Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Side 75
75
mig', að hann sé kallaðr blótkelda. Eg byrjaði gröftinn við eystra
gaflinn og gróf neðra vegginn fyrst; kom eg þar fljótt ofan á mikla
grjóthleðslu; siðan gróf eg fyrir báða enda og svo efra vegginn;
hafði eg líka aðferð á þessu og á búðunum á þ>ingvelli, einkann-
lega þeirri fyrir austan traðirnar, þannig að eg gjörði bera alla hleðsl-
una að utan, sem víða var mjög hlaupin í sundr; því næst gróf eg
að utan niðr fyrir allar undirstöður, og svo djúpt ræsi umhverfis
báða enda og neðra vegginn. Yið efra vegginn, einkannlega í mið-
junni, fann eg enga steina í ytri brún veggsins, og hefir það varla
verið svo upprunalega, enn í neðra veggnum og göflunum var þar
á móti mikil grjóthleðsla, sums staðar tveföld, þreföld og fjórföld,
og vlða stórir steinar, enn hleðslan var öll meira og minna hlaup-
in í sundr, einkum þar sem undan brekkunni vissi og eystra gafl-
inum. fegar eg hafði þannig grafið upp tóttina að utan, gróf eg
hana einnig alla að innan á líkan hátt alt niðr í hið upprunalega
gólf. Moldunum öllum lét eg kasta út úr tóttinni og út fyrir ræs-
ið í kring, gólfið í afhúsinu lá miklu dýpra enn í aðaltóttinni,
meira enn alin lægra; gólfið í afhúsinu var alt steinlagt, enn ekki í
aðalhúsinu. Lét eg hreinsa moldina þar nákvæmlega burtu, svo
að öll minstu einkenni kómu greinilega í ljós. þ>egar eg þannig
hafði grafið út alla tóttina utan og innan, svo nákvæmlega sem
mér þótti þurfa, tók eg mynd af henni, eins og hún þá leit út.
Fylgir sú mynd hér með. Áðr hafði eg tekið nákvæma mynd af
henni, eins og hún leit út, áðr enn byrjað var að grafa hana, enn
sú mynd er eigi prentuð. Öll tóttin, þegar hún hafði verið grafin,
var 57 fet á lengd út á ytri hleðslur og 17 fet á breidd; afhúsið
er 17 fet á lengd, og þannig er það ferskeytt. Eg lét standa eftir
miðhrygginn á veggjunum alt í kring, nl. grasrótina, eins og mynd-
in sýnir. Aðaleinkenni á þessari tótt er veggrinn milli aðaltóttar-
innar og afhússins. Á honum hafa engar dyr verið, enn breið
grjóthleðsla undir veggnum og einkannlega grjótbálkr þeim megin,
sem inn í afhúsið veit og í horninu og með hliðveggnum neðra.
Grjótbálkr eða stalli er í miðju afhúsinu, sem gengr fram frá efra
veggnum. Tvennar dyr eru á tóttinni; aðrar á aðalhúsinu á neðra
hliðvegg nær eystra enda, enn hinar á afhúsinu, sömuleiðis á neðra
vegg nær vestra gaflinum gagnvart stallinum; inngangrinn í þær
dyr virðist að hafa verið steinlagðr. Tóttin er nokkuð hringmynd-
uð fyrir endana, einkannlega hinn eystra. Aðalhúsið frá neðstu
hleðslu og upp á veggja brún við neðri hliðina að utan og gaflinn
er víða 2% al. á hæð; afhúsið er á þriðju alin að innan frá gólfi
og upp á veggjabrún, þar sem það er hæst, sums staðar 2 ’/2 al.,
og sums staðar nokkuð minna. Stallinn er um eina alin á hæð; hann
er annars nokkuð úr lagi genginn. Steinaröð eða lítill bálkr er
fyrir framan stallann á móti dyrunum. Lítr svo út, sem hann hafi