Skírnir - 01.01.1887, Qupperneq 153
AMERÍKA.
155
þessum dómi. Við slíkan sem yður er þó bezt orðin að spara.
þjer eruð dæmdur í eins árs varðhald og 500 dollara sekt!».
— «Og þetta kalla menn rjettlæti!» sagði Most, þegar hann
fór út úr dómssalnum.
Upp á þau ólög og herfileg aldarlýti, sem Cleveland og
aðrir sem honum fylgja rísa nú öndvert á móti og vilja útrýma,
skal dæmi til greina. Ur borgarráðinu i Newyork urðu ekki færri
enn 20 sekir um mútuþágur af járnvegafjelagi fyrir leyfi
til járnbrautar um borgina. þóknunin sem hver um sig tók við
voru 20,000 dollara. Aður dómur hins fyrsta var upp kveðinn
voru tveir af þeim látnir, einn sloppinn undan tii Evrópu, en
einn hafði boðið sig til sagna. Sekt hins fyrsta, sem Jaehne
hjet, varðaði 9 ára og 10 mánaða varðhald (betrunarvinnu),
og hið sama fyrir hina 15 síðar. Dómarinn talaði svo til
Jaehne, þegar hann las upp dóminn: uþað er sorglegt, að
þeim góðu og heiðarlegu mönnum bregðast vonir sínar, sem
efuðust um að þjer munduð sekur dæmdur. Sá efi er nú
horfinn. þjer og aðrir yðar nótar hafið óbifanlega trúað á al-
mætti hins illa, og þið hafið ætlað það óhugsandi, að nokkur
maður yrði dæmdur fyrir mútna sakir, en það eru einmitt
mútuþágur, sem hafa lcomið yður í sektina. Hafið þjer gleymt,
að fyrirrennarar yðar hafa farið sömu leiðina? Nei! gjör-
spillt er fólkið ekki, og nú er þó von, að i betra horf hverfi
málum vorum. Ærlegum mönnum verður nú ljettara fyrir
brjósti, þegar þeir vita, að þeir eru í meira hluta, sem fást
ekki til alls fyrir peninga». Af þeim sem til bæjarráðsins voru
kosnir 1884 reyndust að eins tveir ærlegir menn. — Sú er
önnur sagan, að hershöfðingi, Shaler að nafni, sem meðal
fleiri embætta hafði umsjón á vopnabúri borgarinnar (Newyork),
átti að kaupa lóð undir ný vopnabúr. Hann kaupir af þeim
sem ríflegast múta, þvi borgin eða ríkið átti að borga. Stefnt
í dóm, en tveir í kviðnum vildu ekki lýsa hann sekan, hvernig
sem svo hefir farið. Grace heitir borgarstjórinn og gengur
rikt eptir um pretti og óknytti, en ótrúlegum brögðum beitt á
móti. Hjer er illan «Agiu-flór» að moka, en um skiptir nú
noklcuð ár af ári, og það eru ekki meira enn 15 ár síðan, að