Skírnir - 01.01.1906, Page 30
30
Ferðaþættir frá Bretlandi.
Skiruir..
vegura eru trjáraðir og trjárunnar, en óvíða eru eiginleg'ir
skógar. I hlíðum og dölum, er að sjó vita mót suðri, er
suðrænn gróður hávaxinn. Ymsar jurtir, sem á Islandi
og í Danmörku eru ræktaðar í urtapottum innanhúss og
eru mjög smávaxnar, vaxa hér á víðavangi og í görðum
og ná miklum vexti; eg sá 4—5 álna háar fúksíur og
aralíur úti við, og utan á húsunum vaxa víða rósir upp
á þak og ýmsir vafningsviðir með mislitum biómum.
Stofnarnir á hinum hærri trjám eru oft þaktir vínlaufi
eins og á Italíu og eius húsveggirnir að utan. Eins er
hér eins og víðar á Englandi, að sveitirnar eru tiltölulega
strjálbygðar, aðalfólksfjöldinn hefir þyrpst saman í bæina,
akrar eru tiltölulega fáir, en tún víðáttumikil og bcitarlönd,
þúfur sjást þó hvergi, því aldrei er frost í jörðu. Stórir
sauðfjárhópar sjást víða, helzt á hæðunum, og kýr og hestar
á láglendi. Akuryrkja borgar sig ekki eins vel í þessum
frjósömu löndum eins og kvikfjárrækt, kornið frá nýlend-
unum og frá Vesturheimi er svo ódýrt, þar fást löndin
fyrir lítið og vinnukrafturinn er tiltölulega ódýr, því
alt af koma nýir og nýir innflytjendur, þurfamenn
handan um haf, sem verða að taka hverju því, sem þeim
er boðið.
Saga eyjarinnar Wight • er ekki íík að viðburðum,
fi’iður og ró hefir oftast hvílt yflr hinum grænu grundum
og fiiðsælu lundum, þó vopnabrak og ófriður hafi geisað
yfir meginlöndin á báða bóga. Vestan til á eynni hafa
fundist fornmenjar í haugum, er benda til þess að frum-
búar landsins hafi verið af keltneskum uppruna. Róm-
vei’jar kölluðu eyna Vectis og lögðu hana undir sig á
dögum Claudiusar keisara árið 45 e. Kr.; enn þá sjást ýmsar
menjar Rómverja, vegaleifar og húsarústir og aðrar forn-
menjar. A einum stað (Moi’ton Farm, Yarbridgo hefir
fundist fagurt rómvei’skt herbergisgólf úr litsteinum með
mynd af dansmev. Vilhjálmur bastarður gaf evna Fitz-
Osborne, jarli af Herfoi’d, og réðu siðan ýmsir einvaldir
jarlar fyrir henni fi'am undir lok 13. aldar. Edward I.
konungur á Englandi keypti Isle of Wight 1293 fyrir