Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1910, Qupperneq 12
12
meðalhæð íslenskra karlmanna. ■ Hann telur hana 3 Hamborgarálnir
= 655/ii danska þumlunga = 171, 192 sentímetra. Út úr þessum
tölum fæst síðan lengd hinnar fornu álnar með því að deila þeim
með 3'/2 (sbr. áður).
Enn er grundvöllurinn áreiðanlegur ? Tákna þessar tölur hina
sönnu meðalhæð islenskra karlmanna? Eflaust fara þær mjög nærri
hinu rjetta, enn tæpast eru þær alveg nákvæmar, því að sönn meðal-
manshæð verður ekki fundin öðru vísi ennmeð því að mæla mjög marga,
helst alla, fullvaxna íslenska karlmenn, og taka síðan meðaltal af öll-
um hæðunum; enn engar líkur eru til, að slíkar mælingar hafl farið
fram hjer á landi, hvorki fir nje siðar. Það virðist því liggja í aug-
um uppi, að meðalmanshæðin er sett nokkuð af handahófl, bæði hjá
Páli Vídalín, er hann setur hana 3 »Hamborgarálnir«, og í Jónsbók,
er telur hana hálfa fjórðu alin þeirra tíma. Hjer verður því aldrei um
annað enn handahófsreikning að ræða. Enn handahófið mundi þó verða
nokkru minna enn ella, ef vjer gætum ákveðið meðalmanshæðina með
fullri nákvæmni. Það getum vjer nú því miður ekki sem stendur af því
að mælingar vantar Enn samt er það skoðun mín, að Páll hafi
gert meðalmanshæðina heldur lága. Meðalhæð Norðmanna, sem vjer
erum skildastir, mun vera heldur ifir enn undir 172 sentímetrum.1)
Ef vjer gerum meðalhæð íslendinga 172 sentímetra = 65,76 (rúm-
lega 653/4) danska þumlunga, higg jeg, að það fari nær hinu rjetta
enn tölur Páls Vídalíns, og munar þó ekki miklu. Lengd hinnar
fornu álnar fæst þá með því að deila þessum tölum með 3V2, og
verður = 49,143 sentímetra = 18,79 dauskir þumlungar. Munurinn
á þessu gildi og því, sem Páll fann, er að eins 2,34 millimetrar =
rúmlega l2/3 (1,68) línu. Að minsta kosti virðist mega telja alveg
víst, að hið sanna gildi hinnar fornu álnar sje einhvers staðar á
milli hinna fundnu gilda, ekki lægra enn 48,909 sentímetrar (P. V.)
og ekki hærra enn 49,143 sentímtr., og hallast jeg þó helst að hærra
gildinu og hef það firir satt hjer á eftir.
Eins og áður var tekið fram, táknar orðið öln eða alin upphaf-
J)Á árunam 1898—1902 var meðalhæð norskra niliða, 22 ára að aldri, 170,1
sentímetrar (Andr. M. Hansen, Landnám i Norge, 236. hls.). Enn þessir menn eru
ekki fullvaxnir. Eftir Eanke, Der Mensch, Leipz. 1890, II 121. bls. eru Norðmenn
ekki fullþroska, fir enn þeir eru hálfþrítugir. Ranke telur meðalhæð „Skandinava11
171,35 sentimetra, enn af þeim eru Norðmenn hávaxnastir, Danir og Sviar talsvert
lægri, og draga þeir meðaltalið niður á við. í Meyers Konversationslexikon undir
orðinu Mensch eru Norðmenn taldir að meðaltali 172,7 sentimetr. á hæð, Sviar 170
sentímetrar og Danir 169 sentimetrar. Andr. M. Hansen segir i Folkepsykologi 2.—3.
bls., að menn sjeu ifirleitt mjög háir í „langhöfða“-sveitum, 172 sentímetrar og þar
ifir, enn talsvert lægri, undir 170 sentímetrar, í „stutthöfða“-sveitum.