Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Blaðsíða 56
50
ið í hug, að hér kynni að hafa verið karlmaðr og kvenmaðr sam-
an, þar sem hér fundust 23 glertölur og enda fleiri, minnir mig,
sem ókomnar eru, og þær eru eitt einkenni á kvenbúnaði; enn ekki
gat þ>orsteinn bóndi gefið mér neina bending um það ; skal eg því
láta þetta ósannað að svo komnu1. [Eg hefi nefnt spennu þessa
aflanga kúpuspennu, til aðgreiningar frá þeim, sem hafa annað lag.
Svíar kalla þær „de ovale spánnbucklarne“, og Danir „de skaal-
formede Spænder“. Nafnið verðr að vera líkt, þar sem þær eru
svo líkar innbyrðis].
12. Ilaftala lík og nr. g, nema nokkuð minni, og nokkur brot
af annari mjög lítilli.
13. Fiium jál’llbrot lítil af einhverju þunnu, hið stCErsta kúpu-
myndað; verðr ekki séð af hverju það er.
14. Jaxl úr manni, enn ekki nema ofan af (krónan); neðri
partinn eða rótina vantar. Einnig fanst lítill partr af blýi, sem
sýnist að hafa verið bráðinn.
þ>orsteinn bóndi á Brú lýsti dysinni munnlega fyrir mér, og
eg skrifaði upp eftir honum, að honum viðstöddum. þ>etta fanst á
hávu holti, þar sem er víðsýni mikið, í moldarbakka, þar sem holt-
ið var hæst; þar er kallaðr Langibakki. Tíu ára gömul stúlka
fann fyrst spjótin, þar sem þau vóru að blása upp, og síðar fann
hún öxina. þ>á fór þ>orsteinn bóndi að leita, og fann hann alla
hina hlutina; honum virtist dysin snúa þannig: höfuð í landsuðr
og fœtr í útnorðr; öxin var til hœgri handar, enn skjaldarbólan
virtist liggja yfir höfðinu; hvernig spjótin lágu, verðr ekki sagt, því-
að barnið gat ekki gjört grein fyrir því; um tölurnar verðr heldr
ekki sagt, hvernig þær lágu, eða hitt, sem fanst. Ekkert fanst af
beinum, nema partr af höfuðskelinni og margir jaxlar. Enn fyrir
beinalaginu virtist honum sjást í moldinni, eftir þeirri stefnu, sem
áðr er sagt. Enginn steinn fanst í dysinni, og getr það ekki á
annan hátt skilizt, segir hann, enn að áðr hafi verið jarðvegr yfir
holtinu og því engan stein að fá.
Eg þarf ekki að taka það fram, að þessi merkilega dys er
frá heiðni. Hún gefr nýjar bendingar, sem ekki hafa komið fyrr
fram hér á landi. þ>að hefði verið gaman og jafnvel gagnlegt, að
vera þar viðstaddr, þegar hún fanst, til að geta séð alt ásigkomu-
lag dysjarinnar og hvernig hlutirnir lágu.
23. nóvbr. 1879 kom Hannes J>orsteinsson frá Brú, sonr J>orsteins
bónda, með 3 glertölur, og krónuna ofan af litlum jaxli, og 2 parta
af öðrum; þetta fanst í sömu dysinni; alls hafa þá fundizt 25 tölur
í þessari dys.
1) Dysin á Kornsá—sbr. þjóðólf 31. ár, 27. nr.—hefir einnig mátt til að
vera karldys, og þar fundust þó margar glertölur.