Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Page 104

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1880, Page 104
104 2 faðma á dag af álnar breiðum og 2‘/2 álnar háum grjótgarði. Verða það 120 teningsfet á dag. Ganga þá til hleðslunnar einnar rúm 100 dagsverk. En við þetta verðr að leggja tafir við að viða að grjóti. Reyndar þarf óviða að sœkja grjót langt að, enn samt sem áðr þarf þó mikinn tíma til að ná því upp og einkum til að leggja það upp i hendrnar á þeim, sem hlaða. Eins og áðr var getið, eru sumar hellurnar afarstórar, og hefir það verið mikið verk, að koma þeim upp á garðana, þegar þeir fóru að hækka, þar sem þeir hafa sums staðar verið meira enn 1 x/2 mannhæð. þ>að mun því varla of mikið í lagt, þó að menn gjöri allar þessar tafir jafn- mikið verk og hleðsluna eða 100 dagsverk, og verðr þá alt mann- virkið 200 dagsverk. Eg hefi áðr tekið það fram, að enginn efi gæti á því leikið, að þessir miklu grjótgarðar, sem hlaðnir eru á klettabrúnunum, sé víggirðingar. í>etta sést ljóslega á því, að merki sjást til hleðslu alls staðar, þar sem hœgt er að komast upp, enn hvergi, þar sem hamrarnir eru þvergníptir af náttunni. Auk þess eru garðarnir víða þannig hlaðnir, að auðséð er, að þeir hafa átt að varna mönn- um upp að neðan, enn eigi að verja mönnum eða skepnum niðr af virkinu, þvíað hleðslan er allvíða — einkum að norðan og austan — hlaðin ofan með klettabrúninni til þess að gjöra hana þvergnípta, enn nær þá lítið eða ekki upp fyrir klettabrúnina sjálfa; með þessu móti verðr örðugt að komast upp, enn ef garðarnir hefði átt að varna lifandi skepnum ofan, þá hefði garðarnir eflaust verið hlaðnir uppi á klettabrúninni sjálfri. Eg get þessa af því, að eg hefi heyrt merkan mann geta þess til, að garðarnir mundu, ef til vill, vera varnargarðar fyrir sauðfé, sem haft hefði verið uppi á virkinu, og má bœta því við, að mjög virðist óþægilegt aðstöðu fyrir fé uppi á virkinu, og líka örðugt, að koma skepnum þar upp. þ>að virðist enn fremr mega fullyrða, að virkið hafi aldrei ver- ið haft til vetrarsetu, þvíað uppi á virkinu er mjög stórviðrasamt, og tóttarveggirnir inni í virkinu, sem virkismenn sjálfsagt hafa bú- ið í, svo skjóllausir, að óhugsanda er, að menn hafi getað sofið í þeim náttlangt í grimdarfrosti, hversu harðgjörvir sem menn ímynda sér að forfeðr vorir hafi verið. Nú sem stendr má víða sjá í gegn um veggina, og þó að þeir hafi verið nokkuð skjólbetri, þegar þeir vóru nýhlaðnir, enn þeir eru nú, þá má þó geta nærri, að blásið hefir og jafnvel fent inn í gegnum þessa veggi, þar sem hvorki hefir verið neitt lím né torf milli steina. f>að er auðvitað, að þeir, sem vörðust í virkinu, hafa hlotið að hafa vörðu úti allt í kring um virkið nótt og dag, til þess að geta verið öruggir gegn árásum; enn það virðist mjög ólíklegt, að nokkrir menskir menn hafi þol- að að standa úti alla nóttina í grimdarfrosti og blindbyl, sem ávalt má búast við á vetrardag, einkum þar sem svo hátt ber á. Eg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.