Morgunblaðið - 28.10.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LISTIR
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 33
Rannsókn breskra samkeppnisyfírvalda
Morgunblaðið/Sigríður Dögg
Vörur reyndust að jafnaði ódýrari í útibúum þar sem keppinautar
voru í nánd. Það var talið vinna gegn hagsmunum neytenda, sem
neyðast til að greiða mishátt verð eftir staðsetningu verslunarinnar.
Verðlagning undir
heildsöluverði
skaðar hagsmuni
neytenda
Bresk samkeppnisyfirvöld hafa lagt til
að teknar verði upp sérstakar siðareglur
í samskiptum stórmarkaða og birgja.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir las í niður-
stöður könnunar sem gerð var á sam-
keppnisstöðu stórmarkaða í Bretlandi.
KONNUNIN stóð yfir í hálft ann-
að ár og voru 24 keðjur stórmark-
aða teknar til athugunar auk fjöl-
margra birgja. Markmiðið var
m.a. að kanna hvort vöruverð væri
i raun hærra í Bretlandi en öðrum
Evrópulöndum og Bandaríkjunum
og jafnframt að kanna hvernig
stæði á misræmi í verði frá fram-
leiðendum annars vegar og birgj-
um hins vegar. Ennfremur var
ætlunin að komast til botns í því
hvort stórmarkaðakeðjur ættu
þátt í hnignun smærri, sjálfstæðra
verslana. I ljós kom að langfíestir
stórmarkaðir' selja vörutegundir
undir heildsöluverði og þrátt fyrir
að það komi vissum hópi neytenda
að nokkru gagni, skaðar það sam-
keppnisstöðu minni verslana og
mismunar þeim hópi neytenda
sem af ýmsum ástæðum hafa ekki
tök á að versla í stórmörkuðum.
Niðurstaðan er því sú að með því
að selja vörur undir heildsöluverði
vinni stórverslanir gegn hagsmun-
um neytenda.
Bönn ekki árangursrík
Hvað varðar verðlagningu stór-
markaða á vörum undir heildsölu-
verði var bent á í niðurstöðum
könnunarinnar að ekki hefði
reynst árangursríkt í öðrum lönd-
um að bregðast við henni með því
aðsetja á bönn.
Irska samkeppnisstofnunin úr-
skurðaði árið 1991 að bann gegn
sölu vöru undir heildsöluverði
hefði leitt til hærra vöruverðs,
minni verðsamkeppni og aukningu
á söluhagnaði.
Ennfremur þótti það ekki leysa
vandann að bjóða smærri verslun-
um að kaupa vörur undir heild-
söluverði frá birgjum.
Könnunin leiddi það m.a. í ljós
að vöruverð er mismunandi milli
verslana innan sömu verslunar-
keðju eftir því hvort verslun kepp-
inautar er staðsett í nágrenninu
eða ekki. Vörur reyndust að jafn-
aði ódýrari í útibúum verslana þar
sem keppinautar voru í nánd.
Þetta var sömuleiðis talið vinna
gegn hagsmunum neytenda, sem
neyðast til að greiða mishátt verð
eftir staðsetningu verslunarinnar.
Birgjar verða að láta undan
kröfum stórmarkaða
Samkeppnisráði hafði jafnframt
borist fjöldi kvartana varðandi
birgja og viðskipti þeirra við stór-
markaði með mikinn kaupmátt.
Settur var saman listi sem innihélt
52 atriði sem ástæða þótti að
kanna í viðskiptum birgja og stór-
markaða. Þar á meðal voru ásak-
anir um ýmsar aukagreiðslur eða
afslætti, breytingar á samningum
og flutning áhættukostnaðar frá
stórmörkuðum til birgja. Niður-
staðan reyndist sú að hvenær sem
stórmarkaður með kaupmátt
gerði kröfu á birgja, neyddist
hann til að láta undan. Afleiðingin
er einokunarstaða stórmarkað-
anna gagnvart smáverslunum með
minni kaupmátt. Afleiðingin er
einnig sú að samkeppnisstaða
margra birgja skaðast og úrslitin
verða þau að fjárfestingar birgja
minnki og minna fé verði varið í
þróun nýrra vörutegunda sem
jafnframt getur leitt til minni
gæða vöru og takmarkað val-
möguleika neytandans. Nefndin
sér aðeins eina úrlausn á þessum
vanda, það er að setja siðareglur í
samskiptum birgja og stórmark-
aða sem myndu ná til allra hlutað-
eigandi. Árangursríkast þætti að
smásalar og fulltrúar birgja
semdu siðareglurnar sem sam-
keppnisráð yrði síðan að sam-
þykkja. Siðareglurnar myndu
miðast að þeim atriðum sem bent
er á í skýrslunni og betur mætti
fara. Þær myndu bæta stöðu
smærri smásala og jafna sam-
keppni.
Söngtón-
leikar í
Reykholts-
kirkju
STYRKTARTÓNLEIKAR fyrir
kirkjuna verða haldnir í Reykholts-
kirkju nk. sunnudag, 29. október, kl.
16-
Söngkvartettinn Ut í vorið og
Signý Sæmundsdóttir óperusöng-
kona munu flytja íslensk einsöngs-
lög, vinsæl kvartettlög, lög eftir Jón
Múla og Jónas, tvö færeysk sönglög
útsett fyrir sópran og 4 karlaraddir
og Mansöng eftir Schubert, einnig
fyrir sópran og fjórar karlaraddir.
Það er ferðaþjónustan Heims-
kringla sem stendur að tónleikunum
ásamt tónlistarfólkinu, en aðgangs-
eyrir verður látinn renna óskiptur í
byggingarsjóð kirkjunnar.
Kvartettinn hefur haldið yfir 30
tónleika í öllum landsfjórðungum.
Hann hefur einnig sungið í Eng-
landi, Hollandi og Færeyjum.
Á efnisskránni eru m.a. lög af
Signý Sæmundsdóttir ásamt kvartettinum Ut í vorið.
væntanlegum hljómdiski sem tekinn
var upp í kirkjunni nú í sumar.
Söngkvartettinn Ut í vorið var
stofnaður haustið 1992 af þeim Ás-
geiri Böðvarssyni, Einari Clausen,
Halldóri Torfasyni og Þorvaldi Frið-
rikssyni.
Snemma árs 1993 kom píanóleik-
arinn Bjami Þór Jónatansson til liðs
við kvartettinn. Hann starfar sem
píanókennari, organisti og undirleik-
ari í Reykjavík.
Signý Sæmundsdóttir hefur tekið
þátt í óperuuppfærslum á Islandi og
á erlendri grundu, haldið fjölda ein-
söngstónleika og komið fram með
Sinfóníuhljómsveit Islands og fjölda
kóra. Signý hefur verið raddþjálfari
kvartettsins Ut í vorið um árabil.
Miðaverð er 1.500 kr.
Nýjar bækur
• Skáldsagan Byltingarbörn er
eftir Björn Th. Björnsson.
Þegar Marteinn Lúter skorar hina
heilögu kaþólsku
kirkju á hólm
hriktir í stoðum
hennar. Afleið-
ingamar em
miklar um allan
hinn kristna heim
- einnig í Skál-
holti í Biskups-
tungum. Þar á
Bjöm Th. staðnum em árið
Bjömsson 1539 ungir kenni-
menn að undirbúa siðaskipti með
mikOli leynd, með Odd Gottskálks-
son og Gizur Einarsson, síðar bisk-
up, í broddi fylkingar. I því skyni
þýðir Oddur m.a. Nýja testamentið -
í fullkominni óþökk hins stórvaxna
og blinda biskups, Ögmundar Páls-
sonar, sem lítur á boðskap Lúters
sem örgustu villutrú. Sagt er að bylt-
ingin éti börnin sín, og þessar
óvenjulegu aðstæður koma miklu
róti á tilfínningar þess fjölda fólks
sem dvelur á biskupssetrinu, þar
sem loft er lævi blandið.
Útgefnndi er Mál og menning.
Byltingarbörn er 188 bls., unnin í
Prentsmiðjunni Odda h.f. Kápuna
gerði Guðjón Ketilsson. Verð: 3.990
krónur.
• Komin er út bókin Vegakerfíð og
feröamálin eftir Trausta Valsson,
skipulagsfræðing.
Bókin er unnin
með styi’k frá
Rannsóknarsjóði
V egagerðarinnar,
en einnig hefur
höfundurinn not-
ið ráðgjafar ým-
issa starfsmanna
Vegagerðarinnar.
Bókarhöfundur
hafði þó algert
frelsi í efnis-
tökum og ályktunum, en tilgangur-
inn með bókinni er ekki síst sá, að
gefa fræðimanni kost á að setja fram
niðurstöðu áralangrar vinnu sinnar,
án þess að þurfa að taka tillit til
ákveðinna sjónanniða eða hags-
muna.
í bókinni er fjöldi korta sem
Trausti og nemendur hans í Háskóla
íslands hafa gert. Eru þetta annars
vegar kort þar sem skilgreindar eru
ýmist bestu eða lökustu aðstæður í
landinu.
Trausti fæiir að því rök að þróun
ferðaþjónustunnar sé svo háð mögu-
leikum til samgangna - og þá eink-
um samgangna á vegum - að lands-
skipulag vegakerfisins og
ferðamálanna verði að vinnast sem
ein heild. Bókin verður tekin inn í
vinnu að Samgönguáætlun fyrir
framtíðina.
Bókin, sem er 120 bls, fæst hjá
Vegagerðinni og kostar 800 krónur.
Trausti
Valsson
Heimur Guðríoar
í Skálholtskirkju
NORRÆN ráðstefna
stendur nú yfir í Bláa
lóninu og Skálholti,
eða dagana 25.-29.
október, undir yfir-
skriftinni Frásögnin í
2000 ár.
Umfjöllunarefni
ráðstefnunnar er
leyndardómurinn í
frásögninni, trúar- og
uppeldisgildi hennar.
Af þessu tilefni verður
aukasýning á Heimi
Guðríðar eftir Stein-
unni Jóhannesdóttur í
Skálholtsdómkirkju í
kvöld, laugar-
dagskvöld, kl. 20.30.
Meira en fimm ár eru liðin frá því
Heimur Guðríðar hóf göngu sína
milli kirkna landsins, en leikritið
var frumsýnt á Kirkjulistahátið í
Hallgrímskirkju í Reykjavík í júní
1995. Verkið fjallar sem kunnugt er
um ævi og örlög Guðríðar Símonar-
dóttur sem rænt var í Tyrkjaráninu
1627 og var ein fárra
sem áttu afturkvæmt
til Islands. Hún varð
síðar eiginkona Hall-
gríms Péturssonar
sálmaskálds.
Frá frumsýningu
hafa tvisvai- orðið
breytingar á hlut-
verkaskipan. í hlut-
verki Guðríðar eldri er
Margrét Guðmunds-
dóttir og í hlutverki
Hallgn'ms er Jakob
Þór Einarsson. Helga
E. Jónsdóttir hefur
leikið Guðríði yngri
frá upphafi. Tónlist við
sýninguna er eftir
Hörð Áskelsson og leikur hann
sjálfur á orgelið í Skálholtskirkju.
Búninga hannaði Elín Edda Árna-
dóttir, en höfundur leikritsins er
jafnframt leikstjóri.
Sýningin í Skálholtsdómkirkju er
síðasta tækifæri til þess að sjá þessa
sýningu. Aðgangur er ókeypis.
Jóhannesdóttir
Heildstæð lífssaga
BÆKUR
Minningarþættír
ÚTÚRDÚRAR
Höfundur Stefán Júlíusson
Útgáfa: Björk, 2000.91 bls.
STEFÁN Júlíusson er meðal
merkari íslenskra rithöfunda á síð-
ustu öld. Bráðum 85 ára sendir hann
þessa minningarþætti frá sér. í
„Fylgdarorðum“ getur höfundur
þess að lífsferil hans megi lesa úr
þáttunum. Það eru öll rök fyrir því í
huga lesanda að loknum lestri.
Höfundur höfum víða „ratað“.
Þættii’nir eru sjö, minningar frá
unglingsárum og námsdvölum og
ferðum erlendis. Þær eru fræðilegar
og framsetning skýr. Allar skráðar
nú á síðasta tug aldarinnar, sem leið,
utan ein þeiiTa, Trésmiðurinn, er
skráð 1964.
Minningar um óharðnaðan ungl-
ing jafnt og fullþroska mann í er-
lendum heimsborgum og erli dag-
anna í eigin landi ei-u byggðai' á
innsæi. Kjarninn er því býsna sterk-
ur og því verður lífssagan heildstæð
og athyglisverð. Oft er alvöruþungi
yfu'sterkari léttleika í frásögn - sem
er þó vissulega víða að finna í þáttun-
um.
Síðasti þátturinn í bókinni nefnist:
„Sveinn Áuðunn Sveinsson“, og er
ritaður á árunum 1991-2000. Þáttur-
inn er um margt sérstæður. I honum
felst einhvers konar uppgjör höfund-
ar gagnvart því umhverfi og samfé-
lagsháttum, sem ríktu um miðja síð-
ustu öld. Bókin „Leiðin lá til
Vesturheims" er út kom 1950 undir
dulnefninu „Sveinn Auðunn Sveins-
son“ vakti verðskuldaða athygli og
umtal, þótt enginn vissi fyrr en löngu
síðar hver höfundurinn var. Hinn
eiginlegi höfundur, Stefán Júlíusson,
opnar hér hug sinn í, er virðist, -
uppgjöri við sjálfan sig um leið og
hann er sannur og heiðarlegur gagn-
vart lesendum sínum.
Málsatvik ýmis er varða höfundar-
feril hans, bæði í mót- og meðbyr eru
hér rædd af mikilli hreinskilni þess
er rýnir sjálfan sig í tilurð skáld-
verka sinna.
Ljóð eftir höfundinn eru í hverjum
minningarþætti. Þau eru látlaus og
hlý - virka sem skýring og staðfest-
ing á efni þáttanna.
I byijun aldai' er nú mikið leitað til
þess sem liðnar aldir - liðin öld höfðu
að geyma í þjóðlífi og samfélagshátt-
um. Minningarþættir Stefáns Júlíus-
sonar hljóta að teljast góður fengur
frá liðinni tíð. Fremur er það sjald-
gæft að svo færar hugsanir búi í vit-
und einstaklings hálfníræðseins og
Utúrdúrar vitna um.
Bókin er bundin í snotra kápu.
Jenna Jensdóttir