Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 75>__
FRÉTTIR
Fyrirlestur um
erfðavísindi á
nýrri öld
EVELYN Fox Keller flytur opin-
beran fyrirlestur laugardaginn 27.
maí kl. 14 á vegum Mannfræði-
stofnunar Háskóla íslands. Fyrir-
lesturinn nefnist „Erfðavísindin á
nýrri öld“ og verður haldinn í hátíða-
sal aðalbyggingar Háskóla íslands.
Evelyn Fox Keller er prófessor í
sögu og vísindaheimspeki við Massa-
chusetts Institute of Technology í
Boston. Hún er heimskunn fyrir rit
sín um félagslegt baksvið lífvísinda,
m.a. erfðafræði, segir í fréttatil-
kynningu. Meðal verka hennar eru
bækurnar „A Feeling for the Organ-
ism“, „Reflections on Gender and
Science" og „Refiguring Life“.
Fyrirlesturinn er hluti af röð opin-
berra fyrirlestra á vegum Mann-
fræðistofnunar Háskóla Islands um
„Markalínur náttúru og samfélags“.
Hinsegin dagar í
Reykjavík hafnir
HINSEGIN dagar í Reykjavík - Gay
Pride 2000 voru settir í íslensku óp-
erunni fimmtudaginn 25. maí. með
sýning á ástralska leikritinu Go By
Night eftir Stephen House.
Laugardaginn 27. maí verður há-
tíðarsýning á Fullkomnum jafningja
eftir Felix Bergsson, en hann er
nýkominn með verkið af fjölum Drill
Hall í Lundúnum, þar sem það hlaut
góðar viðtökur. Þetta verður lokasýn-
ing á Fullkomnum jafningja á Islandi.
Hátíðin stendur yfir í allt sumar en
meginhátíðin fer fram dagana 11.-13.
ágúst. í júní fer fram alþjóðlegt mót
leðurklúbba í Reykjavík og er búist
við um fjórum tugum erlendra gesta
á það. Upplýsingar um dagskrá Hins-
egin daga í Reykjavík - Gay Pride
2000 er að finna á heimasíðu hátíðar-
innar: www.this.is/gaypride
EÐALVAGNASÝNING verður
haldin hjá B&L helgina 26. og 27.
maí þar sem sýndir verða bflar af
ýmsum stærðum og gerðum. Meðal
annars verður frumsýndur BMW
X5-jeppi.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
BMW X5 er búinn 4,4 lítra, 8 strokka
vél sem gerir það að verkum að
hann kemst frú 0 og upp í 100 km/
klst á 8 sekúndum. Jeppinn er auk
þess með gott bremsukerfi sem ger-
ir ökumönnum kleift að stöðva hann
af jafnmiklu öryggi og þeir taka af
stað. Bfllinn hefur DSC-stöðugleika-
stýringu á öllum dekkjum, HDC-
stýrikerfi sem gerir hann öruggari á
fjallvegum og 10 loftpúða."
Einnig verða sýndir bflar úr
„þrjú-línu“ BMW. Þar er um að ræða
316i Compact, 318LA Saloon og
328LA Saloon, klassíska línu sem við-
HALDINN verður reiðhjóladagur
Grafarvogs á laugardaginn og hefst
hann með hjólaferð frá Gufunesbæ
kl. 13:30. Hjólaður veður stuttur
hringur um hverfið og komið aftur
að Gufunesbæ um klukkustund síð-
ar.
Hjólaviðgerðarmaður frá reið-
hjólaverslunni Hvelli verður á staðn-
um frá kl. 14:15 til 16:30 og ætlar að
skiptavinir B&L þekkja af gúðu.
Fjöldi annarra nýrra bfla verður á
sýningunni. Þar má nefha BMW
523LA Saloon, 6 strokka bfl með 170
hestafla vél og 5 þrepa steptronic-
skiptingu, en honum má breyta í
beinskiptan bfl með einu handtaki.
Þá verður sýndur í fyrsta sinn hér á
landi BMW 530D Saloon en hann er
með nýju þriggja lítra díselvélina
frá BMW. Áhugamenn um sportbfla
fá einnig sinn skerf á sýningunni en
þar verða til sýnis BMW Z3, hefð-
bundinn, opinn, tveggja sæta sport-
bfll með tveggja lítra vél, og BMW
Z3 M - coupé sem sumir vilja kalla
alvörusportbfll enda er hann með
321 hestaflavél.
Ennfremur verða bflar úr Land-
rover-fjölskyldunni til sýnis, þ.m.t.
Range Rover, bæði með bensín- og
díselvél.
veita fólki aðstoð og kennslu í hjóla-
viðgerðum s.s. skipta um dekk, laga
slitna keðju og fleira. Hann verður
með helstu varahluti meðferðis
þannig að fólki gefst kostur á að
kaupa það sem til þarf til að koma
hjólinu í stand fyrir sumarið. Lög-
reglan mætir einnig og verður með
reiðhjólaskoðun. Boðið verður upp á
kaffiveitingar í Gufunesbæ.
Yfirlýsing
frá ísfugli
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing frá
ísfugli:
„Vegna frétta um aukna
campylobactermengun í kjúkl-
ingum undanfamar vikur vill
Isfugl ehf. koma eftirfarandi
upplýsingum á framfæri.
Sláturhús ísfugls í Mosfells-
bæ hefur um langt árabil sinnt
kröfum heilbrigðisyfirvalda af
fremsta megni. Strangar reglur
eru um að framleiðendur taki
sýni úr eldissíum og niður-
stöður úr þeim liggi fyrir þegar
slátrað er. Eftirliti í sláturhúsi
er þannig háttað að héraðsdýra-
læknirinn kemur í sláturhúsið á
hverjum degi, fylgist með slátr-
un og tekur sýni. Stórauknum
kröfum um þrif og sótthreinsun
er fylgt eftir samkvæmt innra
eftirliti fyrirtækisins.
Þessi vinnubrögð hafa leitt til
þess að ísfuglskjúklingar, undir
vörumerkinu Kjúlli, hafa komið
vel út í sýnatökum heilbrigðis-
yfirvalda.
í umræðunni um campylo-
bactersýkingar hefur verið
mikið rætt um ábyrgð framleið-
enda, yfirdýralæknis og heil-
brigðisyfirvalda, en hver er
ábyrgð verslunarinnar? Stað-
reyndin er sú að fæstir stór-
markaðanna hafa séð ástæðu til
að bjóða viðskiptavinum sínum
ísfuglskjúklinga samhliða öðr-
um vörumerkjum.
Stefna ísfugls er að gera
áfram það sem í mannlegu valdi
stendur til að framleiða hreina
kjúklinga sem við vonum að rati
á borð kröfuharðra neytenda
sem eiga það besta skilið.“
Reiðhjóladagur í Grafarvogi
Fréttir á Netinu
vg>mbl.i$
ALLT*\/= E/TTH\SA£> /MTTT
ISLENSKU TRÖLLIN
ERU KOMIN!
Brian Pilkington hefur hlásið nýju lífi í furðuveröld tröllanna á fyndinn og frumlegan
hátt. Bókin Allt um tröll kom út á íslensku og ensku fyrir síðustu jól og nú hefur
bæst við bráðskemmtilegt úrval gjafavöru og minjagripa.
Vcentarilegt í stcerri bóka- og ferðamannaverslanir
um land allt.
Mál og menning
www.malogmenning.is
BOLIR- SEÓULMYNPIR- BÓKAMERKI - KÖNNUR - BRÚPUR - ÞÓSTKORT- LYKLAKIPPUR - VEC6MYND