Skírnir - 01.01.1887, Síða 109
RÚSSLAND.
111
engum miður, en svo kann þó að fara til lykta, að þeir hafi
meira upp úr þeirri aðferð sinni, enn ella mundi, eða ef þeir
hefðu haslað Austurriki völl á Bolgaralandi. Rússnesku blöðin
segja stundum, að ekki liggi á, því eplið muni detta Rússlandi
í skaut, þegar tíminn til þess sje kominn. Um það verða hin
«griðagoðin» i Evrópu að sjá, hvað öllum og hverjum sjer er
fyrir beztu, en áður tiðindin gerðust í Sófíu (höfuðborg Bolg-
ara), þaut annað i björgum, og allt hinu líkara, að flestir á
Rússlandi væru bráðlátir í biðinni eptir úrslitunum á Balkans-
skaga 1 maímánuði var keisarinn suður á Krimey, í Seba-
stopol — sem aptur er orðin að ramgerfasta hafnarkastala — og
í fleirum borgum við Svartahaf, þar sem, auk annars, bryn-
drekum og öðrum herskipum var hleypt á vatn. I ávarpi til
hers og flotaliðs, mælti hann hreifingslega um endurreisn flot-
ans í Svartahafi, og ljet menn skilja, að hann þóttist kenna
mótspyrnu gegn því sem hann óskaði, og því kynni hann að
neyðast til að heita á aflann bæði á sjó og landi fyrir veg og
sæmdum Rússlands. A heimferðinni staðnæmdust þau keisarinn
og drottning hans i Móskófu, og í Kreml tók borgarstjórinn á
móti honum með svo látandi orðum (eptir sjálft ávarpið): «þú
kemur til okkar frá blessuðu suðrinu, en þangað færðirðu fjör
og líf til Svartahafs. f>ú hefir gefið von vorri vængi, gert hana
fleyga, eflt þá trú vora, að kross Krists nái að skína á hinni
helgu Sofiukirkju (Ægisif)!» — I svari sínu sagði keisarinn, að
hann elskaði Móskófu og sjer þætti gott að vera þar á krýn-
ingardag sinn *). 28. október, þann dag er Plevna var unnin
fyrir 9 árum, var í Pjetursborg afhjúpaður og vígður stórfengi-
legur minnisvarði til heiðurs og endurminningar þeirra her-
manna, sem fallið höfðu í striðinu seinasta (við Tyrki), en
þar höfðu Rússar ekki lagt minna í sölurnar enn 100,000
manna. I boðunarávarpi keisarans til landhers og flotahers
<var nú öllum ummælum varlega og hóflega stillt, og að eins
*) Moskófa er kölluð gróðrarstöð »alslafa“-kenninganna og höfuðvirki
Gamal-Rússa; en gisting keisarans bar svo upp á dag, sem hann
sagði.