Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 74
^ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Heilsubótar-
^anga Utivistar
FE RÐAFÉL AGIÐ Útívist hefur
undanfarin ár boðið upp á ókeypis
heisubótargöngur. Göngumar hafa
verið kallaðar Útívistarræktin, farið
hefur verið kl. 18 á mánudögum frá
gömlu Fákshúsunum við Elliðaár og
Skógræktinni í Fossvogi.
Algengt er að 30 - 40 manns mæti í
hverja göngu. Nú hefur verið bætt við
göngum á laugardögum með brottfor
kl. 15 frá sundlaugunum íLaugardal
og verður genginn hringur um Laug-
ardalinn og farið í sund í lokin.
i. Þessar göngur munu verða næstu
laugardaga, eða eftir þvi sem áhugi
leyfir. Allir eru velkomnir í Útivistar-
ræktina.
Fyrirlestur um
mígreni hjá börnum
PÉTUR Lúðvígsson, sérfræðing-
ur í taugalækningum barna,
flytur erindi á vegum Mígren-
samtakanna í safnaðarheimili
Háteigskirkju næstkomandi
þriðjudagskvöld, 31. október, kl.
20 um mígreni hjá börnum. Um-
ræður verða á eftir. Erindið er
einkum ætlað foreldrum barna
með mígreni svo og öðrum þeim
sem áhuga hafa á efninu.
Einkenni mígrenis hjá börn-
um eru oft önnur en hjá ful-
lorðnum, þau fá oft melting-
aróþægindi, magaverki og
uppköst og sum einnig höfuð-
verk. Þau eru oftar bílveik en
önnur börn og líkleg til að fá
skyndileg uppköst eða svima-
köst. En eftir þvf sem börnin eld-
ast færast verkirnir yfirleitt frá
maganum og upp til höfuðsins.
Ýmislegt í lífsháttum barnanna
getur komið mígreninu af stað,
t.d. ákveðnar fæðutegundir,
streita, óregla á svefni eða mat-
málstímum eða of mikil líkamleg
áreynsla, allir velkomnir.
Vara við áformum um
sölu Orkubús Vestfjarða
AÐALFUNDUR kjördæmisfélags
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs á Vestfjörðum, haldinn á
Flateyri 21. október 2000, varar við
áformum um sölu Orkubús Vest-
fjarða og telur fráleitt að knýja
slíka sölu fram sem lið í því að leysa
vanda félagslega íbúðakerfisins,
segir í ályktun.
„Þann vanda ber að leysa með al-
mennum aðgerðum ríkisins, sveit-
arfélaganna og viðkomandi lána-
sjóða óháð öðrum viðfangsefnum
sveitarfélaganna.
Á sama tíma og einstök sveitar-
félög eru að mynda miklar eignir í
f Gagnasafni Morgunblaðsins er að finna fréttir og greinar Morgunblaðsins
frá árinu 1987 fram á þennan dag. Greinar, fréttir, viðtöl eða umfjöllun
er auðvelt að finna, hvert sem viðfangsefnið er. Gagnasafnið nýtist
öllum sem þurfa að afla heimilda og fróðleiks í starfi, námi og leik.
Áskrift frá 2.0Ö0 kr. á mánuði eða lausasala 60 kr. greinin.
Áskrifendur geta látið sérstakan Vaka vakta
Gagnasafnið og fengið sendan tölvupóst
Öflug leitarvél frá AUT0N0MY
Með fréttum og greinum fylgja myndir,
kort og gröf
orkufyrirtækjum og önnur leggja
áherslu á stofnun samtaka um
orkubú, vill ríkið nú yfirtaka hlut
Vestfirðinga í Orkubúi Vestfjarða
og láta andvirðið ganga til að greiða
skuldir sveitarfélaganna vegna fé-
lagslega íbúðakerfisins. Með slíkri
ráðstöfun yrðu skertir enn frekar
en orðið er möguleikar Vestfirðinga
til framtíðaruppbyggingar og tæki-
færa við orkuöflun og -dreifingu,
öfugt við aðra landshluta sem ætla
sér stóran hlut á því sviði. Slíkt get-
ur ekki verið til þess fallið að efla
og styrkja byggð á Vestfjörðum -
þvert á móti er líklegra að með
þessu töpuðust störf úr fjórðung-
num og ímynd hans yrði skert.
Miklu fremur ætti að veita nýju
fjármagni til þróunar atvinnutæki-
færa, fjölbreyttra leiða til mennt-
unar og menningarstarfsemi, sam-
göngubóta og samfélagsþjónustu,"
segir í ályktuninni.
Brautarstöð
fyrir tvo í
bíósal MÍR
RÚSSNESKA kvikmyndin Braut-
arstöð fyrir tvo verður sýnd í bíó-
sal MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudag-
inn 29. október kl. 15. Kvikmynd
þessi var gerð 1983 og öðlaðist
þegar miklar vinsældir, segir í
fréttatilkynningu.
Leikstjóri er Edlar Rjazanov en
með aðalhlutverkin fara m.a.
Ljúdmíla Gúrtsénko, Oleg Basil-
ashvili og Nikita Mikhalkov. í
myndinni segir frá tónlistarmanni
einum sem dæmdur hefur verið í
fangelsi. Þegar hann er á leið með
járnbrautarlest í fangavistina
lengst norður í landi verður hann
strandaglópur á einni brautarstöð-
inni vegna rifrildis við eina af
frammistöðustúlkunum í veitinga-
salnum. Þau eiga þó eftir að ná
sáttum.
Enskur texti er á myndinni og
er aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
------♦-♦-♦------
Niðjamót
NIÐJAMÓT afkomenda Stefáns
Jónssonar frá Klifstöðum, Loð-
mundarfírði, og Ólínu Þóreyjar Ól-
afsdóttur frá Litlu-Hlíð, Vesturdal,
Skagafirði, og seinni konu hans
Halldóru Sigurðardóttur frá
Helgafelli í Svarfaðardal, verður
laugardaginn 4. nóvember nk., í
Kiwanishúsinu, Engjateigi 11,
Rvík, kl.14-17.
Vinsamlega hafið samb. við eft-
irtalda aðila til að fá nánari uppl.
og til að tilkynna þátttöku fyrir 28.
okt. nk. Sigríður Gunnarsdóttir,
Hnausum II, A-Húpavatnssýslu,
Bryndís Tómasdóttir/Eyjólfur
Hermannsson, Hjálmholti 1, Rvík,
Sigrún Páls, Frostafold 6, Rvík, og
Ólína Gunnarsdóttir, Fagra-
hvammi 2c, Hf.
Kynntu þér Gagnasafnið á mbl.is eða hringdu í síma
og fáðu nánari upplýsingar.
569 1122
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS