Skírnir - 01.01.1912, Qupperneq 6
€
Listin að lengja lífið.
í útlöndum er mikið farið að tíðkast að fá sér loftböð
í stað vatnsbaða, og eru þau eflaust mikið góð. Þau eru
einföld mjög og fólgin i því að klæða sig úr öllu úti á
bersvæði og láta loftið leika um sig. Þegar sólin skín, fá
menn um leið sólbað. Loftið og sólin hafa. í sameiningu
injög holl og herðandi áhrif á hörundið.
Snjóböð eru einnig mjög holl og hressandi og get eg
mælt hið bezta með þeim, þar eð eg hefi kynt mér þau
sjálfur stundum á veturna.
Að endingu vil eg þó taka það fram, að mjög er var-
hugavert fyrir þá, sem þjást af einhverjum sjúkdómi, að
byrja á köldum böðum og líkamsherðingu. Þar verður
ætíð að leita læknisráða, því margir hafa haft ilt af því.
Sérstaklega má geta þess, að fyrir taugaveiklaðar mann-
eskjur eru köld böð tíðum mjög varasöm.
.9. heilrœði: Ilœfileg vi/nna.
Það mun vera óviða í löndum, að það klingi jafnoft
við og liér á Islandi, að menn segjast vera (og eru) orðn-
ir slitnir og lúnir af erfiði. Og þó erfiða menn í öðrum
löndum engu síður en hér. Það er algengt að hitta menn
hér, bæði til lands og sjávar, sem eru farnir að bila af
vinnu og striti, þegar þeir eru að eins komnir yfir fertugs
aldur. Astæðuna til þessa hvgg eg vera þá, að menn
vinna langtum ójafnar hér en annarsstaðar, en ckki, að
menn að öllu samtöldu drýgi meira erfiði hér. Lands-
hættir hjá oss koma mönnum til að lierða sig á sprett-
um meir en þeir þola, með löngum hvíldum á milli,
sem lina þróttinn. Þetta gildir jafnt sjómanninn, sem
herðir sig af öllum mætti að ná í »gæsina meðan hún
gefst«, og sveitamanninn, sem verður að nota tíðina —
einkum á sumrin — eins vel og hægt er. Mannslíkaminn
er eins og hver önnur vél, að hann stirðnar og skemmist
af að standa ónotaður og óhreyfður. Og ekki síður skemm-
ist hann af því, að honum er beitt óæfðum og óliðkuðum
til erfiðrar vinnu með engum fyrirvara. Ef vér liggjum
í rúminu nokkurn tíma, verða allir vöðvar slappir og