Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ
li I
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 8t\
Svmngar eru ettlrlaranai:
taugartíautitn
28. októfter M. 20
laugarflasttín
4. nuuetnber kl. 20
Poniunarsimi: 001-1384
Bnutmiús
ISI.I ASK \ 01*1 IS\\
---1»" Sími 511 4200
Stúlkan í vitanum
eftir Þorkel Sigurbjömsson
við texta Böðvars Guðmundssonar
Opera fyrir börn 9 ára og eldri
Hljómsveitarstjóri:
Þorkell Sigurbjörnsson
Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir
8. sýn. sun 29. okt. kl. 14
Miðasala opin frá kl. 12
sýningardaga. Sími 511 4200
í húsi íslensku óperunnar
Wa SS
Gamanleikrit [ leikstjórn
Sigurðar Sígurjónssonar
lau 23/10 kl. 19 slðasta sýning
UPPSELT
Hellisbúinn kveður....
Miðasölusími 551 1475
Miðasala Óperunnar er opin kl. 15—19
mán—lau. og fram að sýningu sýning-
ardaga. Símapantanir frá kl. 10.
mogii
10 árs
viö Hlemm
s. 562 5060
eftir
Guðrúnu
Ásmundsdóttur
Sun. 29. okt. kl. 14 örfá sæti laus
Fim. 2. nóv. kl. 10 uppselt
Sun. 5. nóv. kl. 14
Fös. 10. nóv. kl. 9.30 og 14 uppselt
Lau. 11. nóv. kl. 14 uppselt
Sun. 12. nóv. kl. 14
Fös. 17. nóv. kl. 13 uppselt
VOlUSpA
eftir Þórarin Eldjárn
23. okt.—3. nóv. Leikferð
Sun. 5. nóv. kl. 18 uppselt
Lau. 11. nóv. kl. 17 örfá sæti laus
Fim. 16. nóv. kl. 10 uppselt
,fietta var...atveg æðislegt" SA Dl/
,Svona á að segja sögu í leikhúsi“ HS. Mbl.
LANGAFI
PRAKKARI
eftir Sigrúnu Eldjárn
Mið. 1. nóv. kl. 10.30 uppselt
Sun. 5. nóv. kl. 16
Snuðra og Tuðra
eftir Iðunni Steinsdóttur
Sun. 29. okt. kl. 16
Sun. 12. nóv. kl. 16
Þri. 14. nóv. kl. 14 uppselt
f ■ VINAKORT: \
10 miða kort á 8.000 kr.
\ Frjáls notkun. /
www.islandia.is/ml
FÓLK í FRÉTTUM
IHHRRHRHBHHIi
Rafhljóðfærasmiðurinn Don Buchla er goðsögn í heimi hljóðfærasmíðinnar
Svuntuþeysara-
smiðurinn Buchla
Hljóðgervlar Dons Buchlas þykja bæði
byltingarkenndir og óvenjulegir en Buchla
hefur fengist við hljóðfærasmíði í tæpa fjóra
áratugi. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi
við Buchla er hann var staddur hér á raf- og
tölvutónlistarhátíðinni ART 2000.
Buchla. 500 hljdðgervillinn. Óneitanlega tilkomumikil smíð.
ALÞJÓÐLEGU raf-
og tölvutónlistarhátíð-
inni ART 2000 lýkur í
kvöld með hljómleik-
um í Salnum, Kópa-
vogi, og síðar um
kvöldið fer fram raf-
grímuball á Gauki á
Stöng hvar þátttak-
endur og aðrir munu
bregða á leik og fagna
farsælli hátíð. Hátíðin
hefur staðið yfir frá
18. október og hafa er-
lendir gestir og ís-
lenskir áhugamenn
um tölvur, tækni og
tónlist skrafað og
skeggrætt um alla mögulega og
ómögulega hluti hvað viðkemur
sambúð tónlistar og tækni og not-
ast jafnt við tónleika, framsögur og
kaffihúsaspjall í því markmiðinu.
Það gefur auga leið að tónlistar-
menn búa til tónlist eða gera a.m.k.
tilraun til þess. En svo eru til menn
sem búa til hlutina sem gera tón-
listarmönnunum fært
að koma hugmyndum
sínum út á meðal
fólksins - þ.e. sjálf
hljóðfærin. Don
Buchla er einn slíkur,
maður sem fyllir flokk
uppfinningasamra
tónlistarunnenda eins
og Adolphe Sax (saxó-
fónninn), Robert
Moog (Moog svuntu-
þeysarinn) og Leo
Fender (Telecaster og
Stratocaster gítarar).
Víraflækjur og
Don Buchla skrúfumergð
Buchla er ekki bara hljóðfæra-
smiður heldur hljóðfæraleikari
einnig og síðasta þriðjudagsk\röld í
Salnum flutti hann nokkur verk
með aðstoð nýjustu uppfinninga
sinna, Lightning og Marimba Lum-
ina.
Buchla er Bandaríkjamaður, frá
San Fransisco, og er rólyndur
mjög. Um hann leikur dularfull
ára, væn hippastemmning stafar
frá honum og maður sér hann vel
fyrir sér, bograndi yfir víraflækj-
um og skrúfumergð í bílskúrnum
sínum. Vinna við fyrsta
svuntuþeysarann, Buchla 100
Modular Synthesizer
hófst árið 1963. „Ástæðan fyrir
því að ég smíða þessi hljóðfæri er
að mig vantar hljóðfæri fyrir tón-
listina mína,“ segir Buchla eins og
ekkert sé sjálfsagðara. Síðar í við-
talinu spurði ég hann hvort hann
notaðist þá nokkuð við „hefðbund-
in“ hljóðfæri eins og píanó og gítar.
„Jú, stundum." svaraði hann þá
snaggaralega.
„Þegar ég byrjaði á þessu vissi
ég ekki til þess að neinn annar væri
að gera viðlíka hluti þar sem ég var
einangraður í Kaliforníu. Mig lang-
aði til að búa til hljóðfæri sem væri
gagngert hægt að búa til tölvutón-
list á. Hljóðverið sem ég var að
vinna í notaði alls kyns furðulega
hluti til tónlistarsköpunar eins og
t.d. gömul raftól frá hernum.“
Hann segist ekki smíða hljóðfær-
in sjálfur, ekki í dag alla vega,
heldur hafi hann einungis með
hönnunina að gera. Fyrirtæki hans
sé lítið og starfsmannafjölda sé
hægt að telja á fingnim annarrar
handar. Hann segist heldur ekki
hanna hljóðfærin eftir pöntunum.
„Ég hanna þau með tilliti til eigin
þarfa þó að mörg þeirra séu til
sölu.“
Buchla er margt til lista lagt, það
mætti í raun segja að hann væri
skólabókardæmi um uppfinninga-
mann eins og flestir sjá þá fyrir
sér, í hvítum slopp, skeggjaður,
með hárið reytt. Hann er menntað- >u
ur jöfnum höndum í tónlist, eðlis-
fræði og lífeðlisfræði og hefur kom-
ið að ýmsum störfum og ólíkum,
eins og t.d. geimrannsóknum og
framleiðslu á hjálpartækjum fyrir
sjóndapra. Buchla segir að allt
þetta hjálpist að við hljóðfærasmíð-
ina. „Lífeðlisfræðin fjallar um lík-
ama manna og eðlisfræðin fjallar
um heiminn og samsetningu hans.
Þetta hvorttveggja veitir mér
aukna innsýn og skilning þegar
kemur að hljóðfærasmíðinni." ^
Allt að
einum
hlátri
„SUMIR taka bakföll og skella
sér á lær,“ kvað Ómar Ragnars-
son, setning sem lýsir stemmning-
unni á Café Victor á fimmtudags-
kvöldið bráðvel. Það kvöld var
fyndnasti maður íslands valinn í
þriðja sinnið og var það ungur og
skeggjaður æringi að nafni Lárus
Páll Birgisson sem þétti manna
leiknastur í að kitla hláturtaugar
landsmanna í þetta sinnið. Hann,
ásamt þeim Auðuni Blöndal, Giss-
uri Erni Gunnarssyni og Gunnari
Sigurðssyni, hafði háð mikla hlát-
urhildi á sérstökum undan-
úrslitakvöldum sem fram fóru á
hverju fimmtudagskvöldi í þess-
Morgunblaðið/HaUdór Kolbeinsson
Gissur Örn Gunnarsson lætur
gamminn geisa.
um mánuði en það eru fyrirtækin
TAL, Radio X og Miller sem eru
bakhjarlar keppninnar.
Leikkonan, grinistinn og þátta-
stjórnandinn Helga Braga Jóns-
dóttir kynnti og stýrði kvöldinu
af miklum myndarbrag en fullt
var út úr dyrum og komust færri
að en vildu. Henni til halds og
trausts var sigurvegari siðustu
keppni, Pétur Jóhann Sigfússon,
og skemmti hann á milli atriða af
Lárus Páll Birgisson,
sigurvegari kvöldsins,
grinaði af miklu kappi.
Fögnuðurinn var að vonum mikill að f
keppninni afstaðinni.
valinkunnri smekkvísi. Fyrir-
komulag keppninnar var á þá leið
að þátttakendur fluttu gamanmál
í tíu til tuttugu mínútur hver,
komnir upp á náð og miskunn
hláturmildi áhorfenda og hinnar
skeleggu dómnefndar sem var
skipuð þeim Gísla Sveinbjörns-
syni og Baldvinu Snælaugsdóttur,
fulltrúum Tals, Valdísi Sigur-
þórsdóttur, fulltrúa Café Victor,
og þeim Sigurjóni Kjartanssyni
og Jóni Gnarr, fulltrúum Radio
X.
Sigurvegarinn fékk forláta
farsíma í verðlaun ásamt pen-
ingaverðlaunum, 50.000 kr., og
að sjálfsögðu von um heimsfrægð
á íslandi í kjölfar keppninnar en
fyrri sigurvegarar, þeir Sveinn
Waage og Pétur Sigfússon, urðu
báðir landsþekktir menn vegna
skopfærni sinnar.
börn eru okkar hjartans mál
www.mbl.is
m
Gerber