Skírnir - 01.01.1887, Side 81
ÍTALÍA,
83
ara enn fyr, er farið var að reisa minnisvarða Viktors Emanuels,
og fyrir honum urðu tvær gersimar kirkjunnar að þoka,
klaustur eitt — «Maria in Aracoelw — og «turn Páls páfa
þriðja». Tveir þýzkir fornmenjafræðingar hafa ritað á móti
þessu «Vandalaæði», tekið mart annað fram um ósvífni hinna
nýju Rómbúa, og annar þeirra — Ferdinand Gregorovius, hinn
heitir Hermann Grimm — minnt menn á, hverjum ægiskildi
páfadæmið hafi haldið yfir enum helgu minjum Rómaborgar,
«borgarinnar eilífu», sem hún er kölluð. Hjer hafa hvöss svör
komið á móti — en sum hafa ekki þótt svo heppileg sem
skyldi — en hitt hafa allir afsakað, er sagt var, að Italir
vildu ekki eiga höfuðborg sína undir forræði annara þjóða.
«Skirnir» sagði 1882 sveltisögu frá Ameríku af Tanner
doktori, en nú hafa tveir ítalskir menn unnið vatnföstuþraut
hans, og annar mun lengri, eða 50 daga. Sá sem fyr reyndi
sig hjet Succi, og neytti hann auk vatnsins hressingarefnis,
sem hann hafði upp fundið! Föstuna skyldi hann þola 30
daga, en þegar þeir voru á enda, var hann að bana kominn,
og tveim fjórðungum ljettari — ef oss minnir rjett — enn
hann var þegar hann byrjaði. Hinn hjet Merlatti og innti
sina iþrótt af höndum í Paris. Stundum var hjer talað um að
banna honum föstuna, er menn kölluðu að maðurinn ynni bana
á sjálfum sjer, og flestir læknarnir gengu úr nefndinni, sem
hafði heitið að halda vörð á honum. Lokin urðu, að hann
þoldi sveltiþrautina á enda, þó ótrúlegt megi þykja.
Mannalát. Sunnudaginn 7. febrúar andaðist — heldur
sviplega — Alessandro Torlonia, «fursti af Civitella-Cesi,
Canino», og fl. bæjum, og «hertogi af Ceri» á 6ta ári yfir átt-
rætt (f. 1. júní 1801). Hann var langrikastur allra manna á
Italíu, og var líka máttarstoð lands sins i öllu, sem miklu
þurfti til að verja, til viðgjörða á kirkjum og endurskreytinga,
bæði á Italíu og i öðrum löndum, til stórkostlegra stofnana
fyrir gamalt fólk og munaðarleysingja. Auk þess var hann
óþreytandi styrktarmaðar fagurlista og listamanna. Eitt af
afreksverkum hans er uppþerran vatns á Púli, sem Facino
hjet, og nú er orðið að akurlendi og er að vallarmáli 16,000