Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 62
lOIReykjavík
62 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000
mtniiflNk
Á I f a b a k k b
Forsýning í kvöld kl: 24.00 í Sambíóunum Breiðholti.
^mbl.is
-ALLTAf= eiTTHVAO NÝTT~
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Launafólk fái
lágmarks
mannréttindi
við uppsagnir
TRÚNAÐARRÁÐ verkalýðsfélaga
sem aðild eiga að kjarasamningi við
ISAL skora á ríkisstjórnina að full-
gilda sem fyrst samþykkt nr. 158
frá Alþjóðavinnumálastofnuninni en
hún tryggir launafólki lágmarks
mannréttindi við uppsagnir úr
starfl. Segir í ályktun trúnaðarráðs-
ins, sem samþykkt var á nýliðnum
aðalfundi þess, að ákvæði um slík
lágmarks mannréttindi vanti í ís-
lenska löggjöf og eins og málum sé
nú háttað sé hægt að segja starfs-
manni upp starfi án þess að til-
greina neina ástæðu þó eftir sé leit-
að.
Trúnaðarráðið samþykkti einnig
ályktun þar sem þess er kraflst að
ákvæðum laga um skipulega fram-
kvæmd heilsuverndar starfsmanna
verði komið til framkvæmda sem
allra fyrst. Skorar trúnaðarráðið á
félagsmálaráðherra að tryggja að
þetta gerist nú þegar. Átelur ráðið
einnig þau vinnubrögð sem Samtök
atvinnulífsins hafa viðhaft í þessu
máli.
Segir í ályktun ráðsins að full-
trúar SA hafí tekið þátt í gerð
skýrslu um hvernig koma mætti
framkvæmd við heilsuvernd starfs-
manna í viðunandi horf, og enga fyr-
irvara gert við efni skýrslunnar, en
nú bregði svo við að SA tali um að
tillögurnar einkennist af óskhyggju
og að staðan í fyrirtækjum sé svo
slæm að þau muni verða fyrir mikl-
um útgjöldum á stuttum tíma vegna
hugsanlegara úrbóta á vinnustað.
Segir í ályktun Trúnaðarráðsins
að þessi afstaða SA verði vart skilin
öðruvísi en svo að samtökin hafi
ákveðið að rifta því samkomulagi
sem náðist á vettvangi Vinnueftir-
lits ríkisins á síðasta ári um heilsu-
vernd starfsmanna.
---------------
Árshátíð
Arsenalmanna
ÁRSHÁTÍÐ Arsenalmanna fer
fram í Ölveri í Glæsibæ föstudags-
kvöldið 26. maí og hefst kl. 20. Há-
tíðin stendur til 23 fyrir 18 ára og
yngri í fylgd fullorðinna en lengur
fyrir þá sem aldur hafa til.
Aðgangseyrir fyrir börn er 900
kr. og boðið er upp á barnamat-
seðil, en fyrir fullorðna er boðið
upp á súpu og lamb á 1.600 kr.
Sigurður Jónsson, fyrrverandi
leikmaður Arsenal, verður heið-
ursgestur klúbbsins þetta kvöld en
einnig verður útnefndur heiðursfé-
lagi Arsenalklúbbsins. Stefán
Hilmarsson syngur, farið verður í
leiki og ýmislegt gert sem hentar
yngri kynslóðinni sem og þeim
eldri, pakkauppboð o.fl. Mikilvægt
er að skrá þátttöku, en hægt er að
skrá sig í Ólveri í dag, föstudag, til
kl. 16.
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embœttisins á Aðalgötu 7,
Stykkishólmi, þriðjudaginn 30. maí 2000 kl. 10.00 ó eftirfar-
andi eignum:
Brautarholt 21, Snæfellsbæ, þingl. eig. Reynir Jónsson og Margrót
S. Ingimundardóttir, gerðarbeiöandi Ibúðalánasjóður.
ySrundargata 65, íbúð 0201, Grundarfirði, þingl. eig. Sprettur ehf.,
Kópavogi, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Grundargata 67, íbúð 0102, Grundarfirði, þingl. eig. Sprettur ehf.,
Kópavogi, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki fslands hf. og ibúðalána-
sjóður.
Grundargata 80, Grundarfirði, þingl. eig. Ingibjörg E. Þórarinsdóttir,
gerðarbeiðendur Byko hf., íbúðalánasjóður og Sjóvá-Almennar
tryggingar hf.
Hótel Búðir, Snæfellsbæ, þingl. eig. Hótel Búðir ehf., gerðarbeiðendur
Innheimturmaður ríkissjóðs og Snæfellsbær.
Hraunás 18, Snæfellsbæ, þingl. eig. Katla Bjarnadóttir, gerðarbeið-
andi Snæfellsbær.
Lágholt 16, Stykkishólmi, þingl. eig. Gestur Már Gunnarsson, gerðar-
beiðendur Húsasmiðjan hf. og P. Samúelsson ehf.
Nökkvi, skrnr. 2028, þingl. eig. Bátsferðir ehf., gerðarbeiðendurÁrni
Jón Þorgeirsson og Innheimtumaður ríkissjóðs.
Röst SH-134, skrnr. 1317, þingl. eig. Röst sf„ gerðarbeiðendur Akra-
neskaupstaður og Innheimtumaður ríkissjóðs.
Snæfellsás 7, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þorbjörg A. Höskuldsdóttir,
gerðarbeiðandi Olíufélagið hf.
Sýslumaðurinn (Stykkishólmi,
28. mai 2000.
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
Föstudagur 26. maí kl. 20.00
Kvöldganga í Krísuvík
Austurengjahver — Geitahlíð —
Eldborg.
Brottför frá BSi. Verð 1.500 kr f.
fólaga og 1.700 kr f. aðra.
Á slóðum borgfirskra skálda
sunnudaginn 28. maí kl. 9.00.
Jónsmessunæturgangan yfir
Fimmvörðuháls 23.-25. júní.
Bókið strax.
Sjá heimasíðu: utivist.is.
Útivist - ferðafélag,
Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavik,
sími 561 4330.
fax 561 4606.
http://www.utivist.is.