Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 10
10
þykku mosalagi, enn, þegar suðr frá henni dregr, lækkar eins og
á Lögbergi; þar er og grasi vaxin lægð, og er það auðvitað, að
hér mundi allhentugr staðr fyrir tilheyrendr að heyra frá Lög-
bergi, þar sem sú gjá er meira enn helmingi mjórri enn vestri
gjáin, og hefi eg þó oft talað við menn yfir Flosagjá, og heyrt
þar allglögt, sem líklegt er, þar sem gjáin er eigi nema tæpir 8
faðmar á breidd.
Laugardagínn 2Q. byrjaði eg kl. 7 um morguninn að láta
grafa búðartóttina löngu fyrir vestan traðirnar í f>ingvallatúni.
þessi afar-langa tótt sýndist mér halda sínu upprunalega lagi; eru
gaflhlöðin einkum skýr, og fyrir því byrjaði eg á henni. Tóttin
mældist mér 100 fet á lengd og 25 fet á breidd; skal þess getið,
að eystri veggrinn var mjög óglöggr. Dyr eru á vestra hliðvegg,
nær hinum eystra gafli. þenna dag hafði eg tvo menn að verki.
Mánudaginn, 31. hélt eg áfram greftinum, og hafði þá þrjá
menn.
priðjudaginn 1. júní hélt eg áfram greftinum með annan
mann. J>á var greftinum lokið um miðjan dag, eða því, sem mér
sýndist að láta að gjöra.
Eg lét grafa umhverfis tóttina að utan þannig, að steinarnir
í ytri hleðslunni, eða undirstaðan að utan kom öll í ljós, og svo
skurð fyrir utan undirstöðusteinana líka alt í kring um tóttina.
Sums staðar var hleðslan tveföld, enda, ef til vill, meir; sums stað-
ar einföld. Steinarnir í undirstöðunni vóru mjög misjafnir að stœrð.
Nær nyrðra enda á vestrhliðinni reyndust dyrnar eins og áðr er
sagt. Utbygging gengr út úr eystra hliðvegg við norðrendann ;
dyr út úr henni til austrs. Útbyggingin er nær 20 feta á hvern
veg. í búðarkróknum út úr syðra vegg útbyggingarinnar
sýndist að hafa verið grjótbálkr áfastr við útbygginguna. Hann
er, eftir því sem eg gat komizt að að mæla, 16 feta á annan veg,
og eins eða meira á hinn. Hér um bil í miðjum bálkinum fanst
mikið af öskumold og ösku., og nokkuð af viðarkolum, sem eg
geymi, einnig fundust þar tvö eða þrjú stykki af nautsbeinum með
fleira smálegu, er eg geymi einnig. Ofan að grjótinu var misjafn-
lega djúpt, eftir því sem til hagar. Eftir að búðin var grafin, mældi
eg nákvæmlega lengdina út á ytri grjóthleðsluna, og er hún 104
fet, enn breiddin sömuleiðis mæld á ytri hleðslur 24 fet, lítið
eitt mjórri í annan enda, nær 22 fet. Búðin snýr hér um bil frá
landnorðri til útsuðrs.
Seinna hluta dagsins lét eg grafa gryfju niðr með hleðslu, er
eg rak mig á vestan til við Lögbergssporðinn; hleðslan var óglögg
á litlum parti og þrep fyrir neðan hleðsluna, fanst þar öskumold;
virtist mér þetta vera eldstœði, enn þar eð mér fanst kennimerki
þrjóta til stœrri byggingar. lét eg hætta þessum grefti.