Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fólk
Nýr aðstoð-
arforstjóri
Samskipa
KNÚTUR
Hauksson hefur
verið ráðinn að-
stoðarforstjóri
Samskipa og
gegnir jafnframt
stöðu fram-
kvæmdastjóra
rekstrarsviðs
innlendrar starf-
semi.
Aðstoðarfor-
stjóri hefur umsjón með rekstri
Samskipa innanlands en umsvif fé-
lagsins hafa aukist mjög á undan-
förnum árum.
Knútur er efnaverkfræðingur að
mennt og hefur verið fram-
kvæmdastjóri Olíudreifingar hf.
síðustu ár en það er eitt af um-
svifamestu flutningafyrirtækjum
landsins. Áður var Knútur fram-
kvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Olíufélagsins. Hann hefur einnig
gegnt stöðu forstöðumanns flutn-
ingadeildar Eimskips og sá þar
meðal annars um rekstur Sunda-
hafnar.
Kristinn Þór Geirsson, sem
gegnt hefur stöðu framkvæmda-
stjóra rekstrarsviðs innlendrar
starfsemi Samskipa, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Goða hf.
Knútur
Hauksson
Íslandsbanki-FBA
18,2
milljarða
skulda-
bréfa-
útgáfa
ÍSLANDSBANKI-FBA hefur
gefið út skuldabréf á alþjóð-
legum markaði að fjárhæð 250
milljónir evra, eða sem svarar
til um 18,2 milljarða króna.
Þessi skuldabréfaútgáfa er sú
stærsta sem íslenskur útgef-
andi hefur staðið fyrir á al-
þjóðlegum markaði til þessa,
samkvæmt upplýsingum frá
bankanum. Íslandsbanki-FBA
undirbýr nú alþjóðlega víxla-
útgáfu, fyrst íslenskra fyrir-
tækja. Umsjón með skulda-
bréfaútgáfunni höfðu
Barclays Capital og Bayeri-
sche Hypovereinsbank en auk
þeirra stóðu átta aðrir erlend-
ir bankar að útgáfunni.
Skuldabréfin eru til tveggja
ára.
Þetta er fyrsta stóra opin-
bera skuldabréfaútgáfa ís-
landsbanka-FBA eftir sam-
einingu, en bankinn fjár-
magnar sig að mestu leyti
með einkaútgáfum á markaði.
„Mikilvægt er að í útgáfunni
taka þátt margir nýir fjárfest-
ar að skuldabréfum bankans.
Útgáfan undirstrikar vel-
gengni Íslandsbanka-FBA á
alþjóðlegum fjármagnsmar-
kaði og styrkir bankann sem
útgefanda í samanburði við
sambærilega banka . í
Evrópu,“ að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu.
Sameiningu forvera bank-
ans í Íslandsbanka-FBA hef-
ur verið vel tekið alþjóðlega
og í kjölfar hennar hækkaði
lánshæfisfyrirtækið Moodýs
Investor Service lánshæfis-
einkunn bankans í A2/P-1.
Kaupþing opnar banka í Kaupmannahöfn í byrjun næsta árs
Ljósmynd/Burt Seeger
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings hf., og bankastjóri hins nýja banka í Kaupmannahöfn, Brian Toft.
Fyrsti íslenski
bankinn í
Danmörku
Kaupnmnnahöfn. Morgunblaöið.
KAUPÞING hf. mun opna banka í
Kaupmannahöfn í byrjun næsta
árs sem verður þar með fyrsti ís-
lenski bankinn til að taka til starfa
í Danmörku. Gert er ráð fyrir að
starfsmenn verði um tuttugu þegar
bankinn tekur til starfa en hann
mun opna skrifstofu strax 1. nóv-
ember næstkomandi.
Fjórir starfsmenn hafa verið
ráðnir til Kaupþings í Kaupmanna-
höfn. Bankastjóri hins nýja banka
verður Brian Toft. Hann var áður
forstöðumaður eignastýringar hjá
Danske Andelskassers Bank. Kim
Michael Sandberg verður for-
stöðumaður eignastýringar nýja
bankans en hann var forstöðumað-
ur einkabankaþjónustu BG Bank í
Danmörku. Klaus Jörgen Sörensen
verður forstöðumaður rekstrar-
sviðs en hann starfaði hjá Difko
Administration. Einn íslendingur
hefur verið ráðinn til Kaupþings í
Kaupmannahöfn, Örn Jónasson,
sem mun m.a. verða í greiningu.
Danmörk er sjötta landið utan
íslands þar sem Kaupþing hefur
starfsemi. Hin löndin eru Banda-
ríkin, Lúxemborg, Svíþjóð, Sviss
og Færeyjar.
Eyrarsundssvæðið eitt af mikil-
vægustu vaxtarsvæðum Evrópu
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, sagði á blaðamanna-
fundi í Kaupmannahöfn í gær þar
sem greint var frá stofnun Kaup-
þings í Kaupmannahöfn, að Eyrar-
sundssvæðið væri að verða eitt af
mikilvægustu vaxtarsvæðum
Evrópu. Kaupþing vilji taka þátt í
þeim vexti og leggja sitt af mörk-
um til hans. „Vöxtur Kaupþings ut-
an Islands hefur verið hraður.
Kaupþing hefur hafið starfsemi í
fimm löndum á síðastliðnum 12
mánuðum. Við gerum ráð fyrir að
Kaupþing í Kaupmannahöfn muni
leggja sitt af mörkum til þess
þriggja ára markmiðs okkar að
helmingur af tekjum Kaupings
verði erlendis frá.“
Sigurður sagði að Kaupþing í
Kaupmannahöfn yrði ekki við-
skiptabanki. Hann muni annast
eignastýringu, sölu verðbréfasjóða
og þjónustu við þá og þjónustu við
lítil og meðalstór dönsk fyrirtæki.
„Stóru dönsku bankamir em of
stórir fyrir mörg litlu dönsku fyr-
irtækin. Við höfum hins vegar
góða reynslu af þjónustu við slík
fyrirtæki sem við teljum að muni
nýtast þessum nýja banka vel.“
Þjónustan sniðin að þörfum
viðskiptavinarins
Brian Toft, bankastjóri nýja
bankans, sagði á blaðamannafund-
inum í gær að Kaupþing í Kaup-
mannahöfn verði vel staðsett til að
bjóða fersk og spennandi fjárfest-
ingartækifæri á danska markaðn-
um og trausta sérfræðiþekkingu
sem byggist á rótum Kaupþings á
íslandi. „Til viðbótar við að bjóða
upp á hefðbundna fjármálaþjón-
ustu og ráðgjöf erum við að þróa
nýjar vörur sem við teljum að
muni falla væntanlegum við-
skiptavinum okkar vel í geð. Við
viljum vinna náið með við-
skiptavinunum og sníða þjónust-
una að þörfum þeirra. Hefðbundn-
ar fjárfestingar í hluta- og
skuldabréfum og eignastýring
verður stór þáttur í starfsemi
Kaupþings í Kaupmannahöfn,"
sagði Brian Toft, verðandi banka-
sfjóri hins nýja banka á blaða-
mannafundinum í Kaupmannahöfn
í gær.
165 milljóna króna
viðskipti í gær
Tæplega 69 milljóna króna við-
skipti voru með hlutabréf Kaup-
þings á Verðbréfaþingi fslands í
gær og var lokagengi bréfanna
15,10, sem er 0,7% hækkun frá
fyrsta viðskiptadegi með bréf fé-
lagsins, en útboðsgengi þeirra var
10,25. 96 milljóna króna utan-
þingsviðskipti voru með bréf fé-
lagsins í gær.
Miðað við lokaverðið í gær er
markaðsvirði Kaupþings um 14,5
milljarðar króna. Markaðsvirði
hlutar Spron, stærsta hluthafans,
er 2.664 milljónir króna. Markaðs-
virði hlutar næststærsta hluthaf-
ans, Sparisjóðs Hafnarfjarðar, er
1.600 milljónir króna og lilutur
Sparisjóðs vélstjóra er metinn á
1.525 milljónir króna, sé miðað við
lokaverð bréfanna á Verðbréfa-
þingi í gær.
Farþegum í millilandafluffl Flugleiða fjölgar um 5,4% í septembermánuði
Farþegum í innanlands-
flugi fjölgar um rúm 20%
í SEPTEMBER fjölgaði farþegum
í millilandaflugi Flugleiða um 5,4%
samanborið við september 1999 og
voru farþegar alls 131.691. Sölu-
aukning var meiri en sem nam
framboðsaukningu og sætanýting
félagsins í mánuðinum var ríflega
3% betri en í sama mánuði á síð-
asta ári. Fyrstu níu mánuði ársins
hafa Flugleiðir aukið framboð í
farþegaflugi milli landa og sæta-
nýting hefur fylgt þeirri þróun, er
0,5% betri á þessu ári en því síð-
asta. Söluáætlanir félagsins hafa
gengið eftir á meginmörkuðum
þess, en kostnaður hefur farið
fram úr áætlunum vegna launa-
kostnaðarhækkana á íslandi, mik-
illar viðvarandi hækkunar á elds-
neytisverði og langvarandi
hækkun gengis dollara gagnvart
Evrópumyntum, samkvæmt frétta-
tilkynningu frá félaginu.
5,8% fækkun á
viðskiptafarrými
Farþegum á almennu farrými
fjölgaði í september um 8,7% en
fækkaði á viðskiptafarrými um
5,8% þegar tekið er tillit til þess
að félagið hefur hætt flugi milli
Kaupmannahafnar og Hamborgar.
Farþegar í innanlandsflugi
Flugfélags íslands, dótturfélags
Flugleiða, í september voru 27.669
og fjölgaði um 20,9 % frá fyrra ári.
Fyrstu níu mánuði ársins fjölgaði
farþegum um 20,2 %. í september
fluttu Flugleiðir-Frakt, dótturfé-
lag Flugleiða, 2.806 tonn af frakt,
sem er 24,3% meira en í sama
mánuði í fyrra.
Fyrstu níu mánuði ársins jukust
fraktflutningar um tæp 52% og
voru rúm 24 þúsund tonn.
Eldsneytisverð 61%
hærra en á sama
tfma og í fyrra
„Ytri þættir hafa áfram verið fé-
laginu óhagstæðir. Eldsneytisverð
er núna 61% hærra en það var á
sama tíma í fyrra og hefur hækkað
um 21% frá áramótum. Ekki er út-
lit fyrir að verð á eldsneyti lækki á
næstunni. Gengi evrunnar hefur
haldið áfram að lækka gagnvart
dollar og er núna 23% lægra en
það var á sama tíma í fyrra og hef-
ur lækkað um 18% frá áramótum.
Ekki er útlit fyrir að evran muni
rétta úr kútnum á næstunni, en
nettótekjur félagsins eru í Evrópu-
myntum á meðan nettó kostnaður
er í dollar,“ að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Flugleiðum.