Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 31
• • >
Orlög heimastjórnar Norður-Irlands gætu ráðist á fundi flokksráðs UUP í dag
Bclfast. AFP, AP.
860 manna flokksráð stærsta flokks
sambandssinna á Norður-írlandi,
UUP, kemur saman í dag til að
ræða tillögur sem gætu ráðið úrslit-
um um hvort hægt verði að bjarga
friðarsamkomulaginu sem náðist
____________föstudaginn
langa 1998. Póli-
tísk framtíð Dav-
ids Trimbles,
leiðtoga flokksins
og forsætisráð-
herra norður-
írsku heima-
stjórnarinnar, er
í veði og bíði
hann ósigur á
fundinum gæti
það orðið til þess að heimastjómin
félli fyrir jól.
Trimble stendur frammi fyrir
lokauppgjöri við harðlínumenn í
flokknum undir forystu Jeffreys
Donaldsons, sem hefur lagt til að
Sinn Fein, stjórnmálaflokki Irska
lýðveldishersins (IRA), verði vikið
úr heimastjóminni hefji IRA ekki
afvopnun fyrir 30. nóvember. Náist
ekki samkomulag um að Sinn Fein
víki úr stjóminni eigi UUP að segja
sig úr henni fyrir jól.
David Trimble
Trimble leggur allt undir
Tveir af helstu samstarfsmönnum
Trimbles reyndu að semja um mála-
miðlunarlausn við Donaldson en
ólíklegt var að samkomulag næðist
eftir að Trimble blés til sóknar í
gær og gagnrýndi tillöguna harð-
lega. Hann lýsti henni sem „bréfi
Jeffreys til jólasveinsins“ sem væri
í engum tengslum við vemleikann.
Litið var á ummæli Trimbles sem
skilaboð til flokksráðsins um að það
yrði annaðhvort að styðja hann eða
víkja honum frá.
Ummæli Trimbles komu báðum
fylkingunum innan flokksins á
óvart. Tveir af þingmönnum flokks-
ins, Danny Kennedy og Fred Cob-
ain, höfðu hafið viðræður við
Donaldson um hugsanlega mála-
miðlunarlausn, með samþykki
Trimbles, og þeim viðræðum var
ekki lokið þegar Trimble ákvað að
leggja allt undir og veitast að
Donaldson.
The Irish Times segir að þre-
menningamir hafi nálgast sam-
komulag í fyrradag og samþykkt að
leggja til að Trimble ræddi við
Donaldson. Kennedy og Cobain hafi
verið á leiðinni til Trimble til að
skýra honum frá þessari niðurstöðu
þegar þeir fréttu af ummælum
flokksleiðtogans.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, fór einnig til Belfast í
fyrradag til að freista þess að
bjarga friðarsamkomulaginu. Talið
er að Trimble hafi brætt það með
sór að samþykkja málamiðlunar-
lausn en ákveðið að hafna þeim
möguleika eftir fund með Blair í
fyrradag.
Ýmislegt benti til þess að
Donaldson léði máls á málamiðlun
sem fælist í því að frestur IRA til
að afvopnast rynni út snemma á
næsta ári.
Trimble sagði að tillaga Donalds-
on um að setja lýðveldissinnum úr-
slitakosti myndi ekki auka þrýsting-
inn á ÍRA eins og til væri ætlast,
heldur hafa þveröfug áhrif. „Vanda-
málið við fresti er að þeir sýna lýð-
veldissinnum hvemig þeh- geta los-
að sig við þrýstinginn," sagði hann.
„Jeffrey vill veita fimm vikna frest.
Þar með er hann að segja lýðveldis-
sinnum að þeir þurfi aðeins að sitja
við sinn keip og standast þrýsting-
inn í fimm vikur og síðan losni þeir
við hann - þar sem sambandssinn-
arnir hafa hlaupist á brott.“
Donaldson kvaðst hafa reynt að
ná samkomulagi sem allir gætu
sætt sig við en ummæli Trimbles
hefðu gert þær tilraunir að engu.
Varað við auknum afskiptum
írsku stjórnarinnar
Peter Mandelson, N-írlandsmála-
ráðherra bresku stjórnarinnar,
sagði að tillaga Donaldsons gæti
leitt til aukinna afskipta írsku
stjórnarinnar af Norður-írlandi.
„Ef þær pólitísku stofnanir sem við
höfum komið á fót hrynja verður
Trimble leggur leið-
togastöðuna að veði
það augljóslega til þess að Norður-
Irland verður fært undir beina
stjórn Bretlands aftur og það myndi
einnig leiða til þess að stjórn ír-
lands hefði meiri afskipti af málefn-
um Norður-írlands.“
Tony Blair skoraði á Norður-íra
að missa ekki sjónar á því sem
áunnist hefði eftir stofnun heima-
stjórnarinnar og stefna henni ekki í
tvísýnu. Hann sagði að sú ákvörðun
IRA að heimila óháðum eftirlits-
mönnum að skoða nokkur vopnabúr
samtakanna í fyrradag væri mjög
mikilvæg. Eftirlitsmennimir, Martti
Ahtisaari Finnlandsforseti og Suð-
ur-Afríkumaðurinn Cyril Ram-
aphosa, lýstu því yfir eftir að hafa
skoðað vopnabúrin að IRA hefði
„staðið að fullu við skuldbindingar
sínar“ varðandi vopnaeftirlitið.
John O’Donoghue, utanríkisráð-
herra írlands, sagði að eftirlits-
mennirnir hefðu staðfest að vopnin
væru í öruggri geymslu og IRA
gæti ekki notað þau.
Donaldson og stuðningsmenn
segja hins vegar að eftirlitið nægi
ekki og krefjast þess að IRA standi
við loforð sín um að afhenda vopn
sín í áföngum og þau verði eyðilögð.
Búist er við að tillaga Donaldson
verði borin undir atkvæði í flokks-
ráðinu í dag og talið er að atkvæða-
greiðslan verði mjög tvísýn.
Skoðanakönnun, sem birt var í
gær, bendir þó til þess að Trimble
njóti mikils stuðnings meðal al-
mennings á Norður-írlandi.
68 af hundraði aðspurðra sögðust
styðja afstöðu Trimbles og tæp 60%
vildu að hann yrði áfram leiðtogi
UUP. Aðeins 27% sögðust styðja
tillögu Donaldson og 29% vildu að
þingmaðurinn Lagan Valley yrði
kjörinn leiðtogi flokksins.
£fe E* SW F)ve«M Xo* tM>
Asfdres* jgj iMbíontntuvabjr/laus^nurnef/ThS^Leií^GSM^NMTtsp
Aógeró: Numeraieit: Numeraieit í GSM og NMT kerfum
JónJónsson 091350-2258
TfiriU
Msjú
Sábiánusta
SkoSayman
Aðgeróir
tibxtti
Leit aó símamimeri, siáðu inn símanúmer og smeiitu á hnappinn Teita aó númeri**.
Dserm urn notkun
802V • tintvai áll fiúroer s«m byr)a i 002
e«aa0 ■ «ll r>wro«r s*m tnði i 308
892%4% * finftut 6II ftúro«r í«ro byt.n i 802 og híf*
tólufUfltro 4 «ífthw«t0Ud*r í s«inoipadi núm*t»nt
* fronwr ðll núm*t s«m byrja i 9, htli 34 *inbv«t»Uóa'
I n«ro*t»nu 09 «ftóa> á S
» GSM T immt
Símanúmer. (SH13 r
Fjóidí simanúmera. |50 !
Uskrárwiq
Hafir þú áhuga á að fá úthiutad ékveónu númeri sem þú finnur f feiítnní, «n$amfegast snúðu
þér til r«»«tu sfmabúðar Sfmans eóa halðu samband i sfma 800-7D0Ö.
fytifVKi! Ww i M rtroánúro*t **ro bí4i*t I UHiftftl ti nýl*«a
mm
864-9113
897-5413
899-7413
Fjöfdi númera: 7
891-6213
897-5613
896-9613
896-8713
Á Þínum síðum er hægt að:
fylgjast með daglegri símnotkun
fá greiðsluyfirlit
tilkynna flutning, rétthafabreytingu o.fl.
sækja um talhólf, svarhólf og faxhólf
skoða laus símanúmer
sækja um ýmsa sérþjónustu
sækja um sparnaðarleiðir
Veldu þér
símanúmer
á Netinu
Ef þú þarft að skrá nýtt símanúmer eða vilt
breyta um númer getur þú leitað að því númeri
sem þig langar í á Þlnum síðum á siminn.is.
Veldu þínar eigin tölur, hvort sem þær eru
happatala, fæðingardagur, ártal eða aðrar.
!•#*••• §f m l H N11. S
Þjónustufulltrúinn þinn á Netinu
s og margt fleira A
A
í'
-.irmnri r; Þú fhwUr lykilorðíð ú \imrcil<ningnum þínum SÍMINN