Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 50
50
vellingabúð, þegar suðr frá dregr og niðr að ánni. þeir Flosi hafa
því, eins og eðlilegt var, hörfað suðr með ánni milli hennar og
Möðruvellingabúðar; þá gætti áin þeirra á eina hlið. Nú er það
fyrsta búðin, sem sést á þessu svæði, sem eg hefi sett við nafnið
Möðruvellingabúð; hefi eg fœrt þessa búð til á Alþingisstaðnum
sem næst stöðu hennar; þó má vera, að hún sé heldr nærri ánni.
Eftir því sem mér virtist þar vera, hygg eg, að þar muni hafa ver-
ið stór fornbúð, enn, eins og búðin nú lítr út, er hún marghlaðin
upp og minni, og enda tvær yngri búðartóttir hvor við hliðina á
annarri.
J>egar þeir Flosi vóru komnir til Möðruvellingabúðar, þá seg-
ir sagan, k. i45163> hl- 815: „hörfuðu þeir þá til Vatnsfirðingabúðar.
þ>eir Ljótr ok Hallr gengu þá austan yfir á með flokk sinn allan“.
Flokkarnir höfðu skifzt snemma í bardaganum og Hallr hörfað í
brott fyrir atgöngu þeirra feðga Ásgríms og þ>órhalls, „sneru þeir
(Hallr) ofan fyrir austan öxará“, enda sagði Hallr, sem hann og
gjörði, að hann myndi leita liðs í búðir Austfirðinga til að skilja
þá, og segir Hallr þá við Ljót son sinn : „skalt þú bíða við brúar-
sporðinn, enn ek mun ganga í búðir ok biðja mér liðs“ bl. 8n.
þ>að sést ljóslega, að þegar þeir Flosi vóru við Vatnsfirðingabúð,
þá gengu þeir Ljótr og Hallr austan yfir á, sem fyrr segir; og
þar mœttust þeir; sést af því, að Vatnsfirðingabúð er næsta búðin
fyrir vestan ána norðr frá brúarsporðinum, eins og eg hefi sett
hana á Alþingisstaðinn. þ>eir Flosi hafa því einlægt hörfað suðr
með ánni milli hennar og búðanna, þvíað þegar hér er komið sög-
unni, segir k. i45169, bl. 816: „þ>eir f'losi hörfuðu nú upp uiii Yatns-
íirðingaMð“. Fyrir ofan Vatnsfirðingabúð hætti bardaginn. þ>að
er þvert á móti orðum Njálssögu, að þeir Flosi hafi hörfað suðr
með berginu fyrir ofan búðirnar, þar sem beinlínis er tekið fram,
að þeir hörfuðu suðr með ánni og upp um Vatnfirðingabúð, eins
og áðr er sagt. Af þessu sést, að þessar búðir eru alveg ákveðn-
ar, enn um fleiri búðir á þfingvelli þori eg eigi að svo stöddu að
segja með vissu, fyrr enn kemr fram. á Sturlungatíð, enn út í það
fer eg eigi að sinni.
þ>að er að segja um hina stóru búð, er eg gróf fyrst upp,
sem er fyrir vestan traðirnar í þfingvallartúni, að eg get eigi séð
neitt á móti því, sem „Katastasis“ bendir á, og enda munnmæli
segja, sem eg hefi sjálfr heyrt, að hún hafi verið búð Flosa til forna ;
enn síðar verið kölluð Gyrðisbúð eða byskupabúð og að hún hafi
verið nálægt búð Síðuhalls, sem var mágr Flosa og vinr. Kata-
stasis segir líka, að búð Síðuhalls hafi verið fyrir austan á skamt
frá Flosabúð. Njálss. segir og, eins og áðr er sagt, að búðir Aust-
firðinga hafi verið fyrir austan á. Eg finn enga ástœðu til að rengja
Katastasis, þar sem henni ber saman við hinar beztu sögur vorar