Morgunblaðið - 28.10.2000, Side 55

Morgunblaðið - 28.10.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000 ^ ANNA BJÖRNSDÓTTIR + Anna Björnsdótt- ir fæddist á Brekku, Seyluhr. í Skagafirði 23. febr- úar 1903. Hún lést á dvalarheimili aldr- aðra í Borgamesi 13. október síðastliðinn. Hún var dóttir hjón- anna Björns Bjarna- sonar, bónda á Brekku, f. 30.8 1854, d. 1926, og Stefaníu Ólafsdóttur, f. 14.8 1878, d. 1974. Systk- ini hennar voru: Margrét, gift Óskari Jönassyni kafara; Sigurlína, gift Jóni Jónssyni, bónda á Hofi á Höfð- aströnd; Kristín, gift Geir Gunn- laugssyni, bónda í Eskihlíð í Reykjavík og Lundi í Kópavogi; Jórunn, gift Pétri Jónssyni bifreið- arstjóra; Sigurlaug, gift Sveini Sveinbjörnssyni bifreiðastjóra; Anna Björnsdóttir í Hörgsholti, móðursystir mín, er látin í hám elli. Hún bjó lengst af við góða heilsu og var kröftug kona á sinni tíð. í sumar kom ég við hjá henni á randi mínu um landið. Þá var greinilegt að af henni var dregið og að hún átti ekki langt eftir ólifað. Nú mun hún án efa hitta fyrir systur sínar sem farnar eru á undan henni, með þeim var alla tíð kært. Mér er minnisstætt að þegar ég kynntist Sigurði Magnússyni, blaða- fulltrúa Loftleiða, forðum tókst hon- um að rekja okkur saman, Önnu í Hörgsholti og mig. Við það fékk hann strax stórum meira álit á minni persónu og varð úr ágæt vinátta okkar tveggja þaðan í frá. Siggi Magg hafði mörg orð um það og það oftar en einu sinni hversu vel gerð og falleg kona Anna sín væri, og hann átti að vita það, Snæfellingur og nágranni þeirra Önnu og Eiðs. Anna Björnsdóttir var gáfuð og vel gerð kona eins og hún átti kyn til. Mér er Anna minnisstæð frá bernskuárunum, þegar hún og henn- ar fólk komu í Skerjafjörðinn til okk- ar. Það var ævinlega hátíð að fá að hafa Hörgsholtsfólkið hjá sér, og Anna fannst mér afar ljúf og elsku- leg kona. Hún var dul og hæglát á ytra borði, en ég veit að hún var ákveðin og einörð, og hana var erfitt að sveigja ef svo bar við, en þá hlið hennar þekkti ég ekki. Sumarið 1948 mun það hafa verið sem ég fór í sveit að Hörgsholti, sendur einn, níu ára smáguttinn, með Laxfossi upp í Borgarnes þar sem Lauga móðursystir tók við mér. Síðan daginn eftir með Sigga Brynka á mjólkurbíinum vestur á Snæfellsnes. Eftir að hossast dag- part á rykugum og holóttum vegum Snæfellsness var komið að Fáskrúðarbakka og mér sagt að fara þar úr með mínar pjönkur. Þarna stóð ég einn og yfirgefinn smástrák- ur úr borginni í kvöldblíðu sumar- sins og ekki svo mikið sem hund- kvikindi í nágrenninu. Ég þekkti til og hugðist ganga af stað yfir flóann til Hörgsholts. Skyndilega heyi'ðust drunur frá sandbakkanum ofan við flóann. Þar var Björn frændi minn mætt- ur á jeppanum til að taka á móti mér. Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Andrés, fv. útvarps- stjóri, kvæntur Mar- gréti Vilhjálmsdóttur. Einnig átti hún tvö hálfsystkini samfeðra, Sigurbjörgu, gifta Jóni Hannessyni, bónda í Deildartungu í Reykholtsdal, og And- rés er lést ungur. Eru systkinin öll Iátin nema Sigurlaug sem nú er búsett í Borgar- nesi. Anna giftist 12. maí 1923 Eiði Sigurðssyni frá Vilmundarstöðum í Reykholtsdal, f. 27. júní 1893, d. 28. nóvember 1963. Börn þeirra eru: 1) Guðrún Hallfríður, f. 24.7. 1924, maki Karl Magnússon, átti hún eina dóttur sem lést 1986. 2) Björn Andrés, f. 13.7. 1925, maki Sigurrós Gísladóttir, eiga þau fimm börn, 18 barnabörn og eitt barnabarnabarn. 3) Ingibjörg Stef- anía, f. 5.8.1927, maki Guðmundur Ingimundarson, þau eiga tvö börn og sex barnabörn. 4) Sigrún Ragn- hildur, f. 13.9. 1933, d. 14.6. 1972, maki Bragi Melax, þau eignuðust þijú böm og sex barnabörn. 5) Sig- urður, f. 19.12. 1936, maki Jónas- ína Halldórsdóttir, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. 6) Sveinn Magnús, f. 28.1. 1942. 7) Stúlka óskírð, f. 2.8.1952, d. 4.8.1952. Anna ólst upp í Skagafirði til 17 ára aldurs, þá fór hún til Sigur- bjargar, systur sinnar, í Dcildar- tungu í Reykholtsdal. Hún var einn vetur á Kvennaskólanum á Blönduósi. Árið 1923 fluttist hún ásamt eiginmanni sfnum að Hörgs- holti í Miklholtshreppi, þar bjuggu þau þar til þau reistu nýbýlið Lækjarmót á sömu jörð. Þau brugðu búi árið 1960 og fluttu í Borgarnes. Anna flutti til Sigurlín- ar, systur sinnar, rétt eftir 1970 til þess að aðstoða við umönnun móð- ur þeirra. Frá árinu 1986 var Anna búsett í Borgarnesi. Útför Önnu fer fram frá Borgar- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hörgsholt var bær sem stóð uppi í hrauninu undir Ljósufjöllum í ein- staklega fallegri náttúru. Það var drjúglangur spölur frá þjóðveginum að bænum, ekið eftir flóanum að bænum. Það var eins gott að vera á herjeppa á þessum ferðalögum. Anna tók ljúflega við litla frænda og sá vel um þarfír hans. Hún var stjórnsöm kona, hin dæmigerða húsfreyja, og fór vel með fjárráð heimilisins. Það var enginn vafi á því hver stýrði innan bæjar og ekki datt neinum í hug að andmæla henni. Hún var skagfirsk kona, en engu að síður snæfellsk á mæli- kvarða Nóbelsskáldsins, sem skrif- aði um glæstan kökubakstur kvenna fyrir vestan. Ekki hafði ég áður séð svo margar sortir og þegar gesti bar að garði og dekkað var borð í betri stofunni. Hörgsholt var torfbær innréttað- ur panilklæðningum, fallegur bær og bar vitni um gamla húsagerð. Á þessum árum voru bændur að byggja úr steinsteypu og það gerðu þau nokkrum árum síðar Anna og Eiður, nær þjóðveginum, Lækjamót nefndu þau nýbýlið. Að leiðarlokum vil ég þakka Önnu og hennar fólki fyrir allt gamalt og gott um leið og ég votta þeim samúð. Jón Birgir Pétursson. Samferðamenn tína tölunni, það er gangur lífsins. Minningarnar eru á alla vegu, sumar skýrar, aðrar heldur litlitlar og óljósar og falla í gleymskunnar dá, sem betur fer sennilega, eftirlifendur þá með minni byrði. Það er mér ljúft að renna í hugan- um yfir síðustu fjóra áratugi á þeim degi sem fyrrverandi tengdamóðir, Anna Björnsdóttir, er til moldar borin. Anna var í hópi þeirra fyrr- nefndu, þeirra sem skildu eftir skýra mynd. Ekki vegna þess að hún sjálf hefði einhverja þörf fyrir slíkt, það var vegna þess hvað viðmælendur sáu í fari hennar. Hógvær og kurteis í orðum en með afar ákveðnar skoð- anir og framgöngu á sinni lífsins braut. Aðrir máttu þó án afskipta hennar hafa annan háttinn á. Þetta verkaði þannig á mig, tengdasoninn, að tilurð mismunandi menningar- heima kom oft upp í hugann. Ungur maður sagði eitt sinn við mig, efnis- lega, á þessa leið. Foreldrar mínir og þú, sem slituð barnsskónum á stríðs- árunum, eruð af verstu kynslóð ís- landssögunnar, og fyrir okkur börn- in ykkar eru vítin til að varast þau. Ég varð satt að segja afar glaður að heyra þessi beinskeyttu orð frá Ed- inborgarstúdentinum, og í hjarta mínu svo til sammála. Við Anna vorum í nokkur ár sam- tímis svokallaðir „eldriborgarar". Stundum var rennt við að Dvalar- heimili aldraðra í Borgarnesi til að tala við hana. Satt að segja var ég oftast kominn alllangt frá Borgar- nesi þegar þessi fallega gamla kona leið úr huga mér, hún skildi eftir í huga manns einhverja mannkyns- sögu eða þjóðfélagsfræði, og marga gullmola sem þjóðin hefur hent á tuttugustu öldinni. Anna var fædd að Brekku í Víði- mýrarsókn í Skagafirði þar sem for- eldrar hennar bjuggu í allmörg ár. Þaðan fluttust þau ekki langa bæjar- t Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, afi og langafi, ÓLAFUR HELGI AUÐUNSSON frá Dalseli, Háaleitisbraut 43, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 31. október kl. 13.30. Ingibjörg Erlendsdóttir, Hafdís Guðlaug Ólafsdóttir, Friðrik H. Ólafsson, Aðalbjörn Steingrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. + Ástkær sambýlismaður minn, ÓLAFUR GUÐLAUGSSON tæknifræðingur, frá Guðnastöðum, Fannafold 209, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 30. október kl. 13.30. Guðrún Þ. Vilhjálmsdóttir. leið, að Reykjarhóli, þar sem nú er Varmahlíð. Foreldrar hennar munu hafa verið Skagfirðingar langt í ætt- ir fram, bændakynkvíslir í allar áttir misjafnlega efnum búnar. Fjölskyld- an var stór og ekki mikill auður í garði, en úr grasi uxu börnin og urðu þéttir persónuleikar. Faðirinn, Björn Bjarnason, var tvíkvæntur, missti fyrri konu sína eftir stutta sambúð. Þau áttu einn son, Andrés. Fyrir síðara hjónaband eignaðist Björn barn, Sigurbjörgu, sem átti eftir að verða mikill örlagavaldur flestra yngri systkina sinna. Móðir Önnu, seinni kona Bjöms, var Stef- anía Ólafsdóttir. Börn þeirra hjóna voru sjö, sex dætur og einn sonur, sem var yngstur. Þrátt fyrir lítil efni fóru nokkur þessara níu systkina í mismunandi langt skólanám. Syn- irnir báðir luku háskólanámi. Sá eldri lauk námi sínu frá Kaupmanna- hafnarháskóla. Hann féll frá á mjög sviplegan hátt aðeins 32 ára. Fráfall Andrésar vakti óvenjulegan trega og eftirsjá, ekki síst hjá Reykvíkingum, hann var vinsæll mjög og vel þekkt- ur. í dag, 84 árum frá fráfalli hans, er það ein ferskeytla sem heldur nafni hans á lofti, fyrri braglínurnar hljóða svo: Ferskeytlan er Frónbúans fyrstabarnaglingur, Elsta systirin, Sigurbjörg, giftist Borgfirðingi og varð húsmóðir í Deildartungu í Reykholtsdal. Á því stórbýli var þörf margra handa, og systur hennar fóru þangað til starfa í lengri eða skemmri tíma, þegar þær höfðu aldur til. Fjórar eða fimm þeirra giftust mönnum ættuðum úr Borgarfirði. Heimih þeirra síðar í Reykjavík nema Önnu. Maður henn- ar var Eiður Sigurðsson frá Stein- dórsstöðum í Reykholtsdal. Þau stofnuðu bú sitt að Hörgsholti í Miklaholtshreppi og bjuggu þar til 1960 en fluttust þá í Borgarnes. Ein systranna, Sigurlína, yfirgaf ekki sitt fæðingarhérað, bjó við rausn á Hofi á Höfðaströnd með sínum ágæta manni, og í þeirra skjóli voru síðan gömlu hjónin, Stefanía og Björn. Samkvæmt íslandsmetabók- inni setti Stefanía Ólafsdóttir íslandsmet, jafnvel meir en það telja höfundar. Hún lifði það að sýna sex ættliði í beinan kvenlegg samtímis á lífi. Þetta stóð þó ekki nema í sex daga, frá 23. til 29. janúar 1974, þá lést Stefanía og vantaði þá nokkra mánuði í að verða 100 ára. Til búskapar Önnu og Eiðs í Miklaholtshreppi þekkti ég lítið, veit þó að þau voru góðir þegnar síns byggðarlags, Eiður t.d. oddviti þar í áratugi. Nokkrum árum eftir lát hans flutti Anna til Reykjavíkur, héldu þær m.a. heimili saman all- lengi móðir hennar og systir úr Skagafirði, sem orðin var ekkja. Síð- ustu árin var hún á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Henni leið greinilega vel þar. Ung hafði hún kynnst héraðinu og fólkinu, þar var hún meðal vina. í október á sl. ári fór ég norður í land. Stoppað var hjá Önnu. Hún sál á rúminu sínu, vel til höfð og jafnvel glöð í bragði, en hún var farin að bíða, að ég held, bíða eftir því að ver- aldarsögu hennar lyki. Sjónin var svo til farin og heyrnin orðin minni. Samtal okkar var þó létt og þægi- legt. í upphafi sagði ég henni ferða- áætlun mína, hún þurfti að frétta eitthvað frá bamabömum og flefru. Kveðjustundin rann upp. Glaða hlýja bros gömlu konunnar birtist, og hún sagði: „Skilaðu kveðju til Skagafjarðarins frá mér.“ Eins og jafnan áður minntist ég hennar er ég fór niður af Vatnsskarðinu og fram- hjá fæðingarstað hennar, Brekku, sem er á hægri hönd, en kveðju hennar hafði ég ekki enn skilað. í Varmahlíð fékk ég mér borð á róleg- um stað út við glugga, horfði yfir þetta fagra hérað. Haustsólin sendi undarlega geisla á Glóðafeyki þrátt fyrir skúraleiðinga á öðmm stöðum. Eg horfði á fjöllin og sveitina, sömu fjöll og sömu sveit sem Anna sá þeg- ar hún var barn. Þannig kom ég kveðju hennar til sldla. Það var það síðasta og eina sem ég gat fyrir Önnu gert. Bragi Melax. Elsku langamma. Jæja, nú ertu líklega að kanna framandi slóðir, ný heimkynni. Vonandi búin að finna hana Sigrúnu þína og langafa, ásamt fjölda vina sem á undan eru gengnir. Við veltum þessum hlutum svo oft fyrir okkur og voram þess báðar fullvissar, að til væri líf eftir þetta líf. Þú talaðir oft um allar þær breyt- ingar sem orðið hafa á þinni lífsleið, já, þær era miklar, enda búin að lifa næstum heila öld og á heilli öld hefur margt gerst. Engan hef ég hitt enn, sem er_ jafnánægður með lífið og þú varst. Það var svo gaman að heyra þig segja frá hversu góð ævi þín var. Bemska þín var skemmtileg og þú áttir besta eiginmann í heimi, eins og þú sagðir alltaf. Þú áttir góð og yndisleg börn og fullt af bamaböm- um og barnabarnabömum, meira að segja líka eitt lítið langalangömmu- barn. Elsku langamma, ég vona að þú hafir það gott á nýjum stað. Kristur minn, ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gakktu hér inn og geymdu mig, Guð, í faðmi þínum. Ég kveð þig í bili með kveðjunni sem þú kvaddir mig með þegar ég fór frá þér eftir góðar samvera- stundir. Guð geymi þig. Þín langömmustelpa Ingibjörg. t Innilegar þakkir fyrir vináttu og hlýhug við and- lát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, OTTÓS SVAVARS JÓHANNESSONAR, Skjólbraut 1a, Kópavogi. Björgvin B. Svavarsson, Sesselja H. Guðjónsdóttir, Elísabet Svavarsdóttir, Ólafur Guðmundsson og barnabörn. t Öllu því góða fólki sem kom að útför JÓHANNESAR FRIÐGEIRS STEINDÓRSSONAR, frá Munaðarnesi, mánudaginn 16. október í Árneskirkju, viljum við þakka. Sigurgeir V. Sigurgeirsson og ættingjar hins iátna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.