Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 6-
> ____
Utboð Ríkiskaupa -
Að gefnu tilefni
í Morgunblaðinu hinn 26. október
sl. birtist grein, eftir Valgarð Guð-
jónsson, framkvæmdastjóra hug-
búnaðarfyrii'tækisins Kuggs, þar
sem umfjöllunarefnið er útboð Ríkis-
kaupa - nr. 12605. Gerð og hýsing
samræmds upplýsingakerfis fyrir
Hollustuvernd ríkisins, Heilbrigðis-
eftirlit sveitarfélaga og embætti yfir-
dýralæknis.
Ríkiskaup, ábyrgðaraðili útboðs-
ins, fagnar þvi að væntanlegir bjóð-
endur skuli hafa skoðun á því starfi
niðurstöður útboðs og/eða fram-
vindu verksins.
Ef ábyi’gðaraðili útboðs metur
fyrirspurnii’ bjóðenda þess eðlis að
hann telur ástæðu til að gera breyt-
ingar á útboðskilmálum í þá veru að
óhjákvæmilegt sé að fresta opnun
tilboða þá er það jafnan gert.
Tilgangur slíkrar frestunar er að
tryggja bjóðendum nægilegan tíma,
í samræmi við breyttar forsendur, til
að skila inn hagstæðum tilboðum
sem fela í sér sem vandaðastar
lausnir.
I viðamiklum útboðslýsingum, líkt
og umræddri, er það sjaldnast raun-
in að lagðar séu fram fullkomlega
tæmandi lýsingar og oftast nær má
finna einhver atriði sem betur
mættu fara. Auðvelt er að taka ein-
staka setningar í slíkri lýsingu úr
samhengi og leggja mismunandi
skilning í þær. Það verður að teljast
sanngjöm krafa að hugbúnaðarfyr-
irtæki, sem flest hafa mikla reynslu í
að vinna með útboðs- og verklýsing-
ar, meti þær heildstætt og leitist við
að draga upp sem raunhæfasta
mynd af viðfangsefninu sem lýst er í
þeim.
Það hlýtur einnig að vera eðlileg
krafa að slíkir tUboðsgjafar notfæri
sér tilboðstímann að fullu tU að
gaumgæfa framlagðar lýsingar, velti
upp mögulegum lausnum og notfæri
sér til hins ýtrasta upplýsingaskyldu
ábyrgðaraðila útboðs telji þeir tUefni
til þess.
Ríkiskaup telja að við framkvæmd
umrædds útboðs hafi verið farið eftir
téðum ákvæðum, að bjóðendum hafi
verið tryggður hæfilegur tUboðstími
og að upplýsingaskylda ábyrgðarað-
ila hafi verið uppfyllt. Væntanlegir
bjóðendur, þar með talið hugbúnað-
arfyrirtækið Kuggur, sem sendu inn
fyrirspurnir í samræmi við skilmála
útboðsgagna fengu send svör við
þeim sama dag og grein Valgarðs
Guðjónssonar birtist í Morgunblað-
inu. Þar er að finna svör við flestum
þeim dæmum sem hann nefnir ^
grein sinni.
Tekið skal fram að hvorki fyrir-
tæki Valgarðs né aðiir væntanlegir
bjóðendur sáu, í fyrirspurnum sín-
um, ástæðu til að óska skriflega eftir
frestun á opnunarfundi vegna skil-
mála útboðsgagna. Að lokum vilja
Ríkiskaup bjóða fulltrúa Kuggs sem
og aðra væntanlega tilboðsgjafa vel-
komna á opnunarfund vegna útboðs-
ins hinn 2. nóvember nk. Jafnframt
lýsir stofnunin sig reiðubúna til að
taka þátt í uppbyggilegri umræðu
um tilhögun og framkvæmd hugbún-
aðarútboða á viðeigandi vettvangi í _
framtíðinni.
Höfundur er forstjóri Ríkiskaupa.
Júlíus S. Ólafsson
sem fram fer innan stofnunarinnar
en vill jafnframt nota tilefnið til að
koma á framfæri upplýsingum um
tilhögun og framkvæmd útboða sem
ef til vill gætu beint umræðunni í
eðlilegri farveg. Slík málefnaleg um-
ræða gæti orðið til þess að auka
frekar gæði útboða á vegum stofn-
unarinnar og þar með aukið árangur
þeirra.
Útboð
Málefnaleg umræða,
segir Jiílfus S. Ólafsson,
gæti orðið til þess að
bæta frekar gæði út-
boða á vegum
stofnunarinnar.
Þess ber þó að geta að margt er
enn óunnið við frekari þróun útboða
á hugbúnaðarverkefnum, sem
ástæða væri að fjalla um frekar, en
það er látið bíða betri tíma.
Umrætt útboð er framkvæmt á
grundvelli gildandi laga og reglu-
gerða um opinber innkaup og til-
skipana Evrópubandalagsins um op-
inber innkaup sem innleiddar voru
með gildistöku EES-samningsins í
ársbyrjun 1994. Útboðið var auglýst
á EES-svæðinu í samræmi við
ákvæði þeirra sem taka m.a. til við-
miðunarfjárhæða, tilboðstíma og
upplýsingaskyldu ábyrgðaraðila.
I útboðsgögnunum sem og öðrum
útboðsgögnum Ríkiskaupa er at-
hygli væntanlegra bjóðenda sérstak-
lega vakin á ákvæðum sem í gildi eni
um upplýsingaskyldu ábyrgðaraðila
útboðs gagnvart væntanlegum bjóð-
endum. EES-reglurnar gera ráð fyr-
ir að bjóðendur geti sent skriflegar
fyrirspumir til ábyrgðaraðila útboðs
(í þessu tilviki Ríkiskaupa) í síðasta
lagi níu dögum áður en tilboðsfrest-
ur rennur út og er honum skylt að
svara í síðasta lagi sex dögum áður
en fresturinn rennur út. Jafnframt
er gert ráð fyrir að ef senda þarf ný
gögn eða svar við fyrirspurn til ein-
hvers væntanlegs bjóðenda sem
þess hefur óskað, skal senda gögnin,
fyrirspurnina og svörin til allra sem
hafa óskað eftir og fengið send út-
boðsgögn. Allar athugasemdir við
útboð og framkvæmd þeirra skulu
vera skriflegar.
Markmiðið með þessum ákvæðum
er að tryggja að bjóðendum sé gef-
inn kostur á að óska eftir nánari
upplýsingum eða skýringum á
ákvæðum útboðsgagna eða koma á
framfæri athugasemdum við atriði
sem þeir telja að geti haft áhrif á
- . . ..
riggja sæta sðfi
og tveir stólar.
129.995
ítölsk leðurhúsgögn eru
einstaklega falleg og
vönduð hágæðavara;
slitsterk og auðveld í
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup