Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 39
39
ritin neðanmáls bœta við: „i Bláskógum“. Útgáfan 1829, bl. 242,
heíir og „Bláskógum“. Af þessu er nú auðséð, að alt þetta svæði
hét í Bláskógum í gamla daga.
Nafnið Bláskógalieiði er nú týnt þannig, að það er eigi við-
haft í daglegu máli, enn það er víst, að Bláskógaheiði hét yfir höf-
uð í fornöld allar heiðar og aðalvegir, er liggja fyrir norðan og
vestan Bláskóga (pingvallarsveit); er það og eðlilegt, að fjallvegr-
inn í heild sinni hafi dregið nafn af Bláskógum.
Einn er aðalvegrinn, þegar farið er norðr eða vestr af ffing-
velli; liggr hann upp hjá Armannsýelli, sem kunnugt er, og upp
Klyftir og hjá Sandvatni og yfir Tröllaháls. Norðrvegrinn liggr
upp á Iíaldadal. Fyrir ofan Brunna, sem eru efstu grös1 á þeim
vegi, eða þar sem menn á, er af Kaldadal er komið, þar skiftist
vegrinn, og er það kallað að fara fyrir Oklí, er þá komið ofan í
Reykholtsdal (Reykjadal nyrðra) eða Hálsasveit. Harðarsaga og
Hólmverja, Kh. 1847, k. 10, bl. 2Ó15 segir um þá Grímkel, er þeir
riðu frá Miðfelli í ffingvallarsveit: ,,þ>eir riðu um Gjábakka svá
til Klupta, ok um Ok, svá hina neðri leið ofan hjá Augastöðitm ok
svá á Breiðabólstaðií. Frá S(cluhúsum eða Hallbjarnarvörðum, sem
eru miklu sunnar enn Brunnar, liggr og vegr vestr yfir TJxahryggi
og ofan í Lundareykjadal (Reykjadal hinn syðra). f>að mun þessi
vegr, er Laxdœlas. talar um (Hafniae MDCCCXXVI, k. 35, 1367,
Akreyri 1867, 8828) og kallar Bláskógaheiði, er þau riðu til
alþingis Guðrún Osvífsdóttir og þ>órðr Ingunnarson : „þ>at var einn
dag, er þau ríða yfir Bláskógaheiði, var á veðr gott“. J>enna veg
munu allir hafa farið, er kómu að vestan og fóru austr á alþingi,
bæði úr Borgarfirði að neðanverðu, og eins hinir, sem kómu lengra
að vestan. Njálss. k. 839, bl. 37 sýnir, að þeir Höskuldr og Rútr
riðu þenna veg af alþingi, þvíað þeir gistu að Lundi í Reykjadal.
Sturlungas. (og eins eldri útg.) talar á mörgum stöðum um
Bláskógaheiði og kveðr skýrt á um hana II. þ., 22 k. (1. b. 3i3) : „f>ar
vóru þá allir goðorðz-menn með þ>orgilsi fyrir vestan Bláskógaheiði“.
III. þ., 30. k., 1. b. 77j : „Liðr subdjákn er úti varð á Bláskógaheiði“.
Mosfellsheiði, sem nú er kölluð, og sem vanalega hét fyrir neðan
heiði í sögunum, það sem var hér fyrir sunnan heiðina, hún er og
kölluð í Sturl. Bláskógaheiði VII þ., 12. k., 1. b. 203^9: „Hann
(Ketilbjörn) átti Helgu dóttur þ>órðar Skeggja Hrafnssonar ok var
með honum hinn fyrsta vetr á íslandi fyrir neðaii Bláskógaheiði".
þ>að er alkunnugt, að þ>órðr Skeggi bjó á Skeggjastöðum í Mos-
1) Byskupsflötr er nú kölluð grasflesja ein, er hggr norðr með veginum
nokkru fyrir ofan Brunna; þar eru reyndar fyrstu grös, þegar af Kaldadal er
komið, enn er þó lítill hagi, þar er aldrei áð; er í munnmælum, að byskup
einn hafi áð þar og drepizt þar hestr fyrir honum; hafi hann þá mælt svo
um, að svo skyldi jafnan fara, ef ferðamenn æði þar.