Morgunblaðið - 25.03.2000, Síða 76

Morgunblaðið - 25.03.2000, Síða 76
76 LAUGARDAGUR 25. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM vorur f n HARMONIKUBALL Óhræddur við fegurðina ✓ Ungur kvikmyndagerðarmaður, Olafur Jó- hannesson, frumsýnir í dag stuttmyndina Engill no. 5503288. Birgir Örn Steinarsson ræddi við hann um fegurð og engla. OFT VILL það verða að yngri lista- rnenn séu smeykir við fegurðina. Það reynist oft of hár þröskuldur fyrir þá að tjá blíðari strauma eðlis síns af ótta við að opinbera sig um of. Einn listamaður sem hræðist ekki fegurðina er Ólafur Jóhannesson, ungur kvikmyndagerðarmaður, sem frumsýnir í Háskólabíó í dag kl. 14 stuttmynd sína Engill no. 5503288. „Ég gerði myndina í minningu foður míns sem, lést síðasta haust," •^ðtskýrir Ólafui- spurður um tildrög myndarinnar’., ,;Ég þurfti að gera eitthvað við þá uppsöfnuðu orku sem fylgdi missinum. Söguþráður mynd- arinnar tengist þó ekki þessum at- burði, heldur varð hann til þess að mig langaði til að gera eitthvað fal- legt og óhult.“ Það virðist vera auðveldasta að- ferðin fyrir yngri listamenn til að grípa athygli jafnaldra sinna að brjótast fram á sjónarsviðið eins og kjaftshögg í páfagarði. „Unga fólkið heldur oft að það sé meiri kraftur í að gera eitthvað yfirgengilegt i : • Engillinn í golfgallanum, leikinn af Agli Heiðari Antoni Pálssyni. þannig að talsmátinn verður oft hneykslanlegur í verkum þess. Feg- urðin er máttur en er samt alltaf höfð í bakgrunni.“ Engill hversdagsleikans Myndin er 22 mínútna löng og fjallar um engil sem kemur til Reykjavíkur í þeim tilgangi að fylgja ungum strák inn í næsta heim. I sögubyi-jun er drengurinn enn á lífi og fáum við að fylgjast með síðasta degi hans og þeim tildrögum sem leiða hann í dauðann. Engillinn not- ar þó tíma sinn vel og heimsækir nokkra „reglulega skjólstæðinga“ í leiðinni. „Upphaflega var hugmynd- in að engillinn kæmi að hádrama- tískum augnablikum í lífi söguper- sónanna en mér fannst það of alvarlegt. Ég læt því engilinn koma að mjög hversdagslegum augnablik- um þeirra og í stað þess að útlit eng- ilsins sé mjög guðdómlegt þá klæði ég hann í mismunandi búninga eftir því hvern hann er að heimsækja. Til dæmis hjá gamla manninum [er Gunnar Eyjólfsson leikur] er hann klæddur í golfgalla." Englar hafa verið mönnum hug- leiknir í gegnum aldirnar en þó virð- ist sem þeir séu að taka ýmsum breytingum. Það verður að teljast langt síðan kvikmyndaáhorfendur hafa séð engil ljóss og dýrðar sem er eins og klipptur úr sunnudagsskóla- myndaspilunum. Kvikmyndagerðar- menn seinni tíma hafa verið þeim miskunnarlausir og klippt af þeim vængina, en þeir fljúga enn. „Ég tók nokkur þyrluskot til að áhorfandinn fengi tilfinningu fyrir englinum. Undir því atriði hljóma útvarps- bylgjur. Þannig læt ég engilinn „stilla inn á“ einhvern sem er að tala.“ Blandað leikaraval En skyldi myndin vera 22 mínútur af spekingslegum athugasemdum um Guð og tilveruna? „Nei, það er voðalega lítið talað í þessari mynd. Ég vildi hafa hana landamæralausa. Talið þjónar engum tilgangi í mynd- inni.“ Leikarar myndarinnar koma úr ýmsum áttum og er jafnvægi á milli reyndra leikara og byrjenda. Þeir sem eiga stærstu hlutverk myndarinnar eru Egill Heiðar Anton Pálsson, sem leikur engilinn, Atli Heimisson, sem leikur strákinn dauðadæmda, þá leika Gunnar Eyj- ólfsson, Guðrún Asmundsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Rósa Guð- mundsdóttir, skemmtanastjóri Spotlight, sem leikur hér í sinni fyrstu íslensku bíómynd. Talnarunan dularfulla Ólafur segist hafa verið lánsamur með samstarfsfólk og það hafi verið honum afar dýrmætt hve mikinn metnað fólk lagði í vinnu sína. „Alla, sem unnu að myndinni, langaði virkilega að vinna sitt verk,“ segir Ólafur þakklátur á svip. Atli Heimisson, sem er ungur og efnilegur dansari, fer með eitt aðalhlutverk myndarinnar. Áður en frumsýningin hefst mun Matthías Viðar Sæmundsson há- skólalektor flytja ræðu um engla og hlutverk þeirra í gegnum tíðina. Einnig verður settur upp spurninga- leikur með spurningum um engla sem ekkert mannsbarn getur mögu- lega svarað með fullri vissu. „Það er til að draga úr fnimsýningarspennu okkar Islendinga, en við getum verið frekar erfiðir og stífir," útskýrir Ól- afur. En hvers vegna skyldi myndin heita þessu furðulega nafni, „Éngill no. 5503288“, hvað merkir þessi furðulega talnaruna? „Hún merkir ekki nokkurn skapaðan hlut. Við skýrðum myndina þetta þannig að fólk skildi að engillinn væri ekki ein- hver ákveðin persóna." Eins og flestir átta sig á er talnarunan sjö stafa og gæti þess vegna verið sím- anúmer. Blaðamaður er nægilega forvitinn til að hringja í númerið, það var svarað um hæl með dún- mjúkri englaröddu: „Vaka-Helga- fell, góðan dag.“ Reuters Elton John svaraði spurningum blaðamanna fyrir frumsýningu Aidu. Aida frumsýnd í New York AIDA, söngleikur Eltons Johns og Tims Rices, var frumsýnd í New York í vikunni. Gagnrýnendum fannst lítið til verksins koma en það var frumflutt árið 1998 í Atlanta. Sýningin var hins vegar misheppn- uð þá og fór fljótlega af fjölunum. Þá var tekið til við að endurbæta, titilinn var styttur úr Margbrotið líf: Goðsagnir Aidu í einfaldlega Aida og var prufusýnt fyrir áhorf- endur í desember síðastliðnum og í framhaldi af því var ákveðið að setja sýninguna upp í New York. Elton og Tim héldu tryggð við verkið allt til enda en nýr leikstjóri, Robert Falls, bættist í hópinn en Disney-fyrirtækið sér um fram- leiðslu verksins. I söngleiknum er ijallað um ævi Aidu sem var prinsessa og egypska hermanninn Radmes sem var ætlað að giftast dóttur faraós. Fjöldi frægra einstaklinga var meðal gesta á frumsýningu Aidu eins og gefur að skilja og mættu Heather Locklear og kærastinn og rokkarinn Richie Sambora auk Rosie O’Donnel og Barbara Walters. Nceturqalinn í kvöld leikur Danssveitin Cantabile frá Akureyri. Borðapantanir í síma 587 6080. _ Allir velkomnir, ungir sem aldnir. Dansinn dunar dátt frá kl. 22.00 í kvöld í ÁSGARÐI, Glæsibæ, við Álfheima. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi ásamt félögum frá FHSN, Félagi harmonikuunnenda á Selfossi og nágrenni. Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Stuttar og síðar kápur með eða án hettu, mörg snið. Fallegar úlpur. Hattar og húfur. Nyiar " Mörkinni 6, sími 588 551 8 • Bílastæði við búðarvegginn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.