Morgunblaðið - 26.05.2000, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skólaslit Flens-
borgarskólans
FLENSBORGARSKÓLANUM
var slitið laugardaginn 20. maí við
hátíðlega athöfn í Víðistaðakirkju.
Að þessu sinni var útskrifaður 51
stúdent. I hópnum voru tveir sem
luku námi á þremur árum og þrír
öldungar.
Besta árangrinum náði Lilja Yr
Halldórsdóttir en hún útskrifaðist
af náttúrufræðibraut eftir þriggja
ára nám. Pá fékk Hreinn Sæ-
mundsson einnig verðlaunaður en
hann lauk flestum einingum og
einnig með góðum árangri.
Fleiri voru verðlaunaðir fyi'ir ár-
angur sinn. Þrír nýnemar voru
verðlaunaðir fyrir framúrskarandi
árangur í námi en það voru þau
Lilja og Rósa Guðmundsdætur sem
eru tvíburasystur og Vignir Freyr
Helgason sem öll luku prófum með
afbragðsárangri. 25 ára stúdentar
héldu upp á stúdentsafmæli sitt og
færðu skólanum að gjöf listaverkið
Uppsprettan eftir Sverri Ólafsson.
Við athöfnina söng kór skólans
undir stjórn Hrafnhildar Blomster-
berg.
I ræðu skólameistara, Einars
Birgis Steinþórssonar, kom fram
að vegna þrenginga í rekstri verð-
ur Öldungadeildinni lokað næsta
vetur en í staðinn eflt samstarf við
Námsflokka Hafnarfjarðar um ým-
is námskeið. Þá vék hann að far-
tölvuvæðingu en í undirbúningi er
að bjóða nemendum og kennurum
fartölvur og þráðlausa tengingu á
næsta sumri. Skólameistari fjallaði
um breytingar á námskrá og sagði
frá þeim nýjungum sem í vændum
eru en vinnsla námskrár er á loka-
títskriftarnemendur frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
stigi. Hann vék einnig að neyslu-
hyggjunni sem alið er á meðal
nemenda og taldi að hún væri farin
að trufla skólastarf auk þess sem
ungmenni stunduðu gríðarlega
vinnu með námi til að standa undir
dýrum rekstri og jafnvel lánum.
Einar vék einnig að starfi vetr-
arins en miklu hefur verið áorkað í
námskrár- og skipulagsmálum í
vetur. Hann taldi mikilvægt að yf-
irvöld stæðu vel við bakið á skólun-
um um leið og hann þakkaði starfs-
fólki og nemendum samstarfið á
líðandi vetri.
Stóriðjuskóliim út-
skrifar 14 nemendur i
Hluti útskriftarnema úr Borgarholtsskóla.
BORGARHOLTSSKÓLA var slitið í
fjórða sinn laugardaginn 20. maí. At-
höfnin fór fram í nýjum sal skólans.
Útskrifaðir voru 109 nemendur; 14
nýstúdentar, 24 nemendur í bílgrein-
um, sem luku námi í svonefndu lotu-
kerfi, sem er nýjung í framhaldsskól-
um, 28 úr málmiðngreinum, 3 í
pípulögnum, 12 af félagsþjónustu-
braut, 9 af verslunarbraut og 20 af al-
mennri námsbraut. Hæstu einkunn á
stúdentsprófi hlaut íris Axelsdóttir.
Öllum nemendum var afhent birk-
iplanta með skírteinum sínum um
námslok og þeii' hvattir til að gróð-
ursetja hana í góðum jarðvegi.
Aðstoðarskólameistari lýsti starf-
seminni á liðnu skólaári. í máli hans
kom fram að skólinn á gott samstarf
við atvinnulífið; hann annast kennslu
stuðningsfulltrúa og skólaliða í
grunnskólum samkvæmt samningi
við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur,
Fyrstu stúd-
entarnir
frá Borgar-
holtsskóla
kennsla í stóriðjuskóla ÍSAL er í
höndum skólans og í húsakynnum
hans fara fram endurmenntunar-
námskeið í bíl- og málmiðngreinum.
I félagslífi nemenda bar hæst gott
gengi í Gettu betur.
Meiri skilningur á mannrækt
Skólameistari gerði siðmennt að
umræðuefni í kveðjuávarpi sínu, en
einkunnarorð skólans eru bókmennt,
handmennt, siðmennt. Hún benti að
að mannræktarþátturinn í skóla-
starfi nyti meiri skilnings en áður;
það sýndi lífsleikniáfangi nýrrar
námskrár. Hugsunin væri ekki ein-
göngu fólgin í að framkvæma að-
gerðir heldur skiptu tilfinningar,
skilningur manna á eigin tilfinning-
um og annarra, ekki síður máli.
Nemendur voru kvaddir með þeiiTÍ
ósk að þeirra biðu siðferðileg úr-
lausnarefni og hæfni til að meta
hvaða verðmæti það eru sem veita
lífsfyllingu og hamingju.
Arna Jónssonar deildarstjóra í bif-
vélavirkjun, sem lést í upphafi árs-
ins, var minnst með því að viðstaddir
risu úr sætum.
Ávörp fluttu Anna Rós Sigmunds-
dóttir nýstúdent og Örnólfur Thor-
lacius fyrrverandi rektor.
Fjölmenni var við athöfnina og
tónlist fluttu nemendur úr Tónlistar-
skóla Grafarvogs.
FJÓRTÁN nemendur voru útskrif-
aðir frá Stóriðjuskólanum þriðju-
daginn 23. maí, við athöfn í Straum-
svík. Þetta er í annað sinn sem
nemendur útskrifast úr Stóriðju-
skólanum og alls hafa því 30 manns
lokið námi við skólann.
Afhentar voru viðurkenningar
fyi-ir bestan námsárangur, en tveir
nemendur fengu hæira en 9 í aðal-
einkunn. Skóladúx Stóriðjuskólans
að þessu sinni var Kristján Helga-
son með aðaleinkuna 9,35. Semi-dúx
var Björn S. Sverrisson með aðal-
einkunina 9,05. Þá fengu fimm nem-
endur sérstaka viðurkenningu fyrir
100% mætingu á námstímanum,
þeir Bjarni Þór Guðmundsson,
Brynjólfur Lárentsíusson, Gauti
Brynjólfsson, Kristján Helgason og
Sverrir Berg Guðjónsson.
Reynsla Islenska álfélagsins hf. af
útskrifuðum stóriðjugi'einum er
mjög góð og ljóst að menntunin nýt- i
ist mönnum mjög vel í starfi. Það
markmið hefur því náðst, að bjóða
starfsmönnum ISAL upp á gott nám
þeim sjálfum og fyrirtækinu til góðs.
Námið í Stóriðjuskólanum skipt-
ist í almennan og fagtengdan hluta.
Almenni hlutinn skiptist í 6 náms-
greinar; tölvutækni, mannleg sam-
skipti og tjáningu, stærðfræði, eðlis- |
fræði, efnafræði, og fyrirtækið og
þjóðlífið. Faglegi hlutinn skiptist í
framleiðsluferli í stóriðju, tölvur og
stýringar, eldföst efni, vélfræði með
fyrirbyggjandi viðhaldi, gæða-
stjórnun og gæðaeftirlit, vistfræði
og umhverfismál, og fræðilegt efni
fyrir einstök framleiðsluferli. Að
loknu námi í Stóriðjuskólanum fá
nemendur launahækkun og starfs-
heitið stóriðjugreinir.
Faghópur
listgreina á
leikskólum
STOFNAÐUR hefur verið fag-
hópur leikskólakennara með
sérmenntun á sviði listgreina
innan Félags íslenskra leik-
skólakennara.
Markmið faghópsins er að
auka skilning á mikilvægi list-
sköpunar fyrir börn, styrkja fé-
lagsmenn sína í starfi, auka
tengsl við listamenn og stofn-
anir tengdar listum, stuðla að
rannsóknum á sviði listgreina í
leikskólum og að efla þekkingu
og símenntun leikskólakennara
á sviði listgreina.
Allir þeir sem eru meðlimir í
Félagi íslenskra leikskólakenn-
ara og eru með sérmenntun á
sviði listgreina geta orðið aðilar
að hópnum.
títskriftarnemendur frá Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Iðnskólinn í Hafnarfírði
64 nemendur útskrifaðir
SEXTÍU og fjórir nemendur voru
útskrifaðir frá Iðnskólanum í Hafn-
arfirði 20. maí sl. Þetta eru fyrstu
nemendurnir sem útskrifast eftir að
skólinn flutti í nýtt og glæsilegt hús-
næði í Flatahrauni 12 um síðustu
áramót. í þessum hópi voru fyrstu
nemendurnir sem útskrifast af út-
stillingarbraut, en fimm nemendur
brautskráðust í gluggaútstillingum
og munu vera hinir fyrstu sem lært
hafa þessa grein á íslandi. Jóhannes
Einarsson skólameistari sagði við
þetta tækifæri; „Viðburðaríku og
ánægjulegu skólaári er að Ijúka.
Skólaslit hvers skólaárs eru ávallt
afar ánægjuleg og sérstaklega þegar
hópurinn sem brautskráist er eins
stór og nú.“ Verðlaun voru veitt fyrir
frábæran námsárangur. Ragnheiður
Kristinsdóttir og Tinna Hlín Ás-
geirsdóttir hársnyrtinemar hlutu
verðlaun frá Samtökum iðnaðarins
fyrir frábæran námsárangur á burt-
fararprófi iðnnáms. Arndís Ósk
Steinarsdóttir hlaut verðlaun fyrir
hæstan árangur í íslensku á loka-
prófi.
Viðurkenningu fyrir góðan náms-
árangur á hönnunarbraut hlaut
Fanney Björk Frostadóttir. Þá hlaut
Helgi Marteinn Ingason viðurkenn-
ingu fyrir frábæran námsárangur í
bæði ensku og dönsku.