Morgunblaðið - 26.05.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 71
Vor í Reykjavíkurgarði.
YOR í REYKJA-
VÍKURGÖRÐUM
STUNDUM er sagt sá á kvölina
sem á völina og það átti svo sannar-
lega við þegar þurfti að velja titil á
þetta greinarkom. Sitthvað annað
kom til greina: Líf í borg - náttúra
og umhverfi í Reykjavík, Reykjavík
2000 eða Garðyrkjufélag íslands
115 ára. Reyndar má
segja að allt þetta
tengist undir titlinum
Vor í Reykjavíkur-
görðum.
Það hefur líklega
farið fram hjá fáum
að Reykjavík er ein
af þeim borgum sem
bera titilinn Menn-
ingarborg Evrópu
árið 2000. Allt árið
verður helgað menn-
ingu; listviðburðum
og ftolbreytílegri
fræðslu, sem ekki er
einskorðað við
Reykjavík, heldur
spannar landið allt.
Háskóli íslands tek-
ur virkan þátt í hátíðarhöldum
menningarborgarinnar. Dagana
25.-28. maí gengst Háskólinn íyrir
ráðstefnu með fjölbreyttri dagskrá
undir samheitinu Líf í borg. Dag-
skráin er öllum opin og aðgangseyr-
ir enginn. Einn dagskrárliða eru
vettvangsferðir. Þar koma Grasa-
garður Reykjavíkur og Garðyrkju-
félag íslands að málum. Sunnudag-
inn 28. maí eru Grasagarðurinn og 6
garðar í eigu félaga G.í. opnir frá kl.
13-17. Þar gefst ráðstefnugestum
og landsmönnum öllum tækifæri til
að kynnast vori í Reykjavíkurgörð-
um.
Stjóm G.í. flnnst sérlega
ánægjulegt að geta tekið á mótí
gestum einmitt þessa helgi, þegar
við minnumst 115 ára afmælis fé-
lagsins, en það var stofnað í
Reykjavík 26. maí 1885 af 18 heið-
ursmönnum. Tilgangur þeirra var
að vekja trú manna á gróðurmátt
landsins, auka ræktun matjurta og
fjölbreytni blóma og trjáa. Frum-
kvæði þeirra hefur líka borið góðan
ávöxt og gróður og bæjarbragur
allur hefur tekið ótrúlegum stakka-
skiptum á þessum 115 árum.
Garðyrkjufélagið starfar sem fé-
lag áhugamanna, en innan vébanda
þess eru engu að síður bæði fag-
lærðir og vísinda-
menn. Félagar í G.I.
eru um 3000 talsins
víðsvegar um landið.
Starfsemi félagsins er
fjölbreytt, það eru
haldin erindi og
fræðslufundir um af-
mörkuð efni innan
ræktunarinnar, en þar
teljum við okkur ekk-
ert óviðkomandi,
hvorki matjurtarækt-
un, blómræktun eða
trjá- eða runnarækt-
un. Auk fræðslufunda
gefur félagið út lítið
fréttabréf 5-8 sinnum
á ári. Félagar fá senda
pöntunarlista yfir
haustlauka og vorlauka, þar sem
ýmislegt er á boðstólum, sem ekki
fæst í hverri garðyrkjustöð eða
verslun. Eins fá félagar sendan
frælista með mesta úrvali af fræi
íjölæringa, bæði blóma og trjáa,
sem gefst á landinu, en iðulega eru
á listanum liðlega 1000 tegundir.
Garðyrkjuritið kemur út árlega og
inniheldur hvert sinn fjölmargar
greinar um gróður, þannig að sem
flestir finni eitthvað á sínu áhuga-
sviði og ekki má gleyma að félagið
hefur á þessum 115 árum gefið út
fjölmargar bækur um ræktun, núna
síðast bókina Garðinn, sem fjallar
um hönnun og sldpulag garða og er
framúrskarandi hugmyndabanki
fyrir alla garðeigendur.
Vinsælasti atburður hvers árs er
garðaskoðun félagsins. Um áratuga
skeið hafa nokkrir félagar opnað
garða sína fyrir öðrum félögum G.í.
einn sunnudag á sumri, venjulega
síðla júlí. Vegna ráðstefnu Háskól-
ans, Líf í borg, er garðaskoðunin þó
færð til og eins og áður sagði,
hvorki einskorðuð við félagsmenn
né ráðstefnugesti, heldur eru allir
boðnir velkomnir. Garðeigendur
tóku að sjálfsögðu áhættu, þar sem
ákvörðunin var tekin löngu áður en
sýnt var hvernig voraði, og er félag-
ið mjög þakklátt sínu fólki. Undan-
famar nætur hefur hitinn verið um
frostmark og Esjan hefur gránað
niður í miðjar hlíðar, þannig að
gróður hefur oft verið lengra kom-
inn en nú, en það er að taka viljann
fyrirverkið.
Garðyrkjufélagið og Grasagarð-
urinn í Reykjavík hafa um langt
árabil átt mjög gott samstarf, þess
vegna finnst okkur gaman að geta
saman leyft fólki að njóta vors í
Reykjavíkurgörðum. Grasagarður-
inn er nær fertugur að árum en sí-
ungur og verður fallegri með hverju
árinu. Hann er þó ekki skrúðgarður
í eiginlegum skilningi heldur lifandi
safn trjáa og jurta víðs vegar úr
heiminum auk þess sem íslensku
flórunni eru gerð sérstök skil. Gróð-
ur í garðinum tekur stöðugum
breytingum, þannig að gaman er að
ganga um Grasagarðinn í Laugar-
dal oft á sumri, nýjar plöntur vekja
athyglina hverju sinni. Á sunnudag-
inn kemur gengur starfsfólk um
garðinn með gestum og vekur at-
hygli á einstökum hlutum, lagt
verður af stað frá Lysthúsinu við
glerskálann á klukkutíma fresti.
Eftirfarandi einkagarðar verða
opnir:
Hlaðbær 18: Hulda Filippusdótt-
ir og Ámi Kjartansson
Vorsabær 11: Ásrún Ólafsdóttir
og Þórhallur Jónsson
Hverafold 46: Monika Baldurs-
dóttir og Hilmar Einarsson
Hverafold 70: Þórdís Sigurðar-
dóttir og Haraldur Pálsson
Langagerði 19: Sigríður Hjartar
og Stefán Guðbergsson
Langagerði 96: Elín Maríusdótt-
ir og Ólafur Bjöm Guðmundsson
Verið velkomin.
S.Ifl.
BLOM
VIKUIVMR
430. þáttur
llmsjón Sigríður
lljartar
Afhverju
ekki aö senda
peningana út að
vinna straxP
Fjárfestu á hlutabréfamarkaði án þess að taka áhættu
FORGJÖF
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Qhmtu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Jersey-, krep-
os flónels-
rúmfatasett
Póstsendum
Skólavörðustig 21a, Reykjavík, sími 551 4050.
Þú getur ekki tapaö
Solutim.ibil mai
landsbankinn
SUOt V|S NOSMIH NHVJiHÍ J1QJ UOO