Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SA vill fá dóm um svarta listann Höfða mál fyrir Félagsdómi SAMTÖK atvinnulífsins hafa höfðað mál fyrir Félagsdómi vegna útgáfu stéttarfélaga á Norður- og Austur- landi á svokölluðum „svörtum lista“ yfír skip sem félögin telja að megi ekki landa meðan verkfall stendur yfir í loðnubræslunum. Málflutning- ur í málinu fer fram í dag og er búist við niðurstöðu í næstu viku. Málið er höfðað vegna bréfs sem verkalýðsfélagið Eining-Iðja á Ak- ureyri sendi þar sem það lýsir því yfir að félagsmenn þess muni ekki landa úr skipum sem eru á listanum. Fleiri verkalýðsfélög hafa gefið út svipaðar yfirlýsingar. Jón H. Magnússon, lögfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins, sagði að með breytingum á lögunum um stéttarfélög og vinnudeilur, sem gerðar voru árið 1996, hefði verið skilgreint betur hvað teljist vera verkfall. Að mati SA hefði löggjaf- inn sett þá umgerð um verkfall að mönnum væri heimilt að leggja nið- ur vinnu, en það þýddi hins vegar ekki að ekki væri heimilt að vinna sömu störf annars staðar á landinu. Verkalýðsfélögum væri hins vegar heimilt að boða samúðarverkfall, sem þyrfti að samþykkja á félags- fundi með sama hætti og venjulegt verkfall. Það hefði hins vegar ekki verið gert í þessu tilviki. Hann sagð- ist því telja aðgerðir stéttarfélag- anna ólöglegar. Stéttarfélögin hafa í málflutningi sínum m.a. vísað til þess að héraðs- dómur hafi dæmt aðgerðir félags- manna í verkalýðsfélaginu Baldri á Vestfjörðum, sem komu í veg fyrir löndun úr vestfirskum skipum, lög- mætar. Um sambærileg mál sé að ræða. Björguðu konu út úr brennandi íbúð Morgunblaðið/Sverrir Viðar Einarsson reykkafari. REYKKAFARAR Slökkviliðs Reykjavíkur björguðu konu út úr brennandi kjallaraíbúð á Háaleitisbraut snemma í gær- morgun. Hún varð fyrir al- varlegri reykeitr- un og var send til meðferðar í há- þrýstiklefa á á Landsspitalanum í Fossvogi og síð- an Iögð inn á Landsspítalann við Hringbraut. Líðan hennar er eftir atvikum gúð, að sögn læknis. Viðar Einarsson og og Jún Pét- ursson reykkafarar hjá Slökkviliði Reykjavíkur fundu konuna meðvit- undarlausa í íbúðinni en þá var mikill reykur þar innandyra og 200-300 gráðu hiti, þútt ekki væri hitinn svo mikill á þeim stað í íbúð- inni þar sem konan fannst. „Það er alltaf gaman þegar björgunarstörf ganga vel og tekst að bjarga fúlki út úr brennandi húsum,“ sagði Við- ar Einarsson í gær. Greiðlega gekk að slökkva eldinn í íbúðinni, en að sögn slökkviliðsins urðu miklar skemmdir á henni. Ekki er vitað um eldsupptök. Fundu konuna strax Þegar liðsmenn slökkviliðsins komu á vettvang á níunda tímanum í gærmorgun fúru reykkafararnir strax inn í íbúðina og fundu konuna fljútlega. „Það var mikill eldur í fbúðinni, en við fundum konuna strax og að því loknu var ráðist í að slökkva eldinn," sagði Viðar Ein- arsson annar reykkafaranna sem björguðu konunni. „Við höfðum fengið þær upplýsingar að það væri Iíklega einhver inni í íbúðinni þegar við komum á vettvang en einhver taldi sig hafa heyrt til hennar.“ Að sögn Viðars var lftið sem ekk- ert skyggni vegna reyks inni í íbúð- inni þegar leitin fúr fram en sú leit- artækni sem reykkafarar æfa að jafnaði gafst vel og fannst konan því fljútlega. „Það er alltaf leitað á ákveðnum stöðum, t.d. undir rúmum og með hliðsjún af því hvemig fúlk bregst við í aðstæðum sem þessum. Maður er meðvitaður um að ef fúlk hefur andað að sér miklum reyk þá er ástandið mjög alvarlegt. Því þarf að hafa snör handtök við að koma fúlki út í ferskt loft og gefa því súr- efni,“ sagði Viðar. Morgunblaðið/Þorkell Svanir svífa í Borgarleikhúsinu DANSFLOKKUR Helga Túmas- sonar, San Francisco-ballettinn, efndi til lokaæfingar á uppfærslu hans á Svanavatninu í Borgar- leikhúsinu í gær. Frumsýning verður í kvöld. Alls verða fimm sýningar á verkinu um helgina. f blaðinu í dag er rætt við Önnu Kisselgoff, aðaldansgagnrýnanda The New York Times, um Helga, sem hún álitur vera einn af fjúr- um bestu listdönsurum al- darinnar. ■ Einn þeirra albestu/38 Áhafnir hóta verka- lýðsfélagi málssókn SKIPVERJAR á loðnuskipunum Jóni Kjartanssyni og Hólmaborg frá Eskifirði sendu í gær verkalýðsfé- laginu Árvakri á Eskifirði bréf þar sem félaginu eru gefnir tveir sólar- hringar til að taka skipin út af „svarta listanum“ svokallaða. Ef það verður ekki gert áskilja skipverj- amir sér rétt til að höfða skaðabóta- mál á hendur Árvakri, Alþýðusam- bandi Austurlands og ÁSÍ. Áhafnir skipanna sendu í síðustu viku bréf til verkalýðsfélagsins Ár- vakurs þar sem mótmælt er þeirri ákvörðun félagsins að setja skipin á svarta listann, en á honum eru skip sem stéttarfélögin telja að megi ekki landa á meðan verkfall er í bræðslunum á Norður- og Austur- landi. Því var jafnframt hótað að skipverjarnir segðu sig úr félaginu. Sigurður Ingvarsson, formaður Alþýðusambands Austurlands, svaraði þessari gagnrýni í fjölmiðl- um þar sem hann sagði m.a., að verkfall væri þess eðlis að það bitn- aði oft á þriðja aðila. Hann minnti jafnframt á, að sjómenn væru nú í kjaraviðræðum og eðlilegra væri að þeir beindu gagnrýni sinni frekar að atvinnurekendum en verkalýðsfé- lögunum. I gær sendu áhafnirnar á Jóni Kjartanssyni og Hólmaborg annað bréf þar sem gerð er krafa um að skipin verði tekin af svarta listan- um. Segja listann vera kalda vatnsgnsu „Við teljum þetta kalda vatnsgusu í andlit okkar, þar sem við höfum oft lagt á okkur jafnvel áhættusama siglingu til Eskifjarðar í vitlausum veðrum með afla svo að hægt væri að halda uppi vinnu í verksmiðjunni, og finnst þetta þess vegna ósann- gjamt.“ Undir lok bréfsins segir: „Nú er kominn tími til þess fyrir ykkur að taka okkur út af þessum svarta lista sem við erum á ásamt örfáum öðrum og hætta þessari vitleysu. Ef ekki og við komum til með að skaðast af þessum gjömingi ykkar lýsum við allri ábyrgð á hendur ykkur og áskiljum okkur rétt til þess að fara í skaðabótamál við Vm. Árvakur og alþýðusamböndin sem að þessu standa. Þetta getur allt átt eftir að draga dilk á eftir sér.“ Dreifingu seinkaði vegna bilunar BILUN varð í prentvél Morgun- blaðsins síðastliðna nótt. Af þeim sökum seinkaði útkomu blaðsins til hádegis. Dreifing og blaðburður tafðist vemlega. Strax og bilun varð í prentsmiðjunni á öðmm tím- anum var hafist handa við viðgerð. Fjölmargir starfsmenn unnu að lagfæringum á biluninni, sem reyndist mjög alvarleg. Morgun- blaðið biður lesendur sína velvirð- ingar á þessari seinkun og þeim óþægindum sem þeir hafa orðið fyrir. Sérblöð í dag ÍHé’MtlíH BiotðunWa! BÍÓBLAÐIÐ Á FÓSTUDÖGUM Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.