Skírnir - 01.08.1906, Blaðsíða 95
Skirnir.
Erlend tíðindi.
287
J ú n í 10. Seddon yfirráðgjafi í Nýja-Sjálandi, heimsfrægur
stjórnskörungur, verður bráðkvaddur.
14. Hrannvíg á Gyðingum í Bielostock á Póllandi.
16. Þingi slitið í Kristjaníu.
20. Um 70 þýzkir blaðamenn koma til Englands í kynnisför
og var fagnað forkunnarvel; sneru heimleiðis aftur 29.
24. Mylius-Eriksen leggur á stað frá Khöfn í 3 ára Græn-
landsför á skipinu Danmark.
27. Landskjálftar á Bretlandi (Wales).
Júlí 1. Járnbrautarslys hjá Salisbury á Englandi sunnan-
verðu; 29 menn fengu bana, flestallir amerískir.
2 Fulltrúaþingið rússneska samþ. frumv. um að nema líf-
látshegning úr lögum.
3. Brann Mikaelskirkja í Hamborg; 4 menn fengu bana.
10. Banatilræði við yfirmann Svartahafsflota Kússa, Tschuknine
aðmírál. Hann lézt af sárum 2 dögum eftir.
12. Goremykin, yfirráðgjafi Rússakeisara, segir af sér embætti.
Dreyfusmálið útkljáð í París. Hæstiréttur ónýtir her-
dóminn í Rennes frá 1899. Þar með er Dreyfus alsýknaður.
14. Veginn í Pétursborg Koslow hershöfðingi, haldinn vera
Trepoff landshöfðingi þar.
16. Ríkisþing sett í Khöfn, aukaþing vegna komu alþingis-
manna meðfram; stóð viku.
18. Alþingismenn koma til Khafnar; hverfa heim aftur það-
an 30. júlí.
21. Þingrof í Pétursborg. Stolypin gerist yfirráðgjafi Rússa-
keisara í stað Goremykins.
Keisari staðfestir stjórnarskrá fyrir Finnland.
23. Rússneskir þingmenn eiga með sér stefnulag í Viborg á.
Finnlandi og samþykkja þar ávarp til þjóðarinnar.
Hefst friðarvinaþing í Lundúnum, af þingmönnum frá ýmsum
löndum, hið 14. í röð.
30. Fullger sæsími milli Hjaltlands og Færeyja.
31. Hermannauppreisn í kastalanum Sveaborg hjá Helsingfors
á Finnlandi.
A g ú s t 1. Meiri háttar samsæri og uppreisn í skipahernum
riíssneska í Kronstadt.
Frakkar láta Bretum eftir Tahitieyjar í Kyrrahafi.
4. Stórt gufuskip ítalskt, Sirio, brýtur við Spánarstrendur,,
og drukna 300 manns.