Skírnir - 01.01.1887, Page 79
ÍTALÍA.
81
vorri álfu, og þeir hafi sinn vilja fratn, sem vilja, að ítalfa
segi skilið við þýzkaland og Austurríki þetta ár, i stað hins að
endurnýja sambandsgerðina fyrir sama árabil, sem nú verður á
enda, þá verða þó mestar likur til að aptur dragi saman með
frændunum beggja megin Alpafjalla, þvi hvað verzlunarvið-
skiptin snertir, hafa Italir þau meiri við Frakka enn nokkra
þjóð aðra i Evrópu. 1882 var frá Italíu varningur fluttur til
Frakklands á 418 milliónir franka, og þaðan til Italiu 461
millíón.
«Skírnir» sagði í fyrra, að páfinn sæti «við sinn keip»,
og það gerir hann enn gagnvart konungsrikinu, og hann segir
það sem austfirzk saga hefir hermt afVolakarli íLóni: «vættir
Voli dráttar — varla er sól af Karli*1), hver sem happadrátt-
urinn verður. það má nú segja, að páfinn bráki fleirum og
fleirum færunum, en það er veraldarvaldið, sem hann bíður eptir
og væntir, að á renni. Hve þarfur hann getur orðið ríkjunum
sýndi hann í fyrra í gerðinni um deilu Spánverja og þjóðverja,
sem hann hlaut fyrir bæði lof og þakkir, og nú hefir hann
nýlega áunnið sjer hvorttveggja af hálfu Vilhjálms keisara og
Bismarcks fyrir tilhlutun sina til lcosninganna seinustu á þýzka-
landi, sem getið skal um í þætti þess ríkis. í frjettunum frá
Frakklandi höfum vjer gert nokkra grein fyrir, eptir hverju
færinu var rennt á Sínlandi, og hver má vita, hvað á þeim öngli
festist um síðir. En hitt er auðvitað, að vonarummælin í ka-
þólskum blöðum, t. d. í páfablaðinu «Observatore Bomano»,
lúta að eins að veiðisæld arftökumanns Pjeturs postula, að
sigri kaþólskrar trúar þar eystra. þar stóð í fyrra, að samn
') Höf. •Skírnis* heyrði hana svo sagða: Voli hjet maður, sem bjó á
Volaseli. Eitt vor reri liann til fiskjar og sat lengi á miði. Hann
kenndi ekki beins, og raenn vildu halda til lands, en hann
þraukaði þar alla nóttina til sólaruppkomu. þaðan í landnorður er
fjall sem Karl eða Karlsfjall heitir, og því komst Voli svo að orði.
þetta endurtók hann í hvert skipti, sem hásetarnir ljetu óþolslega.
Loksins rann á færi hans, og það var stórþorskur með steyttan
maga. í honum fannst pyngja afarmikil full af gullpeningum. J>að
hafði Voli karl fyrir sitt þolgæði.
6