Morgunblaðið - 28.10.2000, Qupperneq 68
PJr LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Rjómi sem
megrunarfæði?
MER þykir leitt að Jóni Braga
hafi ekki líkað greinarskrif mín sem
birtust í Morgunblaðinu þann 25.
október þar sem ég meðal annars
lýsi því yfir að sykur sé ekki fíkniefni
heldur orkugjafi og þar að auki
bragðgóður orkugjafi. Einnig segi ég
þar að það sé miður að allt of margir
neyta of miklis sykurs, ekki síst í
formi gosdrykkja. Sérstaklega þurfa
bíjrn og ungmenni að minnka sykur-
neyslu og gosdrykkjaþamb. Það var
ekki minn ásetningur að hæða einn
eða neinn með þessum skrifum mín-
um eins og Jón Bragi lætur liggja að
og bendir í því sambandi á að ég hafi
titlað konu að nafni Þorbjörg Haf-
steinsdóttir „næringartherapista“.
Eg verð að viðurkenna að þennan
starfstitil tók ég beint upp úr auglýs-
ingu þar sem Náttúrulækningafélag-
ið var að auglýsa fyrirlesara á kvöld-
fundi sínum sem bar yfirskriftina
„Sykur - hættulaus orkugjafi eða
skaðvaldur?" en þar er Þorbjörg ein-
mitt titluð „næringarþerapisti".
Annars er nú ekki langt í grínið hjá
Jóni Bjarna og er það vel. Eins og
þegar hann segir að
„Ólafur er næringar-
ráðgjafi [reyndar er
starfsheiti mitt nær-
ingarfræðingur] á
Planet Pulse“ og held-
ur síðan áfram og seg-
ist ekki vita „hvaða
pláneta það er en hins
vegar er ljóst af máli
Ólafs að hann er ekki
með báða fætur á jörð-
inni.“ Já, það er nokk-
uð góður húmor í
þessu! En Jóni til skýr-
ingar þá er Planet
Pulse keðja líkams-
ræktarstöðva sem þær
stöllur Jónína Bene-
diktsdóttir og Júlía Þorvaldsdóttir
standa í forsvari fyrir.
En þá að alvarlegri málum. Það er
grafalvarlegt að há-
skólaprófessor í raun-
vísindum skuli gera
sér, Háskóla Islands og
íslenskri þjóð þann
óleik að halda á lofti
kenningum sem eru í
fullkomnu ósamræmi
við niðurstöður þús-
unda og aftur þúsunda
rannsókna. Jón hefur
flaggað opinberlega
(sjá helgarblað DV 21.
október) lélegum og
óskiljanlegum listum
yfir glýkemíustuðla og
hvatt þar fólk sem á við
offitu að stríða að var-
ast fæðu úr jurtaríkinu
eins og rófur og kartöflur; ávexti eins
og vatnsmelónu og banana og korn-
meti eins hrískökur, eheerios og
Ólafur Gunnar
Sæmundsson
-
A ~ "
* * *•»
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 2000:
Lífeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
$jjþ Lífeyrissjóðurinn Framsýn
Lífeyrissjóðurinn Hlíf
»5 Lífeyrissjóðurinn Lífiðn
Lífeyrissjóður Norðurlands
'jfj Lífeyrissjóður Rangæinga
Lífeyrissjóður sjómanna
€> Lífeyrissjóður Suðurlands
Lífeyrissjóður Suðurnesja
0 Lífeyrissjóður Vestfirðinga
^^i^Lífeyrissjóður Vestmannaeyja
^ Lifeyrissjóður Vesturlands
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
en dregið hefur veriö af launum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóSum, eSa ef launaseölum ber
ekki saman viS yfirlitiS, skall þú hafa samband viS viSkomandi lífeyrissjóö hiö allra fyrsta og eigi síöar en
1. nóvember n.k.
ViS vanskil á greiSslum iSgjalda í lífeyrissjóS er hætta á aS dýrmæt réttindi tapist. Þar á me&al má nefna:
Ellilíf eyri
Mokalífeyri
Barnalíf eyri
Örorkulífeyri
Gættu réttar þíns
Tii þess a& í&gjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota,
skuíu launþegar ínnan 60 daga frá dagsetníngu yfirlits ganga úr skugga um skil vínnu-
veitenda tií viðkomandi. lífeyrissjóðs. Séu vanskii á iögjoldum skal launþegi innan sömu
tímamarka leggja IffeyrissjóSi til afrit launaseÖla fyrlr þaö tímabií sem er í vanskilum.
Kami athugasemd ekki fram rá launþega er víökomandi lífeyrissjóÖur einungis ábyrgur
fyrir réttindum á grundvelli iðgjaida bessara að þvt markí. sem þau fást greidd, enda hafi
íífeyrissjóðnum ekkí verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Næring
Pað er alvarlegt að Jón
Bragi skuli gera fólki
þann óleik, segir Ólafur
Gunnar Sæmundsson,
að halda á lofti kenning-
um sem eru í ósamræmi
við niðurstöður þúsunda
rannsókna.
pasta. Hann gengur meira að segja
svo langt að segja að það eigi aldrei
að borða pasta heldur fá sér rjóma í
staðinn. Þessar ráðleggingar eru al-
gjörlega á skjön við ráðleggingar
virtra stofnana eins og Manneldis-
ráðs, Ki'abbameinsfélagsins og
Hjartaverndar. Þetta er þeim mun
alvarlegra þar sem Jón er prófessor
við Háskóla íslands og sem slíks er
tekið mark á hans málflutningi.
Sorglegt til að vita enda það eina sem
Jón hefur sér til fulitingis höfundar
bandaríska skyndimegrunarbók-
mennta sem byggja ekki á rannsókn-
um heldur óstaðfestum kenninga-
smíðum. Jón telur að ég hafi ekki
kynnt mér í þaula bækur sem byggja
á hugmyndafræði um mikla fitu og
próteinneyslu og litla kolvetnaneyslu
og nefnir í því sambandi Atkins-kúr-
inn. Hér hefur Jón rangt fyrir sér því
ég hef lesið þá bók og fleiri í þessum
dúr spjaldanna á milli (bækur eins og
Scarsdale-kúrinn og Ég borða en
grennist samt-kúrinn). Niðurstöður
þeirrar lesningar er sú að hér er um
að ræða kenningar sem hafa ekki
staðist tímans tönn og ekki ein ein:
asta rannsókn styður tilvist þeirra. I
DV 21. október segir Jón meðal ann-
ars:, jUlar nýjar hugmyndir eiga erf-
itt uppdráttar. Það er hægt að líta yf-
ir söguna: Galileo átti erfítt
uppdráttar; læknirinn Harvey sem
sagði aðblóðið flæddi í hringrás í
líkamanum var fordæmdur og
Darwin einnig.“ Ótrúleg samlíking
enda hljóta allir að sjá að þessir
mætu menn bjuggu við allt annað
umhverfi en vísindamenn búa við í
dag. í dag er mjög auðvelt að reyna
hinar ýmsu kenningar og því ættu
þeir sem aðhyllast mikla neyslu á fitu
og próteinum og litla kolvetnaneyslu
að geta sýnt fram á trúverðugleika
kenninga sinna með að vitna í vel
gerðar rannsóknir þar að lútandi. En
því er öðru nær og ástæðan einföld -
kenningin stenst einfaldlega ekki.
Mín von er sú að nýtt skyndimegr-
unaræði muni ekki ríða yfir íslensku
þjóðina þar sem fyrirmyndar er leit-
að í smiðju bandarískrar megrunar-
menningar. Enda er formúlan fyrir
varanlegan árangur þekkt eins og
kom vel fram þegar ríflega 2.000
manns voru athugaðir eftir að þeir
höfðu náð að halda þyngd sinni í
lengri tíma. Fyrri sameiningarþátt-
urinn tengdist mataræðinu þar sem
aukinnar hófsemi var gætt ekki síst
hvað varðaði fituneyslu. Seinni þátt-
urinn tengdist mikilli og reglubund-
inni líkamsþjálfun (sjá m.a. í Journal
of Obesity and Related Metabolic
Disorders. 1998. (supplement)
Abstract 098 og P730).
Höfundur er næringarfræðingur,
Planet Pulse.
|Glæsilegir
borðlampar
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frákl. 11-14