Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 68
68
staðið þar eftir munnmælum; framan til í hólnum er bergklöpþ,
og þvers fyrir framan hann er kelda eða fen, sem kölluð 'er blót-
kelda, enn niðr á hólnum sjálfum sjást engin merki til tótUtr. 'Niðr
frá kálgarðinum sést fyrir dálítilli girðingu, sem auðsjáanlega er
ekkert úr hofinu, heldr eitthvað nýjara; þar fyrir neðan, ofan til
á Goðhólnum, er eins og lægð og þar umhverfis lægðina er eins
og votti fyrir einhverri upphækkun. Eg kannaði það alt með stál-
staf mínum, og fann þar grjót á þrjár hliðar djúpt niðr, enn að of-
an er eins og hin girðingin liggi fram undir lautina. Breiddin milli
þess, er eg fann grjótið niðri í, er hér um bil 40 fet. Eg get alls
eigi sagt, hvort þetta eru nokkur mannaverk eða ekki, enn sé það,
þá eru þau gömul. Eg skal og geta þess, að að Hofi eru allar
byggingar bygðar nær því úr tómu torfi, þvíað þar er nær engan stein
þeirra, og svo mikið er víst, að þorskafjarðarþing var hið löggilta héraðs-
þing fyrir Vestfirði yfir höfuð. Af öllu þessu, sem sagt er hér að framan,
verðr alt eðlilegt um báða þessa þingstaði þannig, að Kjalarnesþing hafi
síðar verið fœrt af Leiðvelli suðr í þingnes. Kjalnesinga saga segir reyndar,
að á þingstaðnum suðr við sjóinn sjáist fyrir búðunum ; getr vel verið, að þar
hafi einhver merki sézt, þegar sagan um þetta var fyrst fœrð í letr, enn hafi
síðan horfið. Hafi hið fyrsta Kjalarnessþing verið á Leiðvelli, sem nú er
nefndr, sem hlýtr að hafa verið, þvíað hvergi er annars staðar hentugri
staðr á Kjalarnesi sunnanverðu, suðr við sjóinn, þá bendir nafnið Leiðvöllr
á, að þar hafi verið héraðsþing, þvíað Grág. segir Kb. 61. k., I III30 : »oc
scal þar leið þeirra vera, sem þingstöð þeirra er«. Hefði þessi staðr eigi
verið hentugr fyrir þingstað, þá var hann ekki hentugri fyrir leið.
það væri mikil nauðsyn á að rannsaka þenna þingstað 1 þingnesi við
Elliðavatn nákvæmlega, þvíað eg þykist viss um, að Kjalamesþing hafi þar
einhvem tíma háð verið, þvíað upp við Kollafjörð eða á Leiðvelli hefir Kjal-
arnessþing eigi getað verið háð allan þjóðveldistímann fram yfir miðja 13.
öld; til þess var staðrinn of óhentugr, enda sjást þar engin merki til nokk-
urs slíks.
Eg áleit það mjög nauðsynlegt að fara nokkrum orðum um þessa tvo
þingstaði og reyna til að gjöra ljósa grein fyrir, hvernig á þeim stœði
og hvar Kjalarnessþing hið foma hefði verið háð, þvíað eg hefi heyrt mjög
deildar meiningar manna um þetta efni.
Dr. Konrad Maurer, prófessor í Miinchen, hefir látið í ljós skoðun sína
um þingstað Kjalnesinga, í bréfi til Mr. Smiths; telr hann víst, að Kjalar-
nesþing hafi fyrst verið sett á Kjalarnesi nl. Leiðvelli; hann sýnist og vilja
halda því föstu, að þingið hafi jafnan verið háð þar. Eins og eg hefi sýnt
hér að framan, er eg alveg á sama máli sem Maurer um hinn upprunalega
þingstað, enn það er til þess kemr, að þingið hafi aldrei verið flutt þaðan,
þá vil eg, eins og áðr er sýnt, fara þar nokkurn milliveg og láta verulega
rannsókn á mannvirkjunum í þingnesi ráða úrslitum þessa máls; enn mig
furðar stórlega á því, að Smith skuli hafa að vettugi bæði orð Ara fróða og ann-
arra fornra rithöfunda og þar að auki álit Maurers, enn byggja á ástœðum,
sem auðsjáanlega eru teknar úr lausu lofti, þvíað hann lætr þá ætlun sína í
ljós í bók sinni, að þingið hafi aldrei verið á Kjalamesi; það sjá þó allir, að
Kjalarnessþing gat þingið með engu móti verið kallað, nema það hefði upp-
runalega verið sett á sjálfu Kj alarnesi. því verðr að halda föstu.
Að öðru leyti hefir Mr. Smith sýnt áhuga á þessu máli og honum er að þakka,
að til er prentað kort af staðnum nl. þingnesi.