Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Side 17
17
Enn um mannvirkið liggr ekki allfjarri að ætla, að það kynni
að vera búðarvirki Orms Svínfellings, sem Sturlunga saga talar um
á tveimr stöðum, og hvergi á nokkrum öðrum stað sést neinn vottr
fyrir á Júngrelli; mun eg betr tala um þetta siðar, ef eg tala frek-
ara um Lögberg annars staðar.
Grefti þessum og rannsókn var lokið kl. 7 e. m., og lét eg
þá byrja á Snorrabúð, og var þar halðið áfram til kl. 9.
Miðvikudaginn 9. júní hélt eg áfram með Snorrabúð og hafði
einn mann í vinnu, og var kl. 10 um kveldið lokið því, sem mér
sýndist að láta þar að gjöra.
Snorrabúð er næsta óaðgengileg til rannsóknar, þvíað marg-
hlaðið er innan í hana og seinast var þar stekkr, sem öllum er
kunnugt. og var alt fult af grjóti á víð og dreif umhverfis búðina,
svo að mjög er ilt að átta sig á nokkru vissu. þó lét eg grafa
um gaílhlöðin, og rannsakaði báða enda hennar, og einkum nyrðra
gaflhlaðið ; þar virtust mér koma í ljós þrjár grjóthleðslur hver inn-
an í og upp af annari; þó þóttist eg nokkurn veginn viss um, að
eg komst út fyrir hina yztu og, ef til vill, upprunalegu hleðslu,
sem hið djúpa ræsi sýnir, er eg lét grafa um gaflhlaðið að utan
eða þessa hleðslu. Sama er að segja um hið vestra gaflhlað, er
veit inn í gjána, að þar sýnast vera þijár hleðslur á sama hátt, og
er þar einnig grafið djúpt ræsi fyrir utan. Hliðveggi búðarinnar
fann eg ekki ástœðu til að rannsaka alla, því að eg hygg, að hin
upprunalega hleðsla sé þar horfin. Lengdin á Snorrabúð mæld á
yztu hleðslur, er nú verða fundnar, er 70 fet. Breidd mæld á yztu
hleðslu nærri austrgafli, þar sem eg fann hliðarhleðslu, er, að því
er mér virtist, 30 fet. J>ess skal getið, að á búðum þeim, sem eg
hefi grafið upp hér á þúngvelli, eru gaflhlaðshleðslurnar ytri meira
og minna hálfhringmyndaðar.
Fram undan ytra gaflhlaði Snorrabúðar sýndist vera mann-
virki af grjóti og torfi, og hlaupið mjög fram niðr eftir berginu,
enn þó allþykt, og stingr svo í stúf, er því sleppir, að þar er berg-
hellan ber fyrir neðan. J>etta • sýnist því hafa verið virki fram
undan búðinni, og er nú 24 fet frá yztu hleðslu austrgaflhlaðs búð-
arinnar út á brún þessa virkis, eins og það nú kemr fyrir sjónir.
Neðri brún á jarðbálki þessum lét eg rannsaka og leita hleðslu
þar á 25 feta löngu bili, og virtist mér eg komast að þeirri niðr-
stöðu, að hér hafi verið hleðsla, hversu mjög sem hún er nú úr
laginu gengin. þ>ess skal og getið, að þetta mannvirki fram und-
an Snorrabúð er miklu meira aflagað enn hleðslan á gjábarminum
þar skamt fyrir framan, og sýnist því vera miklu eldra. Annars
er það ætlan mín, að Snorrabúð sé hin sama og Virkisbúð í Njáls.s.,
enn Hlaðbúð hygg eg vera alt annað, og skal eg á öðrum stað
fœra rök að því. Engin önnur búð þar í skarðinu enn þessi hefði
2