Morgunblaðið - 26.05.2000, Side 84

Morgunblaðið - 26.05.2000, Side 84
84 FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Ups... Britney er mætt! UNGSTIRNIÐ Britney Spears er mætt aftur og þaó meó látum. Nýja platan hennan „Oops I Did it Again" (pirrandi sjálfsöruggur titill) dembir sér beint á topp Tónlistans og seldist meira i sinni iyrstu viku en fjórar næstu plötur samaniagt! Stúlku- kindin heldur sig við sama skot- helda heygaróshomió á nýju skíf- unni og nýtur sem fyrr aöstoöar poppprófessors- ins Max Martins. Eitt lagið sem þar er að finna mun eflaust fá einhverja sem ' komnir eru nælægt miðju aldursskeiöi til þess að reita síðustu fiókana af hausnum en þaö er ansi hreintdjörf, eiginlega fífldjörf, R&B útgáfa af gamla Stones slagaran- um „(I Cant Get No) Satis- faction". Svíar á barmi heimsfrægðar! SÆNSKU öðlingarnir í Kent eru á barmi heims- frægðar. Löngu búnir að vinna Volvolandiö á sitt band hafa þeir undan- farið misseri unnið hægt og bítandi að því að leggja heiminn að fótum sér og næsti án- ingarstaður er ísaland. Kent spila á Tóniistarhátíðinni í Reykjavík um hvítasunnuhelgina og er allt útlít fyrir að þeir muni spila á hárréttu augnabliki því vinsældir þeirra hérlendis fara ört vaxandi. Því til sönnunar er stórt stökk nýjustu plötunnar „Hagnesta Hill“ þar sem m.a. er að finna smellinn „Music Non Stop," Nr. var vikur; N Diskur Flytjondi i Útgefondi Nr. •1. 1 N OopslDid ItAgain Britney Speors iEMI 1. 2. 1 ; Binaurol Peorl Jom : Sony 2.*- 3. 1 4 i Skull & Bones Cypress Hill jSony 3. 4. 4 10 i Hoorey For Boobies Bloodhound Gong : Universol 4. 5. 2 6 ; Play Moby •Mute 5. 6. 19 2 ; Trilenium Sosh i Edel 6. 7. 5 18 i BestOf Cesorio Evoro ÍBMG 7. 8. 3 10 i Pottþétt 19 Vmsir i Pottþétt 8. 9. 8 26 i Supernoturol Sontona ÍBMG 9. 10. 27 40 i Significont Other Limp Bizkit : Universol 10.* 11. 1 i Era 2 Ero j Universol 11. 12. 7 32 i Distonce To Here Uve ■ Universol 12. 13. 9 22 : On How Life Is Macy Groy i Sony 13. 14. 12 51 ;Ö Ágætis byrjun Sigur Rós i Smekkleyso 14. 15. 14 4 ; Jeff Buckley Mystery White iSony 15. 16. 10 4 i Toni Broxton The Heot ÍBMG 16. 17. 20 31 i Relood Tom Jones ÍV2 17. 18. 22 29 i Humon Cloy Creed :Sony 18. 19. 16 33 i 12 ógúsf T 999 Sólin hons Jóns míns jSpor 19. 20. 6 10 : Englor olheimsins Hilmor Örn/Sigur Rós j Krúnk 20. 21. 13 4 : Pottþétt rokk 2 Ýmsir j Pottþétt 21. 22. 15 27 ! S&M Metollico j Universol 22. 23. 30 12 i . Aquorius Aquo i Universol 23. »24. 51 1 i Hognesto Hill Kent ÍBMG 24. 25. 28 14 i Writings On The Woll Destinys Child ÍSony 25. 26. 18 20 i Slipknot Slipknot : Roodrunner 26. 27. 11 4 i Silver & Gold Neil Young j Worner 27. 28. 1 i KR platan Ýmsir j Pottþétt 28. 29. 31 18: Westlife Westlife j BMG 29. 30. 80 1 H Don't Give Me Nomes Guono Apes • BMG J!L Á Tónlistanum eru plötui yngii en fveggja óio og eru i verðflokknum „fullt verð". Tónlistinn ei unninn of PricewateihouseCoopers fyrir Somband hljómplötufiomleiðondo og Morgunbloðið í somvinnu við eftirtoldorverslonir: Bókvol Akuieyii, Bónus, Hogkoup, iopís Broutorbolti, Jopís Kringlunni,Jopís laugorvegi, Músík og Myndir Austurstrati, Músik og Myndir Mjódd.Somtónlrst Kringlunni, Skífon Kringlunni, Skifon Lougorvegi 26. Haltrandi há- stökkvarar! FRED DURST og iags- menn hans í Limp Bizkit eru alveg ótrúlega lífseig- irá Tónlistanum. Eftir 40 vikna viðveru haltra þeir með hraöí upp um 17 sæti ogeru furðu sprækir miöað við háan aldur. Limpdependence tónleikaferð sveitarinnar hefst vest- anhafs í byrjun júlí ogætia Cypress Hill að skella sér með þeim. Það verðurfrítt á alla tónleikana í boði tónlistarnetmióilsins urn- deilda Napsters sem með því er að undir- strika boðskap sinn um að tónlist eigi að bjóóast fólk því að kostnaðarlausu. Lifi gamla gruggið! PEARL JAM virðist vera ein af örfáum sveitum sem lifað hafa gamla góöa gruggið sem ætlaði allt um koll að keyra fyrirtæpum áratug. Sveitin á augljóslega enn stóran og sterkan stuðnings- hóp hér á landi því nýjasta plata peirra „Binaur- al“ fer beint í annaö sæti. Þessartvær toþpplöt- ur Britney og Pearl Jam seldust reyndar meira samanlagt en næstu tíu plötur á eftir. Þess má geta aö Pearl Jam er um þessar mundir á tón- leikaferð um Evrópu og veróa meðal annars á Hróarskelduhátíöinni í Danmörku. ERLENDAE. oooooo Rafn Marteinsson, viðskiptafræðingur, fjallar um „Binaural“, nýjasta geisladisk Pearl Jam. ★★★ Hrárri og ferskari Pearl Jam Rafn Marteinsson segir um söngvara Pearl Jam: „Eddie Vedder er eins og góð vín, verður bara betri og betri með árunum.“ AÐ er gjarnan hátíð á heimili undirritaðs þegar Pearl Jam sendir frá sér nýtt efni. Sé lit- ið yfir feril þessarar merku Seattle- sveitar, sem brátt heldur upp á tíu ára afmæli sitt, þarf það ekki að koma á óvart. Spumingin er fyrirfram hins vegar alltaf sú sama; skyldi maður verða fyrir vonbrigðum í þetta sinn? Hér er á ferðinni sjöunda hljóð- versskífa Pearl Jam en auk þeirra hafa komið út hljómleikaupptökur, svona til að svala þorsta hörðustu að- dáendanna. Nú síðast kom út „Live on Two Legs“ sem innihélt upptökur af tónleikaröð þeirra um Bandaríkin síðari hluta árs 1998. Undirritaður var einmitt viðstaddur hljómleika sveitarinnar í Washington í septem- ber það ár og var bergnuminn yfir þeim ógnarkrafti sem liðsmenn náðu að kalla fram á hljómleikunum. Pearl Jam tefldi þá fram nýjum liðsmanni, Matt Cameron, sem áður sat við trommusettið hjá þeirri merku sveit Soundgarden. Leysti hann af hólmi Jack Irons sem treysti sér ekki í svo langa hljómleikaferð af heilsufars- ástæðum. Cameron þessi er án efa einhver albesti trommuleikari sem gengur laus og var eftirvæntingin ekki síst að sjá hann að störfum með sveitinni. Skemmst er frá því að segja að hljómleikamir voru ógleymanleg- ir, ekki síst fyrir snilli Camerons og magnþrunginn söng Eddie Vedders. Það var því ekki laust við að nokkurr- ar eftirvæntingar gætti þegar undir- ritaður fékk í hendurnar nýjustu af- urð Vedders og félaga þar sem það lá þá fyrir að Cameron sæi um trommu- leik á henni. „Binaural" hefur að geyma þrettán lög og dreifast laga- og textasmíðar á alla meðlimi, líkt og á síðustu plötu sveitarinnar, „Yield“. Sem fyrr mæð- ir þó mest á Vedder sjálfum en hann er höfundur fimm laganna, en semur auk þess eitt lag í félagi við þá Mike McCready og Stone Gossard. Þá semur hann texta við átta lög af þeim þrettán sem diskurinn inniheldur. Sem fyrr eru yrkisefnin tregablandin en samt má greina að liðsmenn Pearl Jam virðast sáttari við lífið og tilver- una nú en oft áður. Má kannski segja að þeir séu allt að því væmnir á köfl- um, t.d.í „Light Years“, en þar yrkir Vedder í minningu látins sálufélaga. Það er ekki þar með sagt að þeir fé: lagar séu í jólaskapi út í allt og alla. í hinu blús-skotna „Rival“ veltir Goss- ard íyrir sér hvötum þeim sem kunna að hafa legið að baki voðaverkinu sem tveir bandarískir menntaskólanem- endur unnu á síðasta ári er þeir myrtu tólf skólafélaga sína. Kald- hæðnin er sem fyrr aldrei langt und- an og í „Soon forget“ fjallar Vedder um tilgang þess að eiga haug af seðl- um ef maður er meðalmennskan upp- máluð og hefur ekkert fram að færa. „Binaural" byrjar með látum og fyrstu þrjú lögin innihalda keyrslu- rokk af bestu gerð. „BreakerfalT1 minnir á „Rearview Mirror" af 2. plötu sveitarinnar, „Vs.“, og „God’s Dice“ er í ætt við „Hail Hail“ af „No Code“. Áðumefndur Matt Cameron semur þriðja lagið, Evacuation, og má þar finna skírskotun í tónlist Soundgarden og jafnvel Police á sín- um fyrstu árum. Næstu þrjú lög eru öll í rólegri kantinum og sérlega vel heppnuð. „Light Years“ og „Thin Air“ eru einfaldar ballöður sem meistari Vedder fer einstaklega vel með. Pearl Jam hefur löngum haldið þeirri hefð að velja óhefðbundin lög til spilunar í útvarpi. Á því er engin breyting hér. „Nothing as it seems“ er fyrsta smáskífan af Binaural, hálf þunglyndislegt en afskaplega vel úr gai’ði gert. Byrjar rólega en seiðandi uppbygging heldur hlustandanum í heljargreipum í rúmar fimm mínút- ur. „Insignificance“ og „Grievance" eru númer sjö og níu á disknum. Eru það jafnframt bestu lögin ásamt áð- urnefndu „Light Years“. I þeim sýnir Cameron virkilega hvílíkur afburða- trommari hann er. Þegar hér er kom- ið við sögu er hægt á ferðinni og eru síðustu fjögur lögin í rólegri kantin- um. í vel heppnuðu lokalagi, „Parting Ways“, er boðið upp á sellóleik og fleira góðgæti sem maður heyrir vanalega ekki á plötum Pearl Jam. Þeir nota fleiri hljóðfæri en áður og þar af leiðandi enn ríkari ástæða til að setja á sig heyrnartól og skrúfa vel upp í hljómflutningstækjunum. „BinauraT' býður að mörgu leyti upp á hrárra rokk en oft áður hjá Pearl Jam þó svo að hljómurinn sé ef til vill mildari en á „Yield“ og „No Code“. Miðað við þann ógnarkraft sem þeir ná fram í fyrstu lögunum er eiginlega synd að ekki varð framhald á. Þá hefðum við getað fengið verk í sama flokki og besta plata Pearl Jam hingað til, Vs., sem kom út 1993. Herslumuninn vantar upp á að þessu sinni og því verða aðdáendur sveitar- innar að bíða enn um sinn. Það ætti hins vegar enginn að verða fyrir von- brigðum því „Binaural" er vel heppn- uð skífa og ætti að sóma sér vel geisladiskasafninu við hliðina á fyrri verkum Peai’l Jam. Matt Cameron hefur komið með ferska strauma í sveitina og nú er bara að vona að ekki gerist þörf strax á að leita enn eina ferðina að nýjum trommuleikara. Eddie Vedder er eins og góð vín, verður bara betri og betri með ár- unum. Á „Binaural“ styrkh’ hann stöðu sína enn frekar sem einhver merkasti söngvari samtíðarinnar. Það er reyndar kaldhæðnislegt að á síðustu árum hafa sprottið upp hljómsveitir á borð við Creed og Godsmack sem gera út á að apa eftir Vedder og félögum, með misgóðum árangri, en selja síðan miklu fleiri plötur. En það er önnur saga. HATIÐ HARMONIKUNNAR verður haldin í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima, laugardagskvöldið 27. maí og hefst kl. 20.30 með tónleikum. Dansað frá kl. 22.30. Nánar auglýst í Morgunblaðinu á laugardaginn. flllir velkomnir. Til sölu er BMW 320 i ‘97 Ekinn 93.000 km. Sá fegursti í sínum flokki. Silfurgrár á mögnuðum 17" álfelgum. Tölvustýrð miðstöð, loftkæling, þjófavörn, sími og þjónustubók. Óaðfinnanlegt eintak! Skipti á ódýrari. Upplýsingar í síma 695 9682.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.