Morgunblaðið - 26.05.2000, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Aðalgagnrýnandi New York Times velur Helga Tómasson í hóp 4 bestu dansara 20. aldarinnar
EINN ÞEIRRA ALBESTU
Anna Kisselgoff að-
aldansgagnrýnandi
bandaríska dag-
blaðsins New York
Times hefur fylgst
með Helga Tómas-
syni frá upphafi fer-
ils hans í Banda-
ríkjunum. Kisselgoff
segir í viðtali við
Rögnu Söru Jóns-
dóttur, að Helgi sé
einn fjögurra bestu
karldansara 20. ald-
arinnar og fáir hafi
náð jafn góðum
árangri og hann við
uppbyggingu klass-
ísks ballettflokks í
Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/Ásdís
Helgi Tómasson þjálfar unga íslenska ballettnema.
SÝNING San Francisco-
dansflokksins ó Svana-
vatninu, sem frumsýnd
verður í Borgarleikhúsinu
í kvöld í boði Listahátíðar
í Reykjavík og Reykjavíkur - menn-
ingarborgar Evrópu árið 2000, er að-
eins eitt fjölda margrómaðra dans-
verka sem Helgi Tómasson hefur sett
upp og samið fyrir dansflokk sinn.
Nýjasta verk hans, Prism, sem hann
samdi fyrir fyrrum félaga sína hjá
New York-baUettflokknum, hlaut lof-
samlega dóma nú í byrjun maí, meðal
annars hjá aðalgagnrýnanda New
York Times, Önnu Kisselgoff. Samt
sem áður segir Kisselgoff í samtali við
Morgunblaðið að sterkasta hlið Helga
felist ekki í að semja dansverk, ein-
faldlega vegna þess hve framúr-
skarandi dansari og listrænn stjórn-
andi hann er.
Anna Kisselgoff hefur fylgst með
Helga Tómassyni frá því að hann var
ungur dansari sem kom til Bandaríkj-
anna frá Danmörku. Hann hóf ferill
sinn sem atvinnudansari árið 1962 hjá
Joffrey-balletflokknum í New York,
tvítugur að aldri. Árið 1964 hóf hann
störf við Harkness-ballettinn og þar
sá Kisselgoff hann fyrst. „Ég tók
strax eftir honum í hópi dansaranna.
Hreyfingar hans voru svo stflhreinar
og sterkar að hann gat ekki farið
fram hjá mér,“ segir Kisselgoff. Síðan
fylgdist hún grannt með þessum unga
dansara sem hafði hlotið þjálfun sína í
Danmörku. „Það var greinilegt að
hann hafði annan bakgrunn en flestir
hinir dansaramir. Hann hafði hlotið
þjálfun í Kaupmannahöfn þar sem
dansstfll Boumonville er ríkjandi, en
hann kom beint frá hinum uppmna-
lega franska ballett. Sá dansstfll var á
þessum tíma alger nýjung í banda-
rískum ballett," segir Kisselgoff.
I uppáhaldi hjá eðaldansmeynni
Mayu Plietskayu
Kisselgoff minnist þess þegar
Helgi tók þátt í alþjóðlegu ballett-
keppninni í Moskvu árið 1969 fyrir
hönd Bandaríkjanna. „Helgi varð í
öðru sæti, en í því fyrsta varð Mikhail
Baryshnikov, skærasta ballettstjama
síðustu áratuga. Ég er hins vegar
ekki í nokkrum vafa um að Helgi
hefði unnið keppnina með glæsibrag
hefði Baryshnikov ekki komið akkúr-
at þama fram,“ segir Kisselgoff og
bætir við að Maya Plietskaya, ein
frægasta ballerína Rússa, hafi verið
langhrifnust af Helga.
Arið 1970 gekk Helgi til liðs við
stærsta og virtasta ballettflokk
Bandaríkjanna, New York-ballettinn,
sem þá var undir styrkri stjóm
George Balanchine, afkastamesta og
áhrifamesta dansskálds Bandaríkj-
anna á seinni hluta aldarinnar. Kiss-
elgoff segir að í verkum Balanchine
hafí dansverkið sjálft oftast verið
stjaman og erfitt hafi verið fyrir ein-
staka dansara að stela senunni.
„Kvendansarar vom líka í miklu upp-
áhaldi hjá Balanchine og flest verk
samdi hann með konuna í aðalhlut-
verki en karlinn í algem aukahlut-
verki. Það var því sérstaklega erfitt
fyrir karldansara að láta ljós sitt
skína í verkum hans því þau gáfu ein-
faldlega ekki tækifæri tfl þess. Þetta
breyttist hins vegar í verkum
Balanchine þegar Helgi og Daninn
Peter Martins gengu tU liðs við flokk-
inn og ég held að New York-ballett-
inn hafi verið að bíða eftir dönsumm
eins og þeim,“ segir Kisselgoff. Verk
Balanchine vom mjög tæknileg og
þar af leiðandi erfið og krefjandi fyrir
dansarana. Til að geta dansað þau
þurftu dansarar að vera með ein-
dæmum sterkir og nálgast tæknUega
fullkomnun, segir Kisselgoff. „Helgi
hafði þetta til að bera. Hann dansaði
ávallt af öryggi og fullkomnun og
hvergi mátti greina kraftlítið stökk
eða veikan snúning. Hann var eins og
píanóleikari sem aldrei sló feilnótu,"
segir Kisselgof. Hún bendir Kka á að
þegar dansarar séu nánast fullkomnir
fylgi því ávallt hætta á að þeir verði
leiðigjamir á að horfa. „Þannig var
það hins vegar alls ekki með Helga,
hann hélt alltaf athygli manns, hafði
sterka útgeislun og mUda persónu-
töfra. Það era ekki margir sem leika
það eftir honum,“ segir Kisselgoff.
Frammistaða hans lifír
enn i minningunni
Árið 1972, þegar Helgi hafði verið í
tvö ár hjá Balanchine í New York-
ballettflokknum, samdi hann verk
sérstaklega fyrir Helga, sem var
Anna Kisselgoff
óvenjulegt þar sem hann byggði flest
sín verk á konum. Kisselgoff minnist
írammistöðu Helga sérstaklega í
þessu verki, sem hét The
Fairies Kiss. „Þar kom mér
á óvart hvað Helgi, sem er
sérstaklega tækniíegur og
nákvæmur dansari, náði að gæða
dansinn Ijóðrænni áferð. Svo
held ég að enginn hafi
dansað hinn gífurlega
erfiða eindans í Themes
and Variations jafnvel og Helgi.
Frammistaða hans lifir enn í
minningunni," segir Kisselgoff.
Gerði San Francisco eftir-
sótta fyrir ballettdansara
Árið 1973 skiifaði Kisselgoff grein
þar sem hún valdi fjóra bestu klass-
ísku karidansara 20. aldarinnar. Mið-
að við það sem hér hefur komið fram
kemur ekki á óvart að Helgi Tómas-
son er einn þeirra. Aðrir í hópnum
vom hinn danski Peter Martins,
Anthony Dowell og Erik Bruhn.
Þessir fjórir skömðu að hennar mati
framúi- öðmm hvað varðaði listfengi
og tækni, sem gerði þá að bestu döns-
uram 20. aldarinnar. Og hún er enn á
sömu skoðun.
í þessari úttekt gerði Kisselgoff
skýran greinarmun á framúrskarandi
klassískum listdönsurum og ballett-
stjömum. Aðeins þrjár karlkyns
stjömur litu dagsins ljós í heimi Ust-
dansins á 20. öldinni að mati Kissel-
goff og allir vora þeir Rússar. Þeir
Vaclav Nijinski, Rudolf Nureyjev og
Mikhail Baryshnikov vom stjömur,
dáðar af áhorfendum og tíðir gestir í
blaðaviðtölum. Slíkar stjömur koma
fram á um 40 ára fresti segir Kissel-
goff og em frekar í uppáhaldi hjá
áhorfendum en fagmönnum þar sem
þeir em ekki jafn framúrskarandi
tæknilega og bestu klassísku listd-
ansaramir. „Helgi og Peter Martins
vom oft að gera hluti sem hvorki Nij-
insky né Baryshnikov vom færir um
að gera. Þeir nálguðust tæknilega
fullkomnun," segir Kisselgoff.
Helgi dansaði í fimmtán ár með
New York-ballettflokknum og er
óhætt að segja að þar hafi hann átt
farsælan feril. Hann dansaði jöfnum
höndum í verkum tveggja meistara:
Balanchine og Jerome Robbins, sem
er danshöfundur kvikmyndarinnar
West Side Story, en það er fremur
óvenjulegt þai- sem þeir hafa mjög
ólíkan stfl. Arið 1985 tók Helgi tilboði
um að endurreisa elsta ballettflokk
Bandaríkjanna; San Francisco-ball-
ettinn. Innan fárra ára var flokkui'-
sem síðustu áratugina
hafði verið litið á sem
sæmilega góðan fylkisdans-
flokk, orðinn að einum af
þremur bestu dansflokkum
Bandaríkjanna.
Kisselgoff set-
ur flokkinn í
þriðja sætið, á eftir stóm dansflokk-
unum, sem ávallt hafa borið höfuð og
herðar yfir aðra flokka, American
Ballet Theatre og New York City
Ballet. Kisselgoff segir að slíkar
framfarir á dansflokki á svo skömm-
um tíma séu nánast einsdæmi. Þar
beri að þakka Helga Tómassyni, sem
hafi einstaka stjórnunar- og kennslu-
hæfileika. „Þar til Helgi kom til sög-
unnar hafði ekki þótt aðlaðandi fyrir
dansara að starfa í San Francisco,
þeir vildu helst vera í New York þai-
sem tækifærin vom flest. En Helga
tókst að breyta þessu og nú er óhætt
að segja að það sé eftirsótt meðal
dansara að dansa í San Francisco,“
segir Kisselgoff.
Þjóðernið mikilvægur þáttur
í velgengni hans
Frá því Helgi tók við stjórn San
FrancÍKcn-hallptt.sinK hefiir hann
samið og sett upp um 30 verk, þar á
meðal Giselle, Svanavatnið, Þyrnirós
og Rómeó og Júlíu. „Ég held að Helgi
sé undir miklum áhrifum frá
Balanchine sem danshöfundur. Sum
verk hans bera þess greinilega merki
en önnur minna. Á þeim tíma sem
Helgi var að stíga sín fyrstu skref
sem danshöfundur var baUettheimur-
inn í þörf fyrir nýtt blóð. Það sem
Helgi hefur umfram aðra danshöf-
unda sem vora undir áhrifum frá
Balanchine, og þetta á reyndar við
um Peter Martins líka, er yfirgrips-
rnikil þekking á dansstfl og tungumáli
Balanchines. Það gefur verkum þeirra
vídd sem aðrir eiga erfitt með að ná,“
segir Kisselgoff og heldur áfram. „Mér
finnst Helgi líka vera undir rómantísk-
um áhrifum í verkum sínum og það fer
honum vel. Hann á mjög gott með að
semja verk með dálitlu rómantísku
ívafi, þótt hann sé fyrst og fremst
klassískur höfundur,“ segir Kisselgoff.
Lofsamlegir dómar Kisselgoff um
Helga, hvort sem hann er í hlutverki
dansarans, danshöfundarins eða list-
ræns stjórnanda, sýna hve stórt
framlag Helga Tómassonar er í dans-
sögu Bandaríkjanna. Kisselgoff segir
að í minningunni standi ferill hans
sem dansari upp úr því sem hann hef-
ur gert og að sjálfsögðu frábær ár-
angur hans við að endurreisa San
Francisco-ballettflokkinn. Hún hefur
helst gagnrýnt Helga sem danshöf-
und og segir að eins og gengur og
gerist geti ekki öll verk danshöfunda
fallið gagnrýnendum í geð. Nýjustu
dómar Kisselgoff um verkið Prism
undirstrika þó hvað hún hefur miklar
mætui’ á Helga sem danshöfundi.
Þegar öllu er á botninn hvolft
stendur uppi mynd af frábæmm
dansara, danshöfundi og einstökum
stjórnanda eins fremsta dansflokks
heims í huga Kisselgoff. „Hann er ís-
lendingur í húð og hár,“ segir Kis-
selgoff og bendir á að þjóðemi Helga
hafi ávallt verið mikilvægur þáttur í
velgengni hans. „Sú staðreynd að
hann kemur frá Islandi er mikilvæg.
Hann er stoltur af þjóðemi sínu, trúr
sinni þjóð og minntist ávallt á Island
og upprana sinn í viðtölum. Hvað mig
varðar þá fannst mér alltaf bæði
framandi og spennandi að hann
skyldi vera frá Islandi og í upphafi
vakti það enn frekar áhuga minn á
honum,“ segir Kisselgoff að lokum.