Morgunblaðið - 28.10.2000, Síða 66
66 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Af tillitsleysi, hroka
og rauðum spjöldum
ÉG FÉKK rauða
spjaldið á Islands-
mótinu í hestaiþróttum
á Melgerðismelum
sumar. Ég geri ekki
ágreining um þann
vafasama heiður sem ég
varð þar aðnjótandi, ég
átti það víst skilið. Ég
missti stjóm á skapi
mínu og hlaut refsingu
fyrir. En það eru ýmsar
fleiri hliðar á þessu máli
sem ekki hafa farið hátt
og alltof fáir þekkja og
ég tel ástasðu til að
rekja. Sannast sagna
segir réttlætiskennd
mín mér að fleiri hafi
verið vel að rauðu spjaldi komnir.
Staðreynd málsins er sú að tveir yfír-
dómnefndarmenn á mótinu, þeir
Reynir Hjartarson mótsstjóri og
Ámundi Sigurðsson yfirdómari,
sýndu óh'ðandi hroka og dónaskap
bæði mér sem framan af var kepp-
andi á mótinu og öðmm keppendum.
Ástæða þess að ég lenti
í útistöðum við þá félaga
var meðal annars það að
æði margt í fram-
kvæmd mótsins og und-
irbúningi fyrir það var
fyrir neðan allar hellur
eins og fram hefur kom-
ið bæði í ræðu og riti.
Fyrstu samskipti mín
við Reyni vore á
fimmtudag, deginum
áður en mótið hófst,
þegar ég hugðist æfa
mig á einum keppnis-
velhnum. Þá vom
krakkar að slá kanta
beggja vegna vallarins
og bað ég þá að gera hlé
á störfum sínum meðan ég æfði mig.
Kom þá Reynir að og tók á móti mér
með því að segja eitthvað á þá leið að
Sunnlendingar kæmu með hroka og
yfirgangi og fæm inn á vellina án þess
að spyrja leyfis. Segja má að þama
hafi hann gefið tóninn fyrir það sem á
eftir kom en það má fljóta með að
íslandsmót
Pví miður er ekkert í
reglunum, segir Róbert
Guðni Einarsson, sem
segir að hægt sé að veita
þeim rauða spjaldið.
vellir eiga samkvæmt reglum að vera
tilbúnir sjö dögum fyrir mótsbyrjun
fyrir keppendur og hneykslast hann á
þessu ákvæði í skýrslu sinni til
Landssambands hestamannafélaga
sem og mörgu öðm í keppnisreglum.
Skýrsla Reynis er reyndar með því-
líkum ólíkindum að aganefnd LH hef-
ur í ársskýrslu sinni til ársþings LH
séð sig knúna til að snupra hann fyrir
það sem hann lætur þar frá sér fara.
Þar segir að íslandsmótið standi upp
úr hvað varðar vanþekkingu móts-
haldara og dómara á þeim reglum
Róbert Guðni
Einarsson
Ma bjdða þér sæti?
Þessa helgi bjóoum vio alla hdrnsdfa með
1 □% AFSLÆTTI AF ANNARS FRABÆRU VERÐI.
LlTTU TIL DKKAR UM HELGINA
DG GERÐU EINHVER BESTU
KAUPIN I BÆNUM,
10%
malslSISa£=fSl»
Afsláttur
AÐEINS ÞESSA HELGI
SVARTUR•LJÓSBRÚNN
DÖKKBRLINN* DÖKKBLÁR
3TÆm.v. 200x245 CM
B6 CM
LEDUR á slitflötum
S2T10,-
M.V. 1 □ % AFSLÁTT
SVARTUR* VÍNRAUÐUR • LJÓBBRLINN
DÖKKHRÚNN • DÖKKBLÁR
220X270 CM
g i cm
w / Ji ii u Mz
Leður á slitflötum
1 D7i 1 QOr
M.V. 1 □% AFSLÁTT
TM - HÚSGÖGN
SíSurnúla 30 - Sími 5Ó8 6822
- œvititýri likust
W
mán.-lös. 10:00 -18:00 • laugard. 11Æ0 -16:00 • sunnud. 13:00 • 16:00
sem fara eigi eftir og mótshaldarar
ákveði að fara ekki eftir settum
reglum af því þeim þyki þær ekki
nógu góðar! Þá segir ennfremur í
skýrslunni að í sumum tilfellum hafi
yfirdómnefnd sýnt algert tilhtssleysi
gagnvart keppendum. Reynh- gaf svo
tóninn ennfrekar á knapafundi sem
haldinn var í upphafi móts þegar
hann sagði að ef menn væm ekki
komnir til leiksins með jákvæðu hug-
arfari á mótsstað væri best fyrir þá að
hypja sig strax heim. Sjálfsagt hefur
þessu verið aðallega beint til mín og
öðmm víti til vamaðar eftir atvikið úti
á vellinum. Gekk mótsstjórinn svo
fram af fólki á þessum fundi að marg-
ir veltu því fyrir sér að yfirgefa móts-
svæðið þá þegar og þar á meðal menn
úr hópi dómara sem áttu að dæma á
mótinu.
Tilgangur með þessum skrifum er
ekki að reyna að réttlæta framkomu
mína sem færði mér rauða spjaldið
heldur kannski sá að sýna fram á að
það var ekki að ástæðulausu sem ég
skipti skapi með afdrifaríkum afleið-
ingum. Næsta sem nefna má er þegar
keppandi úr Gusti, Birgitta Dröfn
Kristinsdóttir, er dæmd úr leik eftir
að kæra berst ofan úr brekku þess
efnis að hrossið hafi stigið með einn
fót út af velli. Framkoma þeirra fé-
laga við Birgittu var með þeim hætti
að annað eins hefur vart þekkst á
mótum. Birgitta leitaði til mín um að-
stoð til að fá svör við nokkmm spum-
ingum sem við töldum að hún ætti
rétt á. I stuttu máh urðu niðurstöður
þær að þeir sögðu henni að ef hún
væri að angra þá með þessum spurn-
ingum fengi hún spjald. Með öðmm
orðum; ef þú ekki þegir hefurðu verra
af.
í áðurnefndri skýrslu Reynis til
LH fæ ég vænan skammt þar sem
segir að framkoma mín hafi verið með
þeim fádæmum að þar verði ekki
neinu við jafnað og lýsir hann þeiiri
skoðun sinni að mér beri þyngsta
mögulega refsing og það strax. Segir
hann að ekki hafi verið friður fyrir
mér frá fyrsta degi og til þess að þeir
veittu mér spjaldið og ég var beðinn
að yfirgefa svæðið. Þá segir orðrétt í
skýrslu Reynis: „Hann óð trekk í
trekk inn í dómpall og truflaði starfs-
menn og kórónaði svo allt þegar hann
var í viðtali hjá yfirdómnefnd og mun-
aði minnstu að hann léti hendur
skipta en kona hans gekk á milh.“ Hið
rétta í þessu er að ég fór aðeins einu
sinni inn í dómpall á svokölluðum B-
velli og gerði athugasemdir við allt
klúðrið sem þar átti sér stað sem
frægt er orðið. Þegar ég hinsvegar
kom svo út úr dómpallinum var
klappað fyrir mér enda áhorfendur,
keppendur, aðstandendur þeirra og
jafnvel dómarar úti á velli búnir að fá
sig fullsadda á öllu klúðrinu. Hvað
viðtalið varðar má segja það að
Ámundi yfirdómari bauð mér inn í
stjómstöð til að ræða ágreiningsmál-
in varðandi mál Birgittu. Meðan ég
ræði við Ámunda stendur Reynfr yfir
okkur og neitar að setjast við borðið
og taka þátt í umræðunum en segir
mér að hypja mig út. Endirinn varð
sá að það fauk í mig og ég barði hnef-
anum í borðið. Sannleikurinn er sá að
ég reyndi áður að ræða málin við
Reyni en hann taldi sig ekkert hafa
við mig að tala. Ég reyndi að afhenda
þeim bréf samkvæmt ráðleggingu
Ámunda með mótmælum mínum en
þeir neituðu að taka við því.
Mín skoðun er sú að þefr félagar
Ámundi og Reynir hafi með fram-
komu sinni við mig og aðra á þessu
móti verið vel að rauðu spjaldi komn-
ir. Því miður er ekkert i reglunum
sem segir að hægt sé að veita þeim
rauða spjaldið, það era þeir sem hafa
spjaldið og mega veifa því.
Það sem er kannski mikilvægast í
þessum efnum er að mót þetta og öll
þau leiðindi sem þar komu upp verði
til þess að yiirdómnefndir sýni kepp-
endum og öðram á mótum framvegis
þá framkomu sem ki-afist er af kepp-
endum samkvæmt keppnisreglum
LH, þ.e. kurteisi og tillitssemi. Nú
þegar aganefnd LH er búin að ógilda
úrskurð þeirra félaga í máli Birgittu
Drafnar og snupra þá í ofanálag tel ég
við hæfi að þeir taki sér gott fri frá
mótsstjómar- og/eða dómstörfum og
hugsi hlutina upp á nýtt.
Höfundur er verktaki
og hestamaður.
Greining astma
ASTMI er algengur
sjúkdómur og þjást
allt að 5% fullorðinna
af honum. Þetta er oft
á tíðum langvinnur
sjúkdómur, þótt ein-
kenni séu misjöfn frá
degi til dags. Hann
getur jafnvel horfið al-
veg, en algengara er að
hann hverfi um Skeið
en birtist síðan aftur,
t.d. tengt sýkingum í
efri öndunarvegi. Ekki
er alltaf auðvelt að
greina astma og þar
með veita rétta með-
ferð. Einkenni sjúkl-
ings era hjálpleg.
Mæði við áreynslu, hósti og flaut og
ýl frá lungum geta verið merki um
astma. Algengt er að einkenni þessi
séu ekki stöðugt til staðar heldur
komi og fari, tengt ákveðnum
áreitum t.d. kvefi, frjókornum og
öðm.
Lungnablásturspróf eru mjög
mikilvæg til greiningar á astma en
em því miður of lítið notuð. Stafar
það m.a. af því að slík tæki era ekki
til á mörgum heilsugæslustöðvum,
eða eru gömul og úrelt eða enginn
kann að nota þau. Á slíkum prófum
kemur fram teppa við mælingar,
þannig að fráblástur frá lungum á
einni sekúndu er meira skertur en
heildarfráblásturinn. Ef gefin eru
berkjuvíkkandi lyf getur þessi
skerðing minnkað eða horfið alveg.
Þessar mælingar era einnig hjálp-
legar til að greina astma frá öðrum
lungnasjúkdómum, t.d. langvinnri
lungnateppu. Hámarksloftflæði-
mælingar era gerðar með litlu ein-
földu tæki sem fólk getur haft heima
hjá sér og skráð niðurstöður í þartil-
gerða dagbók. Hjá þeim sem hafa
astma getur komið fram breytileiki
á loftflæði milli morgun- og kvöld-
mælinga og milli daga sem ekki sést
hjá heilbrigðum ein-
staklingum. í völdum
tilvikum getur verið
mikilvægt að ganga úr
skugga um hvort
astmasjúklingar séu
með ofnæmi. Fer þetta
eftir aldri, búsetu og
eðli einkenna. Best er
að greina ofnæmi með
því að spyrja sjúkling
ítarlega um hugsanleg
ofnæmi og framkvæma
í samræmi við það nið-
urstöður, húðpróf og/
eða sérstaka blóðrann-
sókn (RAST-próf).
Þegar ekki er augljóst
að um astma sé að
ræða getur verið heppilegt að gera
sérstök próf til að athuga með
berkjuauðreitni sem einkennir
astma en getur einnig sést við ýmsa
aðra sjúkdóma. Þá er sjúklingurinn
Astmi
Ef þig grunar að þú
hafír astma, segir
Gunnar Guðmundsson,
ættirðu að láta athuga
það hjá lækni.
látinn anda að sér sérstökum efnum
sem vitað er að þeir sem eru með
astma svara á sterkan hátt með
lækkuðum gildum á lungnablásturs-
prófum meðan að hjá heilbrigðum
breytast prófin ekki. Ef þig grunar
að þú hafir astma ættirðu að láta at-
huga það hjá lækni með þeim að-
ferðum sem að ofan eru nefndar.
Höfundur er sérfræðingur
(lyflækningum, lungna-
og gjörgæslulækningum.
Gunnar
Guðmundsson