Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 13
FRÉTTIR
Samband ungra sjálfstæðismanna leggur fram tillögur
um breytingar á stjórnkerfí fískveiða
Takmarkanir á framsali
kvóta verði afnumdar
Morgunblaðið/Golli
Kanna grundvöll fyrir
„flugfrelsi“ allt árið
AFNAM allra takmarkana á fram-
sal aflahlutdeilda og að aflahlutdeild
verði sjálfstasð eign er meðal til-
lagna í sjávarútvegsmálum sem
Samband ungra sjálfstæðismanna
setti fram á opnum fundi á Akureyri
í gærkvöldi.
Tillögur ungra sjálfstæðismanna
bera yfirskriftina „Sjávarútvegur á
grunni viðskiptafrelsis" og segir þar
að SUS leggi áherslu á að breyting-
ar verði gerðar á kvótakerfinu á
grundvelli þess mikla árangurs sem
náðst hafi nú þegar.
„Viðskiptafrelsi og eignarréttur
eru ómumdeildar stoðii- efnahags-
kerfis Vesturlanda," segir þar. „Is-
lenskt efnahagslíf byggist á þessum
stoðum og sjávarútvegurinn að
mestu leyti. Frekari árangur í fisk-
veiðistjórnun á Islandi byggist á því
að lögum verði breytt í því augna-
miði að treysta viðskiptafrelsi í
greininni og minnka opinber af-
skipti."
Aflahlutdeild verði
sjálfstæð eign
Lagt er til að framsal aflaheimilda
verði frjálst með þeim rökum að all-
ar takmarkanir á framsali leiði til
óhagkvæmni og sóunar. Takmark-
anir hindri viðskipti með aflaheim-
ildir og leiði þar með til þess að kvót-
inn sé ekki ávallt í höndum þess sem
geti nýtt hann með hagkvæmasta
hættinum.
Ungir sjálfstæðismenn gera til-
lögu um að aflahlutdeild verði sjálf-
stæð eign. Aflahlutdeild sé bundin
skipum samkvæmt núgildandi lög-
um og kvóti geti því ekki gengið
kaupum og sölum milli einstaklinga
sem ekki eigi skip. Lögin setji því
þar með skorður hvernig viðskipti
með þessi verðmæti geti þróast og
setji það hömlur á ýmsa aðila á borð
við landvinnslu, sem ekki geti keypt
kvóta og ráðstafað á eigin forsend-
um. „Breyting í þá átt ætti því að
vera baráttumál fyrir byggðir þar
sem landvinnsla er fyrir hendi en
ekki mikil útgerð," segir i tillögun-
um. „Slík breyting mundi líka gefa
fjármálastofnunum aukið svigrúm
til að þróa ýmsar fjármálalegar af-
urðir sem geta hjálpað til að draga
úr áhættu í greininni. Notkun slíkra
tækja gerir fyrirtækjum í greininni
kleift að bæta rekstrarumhverfi sitt
og um leið bæta starfsöryggi þeirra
sem við greinina starfa."
Byggðaúthlutun
verði aflögð
SUS er þeirrar hyggju að afleggja
eigi byggðaúthlutun kvóta og bendir
á að reynslan af úthlutun svonefndra
byggðakvóta sé afar slæm, rétt eins
og af öðrum sértækum aðgerðum í
atvinnumálum. Með úthlutun
byggðakvóta séu aflaheimildirnar
færðar frá þeim útgerðum, sem nýti
þær með arðsömum hætti, til þeirra,
sem það geri ekki, og þannig stuðlað
að öhagkvæmni og sóun.
„Hagkvæmni og skilvirkni kvóta-
kerfisins er því skert í byggðapóli-
tískum tilgangi," segir í tillögunum.
„En reyndin er hins vegar sú að
kvótakerfið hefur ekki áhrif á
búferlaflutninga fólks til höfuðborg-
arsvæðisins því um 80% eru utan
þess. Hlutdeild landsbyggðarinnar í
heildarkvóta hefur farið vaxandi frá
1984 og virðist því markmið byggða-
kvótans vera að styrkja sumar
byggðir úti á landi á kostnað ann-
arra byggða þar.“
Leggja til afnám
sjómannaafsláttar
Lagt er til að sjómannaafsláttur-
inn verði aflagður og sagt að ekki sé
eðlilegt að sjávarútvegurinn búi við
hagstæðara skattaumhverfi en aðr-
ar atvinnugreinar. Kaup og kjör sjó-
manna eigi að ráðast á frjálsum
markaði á sömu forsendum og kjör
annarra landsmanna.
Að síðustu gera ungir sjálfstæðis-
menn að tillögu sinni að erlendar
fjárfestingar verði leyfðar og segja
að það sé sjávarútveginum ekki í
hag að hann sé sviptur möguleikum
á erlendu áhættufjármagni.
„Aðgangur að erlendu fjármagni
gæti orðið grundvöllur frekari fram-
fara og tækninýjunga í greininni,"
segir í tillögunum. „Hömlur sem
þessar veikja stöðu sjávarútvegsfyr-
irtækja á fjármagnsmarkaði og hafa
neikvæð áhrif á fjármagnskostnað
þeirra."
FERÐASKRIFSTOFAN Sam-
vinnuferðir-Landsýn hefur selt um
12 þúsund sæti í svonefnt flugfrelsi
sem gerir millilandafarþegum
kleift að kaupa ódýra farseðla fyr-
irvaralaust til 11 áfangastaða í
Evrópu. Lægsta verð flugfrelsis er
rúmlega 7 þúsund krónur án flug-
vallarskatts og algengt verð er um
10 þúsund krónur aðra leiðina.
I ljósi þeirra viðbragða sem nýj-
ung Samvinnuferða-Landsýnar hef-
ur fengið fhuga stjórnendur ferða-
skrifstofunnar nú hvort
grundvöllur sé fyrir flugfrelsi allt
árið. Samkvæmt upplýsingum frá
Samvinnuferðum-Landsýn ræðst
framhaldið að nokkru í sumar en
áhugi almennings ræður því einnig
hvert framhaldið verður.
Flugfrelsið hófst í gærmorgun
þegar ný breiðþota Atlanta flaug
með 480 farþega til Kaupmanna-
hafnar. Flugfrelsið var kynnt í jan-
úar sl. en það felur í sér nýja verð-
uppbyggingu og byggir á
samningum sem Samvinnuferðir-
Landsýn hefur gert við flugfélagið
Atlanta, íslandsflug og nokkra er-
lenda flugrekstraraðila.
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
AKRANES: Bílversf., sími431 1985. AKUREYRI: Höldurhf., sími4613000. KEFLAVÍK: Bílasalan Bflavík, sími421 7800. VESTMANNAEYJAR: Bílaverkstæðið Bragginn, sími 481 1535.
[HONDA HR-V 1.6i 4x4 5 DYRA
105 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir
loftpúöar, rafdrifnar rúður og speglar,
hiti í sætum og speglum, fjarstýrðar
samlæsingar, samlitaður.
I
,.„„.1.890.000 kr.
HONDA HR-V 5 DYRA