Morgunblaðið - 28.10.2000, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 39
>^jj-2000
Guðríður Þorbjarnardóttir aftur í Skemmtihúsinu eftir utanlandsferð
Laugardagur
28. október
ART2000
Fyrirlestur Konrad Boehmer kl. 17.
LokatónleikaríSalnum kl. 20. Tón-
listaratriði sýnt beint á netinu frá
Princeton háskóla í Bandaríkjunum.
Verk eftir Konrad Boehmer, Davíð B.
Fransson, Laurens Kagenaar, Hlyn
Aðils Vilmarsson ogAuxPan flutt. Á
Kvöldbarnum á Gauknum veröur
slegiö upp rafgrímuballi frá kl. 22.
Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 20
Á mörkunum Vitleysingarnir,
gamanleikrit um ungt íoiif á Is-
landi dagsins í dag, eftir Olaf
Hauk Símonarson. Leikstjóri er
Hilmar Jónsson.
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNAR-
HÚSINU
kl.14-18 Cafe9 Gestgjafar leið-
beina gestum um hvernigþeir
geta sett inn efni sem tengist
gagnagrunnsverkefnum á veg-
um cafe9.net. Um eraðræða
verkefni þarsem fólkgetur búið
til smáverk, myndir, kvik-
myndabúta eða hljóð sem bætt
er inn í samevrópska gagna-
grunna og síðan getur fólk nálg-
ast þetta efni á netinu.
Cafe9 kl. 16-24
Sólarlagsverk á heimasíðu.
Verk eftir Pál Thyer þar sem
áhorfendur geta horft á sólai•-
lagið aUtfrá Helsinki tU Was-
hington DC ísamfeUdri dagskrá
www.cafe9.net.
------------------
Nýjar bækur
Síbreytileg framsetning
Þórunn Lárusdóttir í hlutverki Guðríðar.
LEIKRITAHÖFUNDURINN og
leikstjórinn Brynja Benediktsdóttir
er snúin aftur til heimahaganna og
hefur leiksýninguna The Saga of
Gudridur með sér í farteskinu. Hún
og leikhópur hennar hafa sýnt vítt
og breitt um Bandaríkin og Kanada
á síðastliðnum árum, en sýningar í
Vesturheimi árið 2000 fóru fram
fyrir tilstuðlan Landafunda-
nefndar.
Islendingum stendur nú til boða
að berja sýninguna augum í
Skemmtihúsinu í dag kl. 16.
Síðasti viðkomustaður Brynju
var Washington-borg og setti leik-
hópurinn verkið á svið í stóru leik-
húsi í Smithsonian-safninu þar í
borg við frábærar undirtektir, að
sögn Brynju. Sýningin vakti eftir-
tekt líkt og í fyrri ferðum og segist
Brynja nú vera að leita leiða til að
geta svarað eftirspurn næsta árs.
Þótti mönnum í Washington-borg,
að sögn Brynju, mikið til um svið-
setningu og framsetningu verksins,
forvitnileg og sérstæð efnistökin,
að ógleymdum framúrskarandi leik
Þórunnar Lárusdóttur.
Brynja segist hafa hrifist af sög-
unni um Guðríði Þorbjarnai-dóttur
strax í bernsku og hafi hún fylgt
henni eftir um langt skeið. Henni
þótti alla tíð sem frásögnin af Guð-
ríði ætti að bera nafn hennar, en
ekki Eiríks rauða eða Þorfinns
karlsefnis líkt og raunin var.
Brynju er mikið í mun að vekja
til lífsins munnlega geymd íslend-
ingasagna og þá með aðferðum og
tækni leikhússins. í samræmi við
einkenni munnlegrar frásagnar-
hefðar er framsetning Brynju sí-
breytileg og einarðlega löguð að
sérhverri leikkonu, stað og stund.
Hún segist sækja markvisst í skjóð-
ur látbragðsleiksins, enda fullnum-
in í þeirri grein. Hún lýsti sviðsetn-
ingunni og leiknum á þá leið að
leikbúningar, lýsing, sviðsmunir,
látbragð og tal leikkonu myndi
þéttriðað frásagnarnet. í höndum
leikkonunnar umbreytast leikbún-
ingar t.d. úr táknbúningi fyrir vissa
persónu yfir í vinda loftsins, hafrót-
ið og önnur náttúruöfl. Af þessum
sökum var Brynja mjög áfram um
að ómissandi hlutverk ljósahönnuð-
ar, Jóhanns Bjarna Pálmasonar,
kæmist til skila. „í sýningunni
sjálfri brennur svo eldurinn á
sjálfri leikkonunni,“ komst Brynja
að orði.
Leikkonan Tristan E. Gribbin
hefur borið hitann og þungann af
flestum sýningunum, frumsýndi
m.a. fyrstu útgáfu verksins árið
1998, en er nú í barneignafríi. Þór-
unn Lárusdóttir hefur tekið við
hlutverki Guðríðar og lék hana
fyrst í Skemmtihúsinu í sumar og
svo í Washington-borg. Hún flutti
leik sinn þar á ensku og mun einnig
gera svo í Skemmtihúsinu á í dag.
Brynja segist sjá fram á að báðar
leikkonurnar, Þórunn og Tristan,
muni sýna verkið á næsta ári í
tveimur heimsálfum.
Sígild barnasaga
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Ein af myndunum á sýningu Eyjólfs Einarssonar í MAN.
A hverfanda hveli
• Út er komin bókin Betri heimur -
Hvemig öðlast má hamingju og
þroska hæfileika sína eftir Dalai
Lama.
I kynningu útgefanda segir:
„Bjartsýni og hugrekki einkenna
skrif Dalai Lama. Hann fjallar um
leit mannsins og þrá eftir hamingju
og setur fram siðfræðikerfi byggt á
skynsemi og rökhyggju en ekki
predikunum eða trúarbrögðum.
Hann leiðir rök að því að allar gjörðir
mannsins beinist að því að öðlast frið
og hamingju. Hann hvetur okkur til
að sýna umhyggju og samúð og líta í
eigin barm í stað þess að einblína á
misgjörðir annarra. Góðmennska,
heiðarleiki og réttlæti tryggir vellíð-
an og velferð, en illvilji færir aðeins
vansæld."
Dalai Lama er leiðtogi Tíbeta en
býr í útlegð á Indlandi og hlaut frið-
arverðlaun Nóbels árið 1989.
Útgefandi er JPV FORLAG en
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Bók-
in er 182 blaðsíður. Súsanna Svavars-
dóttir þýddi. Verð3.880 krónur.
BÆKUR
Barnabók
KÁRI LITLI OG LAPPI
Höfundur: Stefán Júlíusson
Björk 2000 - 92 bls.
Myndir: Halldór Pétursson
Prentsmiðjan Oddi hf.
FÁAR íslenskar barnabækur
hafa orðið eins vinsælar á síðustu
öld og Kári litli og Lappi sem kom
fyrst út 1938. Hún hefur í engu
tapað gildi sínu, þótt hún komi nú
út í níunda sinn á 62 árum. Sagan
er því vel að því komin að hennar
sé getið nú að verðleikum.
Sagan er sígild af því í frásögn-
inni felst snilldarleg lýsing á
sannri vináttu Kára og Lappa. Af-
ar vel er sagt frá samskiptum
þeirra.
Kaupstaðardrengurinn Kári
ferðast um hraunið sitt og kemst í
kynni við alla þá náttúrufegurð
sem í því býr - kyrrð og töfra. Hér
hefur tekist vel að vekja skilnings-
ríka athygli barna á landinu sínu.
Atburðarás sögunnar er marg-
breytileg, en alltaf auðveld börnum
og um leið spennandi.
Myndir Halldórs Péturssonar
eru mikils virði hér sem annars
staðar. Þær höfða ávallt vel til list-
skynjunar barna - það hefur ekki
breyst í áranna rás.
Frágangur er með ágætum, letr-
ið er stórt og hentar vel börnum.
MYNPLIST
MAN,
Skólavörðnstíg 14
MÁLVERK-
EYJÓLFUR EINARSSON
Til 29. október. Opið virka
daga frá kl. 10-18, en sunnudaga
frákl. 13-18.
UNDARLEGT andrúmsloft ríkir í
málverkum Eyjólfs Einarssonar,
sem nú sýnir í MAN. Mannlausar
hringekjur standa eins og draumsýn-
ir í einhvers konar hálfrökkri eða
sólsetri, og takast sumar á loft eins
og loftför eða flugvél Wright-bræðr-
anna forðum daga.
Yfir þessum myndum hvílir þung-
lyndislegur blær og óræður eins og í
upplitaðri endurminningu; fjöl-
skyldualbúmi þar sem myndirnar eru
orðnai- brúnar eða bláar eins og húm-
ið. Þannig nær Eyjólfur ljósaskiptun-
um, þessum táknum hlöðnu skilum
vöku og draums, veruleika og óraun-
veru, með meiri fágun en nokkru
sinni fyrr. Aldrei hefur litaspilið leik-
ið jafnsterkt hlutverk í myndum
hans. Einfaldar en óvenjulegar sam-
setningar tóna bera vott um stökk-
breytingu í list hans sem vitnar um
það að Eyjólfur sé að sækja í sig
veðrið og ná tökum á þeim kjarna
sem hann sólaði áður umhverfis án
þess að höndla fullkomlega.
Galdurinn er allt í einu litrænn sem
aldi'ei fyrr, og svo er það myndefnið
sem hann leyfir sér að endurtaka í
mörgum tObrigðum eins og sá sem
kannar grundvöll tjáningar sinnar af
kostgæfni. Flest er nú orðið einfald-
ara í byggingu myndanna og lofar
það góðu. Það eru einmitt einföldustu
myndir Eyjólfs sem eru bestar. Þær
ná einhverjum sérkennilegum tökum
á áhorfandanum svo að hann er ekki
fyllilega viss um hvert hann á að
beina sjónum sínum; hvað það er sem
heimtar mesta athygli.
Hingað til hefur súrrealisminn ver-
ið leiðarljós Eyjólfs, en nú eru ein-
kenni hans orðin fágaðri og áleitnari
af því dregið hefur úr beinni skírskot-
un til undarlegheita. Þau koma nú
meir af sjálfum sér eins og listamað-
urinn geri enga tilraun til að laða
fram hið óræða heldur spretti það
upp af sjálfu sér. Þannig er ekkert
lengur gert með handafli heldur ger-
ist að því er virðist án ofurstjómar
listamannsins. Fremur en súrreal-
ískar væri nú réttara að tala um
fiumspekilegar myndir því greinilegt
er að Eyjólfur hefur náð ýmsu sem
de Chirico var meistari í að laða fram
með hógværð og næmri tilfinningu
fyrir hinu sálræna og sérkennilega.
Áður en tíminn rennur út er það von
mín að sem flestir leggi leið sína í
kjallaragallerí MAN til að sjá þessa
bestu sýningu Eyjólfs til þessa.
Halldór Björn Runólfsson
Jenna Jensdóttir
Þúsund eyja sósa til Leipzig
Stefán Karl Stefánsson
á förum til Leipzig.
LEIKFÉLAGI íslands hefur
verið boðið að taka þátt í al-
þjóðlegri ieiklistarhátíð í
Leipzig í Þýskalandi með
sýninguna 1000 eyja sósu
eftir Hallgrím Helgason.
Þetta er einleikur þar sem
Stefán Karl Stefánsson fer
með hlutverk Sigurðar
Karls, viðskiptajöfurs sem er
á Ieiðinni úr landi eftir held-
ur misheppnaðar tilraunir til
að verða ríkur. Leikþáttur-
inn var frumsýndur vorið
1999 sem hádegisleikrit í Ið-
nó og var leikinn 50 sinnum
síðasta vetur.
Að sögn Stefáns Karls á
þessi leikþáttur sér þó lengri
sögu þar sem Hallgrímur
samdi hann upphaflega fyrir
Stefán meðan hann var f
Leiklistarskóla íslands. „Síð-
an sendi hann þáttinn f ein-
þáttungasamkeppni Leikfé-
lags íslands og þar hlaut
hann 2. verðlaun. Hingað
kom svo framkvæmdastjóri
Leiklistarhátíðarinnar í
Leipzig og sá nokkrar sýning-
ar og það varð ofaná að 1000
eyja sósan varð fyrir valinu.“
Leiklistarhátíðin í Leipzig
er nú haldin f 10. sinn dagana
3.-11. nóvember og sýnir
Stefán Karl 4 sinnum 7. og 8.
nóvember.
Hátfðin verður með veg-
legra sniði en endranær
vegna 10 ára afmælisins og er
m.a. boðið einni sýningu frá
hverri hinna 9 menningar-
borga Evrópu 2000 og er
1000 eyja sósan í þeim hópi.
Að sögn Stefáns Karls er
ætlunin að sýna 1000 eyja
sósu nokkrum sinnum eftir
heimkomuna og „...slá þar
með endapunktinn í þetta
verkefni."
Leikstjóri sýningarinnar er
Magnús Geir Þórðarson, leik-
mynd og búninga gerði
Snorri Freyr Hilmarsson,
Kjartan Þórisson sá um lýs-
ingu og hljóðmynd er alfarið
upprunninn í barka Stefáns
Karls.