Morgunblaðið - 28.10.2000, Síða 1

Morgunblaðið - 28.10.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913 248. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Átök á sjálf- stjórnar- svæðunum PALESTINUMAÐUR féll í átökura við ísraelska hermenn í Erez-landa- mærastöðinni á Gaza-svæðinu í gær og þrír féllu á Vesturbakkanum. Einn hinna föllnu var 15 ára ungl- ingur. Þúsundir manna réðust með grjótkasti að hermönnunum til að mótmæia stefnu ísraelsstjómar, sumir vopnaðir skotvopnum. „Við viljum stóra sprengju!" söngluðu mótmælcndur í borginni Nablus. Hermennirnir svöruðu með því að skjóta gúmmíhúðuðum byssukúlum á andstæðinga sína og varpa hvell- sprengjum, sem ætlað er að deyfa fólk í nokkrar sekúndur með högg- byigjunni. A fimmtudag hjólaði 24 ára gam- all Palestinumaður, sem fest hafði sprengiefni á bak sér, inn á svæði Israelshers á Gaza og sprengdi sig í loft upp. Ekki fórust fleiri í tilræð- inu. A myndinni sést ungur Palest- fnumaður skjóta með slöngvivað að stöðvum ísraela í gær. Reuters Brotist inn í tölvukerfí Microsoft Segja tjón- ið vera lítið London. Reuters. STEVE Ballmer, forstjóri og aðal- framkvæmdastjóri Microsoft, sagði í gær, að tölvuþijótar sem brutust inn í tölvukerfi fyrirtækisins hefðu ekki komist yfir frumkóða helstu hug- búnaðarkerfanna. Innbrotið er engu síður mjög mikið áfall lyrir Micro- soft og er málið nú til rannsóknar hjá FBI, bandarísku alríkislögreglunni. Öryggisstarfsmenn Microsoft komust að því á miðvikudag, að brot- ist hafði verið inn í tölvukerfið, og hugsanlegt er, að þijótarnir hafi haft aðgang að því í allt að þijá mánuði. Var fyrst skýrt frá þessu í The Wall Street Journal og þá jafnvel talið, að tölvuþijótamir hefðu komist yfir frumkóðana eða frumdrögin að nýj- ustu útgáfum af hugbúnaðarkerfum á borð við Windows-stýrikerfið og Office-vöndulinn. Ballmer þvertekur hins vegar fyrir það. ■ Gætu hafa náð/29 Talsmenn Dana og Færeyinga segja viðræðum ekki endanlega slitið Misvísandi yfírlýsingar um ástæður deilnanna Kjörstaðir í Kosovo Deilt um þjóðfána Pristina. Morgunblaðið. SÉRSTAKAR óeirðasveitir breska hersins voru í gær í viðbragðsstöðu ef fyrstu frjálsu kosningarnar sem haldnar eru í Kosovo myndu fara illa af stað. Töluverður viðbúnaður er vegna kosninganna, þúsundir lögreglumanna og hermanna að ógleymdum tæplega 20.000 starfs- mönnum og eftirlitsmönnum með kosningunum. Það var þó talið draga úr hættunni á átökum að ákveðið hefur verið að leyfa þjóð- fána þeirra sem búa í kjördæminu fyrir utan kjörstaði en Sameinuðu þjóðirnar höfðu áður lagt bann við i því. Fánamálið svokallaða hefur hleypt hita í kosningaumræðuna en Kosovo-Albanar hafa mótmælt því harðlega að fá ekki að setja alb- anska fánann upp á kjörstað. Nú er þeim það leyfilegt, rétt eins og öðr- um þjóðum. Óvíst er hvort Serbar muni láta á þessa reglu reyna en víst er að Albanar munu ekki sætta sig við að fara á kjörstað þar sem serbneski fáninn blaktir við hún. Enginn kosningaáróður var leyfður í gær, hvorki kosninga- fundir, auglýsingar né annað. Er stjórnmálaflokkunum einungis leyfilegt að hvetja fólk til að fara á kjörstað. Um 900.000 manns eru á kjör- skrá og ríflega 1.000 kjörstaðir. Roland Bless, talsmaður Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem skipuleggur kosningarnar, hvatti fólk í gær til að mæta snemma á kjörstað til að koma í veg fyrir að öngþveiti skapaðist á stærstu kjörstöðunum. Orðrómur hefur verið um að halda verði kjör- stöðum opnum fram á sunnudag ef tæknilegir örðugleikar komi upp en Bless sagði slíkt afar ólíklegt. ■ Kosið um /30 POUL Nyrup Rasmussen, forsætis- ráðherra Danmerkur, segir að fjórða lota samningaviðræðna Dana og Færeyinga um sjálfstæðismál hinna síðarnefndu hafi í reynd farið út um þúfur vegna deilna um fjár- hags- og efnahagslega skilmála og lengd aðlögunartímans fyrir Færey- inga. „Fullu sjálfstæði fylgir full ábyrgð í efnahagsmálum," hafði dagblaðið Berlingske Tidende eftir ráðherranum. Um þriðjungur árlegra fjárlaga landsjóðs Færeyinga eða um 10 milljarðar ísl. kr. er nú greiddur með styrkjum úr ríkissjóði Danmerkur. Færeyingar eru á öðru máli en Rasmussen og segja að mikilvæg- asta deiluefnið hafi verið þjóðréttar- leg staða Færeyinga sem krefjast þess að gengið sé út frá því að þeir ákveði sjálfir hvort þeir taki sér fullt sjálfstæði. Jafnframt að litið sé svo á að tvær, jafn réttháar þjóðir séu að semja um sambandið milli sín. Landsstjómin hyggst nú láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um af- stöðuna til sjálfstæðis áður en frek- ari viðræður verði teknar upp á ný. „Við höfum átt í löngum viðræðum um iagalegar hliðar málsins. En það er best að segja hlutina beint út. Raunverulega snýst ágreiningurinn um hvort aðlögunartíminn á að vera fjögur ár eða fimmtán, þar greinir okkur á,“ sagði danski forsætisráð- herrann og varaði við því að málið leystist upp í „lagatæknilegt þras“. Færeyingar vilja fá langan aðlögun- artíma en Danir bjóða fjögur ár. Rasmussen segir mestu skipta að færeyska þjóðin ákveði sjálf framtíð sína. Hann telur að ekki hafi endan- lega slitnað upp úr viðræðunum heldur hafi aðilar tekið sér umhugs- unarfrest og viðræðum verði haldið áfram á ný eftir fáeina daga. Afstaða Rasmussen til krafna Færeyinga nýtur stuðnings allra annarra þing- flokka á danska þinginu. Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær- eyja, er sammála Rasmussen um að viðræðunum hafí ekki verið slitið endanlega. „Þær munu halda áfram en það varð ljóst á fundinum í gær (fyrradag) að við þurfum að koma þeim á nýjan grundvöll,“ sagði Kallsberg í viðtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að samninga- mönnum Færeyinga hefði orðið ljóst að munurinn á viðhorfum samn- ingsaðila væri svo mikili að vonlaust væri að svo komnu máli að ná fram niðurstöðu sem færeyska þjóðin myndi sætta sig við. Hagni Hoydal, varalögmaður og ráðherra sjálfstæðismála í færeysku landsstjórninni, segir að Færeying- ar hafi séð sig knúna til að reyna að fá Dani til að viðurkenna afdráttar- laust að Færeyingar væru þjóð í skilningi þjóðarréttar. Danir hafi ekki viljað viðurkenna þá kröfu og með því séu dönsk stjórnvöld að segja að Færeyingar hafi engan sjálfsákvörðunarrétt. Danir taki Færeyinga einfaldlega ekki gilda sem jafnréttháa samningsaðila og því hafa viðræður samninganefnd- anna verið „lítið annað en innantóm leiksýning“ að mati Hoydals. ■ Verdum að fá /28 MORGUNBLAÐHD 2B. OKTÓBER 2000 Neðri deild breska þingsins Hárkollan að fjúka London. AP. NÝKJÖRINN forseti neðri deildar breska þingsins, Michacl Martin, ætlar að feta í fútspor fyrirrenn- ara síns, Betty Boothroyd, og mun ekki nota hárkollu við störf sín. Hann mun einnig verða í venjuleg- um siðbuxum. Að sögn The Times sparar hann skattgreiðendum um 400 punda útgjöld, 50 þúsund krúnur, með því að hafna kollunni, sfðum, svörtum sokkunum og skúnum með silfurspennunum sem áður fylgdu tigninni. Hárkollan er axlasíð og gerð úr hrosshári. Síðasti þingforsetinn sem bar hana var Bernard Weath- erill sem vék fyrir Boothroyd 1992. Weatherill vill að Martin taki upp gatnla siði og segir að liárkoll- umar hafi þann kost að þær beini athyglinni meira að embættinu en manninum sem gegni því. Fleiri teikn eru nú á lofti um að hárkoll- umar bresku séu að vfkja en hátt í 200 ár em sfðan þær fúm almennt úr tísku meðal heldra fúlks á Vest- urlöndum. Woolf lávarður, æðsti maður breska dúmstúlakerfisins, segist vita að mörgum þyki vænt um þessar hefðir. En hann viti einnig að hárkollumar geri kleift að lýsa embættismönnunum sem „veruleikafirrtum risaeðlum, tfmaskekkju - og ég er ekki viss um að það auki traust almennings á okkur“. Annar háttsettur emb- ættismaður, Derry Irvine, sem er forseti lávarðadeildarinnar, fékk á sfnum tíma leyfi deildai-innar til að klæðast venjulegum fatnaði við störf sín. „Hárkollan vegur heilt tonn. Hún er mjög úþægileg," Michael Martin. Á innfelldu myndinni er Bernard Weatherill. sagði hann. Irvine þarf hins vegar að vera í hiyásíðum buxum og síð- um, þröngum sokkum, bera hár- kollu og silfurspennuskú við hátíð- leg tækifæri. Frá 1998 hefur hann á hinn búginn ekki þurft að ganga aftur á bak við þingsetningu. Áður var það skylda og markmiðið að forða drottningunni/konunginum frá þeirri hneisu að verða að horfa á afturenda þingforsetans.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.