Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 8

Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 8
8 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aldradir þurfa mnboðsmaun - Hver er tilgangurinn með því að stofna embætti umboðsmanns aldraðra eins og \m og Jieiri þingmenn hafa lagt til? „Eins og tram kcniur í þingályktunartillög- unni þá fjölgar öltlruðum sítellt en um 28.700 Ísienílinoar crn ö7 árn np clrlri . II I II í M G Láttu fagmanninn um þetta, Guðmundur minn, ég læt liðið blása og síðan býð ég út meðferðina á því í einum pakka á hinu Evrópska efnahagssvæði. íslenski hópurinn sem teflir á Ólympíuskákmótinu í Istanbul: Sitjandi f.v.: Aldís Rún Lárusdóttir, Harpa Ing- ólfsdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Áslaug Kristinsdóttir. Standandi: Þröstur Þórhallsson, Áskeli Örn Kárason, Stefán Kristjánsson, Hetgi Ólafsson, Jón Viktor Gunnarsson, Jón Garðar Viðarsson, Bragi Krisljáns- son og Hannes Hlífar Stefánsson. Ólympíuskákmótið hefst í Istanbul í dag Island teflir fram sveit í báðum flokkum í DAG hefst í Istanbul í Tyrklandi 34. Ólympíuskákmótið. ísland tekur nú þátt í Ólympíuskákmótinu í 29. sinn en fyrst var send sveit á mótið 1930 sem haldið var í Hamborg. Oft- ast hefur einungis verið send sveit til keppni í opnum flokki en fjögur mót í röð, árin 1978-84 var send sveit til keppni í kvennaflokki. Nú er þráður- inn tekinn upp aftur eftir 16 ára hlé. Bestum árangri hefur ísland náð á mótinu í Manila 1992 þegar sveitin varð í 5. sæti en hún náði 6. sæti í Dubai 1986 og 8. sæti í Novi Sad 1990 og Erevan 1996. Á Óiympíuskákmótinu í Istanbul eru 125 sveitir skráðar til leiks í opn- um flokki og 82 í kvennaflokki. Þeir sem tefla fyrir hönd íslands á mótinu sem hefst í dag eru þessir: j Opinn flokkur: , 1. borð: Hannes Hlífar Stefánsson stór- meistari. Fæddur 1972. Tefldi á sínu fyrsta Ólympíumóti 1992 í Manila og hefur verið í sveit íslands á fjórum mótum til þessa. Sat á fyrsta borði í íslensku sveitinni á síðasta Ól- ympíumóti, í Elista 1998. 2. borð: Helgi Ólafsson stórmeistari. Fædd- ur 1956. Tefldi á sínu fyrsta Ólympíumóti 1976 í Haifa og teflir nú á sínu 12. Ólympíu- móti fyrir íslands hönd og setur þar með íslandsmet í þátttöku á Ölympíuskákmót- um. 3. borð: Þröstur Þórhallsson stórmeistari. Fæddur 1969. Tefldi fyrst á Ólympíumóti 1988 í Þessalonikíu og hefur alls teflt á fímm mótum til þessa. Tefldi á 2. borði í íslensku sveitinni í Elista og náði þá bestu árangri ís- lensku keppendanna. 4. borð: Jón Viktor Gunnarsson, alþjpðlegur meistari og núverandi skákmeistari íslands. Fæddur 1980. Teflir nú á Ólympíumóti í ann- að sinn en hann var einnig á 4. borði í ís- lensku sveitinni í Elista fyrir tveimur árum. 1. varamaður: Jón Garðar Viðarsson. Fædd- ur 1962. Tefldi í fyrsta sinni á Ólympíumóti í Elista 1998 og var þá annar varamaður. 2. varamaður: Stefán Kristjánsssson. Fædd- ur 1982. Teflir nú á sínu fyrsta Ólympíuskák- móti. Liðsstjóri er Bragi Kristjánsson. Kvennaflokkur: 1. borð: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir alþjóð- legur meistari. Fædd 1972. Nífaldur skák- meistari íslands í kvennaflokki. 2. borð: Harpa Ingólfsdóttir. Fædd 1981. Núverandi skákmeistari íslands í kvenna- flokki. 3. borð: Áslaug Kristinsdóttir. Fædd 1961. Þrefaldur skákmeistari íslands í kvenna- flokki. Varð í öðru sæti á nýafstöðnu íslan- dsmóti. Varamaður: Aldís Rún Lárusdóttir. Fædd. 1983. Varð í 3-4. sæti á nýafstöðnu íslan- dsmóti. Allar eru stúlkurnar að tefla á sínu fyrsta Ólympíumóti, nema Áslaug sem var í sveit íslands á mótunum 1980 á Möltu og 1982 í Luzern. Liðsstjóri er Áskell Öm Kárason og er hann jafnframt fararstjóri hópsins. Heilbrigðisstarfsmenn skora á ríkið Niðurgreiða þarf lyf gegn reykingum Guðrún Jónsdóttir NÝLEGA kom á markaðinn lyf gegn reykingum sem heitir Zyban, en rann- sóknir hafa sýnt að þetta lyf hjálpar fólki verulega til að standast reykingabind- indi. Lyfið kostar 7.907 krónur, mánaðarskammt- ur, hjá lyfjabúðum og tekur ríkið engan þátt í að niður- greiða það. Á hádegisverð- arfundi hjá Samtökum hjúkrunarfræðinga og ljós- mæðra kom fram áskorun frá þessu heilbrigðisstarfs- fólki um að afstaða ríkisins til þessa máls yrði endur- skoðuð. Guðrún Jónsdóttir, formaður umræddra sam- taka, var spurð hvaða rök væru fyrir því að rfldð end- urskoðaði afstöðu sína og tæki að greiða niður þetta lyf og önnur lyf sem eiga að hjálpa fólki til að hætta að reykja? „Reykingamaður sem ætlar að hætta með árangri að reykja þarf að fara til læknis og fá lyfseðil fyrir Zyban, sú heimsókn kostar 700 krónur hjá heimilislækni. Lyfið kostar 7.907 krónur mánaðar- skammtur, einnig þarf viðkomandi nikótínplástur sem kostar 5.900 kr. mánaðarskammtur og síðan nikó- tíntyggjó til að grípa í þegar löng- unin er mikil, það kostar 4.098 krónur mánaðarskammtur. Heild- arpakkinn kostar þá fyrir einn mánuð 18.605 krónur, sem okkur finnst dýrt fyrir venjulegt fólk. Ef fólk hins vegar reykir pakka af síg- arettum kostar það 380 krónur á dag eða 11.400 kr. Sá sem vill hætta að reykja þarf því að leggja út tæplega 8.000 krónum meira til þess að hætta, auk þess sem það er erfitt að hætta. Þetta teljum við að dragi kjark úr fólki við að reyna að hætta að reykja.“ -En það vita allir að það er mjög óhollt að reykja, vill fóik ekki borga fyrir að losna við óhollust- una? „Það er meira en að segja það að hætta að reykja, því meira sem fólk er stutt til þess að reyna að hætta því meiri líkur eru á að það takist." - En er það ekki réttur hvers og eins að ráða hvað hann gerir og taka svo afleiðingunum? „Tóbaksfíkn hefur verið skil- greind álíka sterk og fíkn í heróín. Það er því augljóst að þegar fólk er einu sinni fallið í þá gryfju að reykja þá er ekki lengur um frjálst val að ræða, fíknin ræður. Þetta er því ekki sambærilegt við það hvort maður kaupir sér svartar eða bláar buxur, t.d. Hvað afleiðingarnar snertir þá eru þær skelfilegar oft á tíðum, bæði þjarta- og æðasjúk- dómar, lungnasjúkdómar og krabbamein. Þegar fólk er orðið veikt eftir kannski tuttugu ára reykingar eru afleiðingamar ekki aðeins einstaklingsins, heldur alls þjóðarbúsins sem þá þarf að borga sjúkrakostnað fyrir hann og sá kostnaður er mikill að viðbættum lyfjakostnaði.“ - Er sá kostnaður meiri fyrir ríkið en að taka þátt íað greiða nið- ur lyfgegn reykingum ? „Sá kostnaður er án vafa miklu meiri. Það kostar mjög mikið að hafa fólk t.d. á lungna- deildum í áravís og á heilsuhælum, fyrir utan legu- og aðgerðarkostn- að fyrir hjartasjúklinga. Lyfja- kostnaður fyrir krabbameinssjúkl- inga er mikill og þannig mætti ► Guðrún Jónsdóttir fæddist 5. október 1968 á Akureyri. Hún lauk stúdentsprófl frá Flensborg 1989 og hjúkrunarprófi frá Há- skóla íslands 1994. Hún stundar nú mastersnám við HÍ meðfram því að vera hjúkrunarfræöingur á lungnadeild Landspítala, Víf- ilsstöðum. Hún er formaður Samtaka hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra gegn tóbaki. Guðrún er gift Þorgrími Björnssyni, tæknimanni hjá Nýherja. Þau eiga tvo stráka, 5 og 11 ára. telja.“ - VitaySrvöld þetta ekki? „Yfirvöld vita að forvarnir eru ódýrari en læknis- og lyfjakostnað- ur fyrir fólk sem orðið er veikt af reykingum. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra hefur látið svo um mælt að forvamir séu það sem koma skal, það sé hagur allra, ein- staklinga, fyrirtækja og samfélags- ins í heild. Forvömum er mikið beitt en það þarf greinilega miklu meira til, því ennþá reykja 23% þjóðarinnar og unga fólkið er enn að byija að reykja. Málið stendur um hvað gera á við þá sem þegar reykja. Það væri mikil hjálp fyrir þá ef lyf gegn reykingum yrðu nið- urgreidd. Rannsóknir sýna að 71% þeirra sem reykja vill hætta. Það mætti til dæmis hækka tóbak og taka það sem þannig ynnist í að niðurgreiða lyf gegn reykingum." - Erþetta nýja lyf - Zyben - ár- angursríkt íraun? „Rannsóknir á þessu lyfi sýna að eftir 52 vikur höfðu 33% af þeim 250 sem þátt tóku í rannsókninni hætt að reykja, en þeir tóku lyfið í 7 til 9 vxkur. Þetta sýnir mun betri árangur en þegar önnur lyf eða engin lyf em notuð. Þeir sem hætta að reykja með aðstoð Zyban virðast síður þyngjast en aðrir sem hætta að reykja. Þetta !yf er mikið notað, t.d. í Bandaríkjunum." - Hvers konar lyfer þetta? „Þetta er geðlyf og það kom í ljós við notkun þess að sjúklingam- ! ir hættu að reykja án j þess að hafa sérstak- lega reynt það. Þeir ; komu til læknisins og sögðu frá því að þá lang- aði ekld lengur til að reykja. Þetta varð til þess að farið var að rannsaka lyfið sem lyf gegn reykingum. Það sýndi þennan góða ár- angur.“ - En er þetta lyf áhrifaríkt gegn þunglyndi? „Það var mjög vinsælt ytra en reyndist áhrifaminna en ýmis önn- ur lyf.“ Rannsóknir sýna mun betri árangur af notkun Zyban en af öðrum lyfjum eða engum lyfjum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.