Morgunblaðið - 26.05.2000, Side 35

Morgunblaðið - 26.05.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 35 ERLENT Ummæli fransks ráðherra varpa skugga á sambúð Þýskalands og Frakklands Sagði Þýskaland ekki hafa jafn- að sig á „útafspori“ nasismans París. Reuters, AFP. INNANRÍKISRÁDHERRA Frakklands, Jean-Pierre Chevene- ment, baðst í vikunni afsökunar á ummælum sem hann lét falla um síð- ustu helgi og opinberuðu það álit hans að utanríkisstefna Þýskalands væri enn mótuð af arfi nasismans. Chevenement sagði í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina France 2 á sunnudag að hugmyndir sem Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, kynnti nýlega um fram- tíð Evrópusamrunans væru til marks um að Þjóðverjar vildu þröngva sínu pólitíska kerfi upp á aðra íbúa álfunn- ar. Hugmyndir Fischers, sem hann kynnti í ræðu í Berlín fyrir skömmu, hafa vakið mikla athygli í Evrópu. I meginatriðum fela þær í sér að Evrópusambandið (ESB) verði það sem Fischer kýs að kalla „sambands- n"ki þjóðnTga11. „Svo virðist sem það sem hér er á ferðinni sé sú tilhneiging Þjóðverja að vilja særa fram hliðstætt sam- bandsfyrirkomulag í Evrópu og er við lýði í Þýskalandi,“ sagði Chevene- ment í sjónvarpsviðtalinu. „I raun dreymir Þýskaland enn um Hið hei- laga rómverska ríki. Það hefur ekki jafnað sig á því „útafspori" í sögu sinni sem nasisminn var.“ Ummæli Chevenements vöktu þegar mikla reiði meðal Evrópusinna í álfunni. Einn þeirra, Valery Giscard D’Estaing, fyrrverandi forseti Frakklands sagðist vera rasandi vegna orða Chevenements og hvatti ríkisstjómina til að taka afstöðu gegn þeim. „Að saka leiðtoga Þýskalands um, meira eða minna, að endurvekja nasismann er óþolandi," yar haft eftir D’Estaing í vikunni, „Ég veit ekki hvort fólk sem segir svona lagað ger- ir sér grein fyrir þeim skaða sem það veldur Frakklandi og Þýskalandi." Chevenement hefur í vikunni reynt að draga úr ummælum sínum. „Mér þykir þetta mjög leitt því hugs- anh’ mínar voru e.t.v. of flóknar til að þær væri hægt að tjá í sjónvarpi. Að sjálfsögðu elska ég Þýskaland og er fylgjandi vináttu Þjóðverja og Frakka. Ég sagði einfaldlega að Þýskaland hefði ekki verið læknað, ekki af nasisma, heldur af því sögu- lega útafspori sem nasisminn var,“ sagði hann í einu viðtali. Chevenement er fonnaður Mann- réttindaflokksins, sem á aðild að samsteypustjórn undir forystu sós- íalista, og er þekktur fyrir að vilja eindregið standa vörð um franskt fullveldi. Hann sagði af sér ráðherra- dómi árið 1991 vegna andstöðu við stríðsrekstur Vesturveldanna í írak og Kúveit og ári síðar barðist hann ötullega gegn samþykkt Maastricht- sáttmálans. Lofar tillögur starfsbróður síns Hubert Vedrine, utanríkisráð- herra Frakklands, hefur lofað tillög- ur hins þýska starfsbróður síns en sagt að Frakkar vilji nú einbeita sér að fyrirhugðum breytingum á stofn- unum ESB vegna stækkunar þess til austurs. Franski ráðherrann sagðist fyrir síðustu helgi óttast að tillögur Éischers kynnu að valda sundrungu innan sambandsins. Frakkar taka við forsæti í leiðtogaráði ESB á síðai'i helmingi þessa árs og kemur því í þeirra hlut að leiða til lykta endur- skoðun grunnsáttmála sambandsins sem nauðsynleg er vegna stækkun- arinnar. „Ef það land sem tekur við forsæt- inu setur tillögurnar á dagski’á mun það samstundis leiða til þess að Evrópubúar skipi sér í a.m.k. þrjár fylkingar: fólk sem styður tillögurn- ar, fólk sem eru þeim algerlega and- vígt og fólk sem er ekki alveg visst í sinni sök,“ sagði Vedrine. Ummæli franska ráðherrans féllu skömmu fyrir reglulegan fund leiðtoga Frakk- lands og Þýskalands sem haldinn var skammt utan við París sl. föstudag. Voru tillögurnar meðal meðal þess sem þeir Jacques Chirac Frakk- landsforseti og Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, ræddu sín á milli á fundinum. Lokatakmarkið evrópskt sambandsríki I ræðu sem Joschka Fischer hélt í Humboldt-háskólanum í Berlín lagði hann til að nokkur ríki innan ESB hefðu forystu um að ganga lengra í pólitískum samruna og að lokatak- mark Evrópusamrunans ætti að vera evrópskt sambandsríki. Evrópska samþandsríkið ætti að fá eigin ríkis- stjórn, þing og stjórnarskrá, þar sem valdsvið sambandsstjórnarinnar og þjóðríkjanna yrðu skýrt afmörkuð. Þjóðríkin héldu áfram að vera póli- tískar grunneiningar sambandsins. Varaði Fischer við því að ef ekki færi fram umræða um hvert vera ætti lokatakmark Evrópusamrunans, nú þegar til stæði að fjölga aðildarríkj- um ESB upp í allt að 30, væri hætta á að sambandið lenti í blindgötu og jafnvel liðaðist í sundur. Kristnihátíð í Færeyjum Þrír prestar valda fjaðrafoki Þdrshöfn. Morgunblaðið. ÞRÍR færeyskir sóknarprest- ar, sem eru algerlega andvígir staðfestri sambúð samkyn- hneigðra með kirkjuvígslu, hafa valdið miklu fjaðrafoki í tengslum við fyrirhugaða kristnihátíð í Færeyjum sem halda á um hvítasunnuhelgina. Hans Jacob Joensen, biskup Færeyja, hefur boðið 16 bisk- upum frá Norðurlöndum til há- tíðarhaldanna. Tíu þeirra eru frá Danmörku og hefur þeim verið boðið að halda guðsþjón- ustur víðs vegar um Færeyjar annan í hvítasunnu. Færeysku prestarnir þrír hafa hins vegar mótmælt því harðlega að dönsku biskuparnir haldi mess- ur í prestaköllum sínum vegna þeiiTai’ ákvörðunar danskra biskupa árið 1997 að leyfa vígslu samkynhneigðra. Hefur málið dregið nokkurn dilk á eft- ir sér þar sem færeyskir sókn- arprestar sem eru á önverðri skoðun rituðu biskupunum dönsku afsökunarbréf nýverið. í bréfinu er fullyrt að sóknar- prestarnir þrír tali ekki máli þorra íbúa eyjanna og vonast er til að málið muni ekki skaða há- tíðarhöldin. Handtekinn vegna gruns um morðið á Jill Dando London. Morgnnblaðiö. SCOTLAND Yard handtók í gær mann grunaðan um morðið á sjónvarpskonunni Jill Dando í apríl í fyrra. Þessi morðrannsókn er orðin ein sú um- fangsmesta sem Scot- land Yard hefur unnið að; faidð hefur verið í saumana á lífshlaupi Jill Dando, lögreglan hefur farið í gegnum 8.000 ábendingar, 80.000 símtöl í far- síma, 13.700 tölvubréf, kannað 20.000 bláa Range Rover-bíla, rætt við 4.000 hugsan- leg vitni og 100 manns hafa verið sérstaklega yfirheyrðir vegna að- dáunar þeirra á Jill Dando. Þrír menn hafa verið handteknir við rannsókn málsins og síðan látnir lausir aftur, en maðurinn, sem handtekinn var í gærmorgun, er sá fyrsti sem handtekinn er grunaður um morðið. Maðurinn vai’ handtekinn klukkan hálfsjö í gærmorgun á heimili sínu í Hammersmith. Hann er um fertugt og hefur ekki komið við sögu málsins áður. Lögreglan verst enn allra frétta af handtökunni, en svo virðist sem hún hafi átt sér nokkurn aðdrag- anda. Lögreglan hefur nokkrum sinnum lýst sérstaklega eftir upplýs- ingum tengdum málinu, m.a. í sjón- varpsþætti um óleyst sakamál sem Jill Dando var annar umsjónar- manna að og 250 þúsund pundum vai’ heitið þeim sem gæti gefið upplýsing- ar sem leiddu til handtöku morðingj- ans. Lögreglan auglýsti eftir upplýs- ingum nú síðast 21. apríl sl. og fékk þá 400 símtöl og um 200 ábendingar. Breska sjónvarpsstjarnan Jill Dando, sem hér sést á mynd frá því í janúar 1999, var einn aðal- fréttaþulur BBC-sjónvarpsstöðvarinnar. Jill Dando var skotin til bana fyrir utan heimili sitt við Gowan Avenue um hálftólfleytið 26. apríl 1999. Hún var að koma frá unnusta sínum Alan Farthing, en gifting þeirra stóð fyrir dyrum, og Dando hafði sett hús sitt við Gowan Avenue í sölu. Lögreglan telur atburðarásina hafa verið þá, að morðinginn hafi setið fyrir henni, komið aftan að henni þegar hún gekk frá bíl sínum að útidyrunum, neytt hana niður og skotið hana í hnakk- ann og gengið síðan burt. Fyrstu dagana beindist rannsókn- in einkanlega að tveimur mönnum, en vitni sáu annan þeirra hraða sér frá Gowan Avenue á tali í farsíma og hinn maðurinn sást fara löðursveitt- ur eins og eftir hlaupasprett upp í strætisvagn á Fullham Road. Þá I beindist athygli lögreglunnar að blá- um Range Rover, sem var ekið hratt í burtu frá þessu svæði og m.a. yfir á rauðu ljósi, en þessi atriði málsins runnu út í sandinn eins og flest önn- ur. Þrjár meginkenningar voru á lofti; að morðinginn væri atvinnumorð- ingi, sem fenginn hefði verið til ódæðisins vegna þátttöku Jill Dando í sjónvarpsþætti um óleyst sakamál, að um fyrirsát hefði verið að ræða sem lengi hefði verið í undirbúningi eða að ástsjúkur maður hefði verið að verki. Þegar á leið, virðist lög- reglan helst hafa fengið trú á því að morðinginn væri sálsjúkur einfari sem hefði verið heltekinn af Jill Dan- do. Þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir og ferðalög til Ástralíu og Bandaríkj- anna náði lögreglan þó ekki hand- festu á neinu fyrr en nú að þessi maður var handtekinn í gærmorgun. Þrjátíu og átta lögreglumenn hafa unnið að rannsókninni í rúmt ár og kostnaður við hana nemur nú um 2 milljónum punda. Oorum að fá nfja sendingu af þessum gull- fallegu gólf- l?luld?um Kr 37S.OOO Kr 269.000 Kr 1SS.000 <U <1 'HEXM&NNjÓXSSON vziTUSHX'bart APOTEK — H Rl NGöRAUT 119 OROBLUief oroblu@sokkar.is www.sokkar.is KYNNING í Borgarapóteki í dag föstudaginn 26. maí kl. 20% afsláttur af öllum OROBLU sokkabuxum í dag og á morgu Tilboðið gildir einnig í Hringbrautarapóteki. orgar OWBTIt** ■81a».w Ötv KVÓtO* APÖTEK Alftamýri 1 Reykjavík, sími:5857700

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.