Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Blaðsíða 10
10
aftur, að 900 danskir ferhirningsfaðmar eða ein dagslátta eftir því,
sem nú er talið, er jöfn 9 sinnum 121 ferh.málföðmum
eða =....................................... 1089 □ málfaðmar.
Nú var hin forna dagslátta.................. 900 □ málfaðmar.
Verður þá munurinn..........................189 □ málfaðmar.
Ef miðað er við hina fornu dagsláttu, munar þetta hjer um bil 5,
eða þó ríflega það.
Ef málfaðmur er talinn 3 »Hamborgarálnir«, verður hann sam-
kvæmt Búalögum og sögn Páls Vídalíns jafnlangur og hinn forni
málfaðmur og jafn S1/^ alin hinni fornu. Enn hin forna venja, að
telja 3V2 alin í hverjum málfaðmi, var svo rík, jafnvel eftir það að
»Hamborgaralinin« hafði rutt sjer til rúms, að mörgum hætti til að
halda henni áfram, þó að alinin hefði lengst, og telja 3x/2 »Ham-
borgaralin« í hverjum málfaðmi, einkum ef þeir höfðu hag af því.
Ef miðað er við hinn forna málfaðm, verður þessi níi málfaðmur,
sem kalla mætti »Hamborgarmálfaðm«, sjöttungi stærri enn hann. Ef
vjer köllum hinn forna málfaðm M sem áður, og »Hamborgarfaðm-
inn« H, verður
H = 7/e M; af því leiðir:
H* = 49/g6 m2, eða, sem er sama
36 Ha = 49 M2,
þ. e.: 36 Hamborgar-málfaðmar ferskeittir eru jafnstórir og 49 fer-
málfaðmar.
Ef vjer nú margföldum með 25 beggja megin við jafnaðar-
merkið í síðustu líkingunni, fæst:
900 H2 = 1225 Ma,
þ. e. 1 dagslátta mæld með Hamborgarmálfaðmi er jöfn 1225 fer-
málföðmum fornum, eða 325 fer-málföðmum fornum stærri enn hin
forna dagslátta, og munar þetta rúmlega þriðjungi fornrar dagsláttu,
sem »Hamborgardagsláttan« er stærri.
Páll Vídalín tilgreinir tvö merkileg dæmi frá sínum tímum um
það, hvernig fór, þegar menn tóku að beita fyrir sig þessum »Ham-
borgarmálfaðmi« í vallarmælingum.
Túnvöllur á Hnjúki i Vatnsdal var að gamalli sögn haldinn 14
dagsláttur. Einhvern tíma á firstu árum 18. aldarinnar var hann
vaðdreginn með »Hamborgar-málfaðmi« og reindist þá ekki meira
enn 10 dagsláttur. Eftir þessu verður 1 Hamborgardagslátta jöfn
12/ó fornri dagsláttu eða tveimur flmtungum fornrar dagsláttu stærri.
Kemur þetta mjög vel heim við þann mismun, sem áður var fund-
inn (rúmlega 1/B), enn þó er munurinn ofurlítið stærri, sem hlitur að
stafa frá ónákvæmri mælingu.