Morgunblaðið - 28.10.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.10.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heilbrigðisráðherra leggur fram frumvarp um tóbaksvarnir Markmiðið að færri ungl- ingar byni að reykia INGIBJÓRG Pálmadóttir heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra leggur á næstunni fram á Alþingi frumvarp til breytinga á tóbaks- varnalögum. Samkvæmt frumvarp- inu hækkar fjárveiting til forvarna um 12 milljónir og verður hún 50 milljónir á næsta ári. Ennfremur kveður frumvarpið á um að þeir sem selja tóbak þurfí sérstakt leyfí til þess. „Markmiðið með þessu frum- varpi er að færri unglingar byrji að reykja. Það er stefnt að því að auka enn fræðslu í skólum gegn reykingum. Eins er fólki betur tryggt reyklaust umhverfi með því að gerðar eru meiri kröfur til reyklausra svæða en áður hefur verið,“ sagði Ingibjörg. Ingibjörg sagðist leggja mesta áherslu á að færri byrjuðu að reykja. Sem betur fer hefði náðst árangur á því sviði að undanförnu. Rannsóknir hefðu staðfest að held- ur hefði dregið úr reykingum með- al unglinga. Ingibjörg sagði að það yrði á valdi tóbaksvarnanefndar að taka ákvörðun um hvernig þessu aukna fjármagni til tóbaksvarna yrði var- ið, en hún gerði ráð fyrir að nefnd- in myndi leggja áherslu á að auka enn fræðslu um skaðsemi tóbaks. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því nýmæli að það þurfi sérstakt leyfi til að selja tóbak. Leyfisgjaldið á að renna til við- komandi heilbrigðisnefnda á við- komandi svæði. Ingibjörg sagði að gjaldinu væri m.a. ætlað að kosta eftirlit með því að unglingum inn- an 18 ára aldurs væri ekki selt tób- ak. Hún sagði að ekki væri ákveðið hvað þetta gjald yrði hátt. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að Hjartavernd telur að árlega deyi 370 manns á Islandi af völdum reykinga eða einn á hverjum degi. Fimmta hvert dauðsfall á íslandi sé af völdum reykinga. Samkvæmt heilbrigðis- áætlun stjórnvalda er stefnt að því að árið 2010 verði hlutfall þeirra sem reykja daglega komið niður fyrir 20% meðal fullorðinna. Gengi krónunn- ar lækk- aði í gær um 0,58% GENGI krónunnar hélt áfram að lækka í gær og hafði lækk- að um 0,58% þegar viðskiptum dagsins lauk. Gengið lækkaði umtalsvert þegar viðskipti hóf- ust, en hækkaði svo aftur þeg- ar leið á daginn. Frá áramót- um hefur gengið lækkað um 7,6%. Þess má geta að síðast þegar íslensk stjórnvöld tóku ákvörðun um að lækka gengi krónunnar, en það var árið 1993, var gengið lækkað um 8%. Gengi krónunnar náði hámarki um mánaðamótin apr- íl/maí í vor og hefur Iækkað um rúmlega 9% síðan. í hálf fímm fréttum Búnað- arbankans í gær er bent á að í þjóðhagsáætlun fyrir árið 2001 sé gert ráð fyrir að verðbólga hækki um 4% milli áranna 2000 og 2001 og verði rúmlega 3% frá upphafi til ársloka 2001. Spáin byggist á forsendu um óbreytt gengi íslensku krónunnar. Lækkun 2,7% frá því fjár- lagafrumvarp var kynnt Vísitala krónunnar var 115,3 stig um síðustu mánaðamót þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram og hefur krónan því lækkað um 2,7% frá þeim tíma. Bent er á í frétt bankans að vegna mikils vægis innfluttra vara í neyslu heimilanna leiði 2,7% gengislækkun að öðru óbreyttu til 0,8% hækkunar verðbólgu. Ef gengi krónunn- ar hækki ekki á næstu dögum sé ljóst að verðbólguspá Þjóð- hagsstofnunar gangi ekki eftir. Morgunblaðið/Jim Smart Hópur af krökkum flytur hjarta Tónabæjar úr Skaftahlíð og í nýtt húsnæði félagsmiðstöðvarinnar í Safamýri. Hjarta Tóna- bæjar flutt HJARTA Tónabæjar var flutt úr Skaftahh'ð og í Safamýri í gær, en Reykjavíkurborg hefur tekið fé- lagsheimili Knattspyrnufélags Fram á leigu undir félagsstarf Tónabæjar. í tilefni af flutningun- um var haldin opnunarhátíð í nýju húsakynnunum, þar sem boðið var upp á veitingar og skemmtiatriði og lauk kvöldinu með sérstöku opn- unarballi. Reykjavíkurborg leigir félags- heimilið til tiu ára og mun Fram færa starfsemi sína í íþróttahús sitt við Safamýri. I samningi borgar- innar og Fram er einnig tekið fram að stefnt sé að því að gera þjónustu- samning um aukið samstarf Fram og ITR við skipulagningu íþrótta-, félags- og tómstundastarfs. Þyrping hf. keypti húsnæði Tónabæjar við Skaftahlíð fyrir 67 milljónir. Kvartað við Póst- og fjarskiptastofnun vegna Halló frjálsra fjarskipta Þjónusta flutt milli fyrirtækja án þess að beðið væri um það KVARTANIR hafa borist Póst- og fjarskiptastofnun frá nokkrum fyrir- tækjum sem hafa verið skráð í svo- nefnt fast forval hjá Halló frjálsum fjarskiptum án þess að telja sig hafa beðið um slíkt. Er símaþjónusta þannig sögð hafa verið flutt frá Landssíma íslands til Halló frjálsra fjarskipta að fyrirtækjunum for- spurðum. Gústav Arnar, forstjóri stofnunar- innar, segir að rætt hafi verið við að- ila málsins til að eyða misskilningi sem virðist hafa verið uppi og kvaðst hann vona að það væri til lykta leitt. Fast forval snýst um fyrirkomulag símtala til útlanda þannig að þótt valið sé 00 flyst þjónustan sjálfkrafa til annars símafyrirtækis en Símans hafi menn gerst áskrifendur hjá öðru símafyrirtæki. Fyrirtæki sem hafa boðið slíka þjónustu eru auk Halló frjálsra fjarskipta m.a. Íslandssími ogTal. Þegar gengið hefur verið frá áskrift tilkynnir viðkomandi fyrir- tæki það til Landssímans sem breyt- ir tengingum þannig að símtöl í 00 frá þeim viðskiptavinum flytjast til viðkomandi aðila. Gústav segir málið hafa uppgötv- ast þegar viðskiptavinir Landssím- ans, sem hafi orðið fyrir truflunum á síma- eða faxsambandi við útlönd, hafi kvartað við fyrirtækið en þá komið í ljós að þeir væru í föstu for- vali og því í viðskiptum við annað símafyrirtæki. Hafi menn því verið komnir með þjónustu sem þeir telja sig ekki hafa pantað. Nokkrir tugir fyrirtækja telja sig hafa verið setta í fast forval án þess að hafa beðið um það. Staðfesta verður áskrift skriflega Mál af þessum toga komu upp fyr- ir um mánuði og segir Gústav að full- trúar Póst- og fjarskiptastofnunar hafi átt fundi með fulltrúum Lands- símans og Halló frjálsra fjarskipta í vikunni. Svo virðist sem misskilning- ur hafi verið uppi um hvort við- skiptamenn hafi í raun pantað þessa tilteknu þjónustu. Segir hann ákveðin fyrirmæli í reglum um að fyrirtæki beri að stað- festa sknflega ef samið hefur verið um þjónustu sem þessa til að enginn fari í grafgötur um hvað ákveðið hafí verið. Gústav kvaðst ekki eiga von á öðru en málið kæmist þar með í réttan farveg. Sérblöð í dag w Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.