður en messa og bama- starf hefst kl. 11 í umsjá séra Jóns Dalbú Hróbjartssonar. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni SUNNUDAGINN 26. mars kl. 21 verður æðraleysismessa í Dómkirkj- unni. Á dagskrá er reynslusaga úr baráttunni við áfengissýkina, sr. Karl V. Matthíasson flytur hugleiðingu og pr. Anna Sigríður Pálsdóttir leiðir fyr- irbæn. Anna Sigríður Helgadóttír syngur við undirleik Bræðrabandsins. Tæki um hvers virði við erum færi gefst á að koma fram til fyrirbænar. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson leiðir dagskrána. Á eftir verður kaffi á Loft- stofunni, Austurstrætí 20. Kristnitökuhátíð á Eskifírði KRISTNITÖKUHÁTÍÐ verður haldin á Eskifirði á morgun, sunnu- dag. Hefst hún með hátíðarmessu kl. 14 í nýbyggingu Kirkju- og menning- armiðstöðvar í Bleiksárgili. Byggingarframkvæmdir hafa stað- ið yfir frá því í sumar leið. Þar hefur Gísli Stefánsson farið fyrir af hálfu Byggðarholtsmanna og annarra verktaka. Síðustu hönd er verið að leggja á innréttingu kirkjuskips og senn lokið við forstofu, snyrtingar, fundaherbergi og eldhús. Eins og áð- ur hefur komið fram hefur sérstak- lega verið hugað að hljómburði húss- ins í allri hönnun og vísast að vel hafi til tekist. Á kristnitökuafmælishátíð sóknarinnar gefst fólki kostur á að fylgjast með framvindu byggingar. Sóknin mætir nýrri öld með nýjum og glæsilegum helgidómi, sem jafrxframt verður menningarhús Fjarðabyggð- ar. Eins og áður hefur fram komið er stefiit að vígslu byggingar þann 24. septembernk. Kirkjukórar í Fjarðabyggð annast og leiða söng ásamt hljómsveit og organistum. Hlóðfæraleikarar, nem- endur og kennarar sjá m.a. um undir- leik og einsöng. Sóknarprestar í Fjarðabyggð munu þjóna fyrir altari og sóknar- prestur prédika. Að athöfn lokinni verða kaffiveit- ingar í boði sóknamefndar ásamt til- heyrandi dagskrá. Settar verða upp sýningar í grunn- skóla Eskifjarðar er stendur opinn sunnudag 26. mars frá kl. 17-19. Gef- ur þar að líta sýnishom á handverki nemenda grunnskóla Eskifjarðar, gert í þemaviku um kristnitöku sl. haust. Þá er þar farandsýning, Kirkjur á Austurlandi, sett saman af Pétri Sörenssyni ljósmyndara að tilstuðlan afinælisneftidar á Austur- landi um 1000 ára kristnitöku á Austí urlandi. Síðast en ekki síst er mynda- sýning, ágrip af sögu Hólmasóknar, tilurð fríkirlgu og stofnun Eski- fjarðar- og Reyðarfjarðarsókna, myndir af prestum sem þjónað hafa frá miðri 19. öld. Síðasttalda sýningin er framlag menningamefndar Fjarðabyggðar til kristnihátíðar í prestakallinu og unnin í samstarfi við Hilmar Bjamason, safnvörð á Eskifirði, Minjavörð á Austurlandi, Guðnýju Zoega og Pétur Sörensson Ijósmyndara. Verður fólki gefinn kostur á því að njóta þeirrar sýningar a.m.k. fram eftír ári. Davíð Baldursson, sóknarprestur. Gospel-systur í Grensáskirkju Á MORGUN syngja Gospel-systur við guðsþjónustu í Grensáskirkju. Þann dag er boðunardagur Maríu, dagur sem tileinkaður er gleði yfir trúfesti Guðs og þökk fyrir trúm- ennsku þjóna hans. Gospel-systur flytja einmitt tónlist sem túlkar þá gleði og þökk á líflegan og einlægan hátt enda einkennist gospel-tónlist af ftjálslegri túlkun og tilfinningaríkri tjáningu. Stjómandi gospel-systra er Mar- grét J. Pálmadóttir og undirleikari Amhildur Valgarðsdóttir. Kirlgukór Grensáskirlgu tekur einnig þátt í guðsþjónustunni og organisti er Ámi Arinbjarnarson. Vörpum af okkur vetrardranga og snjóþyngslum og komum fagnandi til guðsþjónustu í Grensáskirkju! Kristnihátíð - lista- vika í Mýrdal HÁTÍÐAHÖLD í tilefni s£ 1000 ára afmæli kristnitökunnar á Islandi hefj- ast með hátíðarguðsþjónustu í Víkur- kirkju kl. 14:00 á morgun, sunnudag. Séra Haraldur M. Kristjánsson prófastur predikar og þjónar fyrir altari og kór Víkurkirkju syngur und- ir stjóm Krisztinu Szklenár organ- ista. Sigurður Skagfjörð Steingríms- son baritón syngur einsöng og Vigfús Þór Hróbjartsson, nemandi í Tón- skólanum í Mýrdal, leikur á trompet. Að guðsþjónustu lokinni er öllum viðstöddum boðið til kaffisamsætís í félagsheimilinu Leikskálum í Vík þar sem hátíðin með yfirskriftinni: „Kristni og menning - list í 1000 ár“ verður formlega sett. Skólakór Mýrdalshrepps flytur nokkur lög undir stjóm Önnu Bjömsdóttur og Sigurður Skagfjörð Steingrímsson einsöngvari syngur við undirleik Krisztínu Szklenár. Þá verður form- lega opnuð sýning á verkum nemenda Grunnskóla Mýrdalshrepps og Leik- skólans í Suður-Vík ásamt ljós- myndasýningu. Kristnihátíðin sem er samvinnu- verkeftii allra skólanna í hreppnum, kvenfélaganna, félags eldri borgara og allra sókna Víkurprestakalls stendur síðan óslitíð til 2. apríl nk. Frá mánudegi til föstudags verður starfrækt kaffihús í félagsheimilinu Leikskálum þar sem nemendur grunnskólans og tónskólans, félag eldri borgara og kvenfélögin í hreppnum sýna atriði sín sem tengj- ast kristnihátíðinni, samhliða því sem gestum og gangandi er boðið að skoða myndlistarsýningu og sýningu á Ijós- myndum Jónasar Erlendssonar í Fagradal. Mánudagskvöldið 27, mars flytur Sigrún Lilja Einarsdóttir er- indi í Víkurkirkju sem hún nefnir: Kristni í Mýrdal í 1000 ár. Bænastund verður í Víkurkirkju þriðjudaginn 28. mars kl. 18:00. Miðvikudagskvöldið 29. mars verður kvikmyndasýning í Vfkurskóla og föstudagskvöldið 31. mars unglingadansleikur í Leikskál- um þar sem sunnlenska hljómsveitin Á mótí sól leikur fyrir dansi. Laugardaginn 1. apríl verða síðan tónleikar og kvöldvaka í Leikskálum á vegum Kórs Víkurkirkju. Þá koma í heimsókn góðir gestir af Snæfells- nesi, kór Fáskrúðarbakka- og Kol- beinsstaðasókna, ásamt stjómanda. Á laugardagskvöldinu er fólki vel- komið að líta inn hjá kóranum í fé- lagsheimilinu í Vík, hlusta á þá taka lagið og skemmta sér við harmon- ikkuleik. Sunnudaginn 2. apríl lýkur kristnihátíð í Mýrdal að þessu sinni, með samvera Kirkjuskólans í Mýrdal í Víkurkirkju kl. 11:00. Kl. 14:00 sama dag verður hátíð í Leikskálum í Vík þar sem böm og starfsfólk Leikskól- ans í Suður-Vík sjá um skemmtidag- skrá og kaffiveitingar. Allir sem tök hafa á era hvattir til að notfæra sér það sem í boði verður á kristnihátíð Mýrdælinga og taka þátt í skemmtílegri og uppbyggilegri menningarviku. Séra Haraldur M. Kristjánsson. Sunnudagaskóli Hafnarfjarðar- kirkju til Þingvalla Á MORGUN, sunnudaginn 26. mars, er boðunardagur Maríu. Af því tilefni er mikið um að vera í Hafnarfjarðar- kirkju. Kl.11.00 fer sunnudagaskólinn í ævintýraferð tíl Þingvalla þar sem ætlunin er að halda hátíðarbama- guðsþjónustu þar sem fjallað verður um kristnitökuna. Á Þingvöllum tek- ur sr. Heimir Steinsson staðarhaldari á mótí hópnum. Auk guðsþjónustunn- ar í þingvallakirkju verður gengið á Lögberg og því þurfa allir að mæta vel búnir þar sem mikill spjór er á Þingvöllum. Borðað verður nestí í Þjónustumiðstöð Þingvalla áður en haldið er heim á ný. Leiðsögumaður í ferðinni er sr. Þórhallur Heimisson. Kl. 20.30 hefst síðan Maríuvaka sem eins og nafnið gefur til kynna er helg- uð Maríu móður Guðs. Dr. Amfríður Guðmundsdóttír mun þar flytja er- indi um Maríu mey, en auk þess syng- ur kór Hafnarfjarðarkirkju Maríu- vers og Kristján Helgason syngur einsöng, en sr. Þórhallur Heimisson leiðir bænir. Að lokinm Maríuvöku er kaffisamsætí í Safnaðarheimilinu Strandbergi. Hefðbundin guðsþjónusta fer fram kl.11.00 í kirkjunni. Prestur þá er sr. Gunnþór Ingason. Kristnihátíð í Eyr- arbakkaprestakalli SUNNUDAGINN 26. mars næst- komandi efna sóknamefndir Eyrar- bakka-, Stokkseyrar- og Gaulveija- bæjarsókna til hátíðarsamkomu í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku í Félagslundi, Gaulveijabæjarsókn kl. 14.00. Slíkar hátíðir era nú í öllum prestaköllum Ámessprófastsdæmis og hafa þær, sem þegar hafa farið fram, verið vel sóttar og hátíðargest- um til ánægju. Sérlega er ánægjulegt hve margt fólk hefur tekið virkan þátt í hátíðunum. Svo verður einnig nú á þessari hátíð að heimafólk fær góða gestí sem era kirkjukórar Hraun- gerðisprestakalls ásamt stjómanda sínum, Sigfúsi Ólafssyni, sem koma í heimsókn og syngja nokkur lög ásamt heimakóram undir stjóm Hauks Gíslasonar. Þá syngja kóramir báðir saman tvö lög og almennur söngur verður einnig. Hafa slíkar gagn- kvæmar heimsóknir kirkjukóranna verið nokkuð einkenni á kristnihátíð- um í prófastsdæminu. Aðalræðu sam- komunnar flytur Helgi ívarsson, fræðaþulur og bóndi á Hólum, og fjallar um kristnitökuna. Einnig mun prófastur fjalla lítillega um aðdrag- anda og gildi kristnitökunnar. Hafður verður uppi hljóðfæraleikur og leikið saman á píanó og þverflautu og píanó og klarinett. Tónlistarfólkið er: Hauk- ur Gíslason, kantor prestakallsins, og þau Ásgeir Sigurðsson og Kristín Sig- fúsdóttir. I lok samkomunnar verður ftjáls samvist hátíðargesta og léttar kaffiveitingar. Hvatt er til góðrar þátttöku. Fréttatilkynning frá sóknamefnd- unum. Agnar Westli í Kefas LAUGARDAGINN 25. mars verður Agnar Westli gestaprédikari í Kefas, kristnu samfélagi, Dalvegi 24, Kópa- vogi. Agnar Westli er kennari við biblíuskólann Levende Ord í Bergen, Noregi og er hann í þessari ferð að kynna biblíuskólann sem hann starf- ar við; Guð hefur gefið honum hjarta fyrir íslandi og íslensku þjóðinni sem hann biður mikið íyrir. Hann er ein- lægur í þjónustu sinni, gefur gott orð og er með fyrirbænaþjónustu. Sam- koman hefst kl. 14 og era allir hjart- anlega velkomnir. Danskur stúlkna- kór í Hjallakirkju TÓNLISTARGUÐSÞJÓNUSTA verður í Hjallakirlgu í Kópavogi sunnudag kl. 11. Danskur stúlknakór frá Skt. Klemensskólanum í Óðins- véum, vinabæ Kópavogs, syngur í guðsþjónustunni. Stjómandi kórsins er Kirsten Möller Jensen. Auk þess mun kór kirkjunnar flytja tónlist fyrir föstu og boðunardag Maríu. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Allir hjart- anlegavelkomnir. Ferð sunnudaga- skóla í Grafarvogi SUNNUDAGASKÓLINN í Grafar- vogskirkju og Engjaskóla fer í heim- sókn í Grensáskirkju á morgun, sunnudag. Farið verður með rútum, lagt verður af stað frá Grafarvogs- kirkju og Engjaskóla kl. 10.30. Prestamir. Hjónanámskeið í Hallgrímskirkju HELGINA 31. mars -2. apríl verður hjónanámskeið í kórkjallara í Hall- grímskirkju. Þetta er 6. námskeiðið sem haldið er í kirkjunni með þessum hættí, en leiðbeinandi er Stefán Jó- hannsson fjölskylduráðgjafi (M.A). Stefán lærði í Bandaríkjunum og starfaði Í14 ár sem fjölskylduráðgjafi í Flórída. Hann starfrækir ráðgjafa- skrifstofu hér í borginni og hefur haldið fjölmörg námskeið víða um land. Námskeið sem þessi era fyrir hjón eða sambýlisfólk sem vill gera gott samband betra, eða fá tækifæri til að vinna með tilfinningar sínar og tjáskipti. Námskeiðið fer fram með stuttum fyrirlestrum, hópvinnu, verkefnum og videomyndum. Það er ánægjulegt hve mörg tilboð era um þetta efni á vegum kirkjunnar, enda tekið á vandamálum sem snerta afar marga. Árið 1985 var fyrst boðið upp á hjónanámskeið í Laugameskirkju, en þau urðu mörg, bæði hálfs dags námskeið og helgamámskeið, en að- alhvatamaður þeirra var sr. Þorvald- ur Karl Helgason. Þegar Fjölskyldu- þjónusta kirkjunnar hóf starfsemi sína hóf hún m.a. þjónustu á þessu sviði. í Hafnarfjarðarkirkju hafa nú um nokkurt skeið verið haldin hjón- anámskeið með góðum árangri, en þau hafa einnig verið haldin viðar úti um landið. Þá hefur Lúthersk hjóna- helgi verið starfrækt nokkur ár með mikilliþátttöku. Námskeiðin sem Stefán Jóhanns- son býður upp á era viðbót við þetta starf allt og vonum við hér í Hall- grímskirkju, að margir notfæri sér það. Skráning fer fram í s. 5538800. Jón Dalbú Hróbjartsson, prestur í Hallgrúnskirkju. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa heldur lif- andi steinar, manneslgur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.