Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 11
FRÉTTIR
é blóðbansunn
^ 1 Í
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Hópurinn að norðan fyrir framan Bldðbankann í gærmorgun.
SUDURIHO'
Komu að norðan til að gefa blóð
FIMMTIU til sextíu nemendur úr
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki gáfu blóð í
Blóðbankanum í gærmorgun og
dreifðu síðan upplýsingum um
starfsemi Blóðbankans til al-
mennings. Með þessu móti vilja
nemendurnir vekja athygli á mikil-
vægi þeirrar starfsemi sem fram
fer í Blóðbankanum og leggja sitt
af mörkum í þeim efnum, en fram-
takið er hluti af fjáröflun nemenda
í skólanum vegna utanfarar.
Sveinn Guðmundsson, yfírlæknir
í Blóðbankanum, sagði í samtali við
Morgunblaðið að blóðgjöfín hefði
gengið mjög vel. Eftir hana hefði
verið farið með ungmennin í skoð-
unarferð um Blóðbankann og þeim
kynnt starfsemi hans og síðan
hefðu þau gengið fylktu liði niður í
bæ, þar sem þau hugðust dreifa
upplýsingum um starfsemi Blóð-
bankans til almennings.
Sjötíu blóðgjafa þarf
á hverjum degi
Sveinn sagði að Blóðbankinn
þyrfti að fá sjötíu blóðgjafa á
hverjum degi einungis til þess að
standa undir eðlilegri starfsemi
sjúkrahúsanna. Það sem væri sór-
staklega ánægjulegt við þetta
framtak nemendanna væri að
þarna væri um ungt fólk að ræða
sem skipti miklu máli fyrir fram-
haldið, því á næstu árum og ára-
tugum þyrfti Blóðbankinn að reiða
sig á ungt fólk í auknum mæli.
Hlutfall eldra fólks færri vaxandi.
Þar með ykist þörfin fyrir blóð, en
jafnframt fækkaði þeim sem gætu
gerst blóðgjafar, þar sem þeir
þyrftu að vera á aldrinum aldr-
inum 18-60 ára.
Því hefði Blóðbankinn í auknum
mæli unnið að kynningu á starf-
semi sinni meðal ungs fólks meðal
annars með heimsóknum í fram-
halds- og háskóla, auk heimsókna á
vinnustaði.
Framkvæmdastj óri Grundar ósáttur
við vinnubrögð heilbrigðisráðuneytis
Daprast að ráðu-
neytið vill ekki
ræða samninga
FRAMKVÆMDASTJORI elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar, Júl-
íus Rafnsson, er afar ósáttur við
framkomu og vinnubrögð heilbrigð-
isráðuneytisins í svokölluðu
daggjaldamáli, en ráðuneytið hefur
stefnt Grund vegna ágreinings um
daggjaldagreiðslur til heimihsins.
Krefst ráðuneytið ógildingar á úr-
skurði gerðardóms, sem Hæstiréttur
hafði skipað, um að hann hafi lög-
sögu í málinu.
Júlíusi finnst það daprast í málinu
að forráðamenn heilbrigðisráðu-
neytisins hafi ekki viljað setjast nið-
ur til samningaviðræðna. Þegar
daggjaldasamningi hafi verið sagt
upp í byrjun febráar sl. hafi einn
fundur verið haldinn í lok febráar.
Engar viðræður hefðu átt sér stað
fyrr en ráðuneytisstjóri hafði sam-
band á fimmtudag, eftir að stefnan
hafði verið lögð fram, og óskaði eftir
fundi. Sá fundur reyndist árangurs-
laus.
„Ég get ekki neitað því að mér
þótti svolítið sérstakt að daginn eftir
að okkur er birt stefna skuli vera
óskað eftir óformlegum viðræðum
um málið. I rauninni hefði ég frekar
átt að óska eftir fundinum, eftir að
mér var birt stefnan," segir Júlíus.
Hann telur gerðardóm aldrei hafa
þurft að koma til sögunnar, hefði ver-
ið sest niður til samningaviðræðna.
Sjálfsagt þyki að semja við nýja aðila
á þessu sviði, s.s. Öldung, sem Júlíus
segir að sé að gera góða hluti, en
gamlar stofnanir séu ekki virtar við-
lits, og allra síst sú elsta. En Grund
fagnar 78 ára afmæli sínu á morgun,
sunnudag.
Skilningur, en vilja skortir
Júh'us bendir á að samkvæmt
frumvarpi til fjáraukalaga þurfi aðal-
skrifstofa heilbrigðisráðuneytisins
11,8 milljónir króna til að dekka
kostnað við samningagerð við Öld-
ung. Júlíus segir samningaviðræður
við forráðamenn Grundar ekki kosta
11,8 milljónir. Ráðuneytismönnum
yrði hiklaust boðið upp á ókeypis
kaffi og kleinur.
„Það er þessi framkoma og vinnu-
brögð sem mig svíður mest. Ef menn
hefðu haft vilja hefði mátt leysa mál-
ið á einni viku. Ég finn fyrir skilningi
á málinu en það er eins og það skorti
viljann. Á fundi með fjárlaganefnd í
fyrra lagði ég fyrir þá eina spum-
ingu, hvers vegna Grund fengi ekki
sömu greiðslur og aðrar stofnanir.
Það veit þetta enginn og menn segja
„af því bara“. Þetta heimiii, Grund og
Ás í Hveragerði, veltir um eða yfir
einum milljarði á ári og menn
skammta þessu peninga „svona af
því bara“. Ég er að pína ráðuneytið
til að segja mér hvað er að, en ég fæ
ekki efnislega afstöðu,“ segir Júlíus.
Hann segist finna fyrir áhyggjum
heimilisfólks vegna stefnu ráðu-
neytisins. Það óttist um sinn hag og
jafnvel að Grund verði lokað, þegar
ríkið sé að stefna heilli stofnun. Jú-
hus segir að fundað verði með heimil-
isfólkinu og þvi kynnt staða málsins.
Tillögur nefndar um breytingu sparisjóða í hlutafelög
Stofnfj ár eigendur fá ekki verð-
mæti umfram bókfært virði
Hóftil
heiðurs
Jóniá
Reykjum
BÆJARSTJÓRN Mosfells-
bæjar samþykkti á fundi sínum
30. ágúst að gera Jón M. Guð-
mundsson á Reykjum, fyrrver-
andi oddvita, að heiðursborgara
Mosfellsbæjar. Af því tilefni
mun bæjarstjórnin halda hon-
um til heiðurs hátíðarboð í Hlé-
garði á sunnudaginn kl: 15.30.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt fyrir nokkru í bæjar-
stjórn: „Bæjarstjórn Mosfells-
bæjar samþykkir að Jón M.
Guðmundsson verði gerður að
heiðursborgara Mosfellsbæjar.
Með því móti vill bæjarstjórn
Mosfellsbæjar, f.h. Mosfells-
bæjar, láta í ljós þakklæti sitt
og viðurkenningu á hinu mikil-
væga framlagi Jóns til upp-
byggingar sveitarfélagins en
Jón var oddviti Mosfellshrepps
frá árinu 1962-1981 á miklum
umbrotatímum í sögu sveitarfé-
lagsins, og hreppstjóri frá árinu
1984-1990. Auk þess hefur hann
tekið virkan þátt í félagsstarfi
innan og utan sveitarfélagsins
og lagt þar drjúgt af mörkum.
Nafn hans hefur verið samof-
ið sögu sveitarfélagsins um ára-
tugaskeið og er við hæfi að
Mosfellsbær votti honum virð-
ingu sína með þessum hætti nú
þegar 80 ára afmæli hans
stendur fyrir dyrum þann 19.
september nk.“
Þetta er í annað sinn sem
heiðursborgari er tilnefndur í
Mosfellsbæ. Halldór Laxnes
var gerður að heiðursborgara
23. apríl 1972 í tilefni af 70 ára
afinælis sínu.
GUÐMUNDUR Hauksson, for-
maður Sambands íslenskra spari-
sjóða, sem sæti á í nefnd viðskipta-
ráðherra er vinnur að endurskoðun
laga um sparisjóði, segir að ef farin
verður sú leið sem rætt er um, að
gera sparisjóðum kleift að breyta
rekstrarformi sínu í hlutafélög, fái
stofnfjáreigendur endurgreitt sitt
stofnfé með hlutabréfum. Þeir muni
hins vegar ekki fá í sinn hlut þau
verðmæti sem markaðurinn metur
umfram bókfært virði sparisjóðsins
eftir að honum hefur verið breytt í
hlutafélag.
I frumvarpsdrögum nefndar við-
skiptaráðherra segir að við breyt-
ingu á sparisjóði í hlutafélag skuli
stofnfjáreigendur eingöngu fá
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra segir nýja skýrslu um
ítrekunartíðni afbrota hér á landi
sýna góðan árangur af stefnu ís-
lenskra stjórnvalda. íslendingar
beiti yfirleitt vægum refsingum en
þó sé ítrekunartíðni ekki hærri hér
en meðal annarra landa.
Sólveig segir athyglisvert hve
samfélagsþjónustan virðist hafa gef-
ist vel. Hún bendir á að rannsóknin
hlutafé í hlutafélaginu sem gagn-
gjald fyrir stofnfjárhluti sína. „Skal
samanlagt hlutafé sem stofnfjáreig-
endur fá í sparisjóðnum nema sama
hlutfalli af hlutafé hans eftir breyt-
inguna og stofnfé, endurmetið sam-
kvæmt 23. grein, nemur samtals af
áætluðu markaðsvirði sparisjóðsins
samkvæmt mati óháðra aðila sem
miðast við það tímamark sem
breytingin á rekstrarformi spari-
sjóðsins miðast," segir í frumvarps-
drögunum.
Skv. tilvitnuðu ákvæði laga um
viðskiptabanka og sparisjóði er
heimilt að endurmeta stofnfé sjóð-
anna með hliðsjón af verðlagsbreyt-
ingum, og hefur það þá þýðingu að
sögn Guðmundar að stofnfé er verð-
nái til ársins 1998 þegar ákvörðun
var tekin um að útvíkka heimildir til
samfélagsþj ónustu. „Niðurstöðurn-
ar sýna að það átti fyllilega rétt á
sér,“ segir Sólveig. Það þurfi þó að
taka tillit til þess að áhrifin séu mis-
munandi eftir brotaflokkum. „Þann-
ig virðast þyngri refsingar hafa
meiri áhrif á tíðni ítrekunar í fíkni-
efnabrotum en t.d. í almennum auðg-
unarbrotum. Rannsóknin sýnir okk-
tryggð eign stofnfjáreigendanna.
„Verði breytingarnar gerðar á
þeim grundvelli sem við erum núna
að vinna með, er miðað við að menn
fái hlutafé í staðinn fyrir stofnfjár-
hluti sína og þá fá menn í raun end-
urgreitt það stofnfé sem þeir hafa
áður greitt inn í sjóðinn. Það hefur
þá einungis tekið þeim hækkunum
sem nemur verðbótum. Stofnfjár-
eigandi fær þannig ekki hlutdeild í
öðru eigin fé sparisjóðsins en spar-
isjóðurinn verður metinn eins og öll
önnur fyrirtæki, sem verið er að
skrá t.d. á verðbréfaþingi, og reynt
að meta markaðsverð hans. Sú við-
bótareign sem þá kynni að koma
fram verður eign þessarar sjálf-
seignarstofnunar sem ætlunin er að
ur því hvar þyngri refsingar gætu
betur átt við og í hvaða málum þær
væru síður líklegar til að skila ár-
sangri," segir Sólveig.
Hún segir ítrekunartíðni þó ekki
segja alla söguna. Menn hafi einnig
lagt áherslu á fælingarmátt refsinga,
ekki bara þá sem hafa framið afbrot
heldur einnig allan almenning.
„Rannsóknin sýnir að ítrekunar-
tíðnin er mest meðal ungra brota-
stofnuð verði ef farið verður að
þessum tillögum sem nú liggja fyr-
ir.
Þetta þýðir með öðrum orðum að
stofnfjáreigendur munu ekki fá í
sinn hlut þau verðmæti sem mark-
aðurinn metur umfram bókvirði
sparisjóðsins," sagði Guðmundur
Hauksson.
Fyrir rúmum áratug var dönsk-
um sparisjóðum veitt lagaheimild
til að breyta rekstrarformi sínu í
hlutafélög með áþekkum hætti og
rætt er um þessa dagana hér á
landi. Að sögn Guðmundar horfði
hins vegar þannig við á markaði
þegar dönsku sparisjóðirnir voru
skráðir að markaðurinn mat spari-
sjóðina undir bókfærðu verði.
manna. Því er afar mikilvægt að
beina sjónum að þeim hópi. Þessi
niðurstaða sýnir einmitt hversu brýn
sú ákvörðun var sem ég tók um að
efla skilorðseftirlit sem auðvitað
mun beinast sérstaklega að ungum
brotamönnum. í samræmi við þessa
ákvörðun er auknum fjármunum
varið til þessa málaflokks í því fjár-
lagafrumvarpi sem nú liggur fyrir
þinginu," segir Sólveig.
Dómsmálaráðherra um skýrslu um ítrekunartíðni afbrota
Sýnir góðan árangur af
stefnu íslenskra stjórnvalda