Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 70
70 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Shirov siglir fram
úr Kasparov
SKAK
Sarajevo
Bosnfa 2000
10. -20. maí 2000
ALEXEI Shirov hefur augun
greinilega á efsta sætinu á ofurskák-
mótinu sem nú stendur yfir í Sara-
jevo. Meira að segja Kasparov varð
að gefa eftir efsta sætið í sjöundu
umferð þegar Shirov sigraði Evgeny
Bareev, en Kasparov varð að sætta
sig við jafntefli við Morozevich.
Skákáhugamenn bíða spenntir eftir
úrshtum viðureignar þeirra Shircrvs
og Kasparovs, en þeir mættust í átt-
undu umferð, sem tefld var í gær-
kvöldi. Ekki er ólíklegt að úrslit
þeirrar skákar ráði úrslitum á mót-
inu. Staðan eftir áttundu umferð er
þessi:
1. Alexei Shirov 5v. 2. Gary
Kasparov 5 v. 3.-4. Alexander Mor-
ozevich, Michael Adams 4Ví> v. 5.-7.
Veselin Topalov, Evgeny Bareev,
Kiril Georgiev 4 v. 8. Ivan Sokolov 3
v. 9. Mikhail Gurevich 2'A v. 10. Nig-
el D. Short 2 v. 11.-12. Sergei
Movsesian, Etienne Bacrot VA v.
Endataflsrefir á Kúbu
Fyrir skömmu, á Varadero
ströndinni á Kúbu, lauk minningar-
móti um eina kúbverska heims-
meistarann, Jóse Raoul Capablanca.
í úrvalsflokknum, sem var lokað 14
manna mót í 13. styrkleikaflokki, tók
Hannes Hlífar Stefánsson þátt. Þvi
miður náði hann sér engan veginn á
strik og endaði í neðsta sæti ásamt
tveim öðrum stórmeisturum með 4!4
vinning. Rússneski stórmeistarinn
Alexander Volzhin sigraði á mótinu
með 8!4 vinning.
Taflmennska flestra keppenda var
rólyndisleg og hlutfall jafntefla var
hátt. Þetta er að sjálfsögðu algengt á
svo sterku lokuðu móti, en hugsan-
lega reykja stórmeistarar frekar
friðarpípuna þegar á göngum keppn-
issalarins hvíla á þeim árvökul augu
Capablanca og núverandi Kúbuleið-
toga, Fidels Castro, í líki tveggja
risavaxinna málverka. I öllu falli er
ljóst að að svo miklir menn geta ýmis
áhrif haft, jafnvel á málverki!
Capablanca var heimsmeistari frá
1921-1927 er Alexender Aljékín
hrifsaði af honum titilinn í einvígi.
Skákstíll Capablanca var kristaltær
Stöðumynd I.
og stílhreinn. Endataflsækni hans
var annáluð og er eftirfarandi staða
frá skák hans í New York 1924 við
pólska/franska meistarann Tarta-
kower þekktasta dæmið um það.
Sjá stöðumynd I. Við fyrstu sýn
virðist sem svartur standi vel að vígi
þar sem c3-peð hvíts er dauðadæmt,
en Capablanca sem skildi manna
best mikilvægi þess að hafa virkan
kóng í endatöflum sýnir svörtum
fram á að vonir hans eru tálsýnir ein-
ar. 35.Kg3!! Hxc3+ 36.Kh4! Sökum
þess hversu vel hvítu mennimir
vinna saman stendur svartur höllum
fæti. T.d. gengur 36...Hcl ekki upp
vegna þess að eftir 37.Kh5 Hhl+
38. Kg6 Hxh7 39.Kxh7 rennur g-peð
hvíts upp í borð. Framhaldið varð:
36...HÍ3 37.g6 Hxf4+ 38.Kg5 He4
39. KÍ6 Kg8 40.Hg7+ Kh8 41.Hxc7
He8 42.Kxf5 He4 43.KÍ6 Hf4+
44.Ke5 Hg4 45.g7+! Kg8 46.Hxa7
Hgl 47.Kxd5 Hcl 48.Kd6 Hc2 49.d5
Hcl 50.Hc7 Hal 51.Kc6! Hxa4 52.d6
ogsvartur gafst upp
í rússneska og sovéska skákskól-
anum var endataflssnilld Capa-
blanca í hávegum höfð. Sigurvegari
minningarmótsins í ár, Alexander
Volzhin, hefur án efa í eftirfarandi
skák glatt margan lærimeistara sinn
og ekki síst þann sem mótið var
haldið til minningar um, fyrir að
nýta hverja þá ónákvæmni sem and-
stæðingi hans varð á að gera.
Hvítt: Alexander Volzhin (2548)
Svart: Peter Acs (2542)
l.d4 Rf6 2.c4 e6 3.RÍ3 d5 4.e3 Be7
5.Rbd2 OO 6.Bd3?! c5 7.dxc5 Ra6!
8.00 Rxc5 9.Be2 b6 10.b3 Bb7
ll.Bb2 dxc4 12.Rxc4
Frumkvæði hvíts er ekkert eftir
byijunina, sem sést best á því að
staðan er algjörlega samhverf eins
og áður en fyrsta leiknum var leikið.
Eini munurinn er sá að nú er það
svartur sem á leik!
12...Dc7
Smávægileg ónákvæmni. Betra
var að leika 12...Hc8 eða 12...Dxdl
13.Be5 Dc6 14.Hcl Hfd8 15.Dc2
De4 16.Dxe4 Bxe4
Staðan er núna aftur samhverf
fyrir utan að staða hrókanna er önn-
ur. Hinsvegar á hvítur núna leikinn
og er það sterk vísbending að eitt-
hvað hafi farið úrskeiðis hjá svört-
um!
17.Hfdl Rd3 18.Bxd3 Bxd3
19.Rd4 Bxc4 20.Hxc4 Hd5 21.Hdcl!
21...h6
Ekki gekk upp að þiggja biskup-
fómina með 21...Hxe5 þar sem eftir
22.Hc8+ Hxc8 23.Hxc8+ Bf8 24.Rc6
vinnur hvítur.
22.RÍ3 Had8 23.Kfl Hc5 24.Bd4
Hxc4 25.Hxc4 Bd6
Hvitum hefur tekist að bæta stöðu
sína umtalsvert, það mikið að ekki er
lengur þægilegt að verja svörtu
stöðuna. Textaleikurinn gefur færi á
hagstæðum uppskiptum fyrir hvítan
en að aðrir leikir hefðu skilið c6 eða
c7 reitina óvarða fyrir innrás hvítu
mannanna.
26.Bxf6!gxf6 27.Ke2 f5?
Veikir e5-reitinn of mikið.
27...Kg7 hefði verið skynsamlegra.
28. Hd4! Kf8?
Tapleikurinn. 28...Í6 eða 28...Be7
hefðu veitt harðvítugri vöm
29. Re5! Ke8 30.Rc6! Hd7 31.Rxa7
Hxa7 32.Hxd6 Hxa2+ 33.Kf3 Ha6
Hér er hrókurinn of óvirkur til
þess að geta varið b-peðið með góðu
móti. Næsti leikur hvíts sýnir hversu
vonlaus staða svarts er.
34.b4! Ke7 35.Hc6 Kd7 36.b5 Ha2
37.Hxb6 Ke7 38.h3 h5 39.Hb8 h4
40.b6 Hb2 41.g3 hxg3 42.Kxg3 Kf6
43.h4 e5 44.b7 Kg7 45.h5 f6 46.h6+
Kh7 47.f3 Hb3 48.KÍ2 Hb2+ 49.Kel
f4 50.exf4 exf4 51.Kdl og svartur
gafst upp.
Skákmót á næstunni
26.5. Húsavík. Skákþ. Norðlend-
inga
26.5. Skákskólinn. Meistaramót
26.5. Hellir. Skemmtikvöld kl. 20
28.5. Húsavík. Hraðskákm. Norðl.
29.5. Hellir. Þemamót (Marshali)
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
BRIDS
Umsjón Arnðr G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Siglufiarðar
Mánudaginn 8. maí lauk
þriggja kvölda tvímenningi,
„Shelimótinu", með öruggum
sigri þeirra bræðra Antons og
Boga Sigurbjömssona sem
hlutu 160 stig. Hér er um árlegt
mót að ræða þar sem vegleg
verðlaun em gefin af umboðs-
manni Skeljungs hf. á Siglufirði,
Haraldi Amasyni. Urslit móts-
ins urðu annars þessi:
Anton Sigurbjömss.-Bogi Sigurbjömss. 160
BirgirBjömss.-Porsteinn Jóhanness. 77
Sigurðiu- Hafliðas. - Sigfús Steingrímss. 73
Haraldur Amas. - Hinrik Aðalsteinss.70
GuðlaugMárusdóttir-ÓlafurJónsson 68
Að venju var Bronsstigameistari félags-
ins eftir starfsárið útnefndur, en þann
titil hlýtur sá spilari sem bestum árangri
nær á vetrinum. Bronsstigameistari árið
2000 varð Bogi Sigurbjömsson sem
hlaut alls 645 stig. Næstir komu Anton
Sigurbjömsson 555 stig, Haraldur
Ámason 333 stig, Hinrik Aðalsteinsson
326 stig og Ólafur Jónsson 321 stig. Nú
hefur þessi stigafjöldi Boga verið settur
sem viðmið og veglegum peningaverð-
launum heitið þeim sem hærri skor fá á
næstu ámm hjá félaginu.
Föstudaginn 12. maí stóð stjóm félags-
ins fyrir lokahófi þar sem verðlaun voru
afhent og veglegar veitingar bomar
fram. Léttur tvímenningur var síðan
spilaður þar sem pör vora mynduð með
útdrætti. Spilað var í tveim riðlum.
Úrslit í A-riðii:
Anna Lára Hertervig - Ólafur Jónss,135
ÁgústaJónsd.-BogiSigurbjömss. 132
ÞorsteinnJóhannss.-Birkir Jónss. 128
B-riðilI:
Stefanía Sigurbjörnsd. - Sigríður Ólafed. 97
Guðlaug Márusdóttir - Björk Jónsdóttir83
BertaFinnbogad.-StefánBenediktss. 75
Að lokum vill stjóm félagsins senda öll-
um spiluram bestu þakkir fyrir vetrar-
starfið svo og kveðjur til allra bridsspil-
araálandinu.
Tuttugn og Qögur pör
spila á vormóti Bridssam-
bandsins um helgina
í kvöld, föstudag, hefst 110
spila keppni 24 para í Bridshöll-
inni í Þönglabakka. Er um að
ræða „brýningarmót“ fyrir kom-
andi átök íslensku landsliðanna,
en á döfinni eru Norðurlanda-
mót í opnum fokki og kvenna-
flokki í Hveragerði í lok júní, og
Evrópumót ungmenna í Tyrk-
landi í júlí.
Mótið um helgina verður spil-
að í tveimur riðlum, 12 pör í
hvorum riðli, 10 spil á milli para.
Spilað verður frá sjö til mið-
nættis í kvöld, en frá kl. 11-18
laugardag og sunnudag og eru
áhorfendur hvattir til að mæta
og fylgjast með spennandi
keppni.
A-riðill:
Aðalsteinn Jörgensen - Sverrir
Ármannsson
Anton Haraldsson - Sigurbjöm
Haraldsson
Magnús E. Magnúss. - Þröstur
Ingimarss.
Þorlákur Jónsson - Matthías
Þorvaldsson
Frímann Frímannsson - Páll Þórsson
Guðmundur Þ. Gunnarss. - Bjami
Einarss.
Bjöm Theódórsson - Páll Bergsson
Ásmundur Pálsson - Jakob Kristinsson
Jónas P. Erlingsson - Steinar Jónsson
Guðm. Sv. Hermannss. - Helgi
Jóhannsso.
Karl Sigurhjartarson - Snorri Karisson
Kristján M. Gunnarss. - Helgi G. Helgas.
B-riðill
Erla Sigurjónsd. - Dröfn Guðmundsd.
Bryndís Þorsteinsd. - Guðrún
Jóhannesd.
Hjördís Sigurjónsd. - Ragnheiður
Nielsen
Anna ívarsdóttir - Guðrún Óskarsdóttir
Esther Jakobsd. - Ljósbrá Baldursd.
Halldóra Guðm.d. - Steinberg Ríkharðss.
Jón Stefánsson - Gísli Hafliðason
Sigfús Þórðarson - Gunnar Þórðarson
Hrafnhildur Skúlad. - Jörundur Þórðars.
Jónína Pálsdóttir - Arngunnur
Jónsdóttir
Jóhann Stefánss. - Stefanía
Sigurbjömsd.
Kristján Snorrason - Aida Guðnadóttir
Keppnisformið er tvímenningur
með sveitakeppnisútreikningi,
þ.e.a.s. reiknað verður í IMP-stig-
um á milli allra borða í hvorum
riðli um sig. Góð verðlaun verða
veitt í boði ýmissa fyrirtækja.
Keppnisstjórn annast Sveinn
Rúnar Eiríksson.
Sumarbrids
á Akureyri
Bridsfélag Akureyrar stendur
fyrir sumarbridsi áhverju þriðju-
dagskvöldi, í fyrsta skipti 30. maí.
Spilað verður í Hamri við Skarðs-
hlíð og hefst spilamennska kl.
19:30. Alltaf verður spilaður eins
kvölds tvímenningur og sumar-
skap og léttleiki ræður ríkjum.
Sigurvegarar hvers kvölds spila
frítt, en borðgjald er annars 400
kr.
Mánaðarlega verða veitt verð-
laun fyrir flest meistarastig, í
júnílok er gjafabréf frá Bautan-
um í boði.
Bridsspilarar, látið sjá ykkur
og haldið spilafingrunum í formi.
Þátttaka eykst
í sumarbrids
Fólk er greinilega að komast í
sumarskap, því stemmningin í
sumarbridsi eykst jafnt og þétt.
Mánudagskvöldið 22. maí var
Howell-tvímenningur. Miðlung-
ur var 165 og efstu pör urðu:
BaldurBjartmarsson-JónViðarJónm. 182
StefaníaSkarphéðins.-Guðm.Ágústss. 178
Erla Siguijónsd. - Guðni Ingvarssonl77
Birkir Jónsson - Bjöm Theódórsson 172
ísakÖmSigurðss.-HrólfúrHjaitas. 172
Þriðjudagskvöldið 23. maí var sett met í
þátttöku, 22 pör og var Mitchell á dag-
skránni, miðlungur 216. Efstu pön
NS
GylfiBaldursson-BjömTheódórsson 250
JakobKristinsson-AsmundurPálsson 249
BaidvinValdim.-Steingr.G.Péturss. 247
AV
GuðmundurBaldurss.-SævinBjamas. 260
Birldr Jónsson - Jón Sigurbjörnsson 256
UnaÁrnadóttír-JóhannaSigurjónsd. 252
Spilað er öll kvöld nema laugardag-
skvöld og hefst spilamennskan alltaf
klukkan 19:00. Hjálpað er til við myndun
para.
Foreldrahúsið
opið í sumar
VÍMULAUS æska og Foreldrahóp-
urinn sem reka Foreldrahúsið í Von-
arstræti 4b vilja koma því á framfæri
að Foreldrahúsið verður opið í allt
sumar. Fjölskylduráðgjöfin verður
starfandi eins og verið hefur, viðtöl
fyrir foreldra og fjölskyldur þeirra
og stuðningshópar fyrir foreldra.
Foreldrasíminn 581-1799 er opinn
allan sólarhringinn og þangað geta
foreldrar hringt eftir fyrstu aðstoð.
Ráðgjafar eru til taks aUan daginn
í Foreldrahúsinu og geta foreldrar
og böm þeirra komið á hvaða tíma
sem er og fengið viðtal við ráðgjafa.
í sumar verður Foreldrahúsið opið
frá 1. júní til 1. september kl. 9:00 til
16:00. Öll námskeið hefjast 15. sept.
Þeir sem hafa áhuga á námskeiðum í
haust geta látið skrá sig núna og
* fengið nánari upplýsingar um þau.
Skaut á
rétt úr-
slit á
mbl.is
ÞEIM sem heimsækja mbl.is
stendur til boða að skjóta á
úrslitin í Landssímadeild-
inni. Þeir sem hitta á rétt
úrslit í hverri umferð eiga
möguleika á góðum vinn-
ingum. Ómar Ingi Ákason,
sem skaut á rétt úrslit í
fyrstu umferð, tekur hér
við verðlaunum sínum, Sag-
em mc 950 gsm-síma, úr
hendi Guðjóns Péturssonar,
markaðsfulltrúa Símans
GSM.
Textavarpið
á Leit.is
RÍKISÚTVARPIÐ og Leit.is hafa
gerð með sér samkomulag um að
fréttir Textavarpsins birtist einnig á
Leit.is. Hér er bæði um að ræða al-
mennar fréttir Textavarpsins svo og
fréttir úr svæðisfréttum RUVAk á
Akureyri, RUVAUST á Egilsstöðum
og RUVIS á ísafirði.
Land og synir
á flugskýlisballi
HLJÓMSVEITIN Land og synir
verða á árlegu flugskýlisballi í flug-
skýli 4 á Reykjavíkurflugvelli laug-
ardagskvöldið 27. maí.
Dansleikurinn er á vegum Flugfé-
lags íslands og Flugleiða.