Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 39
LISTIR
Ein af sýningum vetrarins í Þjóðleikhúsinu utan
Elva Ósk Ólafsdóttir og Baldur Trausti Hreinsson í hlutverkum sínum í
Brúðuheimili Ibsens.
Útskriftarsýning
nemenda LHI
Brúðu-
heimilið
til Græn-
lands
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur þegið
boð grænlenska menningarhúss-
ins í Nuuk um að koma til Græn-
lands og sýna Brúðuheimili Ibsens
næstkomandi laugardagskvöld.
Brúðuheimilið var á verkefna-
skrá Þjóðleikhússins á síðasta
leikári. Fyrir túlkun sína á hlut-
verki Nóru hlaut Elva Ósk Ólafs-
dóttir menningarverðlaun DV í
leiklist.
Brúðuheimili er eitt þekktasta
verk norska skáldjöfursins Hen-
riks Ibsens. Verkið var fyrst sett
á svið árið 1879 í Konunglega
leikhúsinu í Kaupmannahöfn og
vakti ákaflega sterk viðbrögð,
enda fjallar skáldið hér um efni
sem var þá þegar orðið eldfimt
deilumál, eða stöðu konunnar í
samfélaginu og innan hjónabands-
ins. Þrátt fyrir þær breytingar
sem orðið hafa á samfélagsgerð-
inni á þeim hundrað og tuttugu
árum sem liðin eru frá frumsýn-
ingu verksins, heldur það áfram
að heilla nýjar kynslóðir áhorf-
enda, með næmri skoðun skálds-
ins á samskiptum fólks og mann-
legum tilfinningum, segir í
fréttatilkynningu frá Þjóðleikhús-
inu.
Leikendur í Brúðuheimili eru,
auk Elvu Óskar Ólafsdóttur, Bald-
ur Trausti Hreinsson, sem fer
með hlutverk Helmers, Edda
Heiðrún Backman, Pálmi Gests-
son, Þröstur Leó Gunnarsson,
Halldóra Björnsdóttir og Margrét
Guðmundsdóttir. Höfundur leik-
myndar er Þórunn Sigríður Þor-
grímsdóttir og er hún einnig höf-
undur búninga ásamt Margréti
Sigurðardóttur. Lýsingu hannaði
Björn Bergsteinn Guðmundsson
og þýðinguna gerði Sveinn Ein-
arsson. Leikstjóri er Stefán Bald-
ursson.
Leikferðin er farin í samvinnu
við Reykjavík - Menningarborg
2000 með stuðningi menntamálar-
áðuneytisins, Norrænu leiklistar-
og dansnefndarinnar og ýmissa
annarra aðila.
NÚ stendur yfir sýning á lokaverk-
efnum nemenda í myndlistardeild
við Listaháskóla Islands. Sýningin
er í húsi skólans á Laugarnesvegi 91.
Alls sýna 47 nemendur verkefni
sín í myndlist og hönnun.
A hönnunarsviði; grafísk hönnun,
textíll og leirlist, útskrifast 19 nem-
endur:
Ásdís E. Pétursdóttir, Brynja
Emilsdóttir, Elísabet Jónsdóttir,
Guðmunda Hergeirsdóttir, Guðrún
Hilmisdóttir, Gunnar R. Kristinsson,
Haukur J. Hálfdánarson, Helga G.
Magnúsdóttir, Helga Guðmun-
dsdóttir, Ingibjörg Á. Gunnarsdótt-
ir, Ingibjörg Klemenzdóttir, Jó-
hanna Hauksdóttir, María
Jónsdóttir, Ragnheiður Guðmun-
dsdóttir, Sara M. Skúladóttir, Sól-
veig Þórisdóttir, Þorbjörg Valdi-
marsdóttir, Þórhildur E.
Elínardóttir og Ösp Jónsdóttir
Á myndlistarsviði; fjöltækni, graf-
ík, málun og skúlptúr, útskrifast 28
nemendur:
Anna María Ingadóttir, Ása Heið-
ur Rúnarsdóttir, Ásdís Þórarins-
dóttir, Birgir Öm Thoroddsen,
Bjarni Björgvinsson, Darri Lor-
enzen, Díana Hrafnsdóttir, Elva Th.
Hreiðarsdóttir, Frosti Friðriksson,
Guðni Gunnarsson, Guðrún M. Jó-
hannsdóttir, Halla K. Einarsdóttir,
Halldór A. Bjarnason, Haraldur
Jónasson, Hulda Vilhjálmsdóttir,
Ingibjörg Magnadóttir, Jóhannes A.
Hinriksson, Lilja Gunnarsdóttir,
Lilja Karlsdóttir, Margrét Ey-
mundsdóttir, Margrét Jónasdóttir,
Ólöf H. Guðmundsdóttir, Ragnheið-
ur Tryggvadóttir, Sírnir H. Einars-
son, Sólborg Gunnarsdóttir , Stella
Sigurgeirsdóttir, Þórunn Birgisdótt-
ir og Þuríður Una Pétursdóttir.
I tengslum við sýninguna er gefin
út sýningarskrá. Ritstjóri hennar er
Helga Pálína Brynjólfsdóttir en
Hilmar Þór Jóhannsson og Óli Daní-
el Helgason, nemendur á 2. ári í
grafískri hönnun, sáu um útlit og
hönnun. Útskriftarnemendur hafa
látið gera póstkort og verða þau boð-
in sýningargestum.
Hafdís Helgadóttir myndlistar-
maður og kennari er sýningarstjóri.
Sýningin verður opin daglega kl.
14-18 og lýkur sunnudaginn 28. maí.
Sýningu lýkur
Hallgrímskirkj a
Nú fer í hönd síðasta sýning-
arhelgi á verkum Sigurðar Ör-
lygssonar myndlistarmanns í
Hallgrímskirkju. Þar sýnir Sig-
urður fjögur olíumálverk sem
hann nefnir Tilbrigði við Kvöld-
máltíð.
Hallgrímskirkja er opin alla
daga frá 9-18 og lýkur sýning-
unni 1. júní.
Félagar í Myndlistarfélagi
Arnessýslu sýna í Eden
Hveragerði. Morgunblaðið.
í EDEN í Hveragerði stendur nú
yfir sýning á verkum félaga í Mynd-
listarfélagi Árnessýslu. Um 15
manns eiga verk á sýningunni sem
er mjög fjölbreytt. Vatnslitamyndir
og olíumálverk ásamt verkum úr
leir og ýmsum öðrum efnum prýða
veggi og eru öll verkin til sölu.
I Myndlistarfélagi Árnessýslu
eru um 80 félagar. Félagið hefur
það að markmiði að efla listalíf á
svæðinu og hefur félagið staðið fyr-
ir námskeiðum sem og ferðum á
listviðburði ásamt því að standa fyr-
ir 2-3 sýningum félagsmanna á ári.
Margir kannast eflaust við sýn-
ingarhald félagsmanna í Safnahús-
inu á Selfossi sem hefur verið árviss
viðburður um páska. Sýningunni í
Eden lýkur 28. maí næstkomandi.
Lj dsmyndasýn-
in g í Nema hvað
IAN Bruce og Vala Dóra Jónsdóttir
opna ljósmyndasýningu í Gallerí
Nema hvað, Skólavörðustíg 22c, í
dag, föstudag.
Bruce útskrifaðist úr ljósmynda-
námi frá Edinburgh College of Art
árið 1996. Hann hefur haldið nokkrar
einka- og samsýningar, m.a. Stills
Gallery í Edinborg, Traverse Theatre
í Edinborg og Brick Lane í London.
Vala Dóra útskrifaðist frá ljós-
myndaskólanum Stevenson College í
Edinborg árið 1997 og hefur sótt
námskeið í Danmörku. Vala hefur
haldið sýningar m.a. í Akademie Gall-
erie í Munchen, Bonhoga Gallery,
Shetland og Traverse Theatre í Edin-
borg.
Sýningin í Nema hvað er opin mið-
vikudaga til sunnudaga kl. 14-18.
Henni lýkur sunnudaginn 11. júní.
U mh verfíshönn-
un í OneoOne
FOS opnar sýningu í OneoOne gall-
erí, Laugavegi 48b, á morgun, laugar-
dag, kl. 17. Fos (f. 1971) býr og starfar
í Kaupmannahöfn.
í kynningu segir m.a. „Fos skiptir
list sinni í tvær greinar. Önnur „Úm-
hverfishönnun" felur í sér allsherjar
plön um hvemig megi þróa nýja staði
og rými. „Umhverfishönnun" miðar
að því að leggja grunn að breyttri
samfélagsgerð og fellur því greinilega
langt fyrir utan hin hefðbundnu svið
listar. Hin greinin sem Fos fæst við er
„Umhverfis-endurhönnun“. Með inn-
setningum, skúlptúrum, klippimynd-
um, málun og grafískri hönnun kynn-
ir listamaðurinn myndrænan heim
sem skapast þegar umhverfið mætir
hinu persónulega. Fos vinnur mikið
sem plötusnúður og notar oft tónlist í
verk sín.“ Sýningin er til 27. júní.
- skemmtileg búbót fyrir brúðhjónin 1
Verðandi brúðhjón eru hjartanlega velkomin í verslun >
Byggt og búið ( Krínglunni. Þar er þeim boðið að skrá
sig, velja fallega muni og setja þá á óskalista fyrir
brúðkaupið. Þegar líður að brúðkaupinu er tilvalið fyrír
vini og vandamenn að iíta inn í Byggt og búið og velja
smáar sem stórar gjafir eftir óskum brúðhjónanna.
1 Byggt og búið er mikið úrval af fallegum og
gagnlegum munum fyrír heimilið og að auki leggur
Byggt og búið til óvæntan glaðning handa öllum
brúðhjónum. í sumarlok verður svo dregið úr öllum
k skráðum brúðargjafalistum og fá heppin hjón hina
margrómuðu Kitchen Aid hrærivél að gjöf.
Kringlunni
iími 568 9400
)pið sunnudag 13-17
Marea Weekend ELX estiva
Ótrúlega vel
útbúinn á kr:
1.495.00 n.,
Loftkœling með hitastýringu (AC
Stillanlegur hltablástur afturi)
Þrjú þriggja punkta belti í aftursœti
Fimm hnakkapúðar
Lúxusinnrétting
Samlitlr stuðarar
Samlitir speglar og hurðarhandföng
Halogen linsuaðalljós
Rafstýrðir og upphitaöir útispeglar
Rafstýrðlr bílbeltastrekkjarar
Vökvaslýri
Fjarstýrðar samlœsingar
Geislaspllari 4x40 wött
Fjórlr hátalarar
Rafdrifnar rúður að framan
Snúningshraðamœllr
Útihrtamœlir
103 hestafla 1.6 lítra 16 ventla vél
Tölvustýrð fjölinnsprautun
ABS hemlalœsivörn
EBD hemlajöfnunarbúnaður
Hœðarstilllng á ökumannssœti
Rafstýrð mjóbaksstllling
Armpúði í aftursœti
Vasi á miöjustokk
Vasar aftan á framsœtisbökum
Hœðarstilling á slýri
Lesljós í aftursœti
Litaðar rúður
Þakbogar
Rœsivörn í lykli
þrlðja Premsuljóslð
Hiti, þurrka og rúðusprauta á afturrúðu
14" felgur
Stillanleg hœð aöalljósa
Tvískipt aftursœtl
Heilklœtt farangursrýml
Geymsluhólf í farangursrými
Tvískiptur afturhlerl
Mottusett
Galvanhúðaður
8 ára ábyrgð á gegnumtœringu
Eyðsla skv. meginlandsstaðli 8,3 1/100 km
Istraktor ?°
BlLAR FYRIR ALLA
SMIOSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍMI 5 400 000