Morgunblaðið - 28.10.2000, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 29
ERLENT
Tölvuþrjótar brutust inn hjá Microsoft
Gætu hafa náð drög-
um að nýjum kerfum
Seattle. AP, Rcuters.
Ný alþjóðleg skýrsla vísindamanna um loftslagsmál
Maðurinn sagður að
miklu leyti valdur að
hækkun hitastigs
Washington. Reuters, AP, AFP.
TÖLVUÞRJÓTAR brutust inn í
tölvukerfi Microsoft-fyrirtækisins
og hugsanlegt er, að þeir hafi stolið
frumdrögum að nýjustu útgáfu af
Windows-stýrikerfinu og Office-
vöndlinum. Er innbrotið mikið áfall
fyrir Microsoft en það er nú til rann-
sóknar hjá bandarisku afríkis-
lögreglunni, FBI.
Upp um málið komst á miðviku-
dag þegar í ljós kom, að lykilorð,
sem notuð eru við flutning á frum-
kóðunum, frumdrögum að ýmsum
afurðum fyrirtækisins, höfðu verið
send á póstfang í Pétursborg í Rúss-
iandi. Rick Miller, tafsmaður fyrir-
tækisins, sagði, að um væri að ræða
afvarfega njósnastarfsemi en hann
vildi þó ekki staðfesta, að tölvuþrjót-
arnir hefðu komist yfir frumkóðana.
Þá sagði hann, að ekkert benti emi
til þess, að þeim hefði verið breytt
eða spillt.
Fjárkúgun eða iðnaðarnj ósnir?
Ekki er vitað hverjir þijótarnir
eru en tafið er, að þeir hafi haft að-
gang að kóðunum í allt að þrjá mán-
uði. Ekki er heldur vitað hvað fyrir
þeim vakir en sérfræðingar telja
hugsanlegt, að um sé að ræða fyrstu
skrefin í svokallaðri „gíslatöku" eða
fjárkúgun. Munu þá þijótamir hóta
að opinbera Microsoft-kóðana nema
orðið verði við kröfum þeirra. Verða
afbrot af því tagi æ algengaiá. Hugs-
anlegt er lflta, að um sé að ræða
hreinar iðnaðarnjósnir en sérfræð-
ingamir segja, að aðeins rnjög vafa-
söm fyrirtæki myndu kaupa þýfið.
Haft er eftir heimifdum, að tölvu-
þijótamir hafi notað hugbúnað, sem
kallast QAZ Trojan og skaut fyrst
upp kollinum i Kina í júlí sl. Er hann
sendur með tölvupósti og er með við-
hengi, sem líkist hverju öðm Word-
skjali. I því er þó falinn kóði, sem
opnar þijótunum „bakdyr“ að tölv-
unni og gefur þeim vald yfir henni.
Atburðarásin gæti hafa verið þessi:
• Einhver starfsmaður Microsoft
fær tölvupóst með fyrmefndu við-
hengi og opnar það í ógáti. Það er
í dulargervi eins og áður segir og
líkist Word-skjali.
• QAZ sendir nú boð til tölvu í Asíu
oggefur upp staðsetningu sýktu
tölvunnar á Netinu. Einnig er tal-
ið hugsanlegt, að QAZ hafi sótt
„verkfæri", sem gera þijótunum
eftirleikinn auðveldari, inn á vef-
síðu í Suður-Kyrrahafi. QAZ gaf
þijótunum nokkurt vald yfir tölv-
unni og það færðist siðan yfir á
aðrar tölvur á sama svæði hjá
Microsoft.
• Þijótamir nota annan hugbúnað
til að komast yfir lykilorðin, sem
em send á póstfangið í Rússlandi.
• Þijótamir geta nú látið sem þeir
séu starfsmenn Microsoft að vinnu
heima hjá sér og notað lykilorðin
til að komast inn í leyndustu kima
kerfisins og stela skjölum.
Iflá Microsoft er nú unnið að því að
tryggja, að þijótamir geti ekki not-
að stolna fmmkóða til að breyta
hugbúnaði, sem í notkun er hjá fyr-
irtækjum, hinu opinbera eða einka-
aðilum. Segir talsmaður fyrirtækis-
ins, að á því sé raunar ekki mikil
hætta.
I NYRRI eitt þúsund síðna skýrslu
alþjóðlegs rannsóknarhóps um lofts-
lagsbreytingar er komizt að þéirri
niðurstöðu, að lofthjúpur jarðar haldi
áfram að hitna af völdum svokaliaðra
gróðurhúsalofttegunda, og aðgerðir
mannanna hafi mest um þessa þróun
að ísegja.
I skýrslunni, sem hin alþjóðlega
milliríkjanefnd um loftslagsbreyting-
ar (IPCC) gefur út, er þvi spáð, að
meðalhiti í lofthjúpi jarðar verði undir
lok 21. aldarinnar allt að 6 gráðum á
celsíus hærri en hann var árið 1990.
Þetta væri meiri breyting á meðal-
hita á jörðinni en hún hefur upplifað
frá því síðustu ísöld lauk og gæti leitt
til óútreiknanlegra veðrabrigða, með
stormum, flóðum og alvarlegum
þurrki.
Gróðurhúsalofttegundir, svo sem
koltvíoxíð, losna út í andrúmsloftið við
bruna jarðefnaeldsneytis eins og kola
og olíu, og við bruna skóglendis og
með ýmsum öðrum hætti.
Orðalag niðurstaðna skýrslunnar,
sem enn sem komið er liggur aðeins
fyrir í forútgáfuformi, er það sterk-
asta sem komið hefur frá hinum al-
þjóðlega rannsóknarhópi fram að
þessu. Um 2.500 vísindamenn á sviði
loftslagsrannsókna eru í tengslum við
IPCC. í síðustu skýrslu hópsins, sem
var gefin út árið 1995, segir að áhrif
athafna mannsins á upphitun loft-
hjúpsins væru „merkjanleg“. í drög-
unum að nýju skýrslunni er mun
sterkar tekið til orða. Þar segir að „nú
séu sterkari vísbendingai- fyrir hendi
um áhrif mannsins," og spánni um
það hve mikið meðalhitastig á jörðinni
muni hækka breytt til enn meiri
hækkunar en áður var spáð.
,Árið 1995 sögðum við að síðan árið
1860 hefði meðalhitinn hækkað árlega
um á bilinu 0,3 til 0,6 stig á celsíus,"
hefur Reuters eftir ónafngreindum
heimildarmanni, sem þekkir til inni-
halds nýju skýrslunnar. „Nú eru
þessar tölur 0,4 til 0,8 gráður.“
Þetta eru sömu tölur og gefnar
voru upp í niðurstöðum stórrar
skýrslu sem bandaríska vísindai'ann-
sóknaráðið (U.S. National Academy
of Science’s National Research
Council, NRC), gaf út í upphafi þessa
árs.
„Þetta helgast að miklu leyti af því,
að síðustu ár hafa verið mjög hlý.
Eins og segir í skýrslunni sjálfri var
síðasti áratugur örugglega sá hlýjasti
í eitt þúsund ár,“ segir heimildarmað-
urinn.
Fyrir fimm árum spáði IPCC því,
að meðalhiti á jörðinni myndi hækka
um eina til 3,5 gráður á celsíus á tíma-
bilinu 1990 til 2100. í nýju skýrslunni
segir, að hitastigshækkunin á þessu
tímabili geti orðið allt frá 1,5 gráðum
upp í 6 gráður.
Robert Watson, formaður IPCC,
sem aðsetur hefur í Washington,
sagði að skýrslan, sem var lekið á
fimmtudag til hinna ýmsu fjölmiðla,
væri ekki frágengin að fullu og gæti
átt eftir að breytast áður en hún kem-
ur opinberlega út.
Watson sagði þann texta sem lekið
hefði út vera samantekt á skýrslunni
sem hundruð vísindamanna úti um
allan heim hefðu samið. Drögin sem
nú lægju fyrir hefðu verið tvíyfirfarin
af vísindamannahópnum og sérfræð-
ingum stjómvalda þeirra landa sem
aðild ættu að verkefninu, en það eru
nær öll aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna. Nú væri síðasta uppkast til
skoðunar hjá stjórnvöldum þessara
ríkja. Taldi hann þessa síðustu yfir-
ferð yfir textann verða mjög ná-
kvæma og verða tilefni mikilla um-
ræðna.
„Fulltrúar ríkisstjóma heimsins
munu koma saman, auk margra vís-
indamannanna sem sömdu hana, í
Kína um miðjan janúar til að leggja
lokablessun sína yfir hana. Hún verð-
ur borin upp til samþykkis bókstaf-
lega frá orði til orðs,“ segir Watson.
Margar skýrslur sem gefnar hafa
verið út frá því 1995 hafa komizt að
þeirri niðurstöðu að hækkun hitastigs
á jörðinni sé alvarlegara vandamál en
áður hefði verið talið og í mörgum
þeirra vora sterk rök færð að því að
beint orsakasamhengi væri milli þess
og losunar gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum.
i&Jlh.Ufili
**cr$URP0UUS-Qi
Laugardagar til lukku í ACO Sony hljómtækjasamstæða
Laugardagstilboð ACO Opið frá kl. 11:00-16:00
Hljómtækjasamstæða
Dolby Pro-Logic heimabíó
2X60 RMS wött + 2x30 RMS wött
3 diska geislaspilari
Útvarp
Tvöfalt segulband
Fjarstýring
SONY MHC-RX6AV
27.900 kr.
Heimabíómagnari
5X60 RMS wött
Dolby Digital
Útvarp
Fjarstýring
DENON avr-1600
29.900 kr.
Stafræn myndbandstökuvél
Mini DV
Super Image Stabiliser
400x aðdráttur
Litauga
Tölvutengi fyrir Ijósmyndir fylgir
Lithium rafhlöður
Fjarstýring
Panasonic nv-dsi2
59.900 kr.
Vönduð vörumerki á frábæru verði
ACO er opið á laugardögum í allan vetur og
mun alltaf hafa á boðstólum eina eða fleiri
vörutegundir á sérstöku laugardagstilboði.
hugsaðu I skapaðu I upplifðu
SkaftahlfA 24 • Sími 530 1800 • Fax 530 1801 • www.aco.is